Morgunblaðið - 19.07.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.07.1992, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1992 Óli var kallaður til liðs við Val í Evrópukeppninni 1989, þegar Einar Þorvarðarson forfallaðist. Eins og sjá má var kempan ekki dauð úr öllum æðum. eftir Guðna Einarsson NAFN ÓLAFS Benediktssonar, Óla Ben., var letrað stórum stöfum í fyrirsögnum á íþrótt- asíðum blaðanna og lýsingarorðin gjarnan í hástigi. Hetjan í markinu var í raun ósköp venjulegur ungur maður sem kunni öðrum betur að grípa bolta. Hann var ekki að fullu viðbúinn mikilli athygli og álaginu sem fylgdi því að vera í fremstu röð. Með frægðinni og framanum komu skuggar ofdrykkjunnar. Óli hafði ekki fyrr unnið varnarsigur yfir Bakk- usi en við tók tvísýn barátta við myrkvun hugans. Þeim erfiða slag lauk með sigri. Nú lítur Óli lífið björtum augum. Oftar en ekki lauk brenn- heitum sóknarlýsingum íþróttafréttamanna með því að þeir æptu á sprungumörkum raddsviðsins: „ ... og Óli ver!“ Ókunnugir hlust- endur áttu það til að spyija hver hann væri þessi Óliver sem ylli slík- um hugaræsingi. Maðurinn var Ólaf- ur Benediktsson, einn fræknasti markvörður íslensks handbolta og lykiltannhjól í „Mulningsvél" Vals á áttunda áratugnum. Óli var orðinn 17 ára gamall þeg- ar hann fór að æfa handbolta með félagsliði. Hann byrjaði með 2. flokki Víkings en fylgdi félaga sínum fljót- lega yfir í Val. Þar hófst ferillinn fyrir alvöru. „Með Val fór ég að spila í markinu og negldist þar fast- ur. Það leið ekki nema rúmt ár frá því að ég byijaði að æfa og þar til ég spilaði minn fyrsta landsleik. Þetta gerðist allt svo hratt. Ég fór til Finnlands með unglingalandslið- inu 1970 og þar urðum við Norður- landameistarar í unglingaflokki. Fyrsti leikurinn með landsliðinu var gegn Dönum hér heima árið 1971. Þeir voru erkifjendurnir. Við sigruð- um í þessum leik og það var í annað skiptið sem Isiendingar unnu Dani í handbolta. Það lukkaðist allt og mér gekk mjög vel í þessum fyrsta leik, ég held að ég hafi varið ein þijú víta- köst,“ segir Óli. Ólafur Benediktsson markvörður segir frá handbolta, áfengisneyslu, svartnætti hugans og trúarreynslu. Það kom fyrir að Óli Ben. missti augnlinsurnar í hita leiksins. Þá þurfti að stöðva leikinn meðan lins- urnar voru settar i markvörðinn. íþróttafréttamenn gátu ekki orða bundist eftir þennan fyrsta landsleik Óla. í Alþýðublaðinu 5. apríl 1971 var breiðsíðufyrirsögn: „Ólafur sigr- aði Dani“. í inngangi fréttarinnar segir: „Það er ekki oft sem nýliðar slá í gegn í sínum fyrsta leik, en á því eru þó stundum undantekningar. Þijúþúsund áhorfendur í Laugardals- höllinni urðu vitni að slíkri undan- tekningu í gær. Hinn ungi markvörð: ur úr Val, Ölafur Benediktsson, vann hugi og hjörtu áhorfenda með frá- bærri markvörslu.“ Þjóðviljinn skrif- ar í fyrirsögn: „Danir gáfust upp gegn Olafi Benediktssyni." 0g áfram segir: „Sennilega hefur enginn ís- lenskur handknattleiksmaður leikið sinn fyrsta landsleik af öðrum eins glæsibrag og Ólafur Benediktsson, hinn kornungi markvörður úr Val, gerði í leiknum gegn Dönum sl. sunnudag." Þetta var upphafið að einstaklega glæsilegum íþróttaferli Óla allan átt- unda áratuginn. En hvað finnst Óla standa uppúr frá keppnisárunum? „Þátttaka Valsmanna í Evrópu- keppninni 1980 finnst mér eftir- minnilegust af öllum þeim keppnum og mótum sem ég tók þátt í. Við komumst alla leið í úrslit og það var alveg ógleymanlegt. Við slógum meðal annarra út sænsku meistarana Drott og spænsku meistarana At- letico Madrid. Úrslitaleikurinn var spilaður í Þýskalandi gegn Grossw- allstadt, ég var slasaður og fór bara inná í nokkrar mínútur. Við töpuðum stórt í þeim leik.“ í atvinnumennsku Leið Ólafs Benediktssonar, líkt og margra annarra íþróttamanna, lá í atvinnumennsku í útlöndum. „Eftir B-keppnina í Austurríki, þegar við spiluðum okkur upp í A-keppnina, lék ég með Olympia í Svíþjóð. Þeir voru búnir að skoða mig í Evrópu- leik hér heima. Þetta var 1. deildarl- ið og að spila sig upp í sænsku úr- valsdeildina. Ég kom beint inn í úr- slitin í 1. deild. Við unnum okkur upp og ég lék eitt keppnistímabil (1977-78) í úrvalsdeildinni. Mér gekk mjög vel þetta ár og hef aldrei átt eins jafngóða leiki og þetta tímabil í Svíþjóð," segir Óli um atvinnu- mennskuna. Á íþróttavellinum var Óli flestum snjallari að sjá fyrir brellur og flétt- ur andstæðinga. Leik eftir leik nán- ast lokaði hann markinu fyrir skotum mótheijanna. Á leikvangi lífsins gekk ekki alltaf jafn vel. Þar náðu andstæðingar stundum að skora og fyrir kom að hann gerði sjálfsmörk. „Ég á stundum erfitt með að átta mig á því hvernig hlutimir gengu upp. Mér gekk vel að keppa í Sví- þjóð en drykkjan var orðin vanda- mál. Mig vantaði aldrei á æfingar, mér gekk vel í leikjum og ég hélt mig frá vandræðum. Meðan svo var skiptu forráðamenn liðsins sér ekki af því sem ég gerði í mínum frítíma. Um þetta leyti gekk ég í gegnum hjónaskilnað og þetta var mikill áta- katími." Óli sneri heim eftir 18 mán- aða útivist í Svíþjóð. Hann fór aftur að keppa með sínu gamla félagi. Valur varð íslandsmetstari í hand- knattleik 1979 og Ólafur Benedikts- son sigraði í stigagjöf íþróttafrétta- manna Morgunblaðsins. „Minn síðasta landsleik lék ég haustið 1980 og sé í dag að miðað við aldur hætti ég alltof snemma. Óreglan fylgdi mér alla tíð og varpar skugga yfir árin í boltanum. Ég var farinn að nota áfengi ótæpilega þeg- ar ég byijaði að keppa. Það varð síst minna eftir að ég fór af stað fyrir alvöru. Framinn var skjótur og ég var engan veginn búinn undir það. Drykkjan bara versnaði með árunum en handboltinn hélt mér gangandi." I meðferð Það var Hilmar Björnsson þjálfari sem spurði Óla hvort ekki væri orðið tímabært að stemma stigu við drykkjunni. Óli hugsaði sitt ráð og í byijun árs 1981 fór hann í áfengis- meðferð á Silungapolli. Að fara í meðferð var mjög erfitt skref en ákvörðunin skipti sköpum: „Mér var farið að líða mjög illa, ég var að missa trúna á sjálfan mig og lífslöng- unina. Svartar hugsanir sóttu á hug- ann og mér fannst allt vera búið. Tilhugsunin um að þurfa að lifa án áfengis var hræðileg. Þrátt fyrir að brennivínið væri að drepa mig fannst mér það Ijósi punkturinn í tilver- unni. Ég hljóp alltaf í vínið um helg- ar, fyrripartur vikunnar var bara biðtími. Það snerist allt um að vera undir ^þrifum. Sjálfsmyndin var svo skekkt að mér fannst ég ekki maður með mönnum, nema þegar ég var undir áhrifum. Það er hrikalegt að segja þetta, en svona var ástandið." Oli eygði von í meðferðinni. Þar hitti hann menn sem höfðu bitra reynslu af ofdrykkju og enn ljótari sögu að segja en hann sjálfur. Ef til vill var hanh þá ekki alveg vonlaus. Meðferðin markaði dýpri spor en Óla hafði órað fyrir: „Þarna vaknaði leit mín eftir Guði. Ég tileinkaði mér allt í dagskránni sem viðkom honum, alveg drakk það í mig. Ég vildi trúa því að til væri Guð sem hægt væri að leita til. Samt var eitthvað sem brast í sálarlífinu og ég lenti í mik- illi sálarkreppu - algjöru svartnætti. í átta mánuði var ég frá vinnu og útlitið alls ekki gott. Margir voru gjörsamlega búnir að afskrifa mig. Eg einangraði mig og það kostaði átök að ganga út í bíl, hvað þá ann- að. Sennilega voru þetta eftirköst eftir andlegt og líkamlegt álag sem ég hafði lengi búið við. I viðbót við stífar æfingar og keppnir kom drykkjan. Læknarnir héldu að þetta stafaði að einhveiju leyti af pillu- notkun, en ég notaði aldrei lyf af

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.