Morgunblaðið - 06.08.1992, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
Aldar-
afmæli
skip-
herrans
FJÖLDI fólks lagði leið sína
að Hrafnistu í Hafnarfirði í
gær tii að samgleðjast Eiríki
Kristóferssyni, fyrrum skip-
herra á varðskipunum, á
aldarafmæli hans. Eiríkur var
skipherra á varðskipunum frá
árunum 1929-1962. Nafn hans
reis hátt í þorskastríðunum á
þessum árum og á skipstjórn-
arferli sínum tók hann þátt í
640 björgunaraðgerðum.
Meðal þeirra sem heilsuðu upp
á afmælisbamið í gær vom Þor-
steinn Pálsson, dóms- og sjáv-
arútvegsráðherra, fyrrum sam-
starfsmenn hjá Landhelgisgæsl-
unni, ættingjar og vinir. Mörg
Morgunblaðið/Þorkell
Margir heilsuðu upp á Eirík á afmælinu. Honum á hægri hönd situr Jakobina Sigurðardóttir,
tengdadóttir hans, og á milli þeirra stendur Kristín Einarsdóttir.
heillaskeyti bárust til Eiríks, þar
á meðal svohljóðandi skeyti frá
forsætisráðherra: „Fyrir hönd
ríkisstjómar íslands sendi ég þér
heillaóskir á aldarafmæli. Afrek
þín og þjónusta við íslensku þjóð-
ina á örlagatímum munu um
ókomna tíð varpa ljóma á nafn
þitt.“
Ákvörðun Tryggingastofnunar vegna sérfræðinga:
Fjöldi fólks lagði leið sína að Hrafnistu í Hafnarfirði í gær
Leitað leiða til að koma til
móts við sjónarmið lækna
- segir formaður tryggingaráðs
JÓN Sæmundur Sigutjónsson, formaður tryggingaráðs, segir að
ef ákvörðun Tryggingastofnunar um að setja ákveðið þak á starfs-
einingafjölda sérfræðinga verði endurskoðuð og aðrar aðferðir
fundnar til að draga úr kostnaðinum rúmist slíkar breytingar ekki
innan gildandi samninga Tryggingastofnunar og Læknafélags ís-
lands og semja verði upp á nýtt. Hann segir að á næstu dögum
verði umkvartanir lækna þó skoðaðar og leitað leiða til að koma
til móts við sjónarmið þeirra svo breytingamar bitni ekki á sjúkling-
um.
Haldinn verður fundur í heil-
brigðisráðuneytinu með formanni
samninganefndar Tryggingastofn-
unar til að skoða þessi mál nánar
næstkomandi fimmtudag, að sögn
Þorkels Helgasonar, aðstoðar-
manns heilbrigðisráðherra.
Sighvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra sagði að heilbrigð-
isráðuneytið- hefði ekkert fjallað
um ákvörðun samninganefndar
Tryggingastofnunar og það væri
ekki rétt sem fram kom hjá for-
manni Læknafélags íslands í
Morgunblaðinu í gær, að ákvörð-
unin nyti ekki stuðnings yfirstjóm-
ar heilbrigðisráðuneytisins. „Við
höfum ekki fjallað um þessa
ákvörðun, því hún var tekin af
öðrum aðilum en okkur. Aðilum
sem voru fyllilega réttbærir til að
taka þessa ákvörðun," sagði Sig-
hvatur.
Þorkell sagði að skoða mætti
þá ákvörðun sem Tryggingastofn-
un hafi tekið sem eitt af hugsan-
legum skrefum en málin verði til
frekari athugunar. „Við erum að
skoða leiðir í heild sinni til að hemja
kostnaðarsprengingu vegna sér-
fræðilæknisþjónustunnar," sagði
Þorkell.
Jón Sæmundur kveðst fyrst hafa
lagt til að sett yrði þak sem miðað-
ist við 55 þúsund starfseiningar
en það tæki þá til 155 lækna en
niðurstaðan hefði orðið að fara
vægar í sakimar fyrst í stað og
miða þakið við 65 þúsund einingar
sem næðu til 44 sérfræðinga.
Launakostnaður vegna 65 þúsund
eininga fyrir læknisverk hvers sér-
fræðings á ári er átta milljónir
króna, að sögn Jóns.
Jón segir að ástæður þess að
kostnaðurinn hefur farið 200 millj-
ónir króna fram úr fjárlögum séu
fleiri starfseiningar af hverri heim-
sókn sjúklings til sérfræðings og
fjölgun sérfræðinga í læknastétt.
Skotvopnum stolið:
Evrópsk og amerísk félög með afslátt í N-Atlantshafsflugi
Tvítng'ur mað-
ur játaði á sig
þjófnaðinn
TVÍTUGUR Reykvíkingur var í
gærkvöldi tekinn til yfirheyrslu
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins
vegna þjófnaðar á fjórum byss-
um og skotfærum úr geymslu
fjölbýlishúss við Flúðasel í
Reykjavík aðfaranótt þriðjudags
og í fyrrinótt. Að sögn RLR
fannst allt þýfið um kvöldmatar-
leytið i gær samkvæmt ábend-
ingu mannsins sem þá hafði við-
urkennt verknaðinn.
Byssumar sem um ræðir eru
Mossberg-haglabyssa, Mossberg-
riffiil og tveir stórir Winchester-
rifflar, allt skotvopn sem geta verið
stórhættuleg í höndum þeirra, sem
ekki kunna með þau að fara. Byss-
umar vom geymdar í læstum járn-
skáp og byssulásamir í öðmm skáp.
Báðir skápamir vom brotnir upp
og einnig stolið byssupokum undir
skotvopnin. í fyrra innbrotinu vom
skot í byssumar skilin eftir, en í
fyrrinótt var brotist inn í geymsluna
á nýjan leik og skotfærin þá höfð
á brott.
Flugleiðir lækka far-
gjöld sín til samræmis
FLUGFÉLÖG austan hafs og vestan hafa ákveðið
að bjóða sérstök afsláttarfargjöld á flugleiðum
yfir Norður-Atlantshaf. Afslátturinn er allt að
30%. Að sögn Sigfúsar Erlingssonar, svæðisstjóra
Flugleiða í Norður-Ameríku, munu Flugleiðir
bjóða sérfargjöld með afslætti til samræmis við
lækkanir annarra félaga.
Þijú evrópsk flugfélög, SAS, Swissair og KLM, riðu
á vaðið með því að bjóða ný afsláttarfargjöld til Amer-
íku. Stóro bandarísku félögin, Delta, Continental,
Trans World og American, hafa nú svarað með því
að slá allt að 30% af fyrirfram keyptum flugmiðum á
leiðum yfir Norður-Atlantshaf.
Sigfús Erlingsson segir að Flugleiðir muni bjóða
svipaðan fargjaldapakka og bandaríska Delta-flugfé-
lagið. Samkvæmt fréttaskeytum Reuters-fréttastof-
unnar mun Delta lækka verð á flugmiðum, sem keypt-
ir em með talsverðum fyrirvara í haust og vetur, um
allt að 30%. Um er að ræða flug til 33 staða í Evr-
ópu. Lægstu fargjöldin verða 448 dalir, eða um 24.500
íslenzkar krónur, frá New York til Berlínar, Amsterd-
am, Frankfurt, Parísar og Zurich, svo dæmi séu nefnd.
Sigfús segir að venjuleg fargjöld muni ekki lækka,
heldur sé hjá öllum flugfélögunum um sérfargjöld að
ræða, eða útsölufargjöld eins og þau séu gjaman köll-
uð. „Þrengri reglur gilda um þessi fargjöld, það er
meiri takmörkun á sætafjölda og sölu þeirra lýkur á
fyrirfram ákveðnum degi, eins og gerist á útsölum.
Skráð fargjöld breytast hins vegar ekki í sjálfum sér,“
segir hann.
Samkvæmt skeytum Reuters er barátta amerísku
flugfélaganna um farþega nú harðvítug, enda hefur
dregið úr ferðalögum vegna efnahagskreppu í Banda-
ríkjunum. Fréttastofan segir að afsláttarfargjöldin
auki enn á taprekstur flugfélaganna.
Framköllun:
Verðmun-
uryfir60% g
MUNUR á verði framköllunar
og stækkunar á ljósmyndum
getur verið yfir 60% á milli B
verzlana, samkvæmt verðkönn-
un sem Verðlagsstofnun hefur _
gert. Hæsta verð á framköllun
og stækkun er í verzlunum Hans
Petersens, en lægsta verðið hjá
Ljósmyndabúðinni Ingólfsstræti
6.
Hjá Hans Petersen kostar 1.659
kr. að framkalla 36 mynda filmu
og stækka myndir í 10 sinnum 15
sm stærð. Sama þjónusta kostar
998 kr. hjá Ljósmyndabúðinni Ing-
ólfsstræti 6. Verðmunurinn er
66%, en minni ef margar fílmur
eru framkallaðar, því að Hans
Petersen veitir 50% afslátt af fram-
köllun og stækkun 5. hverrar
filmu.
Verð á eftirtökum er einnig .
lægst hjá Ljósmyndabúðinni Ing- i
ólfsstræti, eða 120 kr. fyrir 13
sinnum 18 sm stóra eftirtöku. _
Hæsta verðið er hins vegar hjá H
Hans Petersen, Hugföngum á Eiði-
storgi, Sælgætis- og videohöllinni _
Garðatorgi og Tónborg í Hamra- w
borg. Þar var verðið 195 kr.
Verð á Kodak Gold 36 mynda
fílmu var svipað hjá flestum ljós-
myndavöruverzlunum, eða 570-
580 kr. Myndasmiðjan á Egilsstöð-
um var með lægsta verðið, seldi
filmuna á 515 kr.
Sjá frétt frá Verðlagsstofnun
bls. 18.
I
»
1
I
t
k
k
Ný sjón-
varpsstöð
hefur út-
sendingar
TILRAUNAÚTSENDINGAR
hófust hjá Omega, óháðri
kristilegri sjónvarpsstöð, í
Ser, miðvikudaginn 5. ágúst.
tsendingar Omega verða á
tilraunastigi næstu 1-2 mán-
uði og nást í austurhluta
Reykjavíkur.
Eiríkur Sigurbjörnsson, sjón-
varpsstjóri Omega, sagði að
útsendingar hefðu hafist um
áttaleytið í gærmorgun og
hefðu komið mjög vel út. Stöð-
in sendi út frá Bolholti í átt að
Grafarvogi inn í Laugames-
hverfíð og í átt að Breiðholti
yfír Háaleitið. Eftir tvo mánuði
er stefnt að því að stækka
hringinn og senda út jafnt í
allar áttir. Að sögn Eiríks eiga
sjónvarpseigendur sem hafa
loftnet að ná útsendingunum.
Stöðin býður fólki aðstoð við
að ná útsendingunum.
Að sögn Eiríks eru útsend-
ingar Omega Qármagnaðar
með stuðningi sem stöðin fær
með þeirri erlendu dagskrá sem
hún sýnir. Einnig verða auglýs-
ingatímar og fólk getur verið
með fijálsa stuðningsáskrift en
dagskráin verður opin. Eiríkur
sagði að allur rekstrarkostnað-
Ur væri í lágmarki.
Efni stöðvarinnar er aðallega
erlent til að byrja með en að
sögn Eiríks er stefnt að því að
hafa innlent efni á dagskrá
fljótlega. Hann sagði að taka
ætti upp trúarlegar samkomur.
Einnig væru hugmyndir um að
hafa sunnudagaskóla fyrir
bömin og viðtalsþætti. Eiríkur
sagði að kristið fólk úr öllum
áttum væri velkomið á stöðina
jiar sem Omega væri óháð öll-
um söfnuðum og trúarflokkum.