Morgunblaðið - 29.07.1992, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.07.1992, Qupperneq 1
fHorgtntHafrito B 1992 MIDVIKUDAGUR 29. JÚLÍ BLAD adidas • •• annað ekki OLYMPIULEIKARNIR I BARCELONA 1992 Skapti Haligrímsson Skrífar frá Bracelona Carli hefur gengið mjög vel áæf- ingum r segir Þorsteinn Ásgeirsson aðstoð- armaðurCarlsJ. Eiríkssonar Carl J. Eiríksson, elsti kepp- andi á Ólympíuleikunum í Barcelona, verður í eldlínunni í dag, er hann keppir í svokall- aðri enskri keppni. Carli hef- ur gengið mjög vel á æfingum síðustu daga að sögn Þorsteins Ásgeirssonar, for- manns Skotsambands íslands og aðstoðarmanns Carls. Ensk keppni fer þannig fram að keppendur eru liggjandi, skjóta 60 skotum af riffli á skífu í 50 m fjarlægð og hafa til þess eina klukkustund og 45 mínútur. „Carli hefur gengið mjög vel á æfingum — í morgun missti hann eitt stig af hverjum tíu, sem þýð- ir meðalskor upp á 594 stig. Aðstæður hér eru mjög góðar fyrir hann, nánast logn og spáin er góð fyrir morgundaginn (dag- inn í dag). Karl hefur gífurlega reynslu og er afslappaður. Hann er orðinn gamall en er að keppa við komunga menn sem margir hverjir eru alveg á taugum, eftir því sem mér hefur sýnst,“ sagði Þorsteinn. Keppendur í enskri keppni em 33, að sögn Þorsteins. „Tuttugu og fímm manns hafa unnið sér þátttökurétt á mótum síðustu tvö ár — þetta em þeir tuttugu og fímm bestu í heiminum og að minnsta kosti tíu þeirra hittu úr öllum skotunum f dag — fengu 600 stig af 600 mögulegum." „Eg hef sagt að alit fyrir ofan 24.-25. sæti yrði stórsigur. Að ég tali nú ekki um ef hann verður um miðj- an hóp,“ sagði Þorsteinn. Júlíus fértil Frakk- lands ÞAÐ er nú endanlega Ijóst að Júlíus Jónasson, sem lék með liði Elgorriaga Bidasoa á Spáni sl. vetur, leikur að nýju f Frakk- landi næsta keppnistfmabil. Nokkuð er liðið síðan Júlíus skrifaði undir eins árs samn- ing við franska félagið sem hann lék með á sínum tíma og hét þá Paris Asnieres. Nú heitir það reynd- ar París Saint Germain-Asnieres; hefur sameinast knattspyrnufélag- inu fræga PSG, sem er nú orðið að mestum hluta í eigu sjónvarps- stöðvarinnar Canal Plus (Canal +). Júlíus sagði að HSÍ og franska félagið hefðu nú lokið samningum þannig að endanlega væri ljóst að hann léki í Frakklandi. Búið er að ganga frá að Júlíus verði með landsliðinu um jólin og einnig í Lotto-mótinu í Noregi í janúar. Hann missir hins vegar af einu móti fyrir áramót en verður með í öllum lokaundirbúningnum. Frakk- ar verða einnig í heimsmeistara- keppninni í Svíþjóð í mars og ætla landsliði sínu góðan undirbúning. Síðasti deildarleikur fyrir keppnina verður þegar vika lifír af janúar og eftir það kemur Júlíus heim og verð- ur með landsliðinu alveg fram að HM. Martin Lopez-Zuberg fagnar sigri sínum í 200 m baksundi. Reuter Spánvefjar fögnuðu gulli | artin Lopez-Zubero varð fyrstur Spánveija til að sigra í sundi á Ólympíuleikum, þeg- ar hann tryggði sér gullið i 200 metra baksundi í gær á ólympíu- meti, 1.58,47. Spánveijinn var í fímmta sæti, þegar sundið var hálfnað, en heims- meistarinn og heimsmethafinn sýndi síðan hvað í honum býr, var 4/10 úr sekúndu á undan Vladimir Selkov frá Samveldinu, en Stefano Battistelli frá Ítalíu hafnaði í þriðja sæti á 1.59,40. „Þegar ég snerti bakkann og sá að ég hafði sigrað trúði ég vart mínum eigin augum,“ sagði meist- arinn. „Það er draumur að vera fulltrúi þjóðar sinnar og vinna til gullverðlauna á Ólympíuleikum í heimalandinu. Ég var við það að bresta í grát, en tárin létu á sér standa." Spánveijinn hefur æft í Banda- ríkjunum og hann var spurður hvort Bandaríkjamenn gætu samfagnað. „Já, að nokkru leyti. Ég verð að þakka þjálfurum mínum í Banda- ríkjunum, því þeir eiga stóran þátt í þessu.“ BJARNIA. FRIÐRIKSSOIM: „SVEKKTUR AÐ ÞURFA AÐ HÆTTA SVONA“ / B6

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.