Morgunblaðið - 14.06.1992, Síða 25
MÓRGUNBLAÐIÐ
VELVAKANDIs
DAGUR 14. JÚNÍ 1992
C 25
KÖTTUR ÚTI í MÝRI
Morgunblaðið/KGA
Aga- o g virðingarleysi
Frá Lindu Ósk Símonardóttur:
Atvinnuleysi. Orð sem er okkur
alltof kunnugt. Ekki bara á íslandi
heldur einnig um allan heim. Málið
er bara það að svo lengi sem við
erum búsett á íslandi varðar það
okkur lítið hvort fólk í öðrum þjóð-
um sé án atvinnu eða ekki — að
minnsta kosti svo lengi sem við
höfum það gott. Við höfum sjálf-
sagt nóg með okkur en samt sem
áður fínnst mér okkur vera einu
ábótavant.
Ég er fædd og uppalin á íslandi
og er hreinræktaður fslendingur.
En ég, eins og svo margir aðrir,
barst með straumnum áleiðis yfir
haf og hef verið búsett í Noregi í
um það bil eitt og hálft ár. En það
sem ég sé í dag sá ég ekki fyrir
tveimur árum.
Það sem mér finnst vera ábóta-
vant á íslandi er skortur á aga og
virðingu fyrir sjálfum sér og um-
hverfi sínu. Ég á að heita fullorðin
manneskja en þegar ég lít til baka
er ekki langt síðan ég var „fullorð-
inn unglingur“. Ég varð fullorðin
á einum degi fyrir nákvæmlega tíu
mánuðum og samtímis breyttust
skoðanir mínar á lífinu gjörsam-
lega og mér finnst ég vita í dag
miklu meira nú. Hvað er það sem
við íslendingar gerum frá fimmtán
ára aldri og upp í tuttugu? Jú,
maður hefur þrjá til fjóra mögu-
leika og ef við gerumst víðsýnari
eru möguleikarnir fleiri. T.d. halda
áfram í skóla, fara að vinna — við
stelpurnar getum farið að huga
að því að stofna heimili og vera
heimavinnandi — og það sem er
verst; að vera atvinnulaus! Þessi
fyrrnefndu fimm ár eru mjög mikil-
vægur kafli í lífinu. Það sem mað-
ur gerir og ákveður að maður skuli
gera getur mótað líf manns algjör-
lega. Við Islendingar erum öllu
góðu vanir og höfum einstaklega
gott velferðarkerfi. En berum við
virðingu fyrir þessu velferðarkerfi
og notum við okkar réttindi á rétt-
an hátt? Það er ljót staðreynd að
ýmsir eiga ótrúlega auðvelt með
að uppgötva auðvelda aðferð til
að verða sér úti um einfalt lífsvið-
urværi. En það er alls ekki ein-
göngu ungt fólk sem notfærir sér
þetta. Og svo lengi sem maður ber
ekki ábyrgð á neinu nema sjálfum
sér getur verið þægilegt að lifa á
kerfinu og hafa lítið fyrir hlutunum
sem verður því miður alltof oft að
vana og kemur jafnvel niður á
öðrum sem virkilega þurfa á hjálp-
inni að halda. En af hverju ekki
kenna fólki að bera ábyrgð — ekki
bara á sjálfu sér heldur öllu því
sem nærist og hrærist í kringum
það? Að bera enga ábyrgð gefur
líka til kynna agaleysi og litla virð-
ingu fyrir lífinu. En hinkrum að-
eins — ég er alls ekki að segja að
maður eigi að taka á sig öll vanda-
mál nágrannans, en það er meira
sem spilar inní. Glæpir, alkóhól-
og eiturlyfjavandamál bera glöggt
vitni um skort á þessum fyrmefnd-
um þremur atriðum. Og þótt það
sé ekki það sem leiðir til þessara
vandamála hefur það mikið að
segja. Afvötnunarheimili og AA-
samtök, góð fjölskylda og vinir eru
ekki nærri því alltaf nóg til að
spoma við og koma í veg fyrir
þessi vandamál — ofbeldi leiðir
bara til ofbeldis og að neyða fólk
ber engan árangur. En það er til
millivegur. Hafið þið heyrt eða séð
ráðvillt ungt fólk sem á í erfiðleik-
um með að velja sér lífsbraut?
Kannski þú þekkir einn slíkan.
Eins og ég nefndi fyrst erum við
ekki ’eina þjóðin sem á við þetta
að stríða en flestar aðrar þjóðir
hafa þó einn máta til sem hefur
mikið að segja fyrir ungdóminn
og hefur óneitanlega bjargað
mörgum fallegum, hraustum og
efnilegum strákum frá villuvegum.
Einmitt — svolítið sem heitir þegn-
skylda. Nú megið þið ekki halda
að ég sé að ræða um eitthvað sem
ég veit ekkert um því ég er ein
af þeim sem hef gegnt herþjónustu
sjálfviljug og það hefur bara gert
mér gott. Hér í Noregi eru allir
ungir strákar kvaddir til herþjón-
ustu og þeir taka því flestir með
jafnaðargeði. í þeim tilfellum sem
einhver neitar að gegna skyldu
sinni, er til borgaralegur her og
þar getur maður valið um nokkra
hluti, sjúkraþjónustu, barnaheimili
o.s.frv.
Við erum fámenn þjóð og í raun
bara dropi í hafinu en ástandið í
heiminum er óöruggt. Ég vil ekki
bara standa hjá og horft á aðgerða-
laus ef eitthvað er í rauninni hægt
að gera og það var líka þess vegna
sem ég skráði mig í norska herinn.
Nú hugsið þið kannski sem svo að
við höfum jú bandaríska herinn
sem verndar okkur og þótt við
kæmum á fót litlum her hefði það
ekkert að segja. En það er nefni-
lega ekki aðalmálið. Málið er líka
það að hafa þegnskyldu sem getur
bætt úr þessu agaleysi og virðing-
arleysi um leið og maður gegnir
hlutverki sem er mikilvægt. Ef við
kæmum á fót þegnskyldu sem
væri mótuð af aga og vinnusemi
gæti íslenski ungdómurinn lært
mikið, gert sitt gagn fyrir þjóð-
félagið. Kannski það að komast í
réttan og góðan félagsskap þar
sem allt einkennist af því að hjálpa
nágrannanum, bera virðingu, sýna
tillit og vera agaður, gæti forðað
mörgum frá villuvegum. Er ekki
eins gott og jafnvel betra að við
vinnum svolítið fyrir atvinnuleysis-
bótunum og félagsmálastyrkjunum
í staðinn fyrir að vera aðgerðalaus?
Ég geri mér fulla grein fyrir því
að þetta myndi kosta mikil útgjöld
fyrir íslenska ríkið til að byija með
en til lengri tíma litið gæti þetta
borgað sig fjárhagslega fyrir þjóð-
ina og stuðlað að hraustum og
frískum ungdómi. Við höfum þau
einkunnarorð í hernum að raun-
verulega víman sé í einstaklingn-
um sjálfum — leitið bara og þér
munuð finna. Þetta er kjarni bréfs-
ins þó að ykkur finnist það eflaust
skrýtið sjónarmið, en það sem
maður þekkir ekki fínnst manni
oftast skrýtið.
LINDA ÓSK SÍMONARDÓTTIR,
KORPORAL WIIUM
3509 Helgelandsmoen Noregi
Pennavinir
Tíu ára piltur með fallega rithönd
skrifar á ensku frá Sri Lanka. Safn-
ar frímerkjum, límmiðum og póst-
kortum. Hefur mikinn hjólreiðaá-
huga en segist líka hrifinn af ís-
Iandi og vilji því eignast pennavini
hér:
Hasitha Liyanage,
Shanthi,
Ganegama-East,
Baddegama,
Sri Lanka.
Tvítugur þýskur frímerkjasafnari
með áhuga á knattspymu, landa-
fræði, ferðalögum og bréfaskrift-
um:
Tino Zwick,
Freiberger Strasse 14,
D-9216 Siebenlehn/Sachsen,
Germany.
Bandarískur 31 árs karlmaður
vill skrifast á við 18-30 ára stúlk-
ur. Hefur áhuga á íþróttum, tón-
list, ferðalögum og að skemmta sér:
Michael Martin,
P.O. Box 16,
Winnebago,
Wisconsin 54985,
U.S.A.
Norskur stúdent, 21 árs að aldri,
með áhuga íþróttum, tónlist, úti-
veru og ferðalögum. Vill skrifast á
við 17-23 ára stúlkur:
Jorn Erik Bugge,
Vækeroveien 124 F,
0383 Oslo 3,
Norge.
J|M€4| Golfáhugafólk
i n t Fasteign á Spáni
UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI
Dagana 17.-24. júlí nk. býður MASA International golf-
áhugafólki til fasteignaskoðunar á Spáni. Þeir sem hafa
áhuga á að eignast eigin íbúð eða hús, geta nú komist í
ferð þessa. Dvalið verður á eigin hóteli MASA Int. og er
fæði innifalið. Takmarkað sætaframboð, 26 sæti. Hafið
samband við Heimsferðir hf., Austurstræti 17, s. 624600,
varðandi flugið og MASA umboðið á íslandi, s. 44365,
varðandi hótelbókunina.
umboðið á íslandi,
INTERNATIONAL
Starhólma 2, 200 Kópavogi, s. 44365.
Fyrir börnin
Full búð af fallegum fötum
fyrir 17. júní.
Komið og gerið góð kaup.
Staðgreiðslu-, ömmu- og
afaafsláttur.
Opið laugardag kl. 10-16.
x & z
barnafataverslun,
Skólavörðustíg 6b,
gegnt Iðnaðarhúsinu,
sími 62 16 82.
miTSUSHIBR
OGOLF
Empress-dömusett (graphite)
Empress dömukylfurnar eru ekki bara styttri en
herrakylfur heldur sérhannaðar dömukylfur.
Fullt sett með poka og tösku á kr. 87.980,-
utiuf
mtmssmessm
GLÆSIBÆ - sími 91 - 812922
■■■■■■■■■■■■