Morgunblaðið - 19.07.1992, Síða 14

Morgunblaðið - 19.07.1992, Síða 14
14 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JUU 1992 1- AF SPJÖLDUM GLÆPASÖGUNNAR/V oru siQaspell orsök morðsins eða ágimd á auðæfum hins myrta? það var aldrei upplýst til fulls enallur málareksturinn var hinn ógeðslegasti enda gerði annar sakbomingurinn sitt til þess að um hann væri rækilega Qallað í fjölmiðlum AST EÐA LOSTI? Hér verður sagt frá morðmáli, sem margir fylgdust með á sinum tíma, meðal annars vegna þess hve það var langvinnt. Blaðamönnum fannst líka feitt á stykkinu, því að þarna var um að ræða hugsanleg sifjaspell, auk þess sem miklir peningar voru í húfi. Málareksturinn var allur hinn ógeðslegasti og gerði annar sakborningur- inn sitt tíl þess, að um hann væri rækilega fjallað í Ijölmiðlum. Voru það sifjaspeU, sem ollu morð- inu? Ást eða Iosti? Eða aðallega ágirnd á auðæf- um hins myrta? Líklega hefur þetta allt blandazt saman í eina vemmilega kös í huga morðingjanna. Candy Mossler, ákærð fyrir morð ásamt systursyni sínum (og elsk- huga?), ráðgast við veijanda sinn, Percy Foreman. Candave Grace Weatherby Mossler fæddist í Buchan- an í Georgíuríki í Bandaríkjunum árið 1914. Fjölskyldan var fátæk, en tólf ára gömul sagði hún skóla- systkinum sínum, að hún ætlaði sér að verða rík. Fimmtán ára gömul kvaddi hún foreldra og systkini og hélt ein síns liðs út í heiminn með 74 dollara og 25 cent í veskinu, sem hún hafði spar- að saman. Hún var lagleg og vel vaxin, vissi af því og datt í hug að reyna fyrir sér sem fyrirsæta. Hún fékk fljótt vinnu við að silja fyrir á myndum, þar sem skór og tannkrem voru auglýst, og smám saman hlóð þetta utan á sig. Oft skipti hún um kærasta en alltaf hafði hún lag á því að láta þá borga sem mest fyrir sig. Þannig sparaði hún sér oft húsaleigu og matarkaup og stundum lét hún þá gefa sér föt. 25 ára gömul settist hún að í New Orleans og setti á stofn eigin fyrirsætumið- stöð, sem gekk mjög vel. Hún var því orðin sæmilega efiiuð árið 1948 þegar hún, 34 ára gömul, kynntist milljónamæringnum Jacques Mossler, 58 ára gömlum. Sækjast sér um líkir Þama komst hún loks í tæri við nógu auðugan mann til þess að giftast, enda gengu þau í hjóna- band fljótlega. Þau áttu vel sam- an, því að hann var einnig fæddur í sárri fátækt og hafði strengt þess heit ungur að bijótast upp úr armóðnum. Hann var harðdug- legur kaupsýslumaður og fékkst við margt. Hann var þegar kominn í álnir, þegar olía fannst á landar- eign, sem hann hafði einmitt keypt í von um slíkt. Þar með varð hann milljónamæringur. Þegar hann kynntist Candace hafði hann selt olíufélag sitt og önnur fyrirtæki, en íjárfest eignir sínar í bönkum og verðbréfafyrirtælq'um. Hjónin lifðu lúxuslífi. Þau áttu þijú stór einbýlishús, sem þau bjuggu í til skiptis, í Houston í Texas, í Chicago í Michigan og á Miami í Flórída. Þrátt fyrir mikla eyðslu, voru eignir Jacques svo miklar, að þær héldu áfram að hlaða utan á sig. Þeim tókst aldr- ei að eyða nema hluta af arðinum. Þeim varð ekki bama auðið, en þau tóku að sér fjögur böm, sem vom systkini. Faðirinn var vit- skertur maður á geðveikrahæli í Chicago, sem hafði myrt eigin- konu sína, móður bamanna. Einkennilegt ferðalag og 39 stungur Sumarið 1964 stóð Candace á fimmtugu, en maður hennar var þá 74 ára. Aðfaranótt 30. júní vakti hún bömin fjögur, sagðist ekki geta sofið og sagði þeim að koma með sér í ökuferð og vera sér til skemmtunar. Yngsta bamið var þá ellefu ára, en hið elzta tví- tugt. Næstu klukkustundimar ók hún víðs vegar um nágrannahér- uðin, en ijölskyldan bjó um þessar mundir í Key Biscayne í Flórída. Hún stanzaði sums staðar, þar sem opið var að næturþeli, svo sem við benzínstöðvar, og keypti eitt- hvað smávegis. Einnig kom hún við í slysavarðstofu einni og bað um lyf við illkynjuðum höfuðverk. Ferðalag þetta hafði hafizt klukk- an eitt eftir miðnætti og því lauk ekki fyrr en klukkan hálffimm að morgni, þegar bömin vom orðin úrvinda af syfju og þreytu, undr- andi á þessu „skemmtiferðalagi". Þegar heim kom fundu þau Jacqu- es látinn á dagstofugólfinu. Hann hafði verið barinn í höfuðið með þungum hlut og stunginn 39 sinn- um með oddhvössu áhaldi. Ná- grannar sögðust hafa setið úti í garði langt fram eftir kvöldi og heyrt hávaða og raddir tveggja karlmanna frá húsi Mosslers-hjón- anna. Síðar hefði karlmaður farið frá húsinu. Lögreglan handtók þegar nokkra gmnaða um morg- uninn og næsta dag, en allir höfðu fjarvistarsönnun, svo að þeim var sleppt. Þjónustufólk hjónanna kom á morgnana, en var ekki lát- ið sofa í húsinu, heldur fara á kvöldin, svo að Ijölskyldan „gæti átt eitthvert einkalíf“, hafði Candy sagt, en svo var Candace oftast kölluð. Erfiðlega gekk að yfir- heyra þjónustufólkið, því að það virtist hrætt og ekki vilja segja meira en það nauðsynlega þurfti. Lögreglan fékk samt ákveðnar gransemdir. 4. júlí var systursonur Candy, Melvin Lane Powers, 23 ára gamall, handtekinn í fyrirtæki sínu í Houston í Texas. Mosslers- hjónin höfðu látið sér mjög annt um þennan pilt og frá fjórtán ára aldri hafði hann oft búið í húsi þeirra. Jacques hafði föðurlegar tilfinningar til drengsins og hafði árangurslaust reynt að koma hon- um til mennta. Þegar það gekk ekki hafði hann keypt handa hon- um smáfyrirtæki í Houston. Hjón- in höfðu nokkram sinnum skropp- ið til hans, saman eða sitt í hvoru lagi, og eins hafði hann haldið áfram að heimsækja þau og dvelj- ast hjá þeim eina og eina viku. Nú var hann ákærður fyrir morðið á Jacques og þegar lög- reglan hafði raðað brotunum sam- an, leit sagan svona út: Blóðskömm hjá góðu frænku og litla frænda? Melvin og Candy stóðu í blóð- skammarsambandi. Sifjaspellin höfðu hafizt fyrir mörgum áram, líklega níu áram, en þeim hafði tekizt að halda þeim leyndum fyr- ir Jacques þar til nú. Candy hafði átt upptökin o g misnotað sér æsku piltsins. Jacques hafði komizt að þessu fyrir skömmu „samkvæmt ábendingu áreiðanlegra aðilja" og er þá líklega átt við þjónustufólk- ið. Jacques ákvað að skilja við Candy og breyta erfðaskrá sinni í samræmi við það. Hann til- kynnti henni þetta. Hún hringdi til Melvins, sem kom þegar fljúg- andi til Flórída. Hann ákvað morð- tímann eftir að hafa ráðgazt við Candy símleiðis, drap Jacques nóttina eftir að hann kom og flaug þegar aftur til Houston. Candy fór í ökuferðina einkennilegu til þess að afla sér ljarvistarsönnunar. Blóðugt lófafar á eldhúsborðinu í húsi Mosslers-hjónanna var lófa- far Melvins. Candy beið ekki boðanna heldur réð hún hinn þekkta málflutnings- mann, Percy Foreman, til að veija Melvin. Bæði neituðu. Formleg morðákæra var gefin út á hendur báðum. Vafi lék á því, hvort fram- sal Melvins frá Texasríki til Flórídaríkis gæti talizt löglegt og þannig tókst Percy Foreman og lögfræðingum hans að þæfa málið og tefja í meira en ár. Loks kom Melvin fyrir rétt í Flórída og kvaðst saklaus. Honum og Candy var sleppt úr dómsalnum gegn 50.000 dollara tryggingu fyrir hvort um sig. Ástarbréf — eða ekki ástarbréf? Candy notaði forvitni blaða- manna (og lesenda) óspart til þess að veija sig og Melvin. Málið vakti mikla athygli langa hríð, því að viðtölin sem Candy lét blöð um öll Bandaríkin hafa við sig, fyrir réttarhöldin, meðan á þeim stóð, og lengi á eftir, era bókstaflega óteljandi. Hún var óstöðvandi í þessum viðtölum, sem era forvitni- leg fyrir margra hluta sakir. Hún var staðföst I því að þau Melvin væra blásaklaus. Hún sagðist vita hver morðinginn væri, en lögregl- an yrði sjálf að finna hann. Um síðir tókst blaðamönnum að toga. það upp úr henni, að morðinginn héti „Ted“, en frekari vitneskja fékkst ekki um hann. Hún sagði aðeins, að hann myndi gefa sig fram „ef nauðsynlegt reyndist, fremur en að láta dæma okkur saklaus“. Hún harðneitaði sifja- spellum.. „Sifjaspell milli okkar voru engin, aldrei. Hvemig dettur fólki annað eins í hug? Ég er bara venjuleg frænka, sem þykir vænt um litla frænda sinn.“ Þegar fram vora lögð ástarbréf frá henni til hans neitaði hún því, að um ástar- bréf væri að ræða. „Svona skrifa ég öllum,“ sagði hún. „Setningar eins og „ástin mín, ég elska þig, ég þrái að fá að þrýsta þér að mér, halda þér í fanginu" era í öllum bréfum frá mér til vina minna. Ég myndi jafnvel geta skrifað svona til lögfræðingsins míns. Þetta verður að skiljast eins og hver önnur myndlíking í einka- bréfi til persónu, sem manni þykir vænt um“. Blaðamennimir spurðu þá um setningu á borð við: „Hlakkarðu ekki til að láta mig snerta þig, þú veizt hvar, eins og ég ein get?“ En Candy lét ekki slá sig út af laginu og svaraði: „Blessuðum drengnum þótti alltaf svo gott að láta mig þvo sér um hárið og kemba sér með greiðu á eftir. Hann sagði að enginn gerði þetta eins vel og ég. Svona setn- ingar þýða auðvitað ekki, að ég elski móttakandann líkamlega. Hvaða endemis vitleysa er þetta eiginlega í ykkur?“ — Blaðamönn- um þótti alltaf gaman að tala við Candy. Loks hófst endanlegt réttar- hald. Það stóð í tvo mánuði. Milli 50 og 60 blaðamenn fylgdust með þeim og vora stöðugt að taka við- töl við Candy á kvöldin. Melvin var hins vegar hinn mesti dramb- ur gagnvart þeim. Dr. Joyce Brothers var þá dálkahöfundur við Hearst-blöðin og fékk að heyra nýjar upplýsingar um hinn myrta. Að sögn Candy hafði hann orsak- að eigið morð með því að vera alltaf að eltast við kynvillinga. Hann hafði verið kominn „í sorg- lega vondan og ófínan félags- skap“. Jim Bishop var þama einnig fyrir Hearst-blöðin. Hann lýsti henni þannig: „Sextíu tommur af þreklegu og sveigjanlegu smíða- jámi, smurt þykkum lögum af hunangsklístri og ástarsafa“. Var hinn myrti „portmaður“? Saksóknarinn, Richard Ger- stein, sagði morðið hafa verið framið, svo að elskendumir tveir gætu haldið sambandi sínu áfram og fengið allan auð Jacques að auki. Veijandinn, Percy Foreman, sagði fyrst, að málflutningur sak- sóknara byggðist á getgátum og líkum, en ekki hreinum sönnunum. Síðan beitti hann þeirri tækni að fjalla um alla aðra en sakborning- ana. Hann réðst á áreiðanleika og mannorð allra, sem nálægt málinu komu, þeirra á meðal hins myrta sjálfs. Jacques Mossler hefði verið hinn argasti öfuguggi og þræl- sódómísk mannskepna, sem hefði verið að kaupa sér kynvillinga í hlandportum stórborga i a.m.k. þremur heimsálfum um margra áratuga skeið. Þótt Gerstein sak- sóknari benti kviðdómendum á það, að næstum ekkert í málflutn- ingi veijanda kæmi málinu nokk- um skapaðan hlut við fór samt svo, 6. marz 1966, að kviðdómur áleit að þau ættu að vera sýkn saka. Kviðdómarar höfðu lokað sig inni í hálfan sautjánda tíma áður en þeir komu fram með dómsorðið, svo að greinilega hefur þeim þótt mikill vafi leika á um sakleysi þeirra. Sennilegast er tal- ið, að niðurstaðan hafi orðið þessi, af því að kviðdómuram hefur þótt skorta á gersamlega óyggjandi sönnunargögn og þá ber þeim fremur að sýkna en sakfella. Nokkur rannsóknarblaða- mennska fór fram vegna „Teds“, sem aldrei fannst, og vegna full- yrðinganna um meinta illa iðju hins látna í stórborga-hlandport- um um heim allan um hálfrar ald- ar skeið, en aldrei kom neitt út úr því og töldu rannsóknarblaða- mennimir að lokum, að. Jacques Mossler hefði haft eðlilega náttúra til kvenna fram undir andlátið. Blaðamennina granaði, að meira mætti hafa upp úr þjónustufólk- inu, en það hvarf allt frá Flórída og úr færi þeirra, áður en nokkuði | bitastætt væri hægt að hafa eftir því. Ættingjar Candy í Georgíú (Weatherby-fólkið) gat engar upp- i lýsingar veitt. i Slys á eiginmanni Candy erfði 33 milljónir dollara eftir eiginmann sinn. Nokkram áram síðar giftist hún rafvirkja, i sem var átján áram yngri en húnj i Bamett Wade Garrison að nafni, j Hún fékk leið á honum eftir fáein 1 ár og loks varð hann fyrir leiðin- legu slysi. Þau bjuggu þá í Hous- ton í námunda við „litla frænda", Melvin. Kvöld eitt, þegar eigin- maðurinn kom heim, hafði frúin j látið skipta um lás á öllum útidym um á heimili þeirra, sem var í stóru i glæsihúsi. Hann var köttur fimuaf . og tók að klifra upp að þriðjú hæð, þar sem hann sá opinn . glugga, en þegar hanrt ætlaði inn um gluggann féll hann af einhveij- um ástæðum aftur fyrir sig, hrap- aði niður og skall á jörðina. Drykkjufélagar hans, sem höfðu beðið þess, að hann kæmist inh og hleypti þeim inn með sér fylgd- ust með klifrinu og héldu því fram, J að stjakað hefði verið við honum að innanverðu, þegar hann ætiaði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.