Morgunblaðið - 19.07.1992, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.07.1992, Blaðsíða 22
22 C MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1992 ÆSKUMYNDIN... ERAF MAGNÚSIKJARTANSSYNITÓNLISTARMANNI Illa haldinn afbítUueði „Ég ætlaði að verða heimsfrægur trompetleikari og spila Haydn með öllum stærstu sinfóníuhljóm- sveitum í heimi, en svo fékk ég bítlaæði og það lýsti sér ekki ósvipað og hundaæði,“ segir Magn- ús Kjartansson um kúvendingu sem varð á tón- listarferli hans á unglingsárum. Magnús Jón Kjartansson fæddist 6. júlí 1951 í Keflavík. Foreldrar hans eru Gauja Guðrún Magnúsdóttir og Kjartan Henrý Finnbogason. Magn- ús er elstur sex systkina, næstur er Finnbogi, þá Sigrún, Ingvi Jón, Kjartan Már og Viktor Borgar. Fljótlega fór Magnús að passa Finnboga. „Hann leiddi mig til frænku og ömmu og lét þær dást að því hvað hann var duglegur að passa litla bróður," segir Finnbogi. „Maggi talaði og talaði en ég var í rólegri kantinum. Yfirleitt hafði hann orð fyrir okk- ur, miklu frakkari og talaði alla til.“ Gauja Guðrún, móðir Magnúsar, minnist þess að hann var greiðvikinn og sporléttur í sendiferðir: „Það skipti engu hvað hann var að gera, hann var alltaf fús. Magnús hefur alla tíð verið í forystu og ákaflega virkur. Hann var ekki frekur sem bam heldur ljúfur og góður. Magnús er félagslyndur og það söfnuðust að honum krakkamir. Stundum ef ég brá mér af bæ var stofan fulí af strákum að spila á lúðra þegar ég kom heim“. Magnús var 9 ára þegar hann fór að Ieika á tromp- et í Drengjalúðrasveit Keflavíkur, undir stjóm Her- berts H. Agústssonar. „Magnús var mjög efnilegur og áhugasamur nemandi, enda tónlist í ættinni. Honum gekk mjög vel í tónlistarnáminu þangað til bítlaæðið kom. Þá fór hann náttúrulega alveg út í það, en ég hefði viljað sjá hann halda áfram með trompetið,“ segir Herbert. Á sama ári byijaði Magn- ús í barnakór Keflavíkurkirkju: „Við Kristín Einars- dóttir alþingiskona og fleiri krakkar vélrituðum með kalkipappír sálmatexta sem okkur þóttu flottir. Svo endaði þetta þegar við fundum Fomaldarsögur Norð- urlanda í bókahillunni hjá organistanum og fóram að lesa þær á söngæfingum." Skólamenn og fleiri bragðust hart við bítlafárinu. „Mér var skipað að fara í klippingu, í og úr fötum og á endanum var mér bannað að koma í skólann í lopapeysu sem mamma pijónaði á mig, reyndar var peysan vel við vöxt,“ segir Magnús um skólaárin í Keflavík. „Ég var í skólahljómsveitinni Echo, aðal Magnús fór snemma að hafa auga með Finn- Æ ''' K boga broður smum. Magnús Kjartansson tónlistarmaður. Ljósmynd/Lárus Karl Ingason keppinauturinn var hljómsveitin Skuggar og hart barist um vinsældirnar. Við vorum róttækari, með miklu síðara hár, í köflóttari jökkum og spiluðum þyngri tónlist." Stefán Ólafsson prófessor var í Skuggum: „Við voram fyrri til og búnir að skjóta rótum. Til að bijót- ast inn á markaðinn gripu Echo-menn til ýmissa bragða, en lögðu minna upp úr spiliríinu. Magnús bætti um betur á því sviði síðar. Maggi var alltaf íjöragur og hugmyndaríkur. Einu sinni komst hann að því að það væri ungversk prinsessa í Keflavík sem héti Runni. Hann sagði mér að hún færi alltaf á leynileg stefnumót við einhvem prins úti í Garðskaga- vita og lagði til að við eltum hana. Við fylgdum í humátt á eftir prinsessunni og voram afar spenntir. Rétt fyrir utan bæinn stoppaði konan Sandgerðisrút- una og var líklega bara á leið þangað. Við sátum eftir sárir yfir glötuðu ævintýri. Á leiðinni til baka fundum við fullan kassa af Pepsi undir moldarbarði og slógum upp mikilli veislu. Henni lyktaði með því að við lágum afvelta af ofneyslu Pepsi Cola.“ I- UR MYNDAS AFNINU ÓEAFUR K. MAGNÚSSON Eitt sinn skáti Eitt sinn skáti, - ávallt skáti“ segir orðatiltækið og á það vel við hér í Myndasafninu að þessu sinni því nú birtum við þijá- tíu ára gamlar myndir frá skátahá- tíð, sem haldin var á Þingvöllum í júlí 1962, til að minnast 50 ára afmælis skátahreyf- ingarinnar á íslandi. Viðbúið er að flestir þeir sem þar vora staddir séu enn skátar, að minnsta kosti í hjarta sínu, þótt starf- ið hafi ef til vill setið á hakanum eftir því sem árunum og gráu háranum hefur fjölgað. Um 2000 skátar sóttu hátíðina samkvæmt frásögn Morgunblaðsins af þess- um atburði, en hátíðin stóð í tíu daga. Fjöldi erlendra skáta sótti íslensku skátana heim í tilefni af- mælisins og meðal þeirra var Lady Baden Powell, alheimsskátahöfð- ingi kvenskáta og ekkja hins heimskunna stofnanda skáta- hreyfingarinnar. Á há- tíðinni gerðu skátarnir margt sér til gamans og gagns svo sem vera ber á skátamóti. Keppt var í mörgum greinum, efnt til sýninga, gengið á fjöll, farið í víðavangsleiki og ekki má gleyma varðeld- unum á kvöldin, sem er ómissandi á hveiju skátamóti. Ekki er unnt að rekja hér nánar allt það sem gerðist á þessari hálfrar aldar afmaelishátíð skáta- hreyfingarinnar á íslandi, en víst er að þar hafa menn verið viðbún- ir, eins og skátar era ávallt. Vaskir piltar úr sveit Landnema. Athygli skal vakin á litla ylfingnum sem kíkir prakkaralegur á svip til vinstri við stóru strákana. SVEITIN MÍN____ ERJÖKULDALUR „Sveitin mín er Jökuldalur, hrjóstrug sveit sauðfjárbænda. Frá- hrindandi við fyrstu sýn með litlu undirlendi en aflíðandi hlíðum allt niður að klettagili Jöklu sem drynur öskugrá í gljúfrunum. Gróður er þó kjarnmeiri en virst gæti og fyrr meir var talað um þverhandarþykkar sauðasíður og Jökuldalsbændur virtir öðrum meira á þeim dögum er feitt kjöt þótti enn herramannsmatur.“ Svo farast Jóni Hnefli Aðalsteinssyni orð en hann er fæddur á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal, sem gengur suður af Efra-Jökuldal. Hrafnkelsdalur er að sumu leyti frábrugðinn, dalbotninn grösugur og eftir honum liðast Hrafnkela, mátulega vatnsmikil bergvatnsá, milli lágra bakka. Sá dalur þótti Hrafnkeli Freysgoða landnámsmanni byggi- legri en þeir dalir er hann hafði áður séð. Þegar ég var að alast upp í Hrafnkelsdal á Qórða áratug aldarinn- ar hafði fátt breyst þar í landslagi eða búskap- arháttum frá dögum Hrafnkels. Torfbær, baðstofa og undir henni eldhús með moldar- gólfí. Til hliðar timburhús óhitað sem búið var í yfír sumarið. Tún ógirt og lítt grasgefið, en mest heyjað á engjum og gjarna sleginn hver slægur blettur. Einnig sótt upp á heiðar og slegið lauf og fló- ar. Allt hey flutt heim á hestum. Heyfengur varð þó aldrei meiri en svo að beita þurfti fé og standa yfir því að vetrinum. Fært frá ár hvert og sauðasmjör og sauðaskyr eftirsóknarverður hluti af kosti. Til eldiviðar tað, afrak og fjall- drapi, rifínn upp með rótum. Sam- göngur úr Hrafnkelsdal voru yfír kláfinn á Jöklu undan Brú eða út, um 18 km veg að Hákonarstaða- brú. Þriðja leið yfir Fljótsdals- heiði. Sími í 40 km fjarlægð og útvarp heyrðist fyrst um 1940. Síðustu hálfa öld hefur verið svipt burt öllu því sem við Hrafn- kell Freysgoði bjuggum við. Lág- lendi Hrafnkelsdals hefur nú mest- allt verið plægt og þau kennileiti sem ég þekkti þar áður fyrr era horfín af yfirborði jarðar. Á þess- um sléttum er nú ræktað gras til framleiðslu á feitu kjöti.“ HVERNIG______ KOMSTHOUDINIÚR FJÖTRUM SÍNUM? Flest leyndar- niálin ígröfina HARRY Houdini (1874 - 1926) varð frægur fyrir það að geta Iosað sig úr hlekkjum og böndum á örskömmum tíma. Mörg af leyndarmálum Houdinis fóru með honum í gröf- ina en ein aðferðin sem hann notaði og reyndist afar áhrifamikil, var að þjálfa vöðvana upp í það að geta þan- ist óeðlilega mikið út. Þetta notaði Houdini þegar verið var binda hann og virtist þá allt vera rígfast. Síðan slak- aði hann á öllu og voru þá böndin næstum því laus. Einnig var Houdini snillingur í því að opna lása og stóð honum enginn á sporði í þeim efnum. Eitt af atriðum hans var setja sig handjámaðan ofan í geymi, sem var fullur af vatni og lokaður utan frá með smellum. Áhorfendur héldu niðrí sér andanum en innan fárra mínútna birtist hann ævin- lega, heill á húfí. Ein af ástæðunum fyrir því hve Houdini var ótrúlega liðugur var sú að hann hafði byijað feril sinn sem fimleikamaður í fjölleikahúsi og kom sú þjálfun honum að miklu gagni. Houdini sagði gjaman að hann fyndi ekki fyrir því þegar hann væri kýldur í magann og á sýningum voru menn fengnir til að sannreyna þessa staðhæfíngu. Viðstaddir horfðu upp á hvert hraustmennið á fætur öðm, stritast við að lemja í kvið- inn á Houdini, en alltaf stóð hann eins og ekkert hefði í skor- ist. Þetta þótti mörgum ótrúlegt og eftir eina sýninguna þá vildi einn menntaskólastrákur athuga hæfileikann utan sviðs. Piltur þessi sætti færi á Houdini þegar hann var óviðbúinn og rak honum bylmingshögg í magann. Þetta reyndist vera náðarhöggið, því Harry Houdini hlaut innvortismeiðsl og lést skömmu síðar. Hjúkmnarkonan sem vann á skurðstofunni þar sem gert var að meiðslum Houdinis, sagði síðar frá því að í miklu svörtu hárinu hefði hann falið langan jámpijón og að annar pijónn hefði verið falinn í sigginu á fótum hans. Þar væri því komin líkleg skýring á hæfni Houdinis til að opna lása. Ýmsir miðlar héldu því fram að Houdini hlyti að hafa miðilshæfileika sökum þess að hann gat leyst sig úr hvers konar læðingi. Sjálfur barðist hann alla tíð gegn miðlum og hugles- urum, sagði þá loddara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.