Morgunblaðið - 19.07.1992, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 19.07.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1992 * C 9 esada, Beleclazars og Federmanns við Guatavita-vatn og stofnuðu borgina Bogota. Leiðangursmennimir höfðu haft mikið upp úr krafsinu í þorpum Indíána á þessum slóðum, en enga gullborg fundið. Hún hlaut því að vera annars staðar. Svo vissir voru Spánveijar um að borgin væri til að þeir gerðu tilkall til alls svæðis- ins milli Andesfjalla og fljótsins Orinoco nyrzt í Suður-Ameríku og kölluðu það E1 Dorado. Leitin í vatninu Árið 1545 reyndi bróðir Quesada, Hermann, að ná fjársjóðnum upp úr Guatavita með því að lækka vatnsborðið. Fjöldi Muisca-Indíána var hnepptur í þrældóm og látinn ausa með fötum úr vatninu. Þremur mánuðum síðar hafði vatnsborðið Iækkað um tæpa þrjá metra og nokkur hundruð gullmuna höfðu náðst — fmmstæðar fórnargjafir úr gulli eða gulli og kopar og líkn- eski af þátttakendum í trúarathöfn- unum við-vatnið endur fyrir löngu. Hermann hætti við tilraunina, þótt hún benti til þess að þjóðsagan um gullskím E1 Dorado og vatns- guðinn væri sönn og að mikið magn fómargjafa væri fólgið nálægt miðju vatninu, þar sem það var dýpst. Meiri árangur náðist 33 áram síðar þegar vínkaupmaðuinn Ant- onio Sepúlveda lét 8.000 Indíána grafa djúpan skurð til að ræsa fram vatnið. Vatnsborðið lækkaði um 20 metra og margir gullmunir, verð- mætir smaragðar og fleiri fómar- gjafir fundust, en þegar reynt var að breikka skurðinn stíflaðist hann vegna jarðhrans og hætta varð við tilraunina eins og hina fyrri. Hundr- uð létu lífíð og kaupmaðurinn varð öreigi. Á áranum 1584 til 1591 gerði Antonio de Berrio út þijá leiðangra til að finna gullborgina, sem Spán- veijar létu sig enn dreyma um. Þótt hann fyndi ekki E1 Dorado taldi hann sig hafa fundið ríki kon- ungsins í hálendi Guiana — 1600 km frá Guatavita-vatni. Ævintýra- maðurinn og skáldið Sir Walter Raleigh tók Berrio til fanga á eynni Trinidad 1592 og varð frægastur allra þeirra sem leitað hafa að E1 Dorado. Raleigh notaði kort og skjöl Berrios til að gera út tvo leiðangra upp með Orinocofljóti og lagði aleigu sína að veði til þess að standa við það heit að gera ensku krúnuna að hinni auðugustu í heimi. Hann fann ekki konungdæmi gullmanns- ins í Guiana og var hálshöggvinn 1618 eftir langa fangavist í Tower í London. Humboldt sannfærðist Þýzki landkönnuðurinn Alexand- er von Humboldt sannfærðist um það 1807 að munir að verðmæti þijár milljónir dollara lægju á botni Guatavita og var hann þó enginn rómantískur ævintýramaður eins og Raleigh. Nokkrir evrópskir kaupsýslumenn buðust til að ræsa fram vatnið eftir að Kólombía hlaut sjálfstæði 1811, en urðu allir gjald- þrota, Þótt þeir beittu nýjustu verk- frasðiþekkingu. Á áranum 1905-1909 reyndi brezkt fyrirtæki að veita vatninu burtu. Borað vora göng, sem lækk- uðu vatnsborðið, en svo mikil og þykk leðja var á botninum að ekki var hægt að ganga um hann og kanna aðstæður. Áður en uhnt reyndist að moka leðjunni burt storknaði hún í sólskininu og varð hörð eins og steinn. Afrennslið lok- aðist og vatnið fylltist aftur í rign- ingum. Borbúnaður kom að engum notum þegar hann kom á vettvang. Margir fallegir munir fundust og vora seldir á uppboði hjá Sotheby’s- fyrirtækinu í London, en félagið varð gjaldþrota 1913. Síðan hafa fleiri tilraunir verið gerðar til að bjarga fjársjóðnum úr Guatavita, en án árangurs. Árið 1924 fór Percy Fawcett ofursti frá Matto Grosso í Brazilíu í fræga leit að gullmenningu í myrkviðum Suð- ur-Ameríku. Bandarísku blaði barst skeyti frá hdnum, en síðan spurðist ekkert til hans. Talið var að fjand- samlegir Indíánar hefðu myrt hann, en Jík hans fannst aldrei. Árið 1965 friðaði stjóm Kólomb- íu Guatavita og hinni miklu leit að ijársjóðnum virtist þar með lokið. E1 Dorado hefur þó stöðugt haldið áfram að vekja forvitni og áhuga ævintýramanna, en á síðari áram hefur athygli þeirra frekar beinzt að því svæði þar sem spænsku land- vinningamönnunum og Inkum laust saman eftir að Inkar fréttu um dauða Atahualpa og földu fjársjóð þann sem þeir ætluðu að nota til að fá hann leystan úr haldi. Áhug- inn hefur aukizt við það að komið hafa í leitimar ný gögn, sem kunna að varpa nýju ljósi á þá ráðgátu hvar fjársjóðurinn kunni að hafa verið falinn. Lýsingar í dagbók Árið 1984 fann Oswaldo Garces, stjómandi leiðangursins sem fór frá Miami í byijun júlí, dagbók þýzks landkönnuðar, Egons Branners. Þjóðveijinn leitaði að ijársjóði Inka í Llangaanati-fjöllum í Ekvador í tæpa hálfa öld og lét eftir sig at- hyglisverðar vísbendingar. Dagbók- in er 80 síður og í safni Branners fundust ljósmyndir, minnisgreinar, teikningar og uppdrættir, meðal annars af stað nálægt Cerro Her- oso, „Fagrafjalli" — 5.000 metra háum tindi í Llanganati-fjallgarðin- um, einu votviðrasamasta svæði Suður-Ameríku. Nýhafín leit Garces og leiðangurs hans byggist á athugunum Brann- ers, en líklega verður ekki auðvelt að komast að leyndarmálum Llang- anati-fjalla þrátt fyrir nýtízku há- tækni. Fyrir sex áram fórst banda- rískur landkönnuður þegar hann varð viðskila við leiðangur sinn á þessum slóðum og bættist þar með í hóp fjölmargra, sem látið hafa líf- ið við leit að gulli Inka, sumir með dularfullum hætti. Þótt hljótt hafí farið hefur öldum saman varðveitzt kort meðal Inka af þessu svæði og það á að sýna hvar fjársjóðurinn er fólginn. Að lokum fékk nunna kortið í hendur og talið er að hún hafi gefíð það hollenzkum skipstjóra, en sonur hans notaði það til að greiða spila- skuld. Þjóðsögur herma að kortið sýni leið inn í Llanganati-fjöll í framskógum Ekvadors að uppþorn- uðu stöðuvatni, þar sem hinn horfna fjársjóð sé að finna í litlum og þröngum helli á afviknum stað, svo langt uppi í fjölllunum að það taki þijá daga að klífa þangað. Fundu kennileiti í maí fór Garces í könnunarferð til svæðisins ásamt 65 mönnum, þar af 40 burðarmönnum, sem rog- uðust með hátæknibúnaðinn, sem er talinn ómissandi við leitina. í hálfan mánuð reyndu þeir að finna kennileiti, sem Brunner lýsti í dag- bók sinni — ijall sem líkist konu sem hallar sér aftur, klett sem minnir á kross, stöðuvatn sem er í laginu eins og fíðrildi, jarðmyndun sem er eins og tölustafurinn 4 að lögun og hellinn með gullinu. Þeir fundu öll kennileitin — nema gull- hellinn. Þó var engu til sparað. Leitað var með innrauðum skynjuram að földum hellum í þéttvöxnum lág- skógum. Vísbendinga um fjársjóð- inn var leitað 90 metra inni í berg- inu með ratsjám, sem sjá í gegnum holt og hæðir. Auk flestra kennileit- anna í dagbók Branners fundu leið- angursmenn göng og nokkra hauga, sem sumir era eins og pýr- amídar í laginu og einn eins og hálfsamsíðingur. Stöðuvatnið, sem fannst, er lítið og virðist hafa verið gert af mannahöndum. Vel má vera að á einhveijum þessum stað hafí fjársjóðurinn verið falinn og nú verður það rannsakað betur. Margt annað furðulegt kom í leit- imar í Maqui-dalnum í Andesfjöll- um. Þar á meðal var týndur vegur, sem virðist hafa verið hluti af kon- ungsvegi Inka, sem yfírstéttin not- aði til ferðalaga. Vegurinn hafði verið hulinn sjónum í tæpar fímm aldir vegna eldsumbrota og liggur fram hjá haugum þeim sem fund- ust. Segulmælingar benda til þess að undir þeim séu mannvirki og þau verða grafín upp í sumar. í Chury Ucto fundu leiðangurs- menn helli, sem Garces telur að kunni að vera inngangur að gull- geymslu Inka. Þegar þeir höfðu klöngrazt niður rúmlega 30 metra lóðrétt göng líktist það sem fyrir augu þeirra bar sögusviði úr kvik- mynd um Indiana Jones: göng meitluð af mannahöndum, vatnslás og inngangur, sem lokað hafði ver- ið með steinum, greinilega aðflutt- um. Frekari uppgröftur er þegar hafinn. „Þetta er ævintýri að hætti Indi- ana Jones," sagði Mike Mancusi, bandarískur framleiðandi sjón- varpsþátta, þegar hann fór frá Miami til að kvikmynda leiðangur- inn. „I Hollywood hefur mörgum milljónum dollara verið eytt til að sýna það sem þama er að gerast í raun og vera.“ Lengi hefur verið talið að bölvun hvfli yfír fjársjóðnum. Garces vísar slíkum hugmyndum á bug, þótt hann yrði að liggja í hálft ár í sjúkrahúsi eftir undirbúningsrann- sóknir 1987. Hann gerir sér aðeins hóflegar vonir um að auðgast á gullinu, þótt hann fínni það, því að stjóm Ekvadors gerir tilkall til allra fommenja frá tímum Inka. „Af- staða stjómarinnar er að hún eigi gullið," segir hann. „Við viljum halda hluta þess.“ Annað og háleitara markmið býr á bak við tilraunina til að fínna Inkagullið: að varpa nýju ljósi á horfna þjóð, sem leið undir lok þótt hún stæði á háu menningarstigi. ■ ■ ” T 1 Allir ARMSTRONG dúkar með 30% aíslœtti í eina viku! ARMSTRONG dúkar eru löngu landsþekktir fyrir mýkt, styrk og fallega liti. Þeir fdst í 2, 3 og 4 metra breiðum rúllum, í fjölda lita og mynstra. ARMSTRONG dúkar eru sérhannaðir fyrir norrænan markað. ARMSTRONG dúkar fást nú með RHINOGUARD slithúð sem gefur enn betra þol gegn álagi og rispum. Við bjóðum 4 gerðir og yfir 40 liti frá ARMSTRONG. TEGUND ÞYKKT VERÐÁÐUR VERÐNÚ LÆKKU MAGNUM 4mm þykkur kr.1741.- 1a 1219.- 30% SPECTRUM 3mm þykkur kr. 1576.- kr. 1103.- 30% REFLECTION 2,5mm þykkur kr. 1576.- kr. 1103.- 30% BOUTIQUE 2mm þykkur kr. 1269.- kr. 888.- 30% Ath: ARMSTRONG dúka þarf ekki að líma!! TEPPABUÐIN GÓLFEFNAMARKAÐUR • SUÐURLANDSBRAUT 26. • SÍMI 91-681950 4- wm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.