Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
7
Helga Jónsdóttir
tíl Alþjóðabankans
HELGA Jónsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, tekur
nú 1. águst við starfi varafulltrúa Norðurlanda í framkvæmda-
sijórn Alþjóðabankans og mun gegna því næstu þijú ár. Hún er
fyrsta íslenska konan sem gegnir störfum á Norðurlandaskrifstofu
bankans.
Alþjóðabankinn var settur á
stofn eftir síðari heimsstyijöldina
til að sinna þróunarmálum og
leggja fé til endurreisnar Evrópu
úr rústum stríðsins. Á síðustu ára-
tugum hefur meginverkefni hans
verið að veita fé til uppbyggingar
í þróunarlöndum og bæta lífskjör
í fátækustu löndum veraldarinnar
þar sem meira en milljarður manna
lifir undir fátækramörkum. Helstu
framlög íslands til þróunaraðstoð-
ar renna til bankans og systur-
stofnana hans, Alþjóðaframfara-
stofnunarinnar (IDÁ) og Alþjóðal-
ánastofnunarinnar (IFC).
Aðildarríki Alþjóðabankans eru
nú 167 og hefur fjölgað um annan
tug á þessu ári þegar ríki Austur-
Evrópu og fyrrum Sovétríkjanna
hafa gengið inn í bankann hvert
af öðru. Gert er ráð fyrir að ríkin
verði orðin 174 fyrir lok þessa árs.
I framkvæmdastjórn bankans sitja
nú 23 fulltrúar og hafa Norður-
löndin frá upphafi átt fulltrúa þar.
Af íslands hálfu hafa Jón Árna-
son, Vilhjálmur Þór, Jón Sigurðs-
son, fv. ráðuneytisstjóri, og Jónas
H. Haralz verið aðalfulltrúar í
framkvæmdastjórninni, en Björn
Tryggvason, Vilhjálmur Þór og
Valgeir Ársælsson varafulltrúar.
Auk þeirra hafa Gunnlaugur Sig-
mundsson og Björn Líndal starfað
sem aðstoðarmenn á Norðurlanda-
skrifstofu Alþjóðaþankans. Á
skrifstofunni starfa nú átta menn
en þeim mun fjölga fyrir lok ársins
vegna aðildar Eystrasaltsríkjanna
þriggja að bankanum og Norður-
landaskrifstofunni, segir m.a. í
frétt frá viðskiptaráðuneytinu.
Helga Jónsdóttir er fædd 1953.
Hún lauk stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla íslands 1973 og laga-
prófi frá Háskóla íslands 1978.
Hún starfaði í dóms- og kirkju-
máiaráðuneytinu 1978-1979,
skiptarétti Reykjavíkur 1979-
1983 og sem aðstoðarmaður for-
sætisráðherra og utanríkisráð-
herra allt til 1989 er hún var skip-
uð skrifstofustjóri í forsætisráðu-
neytinu og ritari ríkisstjórnar.
Verður hún í leyfi frá ráðuneytinu
meðan hún gegnir störfum í Al-
þjóðabankanum. Hún er gift Helga
H. Jónssyni, varafréttastjóra, og
eiga þau þijú börn.
SUZUKIVITARA
5 DYRA LÚXUSJEPPI
Suzuki Vitara er rúmgóður 5 manna lúxusjeppi, búinn öllum helstu þæg-
indum fólksbíls og kostum torfærubíls. Hann er grindarbyggður og má
auðveldlega hækka og setja undir hann stærri dekk. Suzuki Vitara er
með 4ra strokka, 16 ventla vél með beinni innspýtingu.
á SUZUKI
Yerð frá kr. 1.576.000.- 3——____________
SUZUKI BÍLAR HF
SKEIFUNNI 17 SlMI 68 51 00
10 DAGA UTSALA A VINSÆLUSTU BANDARISKU
MERKJUNUM í FJALLAHJÓLUM í ÖLLUM STÆRÐUM
fyrir börn frá 8 ára, unglinga og fullorbna.
Dæmi:
Frá TREK, USA, Model 800, (21 gíra Shimano, Krómólý |
stell í mörgum stærbum, átaksbremsur, svargrænt eða hvíttj
á kr. 23.654,- stgr. (áður kr. 29.727,- stgr.)
Frá SPECIALIZED, Hardrock Cruz, (2 1 gíra, Kómólý
stell í mörgum stærðum, átaksbremsur, dökkbátt eða hvítt)
á kr. 21.521,- stgr. (ábur kr. 28.593,- stgr.)
Frá GT-USA, Outpost, (21 gíra, Krómólý léttmálmsstell í
mörgum stærðum, átaksbremsur, svart eða „inferno" rautt)
á kr. 26.974,- stgr. (ábur kr. 33.439,- stgr.)
Einnig fáein dönsk úrvalshjól frá WINTHER
Dæmi: Barnahjól frá kr. 8.836,- stgr.
(áburkr. 12.938,- stgr.)
Lúxus kvenhjól, 3ja gíra, fótbremsur með öllu
kr. 20.930,- stgr. (ábur kr. 29.900,- stgr.)
I
suMnnrtiibnðsíi
Örfá eintök af
metsölufjallahjálinu
mjukt GEL-SÆTI
BEINT EÐA HÁTT STÝRI
24" hjól (frá 8-10 ára)
26" hjól (frá 10 ára)
á kr. 19.836,- stgr.
(ábur kr.24.929,-stgr.)
fjallahjól,
frákr. 21.521
SUMARTILBOÐIÐ
STENDUR AÐEINS
I 10 DAGA
SKEIFUNNI V T
VERSLUN SÍMI 679890 - VERKSTÆÐI SÍMI 679891
■*P | _ op|Ð
asai LJbJ laugardaga
RAÐGREIÐSLUR FRA KL. 10-14
ALVEG EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST KJORGRIP A TOMBOLUVERÐI
■v.y^ 1 wgl' k-.'<
1 1 j/SBh a m
N'<.' mtgd&r WB/notÉFF' T ^njN