Morgunblaðið - 29.07.1992, Page 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1992
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ
Hætti strákanna vegna
- sagði Sigurlás Þorleifsson, lymjnn þjálfari ÍBV. ÓmarJóhannsson tekinn við
SIGURLÁS Þorleifsson ósk-
aði eftir að hætta sem þjálf-
ari meistaraflokks ÍBV á
mánudag og varð knattspyrn-
uráðið við beiðninni, en réð
Ómar Jóhannsson í staðinn.
„Ég hef gert mitt og get ekki
meira,“ sagði Sigurlás við
Morgunblaðið. „Þetta var erf-
ið ákvörðun og þó ég hefði
viljað halda áfram fannst mér
það ekki rétt strákanna
vegna. Ég vona að ég hafi
breytt rétt, því þá hef ég alla
vega tekið eina rétta ákvörð-
unátímabilinu."
Sigurlás hefur verið með liðið
síðan 1989 og í tilkynningu
frá ÍBV segir m.a. að liðið hafi
undir stjórn hans „náð mjög góð-
um árangri og vill knattspymuráð
ÍBV þakka honum vel unnin störf
og óskar honum velfamaðar í
framtíðinni."
Sigurlás sagði að árangur liðs-
Sigurlás Þorleifsson.
ins væri langt fyrir neðan það sem
hann hefði gert ráð fyrir „og það
er ágætt að hlutlaus maður taki
við á þessari stundu. Þetta er
fjórða árið mitt og tíminn hefur
verið gífurlega skemmtiiegur, en
fyrst núna, eftir að hafa lent i
þessu og kynnst því að vera ekki
Ómar Jóhannsson.
með neitt, get ég kallað mig al-
vöra þjálfara."
Hann sagðist vona að liðið
næði sér á strik, en þó hann hefði
æft með því kæmi ekki til greina
að bytja að leika aftur. Sigurlás
sagðist samt ekki vera búinn að
gefa þjálfun upp á bátinn og vel
kæmi til greina að færa sig um
set, en nú tæki við kærkomið frí
áður en næsta ákvörðun yrði tek-
in.
Geri breytingar
Ómar er þjálfari 2. flokks ÍBV,
sem er í efsta sæti á íslandsmót-
inu og í undanúrslitum bikar-
keppninnar. „Ég ætla að spara
allar yfirlýsingar, en Ijóst er að
ég geri þegar breytingar á liðinu
og set yngri stráka inn. Sigurlás
hefur gert mjög góða hluti og
búið til lið nánast úr engu, en það
býr meira í því en það hefur sýnt
í sumar.“
Ómar, sem segist vera búinn
að fleygja knattspymuskónum og
því hættur að ieika, stjómar liðinu
í fyrsta sinn í kvöld, þegar FH-
ingar leika í Eyjum. „Mér skilst
að FH hafi aldrei sigrað í Eyjum
og ég sé ekki ástæðu til að breyta
því. Vonandi verður kvöldið upp-
hafið að góðri þjóðhátíð."
GOLF / LANDSMOTIÐ
Siguijón lék
velogátvö
högg á Bjöm
KEPPNI í meistaraflokkum og
1. flokki á Landsmótinu í golfi
hófst í gær. Eftir fyrsta dag
hefur Sigurjón Arnarsson úr
GR forystu í meistaraflokki
karla og Karen Sævarsdóttir
úr GS í meistaraflokki kvenna.
ára, Úlfar Jónsson úr Keili er í 3. -
5. sæti ásamt Hjalta Nielsen, NK
og Jóni H. Karlssyni GR. Þeir léku
á fimm höggum yfír pari vallarins,
eða á 74 höggum og þurfa því fjög-
ur högg til að ná Siguijóni.
Karen ð tvö högg
að var eins og við manninn
mælt að um leið og meistara-
flokkamir hófu leik byijaði að
rigna. Sól og logn hafði verið fýrstu
fjóra daga mótsins, á meðan neðri
flokkamir léku, en nú er spáð rign-
ingu og roki þar til meistaraflokk-
amir hafa lokið leik.
Siguijón lék mjög vel í gær og
kom inn á 70 höggum, einu undir
pari, en vallarmetið á Grafarholts-
velli er 68 högg. „Ég vissi af þvi
að ég gæti jafnað vallarmetið, og
þess vegna fór þetta svona," sagði
Siguijón í gamansömum tón eftir
að hann hafði þrípúttað á 18. flöt-
inni og misst af vallarmetinu.
Upphafshöggið á 18. braut var
mjög gott, alveg upp við veg, eða
um 300 metrar en innáskotið var
lélegt og svo þijú pútt. „Ég skoraði
mjög vel í dag. Púttin vora í lagi
og ég var vel á boltanum," sagði
Siguijón.
Bjöm Axelsson frá Akureyri lék
einnig vel og kom inn á 72 höggum
þó svo hann væri „út og suður"
framan af degi og næði ekki að
hitta á braut fyrr en á nfundu holu.
íslandsmeistari síðustu þriggja
Karen Sævarsdóttir, íslands-
meistarinn frá Keflavík, lék á 76
höggum í gær og á tvö högg á
Ólöfu Maríu Jónsdóttur úr Keili.
Ragnhildur Sigurðarsdóttir er í
þriðja sæti á 80 höggum og Þórdís
Geirsdóttir, Keili í því fjórða á 83
höggum.
I 1. flokki karla er keppnin jöfn
og spennandi. Viggó H. Viggósson
frá GR er í fyrsta sæti á 74 högg-
um, eins og íslandsmeistarinn í
meistaraflokki, en Gunnlaugur S.
Sævarsson frá Grindavík er í öðra
sæti á 75 höggum. Síðan koma
fímm kylfingar á 76 höggum og
sex á 77 höggum. Mikil spenna þar.
Inga Magnúsdóttir úr Keili á eitt
högg á Andreu Ásgrímsdóttur, GR
og Kristínu Pálsdóttur, GK í 1.
flokki kvenna. Inga lék á 84.
Keppendur leika annan hring í
dag og eftir það verður þeim fækk-
að í karlaflokkunum. Víst er að
hart verður barist til að komast
áfram. Meistaraflokkur karla hefur
leik fyrstur í dag, byijað verður að
ræsa út kl. 8 árdegis.
■ Staðan/B11
Sigurjón Arnarson með besta skor.
AGANEFND KSÍ
Sigurður og Heimir
í tveggja leikja bann
Skagamaðurinn Sigurður Jónsson
og Heimir Hallgrímsson úr ÍBV
vora úrskurðaðir f tveggja leikja
bann á fundi aganefndar KSÍ í gær.
Sigurður og Heimir fengu sitt annað
rauða spjald um helgina.
Sigurður missir af leiknum gegn
Fram á fimmtudag og einnig und-
anúrslitaleiknum í bikamum gegn
KA 6. ágúst, en þá verða félagar
hans, Alexander Höngason og Ólafur
Adólfsson, einnig í leikbanni vegna
fjögurra gulra spjalda.
Einar Páll Tómasson úr Val var
úrskurðaður í eins leiks bann fyrir
brottrekstur í leik ÍA og Vals um
síðustu helgi. Hann tekur út leik-
bannið gegn Víkingum í kvöld. Þor-
steinn Þorsteinsson Víkingi fékk eins
leiks bann vegna fjögurra gulra
spjalda og tekur hann leikbannið út
gegn FH 12. ágúst.
Þeir leikmenn sem fengu eins leiksbann úr
2. deild eru: Ingdlfur Jónsson, Bf (rautt spjald),
Sigurbjöm Jakobsson, Leiftri (rautt spjald),
Pétur Jónsson, Leiftri (4 gul), Bjöm Einars-
son, Fylki (4 gul), Grétar Smith, UMFG (4
og Jakob Jónharðsson, ÍBK (rautt).
r 3. og 4. deild voru eftirtaldir úrskurðað-
ir I eins leiks bann: Cogic Enes, Haukum
(rautt), Theódór Jóhannsson, Haukum (4 gul),
Kristján Brooks, Gróttu (4 gul), Kristján
Björgvinsson (4 gul), Zoran Zikic, Þrótti N.
(6 gul), Gústaf Ómarsson og Jónas Hjartare-
son, Val Reyðarfirði (rautt), Jón Bergur Gunn-
areson, HK (rautt), Sigurður Kjartansson,
HSÞ (rautt), Vilhelm Adolfsson, Huganum
(rautt), Óðinn Gunnlaugsson, Neista (rautt),
Heiðar Ómarsson, Leikni Reykjav. (4 gul) og
Sigurjón Sveinsson, UMFN (4 gul).
KNATTSPYRNA
Israelsmenn í æfingabúdir á Islandi
•ft' andslið íeraels rL knattspyrau
pfc kom til íslands Y gær og verð-
úr hér í æfíngabúðum í vikú. Síðan
heldur hópurinn til Færeyja vegna
landsleikja, en kemur aftur um aðra
helgi og leikur við ísland á Laugar-
dalsvelli sunnudaginn 9. ágúst.
ísrael er í sjötta riðli undan-
keppni HM og á fyrsta leik gegn
Austurríki á útívelfi 28. október
n.k., en tekur síðan á móti Svíþjóð
hálfum mánuði síðar og Búlgaríu
2. desember. Mikil áhersla er lögð
á góða byijun og óskaði knatt-
spymusamband ísraels sérstaklega
eftir að fá að vera í æfingabúðum
hér á landi, en bæði.er um a-Iiðið
og LMils árs Mð- að ræða.
ÍSraelsmennimir koma til með
að æfa tvisvar á dag, en bæði liðin
leika á íslandi sunnudaginn 9. októ-
ber, það yngra á Akranesi kl. 14,
en leikur a-liðanna hefst á Laugar-
dalsvelli klukkan 18. Þetta verður
éini leikur.íslands fyrir haustleikina
í HM. Ekki er enn ljóst hvort lands-
lið Júgóslavíu fær að vera með en
fari svo verður heimaleikur gegn
því 2. september. Grikkir koma 10.
október og leikið verður gegn Rúss-
um ytra 14. október.
ÍPtibmR
FOLX
■ RAY Houghton, miðvallarleik-
maður Liverpool, hefur gengið til
liðs við Aston Villa. Kaupverðið er
900 þúsund pund eða um 97 milljón-
ir ISK og er samningurinn til §ög-
urra ára. Houghton er þrítugur og
gat valið á milli Villa og Chelsea
eftir að Liverpool hafði samþykkt
að hann mætti fara. „Houghton er
besti hægri miðvallarleikmaður á
Bretlandseyjum," sagði Ron Atkin-
son, framkvæmdastjóri Aston
Villa.
■ TREVOR Steven hefur verið
seldur frá Marseille í Frakklandi
til síns gamla félags Glasgow Ran-
gers fyrir 2,4 milljónir punda eða
256 milljónir ÍSK. Steven, sem er
28 ára miðvallarleikmaður, hefur
leikið 35 leiki með enska landslið-
inu. Rangers seldi Steven til Mar-
seille í fyrra fyrir 9 milljónir punda
þannig að liðið hefur hagnast um
6,6 milljónir punda á kappanum.
Leeds hafði sýnt áhuga á að kaupa
hann en keypti David Rocastle frá
Arsenal í staðinn fyrir tvær milljón-
ir punda.
■ PAUL Stewart, miðvallarleik-
maður Tottenham, er á leið til Li-
verpool. Kaupverðið er áætlað 2,3
milljónir punda eða um 250 milljón-
ir ÍSK. Samningurinn verður undir-
ritaður á næstu dögum er Stewart
fer í æfíngaferð til Noregs með
Liverpool. Stewart, sem var keypt-
ur frá Man. City fyrir fjórum áram,
sagði að fjölskyldan vildi frekar búa
í Norð-vestur Englandi en í Lond-
on og það væri helsta ástæðan fyrir
félagaskiptunum.
■ TOTTENHAM hefur áhuga á
að fá Teddy Sheringham frá Nott-
ingham Forest til að taka stöðu
Gary Lineker, sem hefur ákveðið
að leika í Japan næsta tímabil.
■ FRANSKA félagið Strassburg
keypti í gær n-írska landsliðsmann-
inn Michael Hughes frá Manchest-
er City.
■ ALAN Shearer, enski landsl-
iðsmiðheijinn ungi, virðist á föram
frá Southampton. Félagið vill 4
milljónir punda fyrir hann, mörg
félög hafa sýnt honum áhuga, en
svo virðist sem Kenny Dalglish hjá
Blackburn sé sá eini með nægt
handbært fé til að næla í hann!
■ WEST Ham er sagt vilja kaupa
miðvallarleikmanninn Paul AJlen á
ný frá West Ham.
■ ARSENAL hefur selt Andrew
Cole, sem sæti á í enska landsliðinu
21 árs og yngri, til Bristol City á
500.000 pund.
HANDBOLTI
Fjáröflun
vegna
landsliðsins
HSÍ efnir til fjáröflunar í dag
í samvinnu við Rás 2 og
að sögn Jóns Ásgeirssonar, for-
manns HSÍ, verður dagskrá út-
varpsrásarinnar helguð átakinu
frá klukkan níu í dag og fram
að leiknum við Tékka á Ólympíu-
leikunum, sem byrjar klukkan
hálf sjö.
Jón sagði að dýrt væri að
halda landsliðinu úti og því væri
þetta kærkomið tækifæri til að
brúa bilið.
„Við verðum með okkar fólk
við símann og ýmsu tengt hand-
boltánum verður fléttað inni dag-
skrána. Framlög verða að sjálf-
sögðu ftjáls, en emn-kostdr- er
að gefa fólki kost á að, heita
ákveðinni upphæð á hvert márk,
sem ísland gerir á Ólympluleik-
unum. Það hefur örvandi áhrif á
liðið og alla, sem eru í kringum
það, og eins ætti það að auka
spennuna."