Morgunblaðið - 29.07.1992, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGIÍR
29.
1992
B 9
KORFUKNATTLEIKUR / DRENGJALANDSLIÐIÐ
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Drengjalandsliðið í körfuknattleik sem senn heldur til Belgíu til keppni. í aftari röð frá vinstri til hægri eru: Ólafur Jón Ormsson, KR, Óskar Pétursson,
Haukum, Baldvin Johnsen, Haukum, Friðrik Stefánsson, Tý Vestmannaeyjum, Ægir Gunnarsson, UMFN, Páll Kristinsson, UMFN og Axel Nikulásson, þjálfari.
í fremri röð frá vinstri til hægri eru: Helgi Guðfínnsson, UMFG, Hafsteinn Lúðvíksson, Þór Akureyri, Gunnar Einarsson, ÍBK, Bergur Emilsson, Val, Amþór
Birgisson, Skum IK Svíþjóð og Ómar Öm Sigmarsson, UMFT.
Fjórir yffir 1,90 m
Tveir leikmenn íslenska drengjalandsliðsins hafa aldrei leikið með íslensku félagsliði
Friðrik
byijar
feril
sinn
með
lands-
liði
Eg uppgötvaði Friðrik fyrir
tilviljun. Við vorum að hefja
landsliðsæfingu í íþróttahúsinu í
Njarðvík og þegar ég kom inn í
salinn voru þar fyrir strákar frá
Vestmannaeyjum sem voru í
skólaferðalagi að leika sér í
körfubolta. Meðal þeirra var
Friðrik og lék hann sér að því
að „troða“ þó svo að hann væri
klæddur í gallabuxur. Ég fékk
hann svo til að æfa með okkur
og nú hefur hann verið valinn í
liðið sem tekur þátt í Evrópu-
móti drengjalandsliða sem fram
fer í Belgíu um miðjan ágúst,“
sagði Axel Nikulásson landsliðs-
þjálfari um Vestmannaeyinginn
Friðrik Stefánsson sem væntan-
lega verður fyrsti Eyjamaðurinn
tii að leika landsleik í körfubolta.
Það sem meira er, landsleikirnir
verða fyrstu leikir Friðriks því
enn hefur hann ekki leikið einn
einasta félagsleik.
Friðrik Stefánsson hefur borið
allan sinn aldur í Eyjum og sagð-
ist hann í samtali við Morgun-
blaðið bæði hafa stundað knatt-
spyrnu og handknattleik áður en
körfuknattleikurinn kom til sög-
unar. „Þetta byijaði með því að
við nokkrir félagar fórum að
fylgjast með bandaríska NBA
körfuboltanum og í framhaldi af
því komum við okkur upp körfum
þar sem við eyddum flestum okk-
ar stundum. Nú hefur verið
stofnuð körfuknattleiksdeild hjá
Tý og munum við taka þátt í
íslandsmótinu 1992-93.“ Friðrik
er 15 ára, en verður 16 ára í
haust. Hann er nú 1,99 m á hæð
og notar skó númer 50 og sagð-
ist hann oft eiga í erfiðleikum
með að fá svo stóra skó. Friðrik
sagði að það hefði verið óvænt
en ánæjulegt að verða valinn í
landsliðið með þessum hætti og
nú væri bara að standa sig.
SNOKER
Þrír íslend-
ingar í 16
manna úrslit
rír íslendingar leika í 16 manna
úrslitum á heimsmeistaramót-
inu í snóker í Bandar Seri Begawan
í Brunei. Þeir eru Jóhannes B. Jó-
bannesson, sem
Guöión vann a"a s'na anb'
Guömundsson stæðinga í F-riðli,
skrifar Halldór M. Sverris-
son sem hafnaði í
öðru sæti í G-riðli og Þorbjörn sem
getur enn unnið H-riðil.
Jóhannes B. rauf 100 stiga múr-
inn er hann gerði 107 stig í fyrsta
stuðinu á móti Belganum Pehas.
Jóhann var óheppinn að ná ekki 140
stigum í stuði.
DRENGJALANDSLIÐIÐ íkörfu-
knattleik undirbýr sig nú af
kappi fyrir Evrópumót sem fram
fer í Belgíu um miðjan ágúst og
um versiunarmannahelgina á
meðan flestir jafnaldrar strák-
anna í landsliðinu verða vafalít-
ið að skemmta sér á einhverri
útisamkomunni ætla þeir að
eyða helginni við æfingar í
Grindavík. íslenska liðið er í riðli
með Litháum, Belgum, Eng-
lendingum og Möltubúum. Axel
Nikulásson landsliðsmaður úr
KR er þjálfari liðsins og sagðist
hann vera hæfilega bjartsýnn á
möguleika sinna manna á að
komast áfram í keppninni. „ég
tel að við eigum góða möguleika
gegn Englandi og Möltu en um
getu Litháa og Belga vitum við
ekki.“
Axel sagði að undirbúningur liðs-
ins hefði nú staðið í um eitt
ár. „í maí í fyrra voru valdir 30
strákar til að æfa en
ég tók við liðinu í
september. Liðið tók
svo þátt í íslands-
mótinu í unglinga-
flokki í vetur þar sem strákamir
kepptu sem gestir og áttu þar í höggi
við stráka sem voru 4-5 árum eldri.
Það má segja að það hafi verð ágæt-
ur stígandi hjá þeim í mótinu, þeir
töpuðu fyrstu leikjunum með miklum
mun, en undir lok mótsins var mun-
urinn orðin lítill - aðeins nokkur stig
og sigur vannst í einum leik. Við
lékum 12 leiki og fengu 28 strákar
að spreyta sig í þessum leikjum. Nú
er búið að velja 12 manna hóp sem
mun skipa liðið. í hópnum eru fjórir
leikmenn yfir 1,90 m, en þegar ég
lék með drengjalandsliðinu á sínum
tíma var aðeins einn leikmaður yfir
1,90.“ Tveir leikmenn komu inn í
liðið á síðustu stundu, Friðrik Stef-
ánsson úr Vestmannaeyjum og Arn-
þór Birgisson sem kemur frá Sví-
þjóð, en þeir eiga það sameiginlegt
að hafa ekki leikið með íslensku fé-
lagsliði. Arnþór er sonur Birgis Jak-
obssonar sem áður var kunnur
körfuknattleiksmaður með ÍR og ís-
lenska landsliðinu. Hann hefur verið
búsettur í Svíþjóð í um 14 ár og
hefur Amþór sonur hans leikið með
Skuru IK við góðan orðstýr. Líkt og
Friðrik uppgötvaðist Amþór fyrir
hálfgerða tilviljun. Kolbeinn Pálsson
formaður KKI veitti honum athygli
þar sem hann var að leika sér í körfu-
bolta þegar hann var í heimsókn hér
á landi um jólin. Hann lét síðan
Axel vita um stráksa sem fékk senda
myndbandsspólu með honum í leik
með liði sínu í Svíþjóð og leist honum
svo vel á Amþór að hann valdi hann
í liðið. Mörg lið eiga fulltrúa í
lands
strákamir koma frá 9 liðum. Axel
sagði það skapa vissa erfiðleika
varðandi undirbúninginn en þau mál
væru leyst með því að æfa um helg-
ar og þá æfði liðið 7 sinnum á 3
dögum. „Þetta er vissulega erfitt
fyrir þá sem búa úti á landi en þeir
hafa fengið góðan stuðning frá sín-
um félögum og þá ekki hvað síst
foreldrum sínum sem hafa stutt vel
við bakið á strákunum.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Fjórir hávaxnir: Baldvin Johnsen 1.93, Óskar Pétursson, 1.96, Fridrik Stefánsson, 1.99 og Páll
Krlstinsson, 1.92.
Björn
Blöndal
skrifar frá
Keflavik