Morgunblaðið - 19.07.1992, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.07.1992, Qupperneq 20
20 C MORGUNBLAÐIÐ VELVAKAIMDI SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1992 Mcð morgunkaffinu málmþreytu...? Til hamingju. í fyrsta skipti í 20 ár hafði þé rétt fyrir þér: Það var innbrotsþjófur niðri___ HÖGNI HREKKVÍSI BEÉF TÍL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Hverri fötlun lakara Frá Frá Sveini Kristinssyni: ÁRIÐ 1987 kom út hjá bókaútgáf- unni „Skuggsjá" bókin „Með mörgu fólki“ eftir Auðun Braga Sveinsson, kennara og hagyrðing með meiru. Ég hefi nýlega lesið þessa bók. Einn kafli hennar heitir: „Litli maðurinn með stuttu hendurnar" (bls. 123-134) og birtist fyrst, að því er höfundur greinir frá, í tímaritinu „Heima er best“ árið 1983. „Litli maðurinn með stuttu hend- urnar“ sem Auðunn nefnir svo, var Jón Sigurðsson, guðfræðingur og kennari frá Vopnafirði, sem uppi var 1915-66. Vísar fyrirsögnin til með- fæddrar fötlunar Jóns, sem Auðunn lýsir nánar í greininni. — Við Jón vorum góðir kunningjar, eins og Auðunn nefnir í greininni. Ég hygg að fötlun Jóns sé nokkuð rétt lýst, hvað ytra borð varðar, en auðvitað mæðir líkamleg fötlun oft- ast svo miklu meira á þeim sem hana ber, en hinum sem umgengst hinn fatlaða, að ytra borðs skoðun ein verður næsta ófullkomin. Það gæti hins vegar verið fróðleg lesn- ing, ef mikið fatlaður maður skýrði í sjálfsævisögu frá líklegum áhrifum fötlunarinnar á lífshlaup hans. — Þeir mörgu og fræknu ævisöguridd- arar, sem nú hreykja sér hæst, hafa hins vegar líklega flestir útlimina á vísum stað. Tilefni þess, að ég hripa þessar línur eru eftirfarandi ummæli Auð- uns um Jón á blaðsíðu 131 í áður- nefndri bók: „Jón þráði mjög samveru hins fagra kyns, en gat ekki fengið full- nægju sína á því sviði. Svo er því miður um menn, sem eru mjög lík- amlega bagaðir. Kvenfólk virðist sneiða hjá þeim. Kynlíf virðist sneiða hjá þeim. Líklega hefur Jón Sigurðs- son farið svo í gröfina, að hann hef- ur aldrei notið innilegustu maka við hitt kynið, því miður. Maður fann að það var það sem hann þráði. Mikil synd er, að skaparinn skuli gefa fólki eins og Jóni kynhvöt." Svo mörg eru þau orð. Ég varð hissa á þessum ummæl- um. Bæði vegna þess, að þótt höf- undur sé að vísu kunnur fyrir listi- legar historíur af guðfræðingum, þá vissi ég ekki að hann stundaði hina torveldu vísindagrein kynlífssagn- fræði. Sýnist fötlunarleysi Auðuns eiga sér lítil takmörk. í öðru lagi varð ég hissa á um- getnum ummælum vegna þess, að ég vissi ekki betur en Auðuni væri fullkunnugt um það, eins og mér og fleiri kunningjum Jóns vafalaust, að kvenfólk sýndist alls ekki sneiða hjá Jóni, og kynlífs með konum naut hann, ekki miklu minna en margur ófatlaður kynlífsnjótandi, að ég hygg, þótt aldrei muni hann hafa verið lögformlega munstraður til slíkra athafna. Það er rétt, að „Jón þráði mjög samveru hins fagra kyns“ og „mað- ur fann að það var það sem hann þráði“, eins og Auðunn kemst að orði. Þar réri hann vissulega ekki einn á báti, og ef ég á annað borð teldi mig hafa efni á að gagnrýna skaparann, þá mundi gagnrýni mín varðandi Jón beinast að allt öðru en því, að hann skyldi ljá honum mann- legar hvatir. Jón sagði mér einhverju sinni, að hann saknaði þess, að hafa ekki fengið að njóta kynlífs sem skyldi á unga aldri. Líklega hefur hann ekki heldur róið þar einn á báti. Jafnvel þótt mönnum hafi verið úthlutað lögmæltum „kvóta“ af ógölluðum útlimum, þá eru menn misjafnlega fljótir að átta sig í veröldinni, og þrár fárra ganga í uppfyllingu jafn- skjótt og þær fæðast. Kynferðisleg minnimáttarkennd getur líka átt sér ýmsar aðrar orsakir en líkamlega fötlun. En þessi kvörtun Jóns sýndi, að hann vildi ekkert undan draga af agnúum fötlunar sinnar varðandi kynlíf, þótt hann nyti þess allríku- lega á fullorðinsárum. — Mætti hann nú líta yfir jarðlífsvettvanginn, þá er ég þess fullviss, að hann væri lítt hrifinn af þeim eftirmælum, þar sem reynt væri að níða ástarreynslu hans af honum undir yfirskini vináttu. En er það annars rétt hjá Auð- uni, að kvenfólk virðist almennt sneiða hjá mönnum „sem eru mjög líkamlega bagaðir"? Auðvitað geta menn verið svo illa beygðir líkamlega, að menn séu „tæknilega" ófærir um að lifa kyn- lífi, a.m.k. með venjulegum hætti. En ég geri ekki ráð fýrir, að Auðunn eigi við þau dapurlegu tilvik, enda hefði hann þá varla valið Jón guð- fræðing sem dæmi. En burtséð frá þessum nefndu tilvikum, þá veit ég þess mörg dæmi, að mikið fatlað fólk hefur eignast myndarlega maka og börn og ekkert virst á það skorta að það nyti „innilegustu maka við hitt kynið“. — Oft virðist áhugi fatl- aðra á kynlífi ekki vera minni en ófatlaðra, og árangurinn — að svo miklu leyti sem slíkt verður metið — líklega oft ekki miklu minni. Og jafnvel þótt við, sem þykjumst vera ófatlaðir, teldum okkur eitthvað fremri á þessu sviði, þá ættum við að hafa skynsemi til að njóta þess af hógværð og hælast að minnasta kosti ekki um yfir moldum látinna kunningja með sögufölsun að vopni. — Slíkt er hverri fötlun lakara. Þótt Jón Sigurðsson guðfræðing- ur væri mikið fatlaður, þá bjó hann yfir gáfum og persónuleika, sem hreif marga bæði karla og konur, og meðal annars af' þeim sökum naut hann „innilegustu maka við hitt kynið“. Þess vegna getur Auðunn Bragi með góðri samvisku þegar í stað tekið að fyrirgefa skaparanum þá miklu synd, sem hann tilreiknar honum í áðurvitnuðum ummælum um þennan látna kunningja okkar. SVEINN KRISTINSSON Þórufelli 16, Reykjavík Víkveiji skrifar að eru ekki mörg dæmi þess að þjóð hafi lögtekið kristinn sið. Það gerðist á Lögbergi við Öxará árið eitt þúsund. Þar og þá sagði Þorgeir Ljósvetningagoði og lögsögumaður upp þau lög „að allir menn skyldu kristnir vera og skírn taka, þeir er áður voru óskírðir á íslandi". Kristnitakan er að flestra dómi mikilvægasta lagagerð Al- þingis fyrr og síðar. Þessi atburður rifjaðist upp fyrir Víkveija dagsins er hann las viðtal Morgunblaðsins við Jónas Gíslason, vígslubiskup, sem nýlega settist að í Skálholti, hinu foma biskupssetri. Þá hafði ekki setið biskup þar í tæp tvö hundruð ár. Flestir landnámsmanna, sem hingað komu að stærstum hluta 930-970, voru ásatrúar. í þeirra hópi var þó kristið fólk, eins og Ásólfur alskik, Auður djúpúðga, Ketill í Kirkjubæ, Örlyur gamli á Esjubergi o.fl. Ketill og Órlygur reistu kirkjur á bæjum sínum. Sterkar líkur standa og til þess að írskir þrælar, sem heiðnir land- námsmenn höfðu með sér út hing- að, hafi verið kristnir. Kristinn siður hér mun því nánast jafn gamall byggð í landinu. xxx Nú fer mjög að nálgast þúsund ára afmæli kristnitökunnar, þessa einstæða atburðar, sem greyptur er í þjóðarvitundina. Það er við hæfi, að dómi Víkveija, að Alþingi og Þjóðkirkjan standi sam- an um það, hvern veg þessa atburð- ar verður minnst. Þegar mun ákveð- ið að rituð verði eins konar kristni- saga þjóðarinnar, sem gefin verði út á þúsund ára afmæli kristnitök- unnar; þúsund ára afmæli þeirrar ákvörðunar, sem Ljósvetningagoð- inn kunngjörði á Alþingi árið 1000, þess efnis, að íslendingar skuli hafa „ein lög og einn sið“. Það kom fram í viðtalinu við Jónas Gíslason, vígslubiskup, að biskupar sátu í Skálholti 1056- 1796 og að Hólum frá 1106 til 1798. Síðan líða tæp tvö hundruð ár og það er ekki fyrr en nú, þegar eftir lifa fáein ár af 20. öldinni, að biskupar (vígslubiskupar) sitja aft- ur hin fornu biskupssetur. Því ber að fagna sem og annarri vegsemd þesSara söguríku setra. Jónas Gíslason, vígslubiskup, set- ur fram athyglisverða hugmynd í Morgunblaðsviðtali sínu, sem varð kveikjan að þessum skrifum Vík- veija. Ég hef mikinn áhuga á því, segir vígslubiskup, að gerð verði röð vandaðra heimildarmynda um sögu Hóla og Skálholts, í tengslum við þúsund ára afmæli kristnitökunnar, sem sýndar verði á góðum tíma í sjónvarpi. Þættina mætti síðan nota við kennslu í skólum landsins, ef vel tekst til um gerð þeirra. Það væri verðugt verkefni sjónvarps- stöðvanna, í samvinnu við kirkjuna, í tilefni af þúsund ára afmælis merkasta atburðar íslandssögunn- ar. xxx Víkveiji tekur undir þessa tíma- bæru hugmynd vígslubisk- upsins í Skálholti. Það er gott og blessað að bókaþjóðin haldi inn í 21. öldina með nýtt sagnfræðirit, kristnisögu íslendinga, í farteskinu. Það jafnframt sjálfgefið að nota þann farveg, sem sjónvarpið er, til að flytja þjóðinni sögu biskupssetr- anna, sem um aldir voru miðstöðvar kirkju, mennta, lista og að hluta til stjómsýslu í landinu. „Þingvellir vora miðstöð þjóðlífsins í tvær vikur á hveiju ári, þegar Alþingi var háð,“ sagði vígslubiskupinn í viðtalinu. „Þess á milli var þar ekkert um að vera. Biskupsstóllinn í Skálholti var hins vegar stjórnarsetur allt árið. Það er verðugt verkefni fyrir sérfræðinga okkar í kirkjusögu og kvikmyndagerð að gera vandaðar heimildarmyndir um sögu Hóla og Skálholts, eins og vígslubiskup leggur til. Það er og verðugt verk- efni fyrir sjónvarpið. En hver á að fjármagna verkið? Þar kemur margt til greina. Skjót- virkasta og öruggasta leiðin væri trúlega þjóðarátak, landssöfnun, sem leidd yrði af einhverri þróttmik- illi þjónustuhreyflngu, eins og Lions eða Kiwanis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.