Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992 Útvegsmenn á Austurlandi: Lögiim um Hagræð- ingarsjóð verði breytt ÚTVEGSMANNAFÉLÖGIN tvö á Austurlandi héldu í gær fund á Egilsstöðum með þingmönnum Austulandskjördæmis. Nær 40 útvegs- menn af Austfjörðum sátu fundinn. Á fundinum var fjallað um við- brögð austfirskra útvegsmanna við skerðingu ríkisstjórnarinnar á aflamarki. Að sögn Guðbjarts Össurarsonar formanns Útvegsmanna- félags Hornafjarðar ríkti einhugur meðal fundarmanna hvar í stjórn- málaflokki sem þeir standa. Eiríkur Ólafsson formaður Útvegsmanna- félags Austfjarða segir að þingmenn kjördæmisins hafi sýnt fullan skilning á þeim alvarlegu afleiðingum sem skertar veiðiheimildir hafa á atvinnulíf á Austurlandi. Fundurinn samþykkti tvær álykt- anir. í annarri þeirra lýsir fundurinn áhyggjum sínum vegna þess ástands sem er að skapast á Austurlandi vegna úthlutunar á aflamarki fyrir næsta fiskveiðiár. Jafnframt er skor- að á Alþingi að breyta lögum um Hagræðingarsjóð þannig að honum verði beitt til að bæta án endur- gjalds mestu skerðinguna á botn- 100 ára afmæli HELGA Jónsdóttir varð hundrað ára í gær, miðviku- daginn 5. ágúst. Helga hélt upp á daginn ásamt aðstand- endum í Skjóli, umönnunar- og hjúkrunarheimili, þar sem hún er vistmaður. Helga fæddist að Bakka í Ölfusi 5. ágúst 1892 en ólst upp á Læk í Ölfusi. Hún flutt- ist til Reykjavíkur árið 1924. Eiginmaður hennar var Guðjón Brynjólfsson og áttu þau þrjú börn. Að sögn Valgerðar Guðjóns- dóttur, dóttur Helgu, er Helga rúmföst en em eftir aldri og fylgist vel með. Valgerður sagði að móðir sín þakkaði háan aldur reglusemi bæði hvað varðar vín og tóbak, og að hún hefði ætíð verið hraust og vinnusöm. Eldur á geymslu- lofti ELDUR kom upp á geymslulofti timburhúss við Hverfisgötu í fyrrinótt. Kviknað hafði í hrúgu af dóti, sem lá á miðju gólfi. Rannsóknarlögreglan telur að um íkveikju geti verið að ræða, en einnig komi aðrar orsakir tií greina. Vegfarandi tilkynnti um eittleyt- ið um nóttina að reykur kæmi und- an þakskeggi hússins. Slökkviliðið kom á vettvang og gekk slökkvi- starf vel. Búið er á tveimur hæðum húss- ins, en íbúar sluppu óskaddaðir frá brunanum. fískveiðiheimildum nú og í fyrra. í hinni ályktuninni er þeim tilmæl- um beint til stjórnvalda að þau beiti sér fyrir aðgerðum sem auðveldi fyrirtækjum í sjávarútvegi að takast á við fyrirsjáanlegan vanda. Þær aðgerðir sem nefndar eru í ályktun- inni eru lenging lána, frestun af- borgana og að opinberum álögum verði létt af sjávarútveginum. Telpa brenndist TVEGGJA ára gömul telpa var flutt vegna brunasára frá Borg- arfirði til Reykjavíkur með þyrlu Landhelgisgæslunar um helgina. Telpan sem dvaldist ásamt fjöl- skyldu sinni í Svínadal brenndist af heitu vatni og var fyrst flutt á sjúkrahúsið á Akranesi. Landhelgisgæslan fékk útkall um klukkan korter yfir eitt aðfaranótt sunnudags um að ná í brennt bam á sjúkrahúsið á Akranesi. Ólafur Baldvinsson, læknir á sjúkrahúsinu á Akranesi, sagði að komið hefði verið með telpuna um klukkan eitt eftir miðnætti og hefði henni verið veitt fyrsta meðferð til þess að koma í veg fyrir lost. Strax hefði verið kallað á þyrluna þar sem ljóst hefði verið að telpan þyrfti á ítar- legri meðferð að haldá. Komið var með telpuna um tvö- leytið til Reykjavíkur og hún flutt á gjörgæsludeild Landspítalans. Aðalbjöm Þorsteinsson, læknir á Landspítalanum, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að telpan hefði gengið undir aðgerðir vegna bmn- ans og væri líðan hennar bærileg miðað við aðstæður. Júli 1992 Framköllun og stækkun Verð per mynd 12 mynda 24 mynda 36 mynda Eftirtaka Verð per mynd 13x18 cm 10x24 cm 20x30 cm Amatörverslunin, Laugavegi 82, Rvík 1)672 1)1104 1)1536 150 Express, Suðurlandsbraut 2, Rvík 2)650 2) 1070 2) 1490 185 495 620 Filman, Hamraborg 1, Kópavogi 3) 672 3)1104 3) 1530 170 Framköllun, Þverholti 9, Mosfellsbæ 2) 674 2)1118 2) 1562 Framköllun Miðbæjarmynda, Lækjargötu 2, 670 1090 1510 175 495 590 Rvík Framköllun á stundinni, Ármúla 30, Rvík 655 1075 1495 185 495 620 Hans Petersen, Bankastræti 4, Glæsibæ, 4)723 4)1191 4) 1659 195 580 620 Kringlunni og Laugavegi 178 Rvík Hugföng, Eiðistorgi 13, Seltjarnarnesi 2) 684 2)1128 2) 1572 195 490 Litsel, Austurstræti 6, Rvík 5) 689 5)1133 5) 1577 180 Ljóshraði, Eiðistorgi 11, Seltjn. ogHamra- 672 1104 1536 borg 5, Kópav. Ljósmyndabúðin, Ingólfsstræti 6, Rvík 437 718 998 120 495 620 Ljósmyndahúsið, Reykjavíkurvegi 68, Hafn- 655 1075 1495 185 495 620 Ljósmyndavörur, Skipholti 31, Rvík 650 1070 1490 160 Regnbogaframköllun, Síðumúla 34, Rvík 2) 689 2)1133 2) 1577 185 Sælgætis- og vídeóhöllin, Garðatorgi, 2) 684 2)1128 2) 1572 195 490 Garðabæ Tónborg, Hamraborg 7, Kópav. 2) 684 2) 1128 2) 1572 195 490 Úlfarsfell, Hagamel 67, Rvi'k 628 1036 1444 Fuji-búðin, Sunnuhlíð 12, Akureyri 682 1114 1546 Nýja Filmuhúsið, Hafnarstræti 106, Akureyi 2) 689 2)1133 2)1577 185 580 620 Pedro-myndir, Skipagötu 12, Akureyri 694 1138 1582 190 Hraðmynd, Miðvangi 2-4, Egilsstöðum 689 1133 1577 Myndasmiðjan, Dynskógum 4, Egilsstöðum 7) 689 7)1133 7) 1577 185 590 675 Meðalverð 665 1092 1520 179 528 587 Hæsta verð 723 1191 1659 195 590 675 Lægstaverð 437 718 998 120 495 490 Mismunur í krónum 286 473 661 75 95 185 Mismunur í prósentum 65% 66% 66% 62% 19% 38% 1) Ódýrara eftir eins dags bið. 2) Filma fylgir framköllun. 3) Filma fylgir framköllun eða 50% afsláttur af 4. hverri framköllun. 4) 50% afsláttur af 5. hverri filmu. 5) 10% staðgreiðsluafsláttur eða frí filma. 6) 11. filma framkölluð frítt. Verðkönnun á framköllun og stækkun: Rúmlega 60% verð- miinur milli verzlana í JÚLÍMÁNUÐI var gerð verð- könnun á vegum Verðlagsstofn- unar á þjónustu framköllunar- fyrirtækja. Verð var kannað hjá 21 fyrirtæki á höfuðborgarsvæð- inu og 5 fyrirtækjum á lands- byggðinni. Auk þess að kanna verð á framköllun og stækkun var athugað verð á tveimur mik- ið seldum filmum á markaðinum. Helstu niðurstöður könnunarinn- ar eru eftirfarandi: 1. Verð á framköllun og stækkun var lægst hjá Ljósmyndabúðinni Ingólfsstræti 6 en hæst í versl- unum Hans Petersens. Fram- köllun á 36 mynda filmu og stækkun miðað við 10x15 cm stærð mynda kostar 1.659 kr. þar sem hún er dýrust og 998 kr. þar sem hún er ódýrust. Verðmunurinn er 66%. Tekið skal þó fram að veittur er 50% afsláttur af framköllun og stækkun 5. hverrar filmu hjá verslunum Hans Petersens. 2. Verð á eftirtökum er lægst hjá Ljósmyndabúðinni Ingólfsstræti, Flugleiöir: Ætla að bjóða 10-17 pró- sent lægri haustfargjöld FLUGLEIÐIR hafa sótt um leyfi til að bjóða haustfargjöld sem í flestum tilfellum eru lægri en árið áður. Einnig er fyrirhugað að fargjöldin taki gildi mánuði fyrr en venjulega. Ef samþykki fæst verður til dæmis boðið upp á einstaklingsfargjald til Glasgow frá 1. september fyrir 21.000 krónur án flugvallar- skatts. Að sögn Margrétar H. Hauks- dóttur hjá Flugleiðum hefur eftir- spum eftir stuttum ferðum aukist mjög undanfamar vikur og segir hún greinilegt að fólk ætli að leggja í haustferðir sínar fyrr en oft áður. Undanfarin ár hafa haustfargjöld Flugleiða staðið til boða frá 1. októ- ber en þeim er nú flýtt um mánuð. Samkvæmt tilkynningu Flugleiða þess efnis verður það gert til að koma til móts við þessa auknu eftir- spum. í upplýsingum frá Flugleiðum segir að með nýju fargjöldunum mun einstaklingur á leið til New York greiða 32.990 kr. fyrir utan flugvallarskatt og svarar það til 17% lækkunar miðað við árið áður en þá hefði hann þurft að greiða 39.750 kr. Einstaklingsfargjald til London lækkar um rúm 10% og verður nú 25.900 kr. Að sögn Margrétar Hauksdóttur hafa neytendur sýnt snögg viðbrögð við verðlækkuninni. í gær hringdu 2.316 manns í farskrárdeild Flug- leiða. Gamla metið var 1.900 manns á dag, en að jafnaði hringja um 1.300 manns í farskrárdeildina dag- lega. Helgi Jóhannsson, formaður Fé- lags íslenskra ferðaskrifstofa, sagð- ist alltaf fagna því þegar fólk gæti nýtt sér lág fargjöld. Hins vegar mætti ekki gefa sér að hér væri einhver stórkostleg lækkun á ferð- inni. Helgi sagði að honum virtist að fyrirhuguð fargjöld Flugleiða væra svipuð þeim sem ferðaskrif- stofur hefðu boðið upp á síðasta haust. Helgi taldi ennfremur að eini munurinn væri einstaklingsfar- gjöldin sem flugfélagið hefði ekki haft á boðstólum í fyrra. Hann sagði að þau væra til hagsbótar fyrir þá sem ætluðu í ættingjaheimsóknir og því um líkt en strax og viðkom- andi þyrfti að greiða gistingu kæmi dæmið út á eitt. eða 120 kr. fyrir 13x18 cm stóra eftirtöku. Hæsta verð er hjá verslunum Hans Petersens, Hugföngnm Eiðistorgi 13, Sel- tjarnarnesi, Sælgætis- og vídeó- höllinni, Garðatorgi, Garðabæ og Tónborg, Hamraborg 7, Kópavogi. Kostaði eftirtakan 195 kr. fyrir 13x18 cm eftir- töku. Verðmunurinn er 62%. 3. Verðmunur á milli verslana á Kodak Gold 36 mynda filmu er í flestum tilvikum óverulegur. Það var ein verslun, Mynda- smiðjan, Dynskógum 4, Egils- stöðum, sem seldi filmuna á kr. 515 kr. Aðrar verslanir seldu filmuna á 570-580 kr. Verð- munur á Fujicolor 36 mynda fílmu var einnig óverulegur, nema í tveimur tilvikum. Mynda- smiðjan á Egilsstöðum seldi fílmuna á kr. 445 og Fuji-búðin, Sunnuhlíð 12, Akureyri seldi fílmuna á 460 kr. meðan aðrar verslanir seldu hana á kr. 520. 4. Frá því síðasta könnun var gerð í júní 1991 hefur verð á fram- köllun og stækkun að meðaltali hækkað um 1-4%. Einstaka fyr- irtæki hafa hækkað verðið á þjónustunni um 3-11%, hjá sumum er verðið óbreytt, en hjá nokkrum hefur verðhækkun ver- ið 3-8%. Verð á fílmum er nán- ast óbreytt frá því í júní á síð- asta ári. Tveir slasast í vinnuslysi VINNUSLYS varð í húsi Prentsmiðju Morgunblaðsins í gær. Blásara- mótor féll á Ijóra iðnaðarmenn, sem störfuðu í húsinu á vegum verk- taka. Tveir iðnaðarmannanna slösuðust, annar alvarlega. Iðnaðarmennimir vora að setja upp blásara í blásaraklefa á þriðju hæð hússins. Blásaramótorinn, sem Ljóðalestur og jazz í Djúpinu BRAGI Ólafsson og Sjón munu í kvöld, fimmtudaginn 6. ágúst kl. 21.30, lesa upp úr verkum sinum í Djúpinu, kjallara Hornsins við Hafnarstræti, við undirleik jazz- kvartetts sem hefur verið settur saman í þvi tilefni. Kvartettin skipa Úlfar Ingi Har- aldsson, bassi, Jóel Pálsson, tenór- og sópran-saxófónn, Matthías Hemstock, trommur, og Hilmar Jensson, rafmagnsgítar. vegur 300 kíló, var hífður upp með blökk, sem fest var í loftið með kaðli. Kaðallinn slitnaði og féll mótorinn á fjóra menn. Tveir sluppu ómeiddir, en tveir voru fluttir á slysadeild.. Annar slasaðist alvar- lega, lærbrotnaði meðal annars, og varð að gangast undir aðgerð. Á slysadeild Borgarspítalans fengust þær upplýsingar í gær- kvöldi að líðan mannsins sem gekkst undir aðgerð væri þokkaleg eftir atvikum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.