Morgunblaðið - 19.07.1992, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.07.1992, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1992 C 19 MIDAVERÐ KR. 300 Á 5 OG 7 SÝNINGAR ALLA DAGA SYLVESTER STALLONE • ESTELLE GETTY EÐA HLEYPIRAF ÓBORGANLEGT GRÍN OG SPENNA Sýnd í A-sal kl. 5,7,9 og 11. TÖFRALÆKNIRINN NÆSTUM ÓLÉTT MITTEIGIÐIDAHO ★ ★★★ Pressan. Leikur Sean Connery gerir þessa mynd ógleymanlega. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Eldfjörug gamanmynd. Sýnd kl. 5,7 og 9. Bönnuð innan14 ára. Frábær verðlaunamynd. ★ ★★ Mbl. Sýnd kl. 11. Bönnuö innan 16 ára. REGNBOGINN SÍMI: 19000 ÓGNAREÐU Sýnd kl. 5,9 og 11.30. Stranglega bönnuð innan 16ára. LOSTÆTI ★ ★★ 'h Bíólínan „HRAÐUR OG SEXÍ ÓGNARÞRILLER" ★ ★★ AIMbl. ★ ★ ★ ★ S V MBL. ★ ★★★ PRESSAN ★ ★★ BÍÓLÍNAN Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuðinnan14 HOMOFABER <% SIÐLAUS... SPENNANDI... ÆSANDI... ÓBEISLUÐ... ÓKLIPPT... GLÆSILEG... FRÁBÆR. „BESTA MYND ÁRSINS'1 ★ ★ ★ ★ Gísli E. DV Tillögur SSH um tilflutning verkefna frá ríki til sveitarfélaga: Umfang starfsemi sveitarfélaga myndi aukast um 75-80% NEFND á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem undanfarið hefur unnið að því að móta tillögur um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, telur að sveitarfélögin eigi að yfirtaka málefni grunnskóla, framhaldsskóla, sjúkrahúsa (að frátöldum Ríkisspítölum), málefni heilsugæslustöðva og hafnamál auk málefna fatlaðra, aldraðra og kostnað við almenna löggæslu og þjóðvegi í þéttbýli. Ef þessar tillögur verða að veruleika mun umfang á starfsemi sveitarfélaga í landinu aukast um 75-80%. Nefndin sem unnið hefur að tillög- unum síðastliðið ár var skipuð Ingi- mundi Sigurpálssyni bæjarstjóra í Garðabæ sem var formaður, Sveini Andra Sveinssyni borgarfulltrúa og formanni SSH, Sigurði Geirdal bæj- arstjóra í Kópavogi og Valgerði Guðmundsdóttur bæjarfulltrúa í Hafnarfirði. Mikilvægt að sveitarfélög verði sameinuð í auknum mæli Nefndin telur æskilegt, að stórt skref verði stigið í sameiningu sveit- arfélaga hér á landi, en það er talin forsenda þess, að sveitarfélögin geti tekið við auknum verkefnum í veru- legum mæli. Gangi það ekki eftir, telur nefndin mikilvægt, að opnað verði fyrir möguleika á því að ein- stök sveitarfélög eða byggðasamlög sveitarfélaga, geti samið við ríkis- valdið um yfírtöku verkefna. Slíkir samningar gætu orðið undanfari frekari sameiningar sveitarfélaga. Tillögur nefndarinnar um tilflutn- ing verkefna ganga út á það kostn- aður við grunn- og héraðsskóla, sem reknir eru af ríki, færist til sveitarfé- laga eða samtaka þeirra. Sveitar- stjórnir ráði skólastjóra og kennara, að fengnum tillögum skólanefndar. Auk þess sem er gert ráð fyrir að sveitarstjórnir skipi fræðsluráð, verkefni og kostnaður fræðsluráða færist til sveitarfélaganna og að fræðslustjóri verði ráðinn af sveitar- stjórnum. Þá vill nefndin að fræðslu- stjóri hafi eftirlit með framkvæmd grunnskólalaga í sínu umdæmi í umboði sveitarstjórnar og annist önnur verkefni, sem nú eru í verka- hring fræðslustjóra, s.s. kenns- luráðgjöf og sálfræðiþjónustu. Nefnin telur að allur stofn- og rekstrarkostnaður framhaldsskóla, annarra en sérskóla og þeirra, sem reknir eru af einkaaðilum, eigi að greiðast af sveitarfélögum eða sam- tökum þeirra. Sveitarstjóri eigi að skipa skólanefnd og ráða skólastjóra að fenginni tillögu skólanefndar. í tillögum nefndarinnar um breyt- ingar á hafnalögum frá 1984 er gert ráð fyrir að Hafnaráð og Hafna- málastofnun ríkisins verði lagðar niður. Einnig er gert ráð fyrir að hafnaframkvæmdir verði kostaðar af sjálfsaflafé og framlagi frá eig- endum en að framlög úr ríkissjóði falli niður. Þá segir að stofn- og rekstrarkostnaður opinberra sjúkra- húsa, að ríkisspítölum frátöldum, eigi að færast til sveitarfélaga og samtaka þeirra. Sveitarstjórnir skuli skipa stjórnir sjúkrahúsa og ráða framkvæmdastjóra og starfsmenn að fenginni tillögu sjúkrahússtjórn- ar. Gert er ráð fyrir að málefni heilsugæslustöðva fari yfir til sveit- arfélaga og að sveitarstjórnir og/eða samtök þeirra greiði stofn- og rekstrarkostnað. Enn fremur er gert ráð fyrir því að sveitarstjórnir skipi stjórnir heilsugæslustöðva og ráði framkvæmdastjóra og aðra starfs- menn að fenginni tillögu stjórnar- Þá er gert ráð fyrir að tiltekin málefni fatlaðra flytjist til sveitarfé- laga. Um er að ræða stofnanir fyrir fatlaða auk málefna sem heyra und- ir menntamála- og heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti. Gert er ráð fyrir að sveitarfélögin yfirtaki löggæslu og rannsóknir á afbrotamálum. Sveitarstjórnir eða samtök þeirra skipi lögreglustjóra og aðra lögreglumenn. Lagt er til að framkvæmdafé Framkvæmda- sjóðs aldraðra renni til sveitarfélaga og að sveitarfélögin yfirtaki þau verkefni, sem sjóðnum er ætlað að sinna. Loks er reiknað með að sveit- arfélög eða samtök þeirra sjái um gerð þjóðvega í þéttbýli. í því skyni að mæta þeim kostnaði svo og aukn- um kröfum um vegabætur er lagt til, að bensíngjald, renni til sveitarfé- laga. Meiri tekjur forsenda aukinna verkefna I skýrslu nefndarinnar segir að forsenda þess að þessar hugmyndir geti gengið eftir sé að jafnhliða til- flutningi verkefna fái sveitarfélögin auknar tekjur, þannig að fjárhags- staða þeirra verði ekki lakari eftir en fyrir verkaskiptin. Til greina er talið koma að tiyggja sveitarfélög- unum auknar tekjur með því að auka hlutfall þeirra í sameiginlegum útsvars- og tekjuskattsstofni, þ.e. að með auknum verkefnum færist hluti tekjuskatts ríkisins yfir til sveitarfélaganna sem útsvar. Miðað við innheimtuprósentu staðgreiðslu fyrir árið 1992 verður álagningar- hlutfall 39,85%. Þar af er vegið meðaltal álagningarhlutfalls sveitar- félaganna 7,05%, en álagningarhlut- fall ríkisins 32,80%. Áætlaður út- svars- og tekjuskattstofn vegna árs- ins 1992 er um 225,7 milljarðar króna og er því heildarálagning út- svars og tekjuskatts áætluð 89,9 milljarðar króna. Þar af er áætlaður hlutur sveitarfélaganna um 15,9 milljarðar króna og hlutur ríkisins 74,1 milljarður króna, en að frá- dregnum persónuafslætti og öðrum endurgreiðslum nemur hlutur ríkis- ins 26,8 milljörðum króna. Sam- kvæmt fjárlögum fyrir yfirstandandi ár er um 21,5 milljörðum króna veitt til þeirra málaflokka sem í tillögun- um er gert ráð fyrir að flutt verði til sveitarfélaga að undanskildum kostnaði við þjóðvegi. Lauslega áætlað nemur velta allra sveitarfé- laganna í landinu um 26-27 milljörð- um króna. Umfang sveitarfélaganna yrði samkvæmt því um 47-48 millj- arðar, sem næmi um 50 til 55% af heildartekjum ríkissjóðs, en er um 25% í dag. „Hér er allt gott að frétta, það er nóg af laxi um alla á, sums staðar eru bunkar af honum. Það eru komnir um 200 laxar á land og það hefði komið meira á land ef það hefðu ekki verið gloppur í stangarnýtingunni. Hollið sem var að fara fékk 47 laxa, þar af einn 20 punda úr Brúarstrengjum. Þá eru komnir þrír 20 punda, auk þeirra strstu sem voru 21,5 og 23,5 pund,“ sagði Gunnar Bjöms- son kokkur og umsjónarmaður í Þrándargili við Laxá í Dölum í samtali við Morgunblaðið í gær- dag. Gunnar sagði vatn fara minnkandi, en ekki væri þó hægt að tala um vandræði vegna þess enn sem komið væri, til þessa hefði lengst af verið úrvalsgott vatnsmagn til veiða og ef rigning- arspá fyrir vikulokin gengi eftir væri ekkert að óttast í bili. Hér og þar... V opnafj arðarárn ar eru komnar yfír 100 laxa og skilyrði til veiða fara batnandi með hverjum degin- um. Kuldar hömiuðu veiðiskap framan af. Að sögn Vífils Odds- sonar er lax farinn að veiðast í efri hluta Selár og veit það á gott, hópur sem lauk þar veiðum í byij- un viku fékk 6 laxa og sá talsvert af fiski víða á svæðinu. Á neðra svæðinu er talsvert af físki, en tökur verið upp og ofan. 1 heild er þetta þó mun hressilegri byrjun heldur en í fyrra. í Hofsá varð uppi fótur og fit er veiðimaður einn hélt sig hafa dregið tvo fiska yfír 20 pundin. Eftir harðar glím- ur var ekið til Árhvamms, veiði- hússins við Teig, og löxunum tveimur snarað á vigtina. Þeir vógu þó „aðeins" 14 og 16 pund. Þama hefur væntanlega orðið nokkuð spennufall, en mikið var ævintýri veiðimanns engu að síð- ur. Lax er nú farinn að hellast inn á Fjallið í Langá og að sögn kunn- ugra hafa veiðst milli 20 og 30 laxar í það heila. Sem fyrr er erfð- leikum bundið að afla nákvæmra talna, því veiðibækumar era nokkrar. En lax hefur sést reglu- lega í stiganum hjá Sveðjufossi. Lítið hefur þó verið reynt þar fyr- ir ofan. Stóra Laxá, sem var nokkuð til umræðu á dögunum vegna vanga- veltna um ástand laxastofns henn- ar, virðist með líflegra móti í sum- ar. Þar höfðu fyrr í vikunni veiðst nærri 120 laxar og er að sögn að minnsta kosti einn 20 punda í aflanum. Veiðin er nokkuð vel dreifð og svæði þrjú sem er oft lakast, gefur hinum svæðunum lítið eða ekkert eftir. Brynjudalsá, sem byijaði dapur- lega hefur nú gefið slatta af laxi, síðast fréttum við af um 20 fisk- um, það var fyrr í vikunni. Þá hefur þama verið helsta verstöðin fyrir hinn nýja íslenska sportveiði- físk, „stálhausinn“, sem kalla má regnbogasilunginn. I Bandaríkj- unum er sjógenginn regnbogi afar eftirsóttur sportveiðifiskur og kallaður “Steelhead". Að vísu er um að ræða stóran og glæsilegan villtan fisk, en ekki litla uggaétna stúfa eins og íslenski „stálhaus- inn“ er yfirleitt, enda sloppinn og heimilislaus kvíafiskur á ferðinni. gg Jóhannes á Ánabrekku við Langá gerir klárt fyrir myndatöku. Þetta er tveggja daga veiði úr Langá fyrir skömmu, en rífandi veiði hefur verið í ánni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.