Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 44
EIMSKIP VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ .....1. V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! MORCUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Samstarf um getraunir: Austurríki í hópinn EUROTIPS nefnist nýtt getrauna- kerfi sem verður sett á laggimar í haust. Verður þar um að ræða viðbót við samnorrænar getraun- ir, sem hafa verið í gangi siðan 1990. Austurríkismenn hafa nú bæst í leikinn og auk þeirra hafa Þjóðverjar og Svisslendingar sýnt samstarfinu áhuga. Eftir að sam- norrænar getraunir voru teknar upp hér á landi nærri þrefaldaðist sala getraunaseðla, og fyrsti vinn- ingur hefur numið frá 10-55 miHj- ónum króna. „Eurotips er bara byrjunin á stærra dæmi,“ sagði Sigurður Bald- ursson hjá íslenskum getraunum. „Um leið og Þjóðverjar og Svisslend- , ingar tæknivæða dreifikerfi sitt munu þeir taka þátt í þessu með okkur, og jafnvel hafa Frakkar, Hol- lendingar og Belgar sýnt samstarfinu áhuga.“ Sigurður kvað ætlunina fyrst í stað vera, að gefnir yrðu út íjórir sameiginlegir seðlar fyrir Evrópu- keppnina í knattspymu í haust. Verði þá fyrsti vinningur úr sameiginlegum potti þjóðanna. „Þetta verður senni- lega 14-15 leikja seðill og verður röðin seld á 20 krónur," sagði hann. „I framtíðinni stendur jafnvel til að *breyta fyrirkomulagi Evrópukeppn- innar og gera hana riðlaskipta með leikjum í hverri viku í stað útsláttar- keppni eins og nú er. Þá væri hægt að hafa Eurotips-seðil í hverri viku.“ ----------»■ ♦ ♦--- Höfn í Homafirði: Dæmi um að skólafólk breyti áætlunum sínum o g leiti starfa fyrir veturinn Umsóknum um námslán í haust fækkar milli ára SAMKVÆMT upplýsingum frá Lánasjóði íslenskra námsmanna fækkar umsóknum til sjóðsins um námslán fyrir komandi skólaár nokkuð, en endanlegar tölur um umsóknir um lán frá sjóðnum liggja ekki enn fyrir. Þá hafa ráðningafyrirtæki sem Morgunblaðið hefur haft spurnir af orðið vör við breyttar áætlanir skólafólks, sem hefur leitað starfa fyrir veturinn, annað hvort fulls starfs eða hlutastarfa. Góðri humar- vertíð að ljúka HUMARVERTÍÐ er um það bil að ljúka á Homafirði. Vertíðin hefur verið góð en útgerðarmenn kvarta þó undan því að humarinn hafi verið smár í ár. Bátarnir á Hornafírði eru um það bil að verða búnir að fiska upp í kvóta sinn af humri á þessu ári. Guðbjartur Össurarson fram- kvæmdastjóri hjá Hrísey hf. segir að vel hafi veiðst á þessari humar- vertíð en mikið verðfall á humri miðað við síðastliðið ár komi illa við menn í útgerð á Höfn. Humar- veiðinni er lokið hjá Faxeyri hf. Guðmundur Eiríksson fram- kvæmdastjóri þar segir að vertíðin hafí gengið afar vel og vinnslu hafí verið lokið fyrr en undanfarin ár. Guðmundur segir að þetta hafi þær afleiðingar að sumarvinnufólk hjá Faxeyri sé nú búið að missa vinn- una. Að öðru leyti segja þeir Guð- bjartur og Guðmundur að lok hum- arvertíðarinnar komi ekki niður á atvinnuástandi á Höfn. Umsóknarfrestur um lán frá Lána- sjóði íslenskra námsmanna rann út 1. ágúst síðastliðinn. Öll síðustu ár hefur verið fjölgun á umsóknum til sjóðsins ár frá ári, og hefur hún oft- ast haldist í hendur við fjölgun ný- nema á háskólastigi. Enn hefur ekki verið lokið við að flokka og skrá all- ar umsóknir, en nú þegar er búið að skrá um 6.300, að sögn Þorsteins Þorsteinssonar, fulltrúa Stúdenta- ráðs í stjóm LIN. Hann segir, að sér kæmi ekki á óvart þó heildarfjöldi umsókna yrði öðm hvoru megin við 7.000. „Samanburður við fyrri ár er erfiður,. þar sem aðrar reglur gilda nú en þá,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið. „Hins vegar er ljóst að þama er um fækkun að ræða, og líklega væri hægt að bera þessi sjö þúsund saman við átta þúsund í fyrra.“ Þorsteinn benti einnig á, að sér væri kunnugt um nokkurn fjölda nemenda sem hefðu í hyggju að fjár- magna nám sitt með öðmm hætti en með lántökum frá sjóðnum, en hefðu samt sem áður sótt um lán sem baktryggingu. „Þannig verður hin raunverulega fækkun námsmanna sem taka lán hjá sjóðnum ekki ljós fyrr en kemur fram á veturinn, þeg- ar lánin koma til útgreiðslu, og fólk þarf að gera upp hug sinn hvort það tekur lánin eða ekki,“ sagði Þor- steinn. Hjá LíN fengust þær upplýsingar að fækkun umsókna um lán til fyrri- hlutanáms í þeim löndum þar sem krafist er skólagjalda, svo sem Bandaríkjanna og Bretlands, væri líklega minni en margir hefðu búist við. Þetta er þó talið skýrast að hluta af því, að þeir umsækjendur sem sýnt geta fram á að hafa verið veitt innganga i skóla í þessum löndum -fyrir þann 1. júní sl. verður veitt undanþága frá hinum nýju reglum LÍN. Alvarlegt ástand að skapast í verktakastarfsemi segir formaður VTSÍ Stefnir í 20-30% samdrátt Hornamaðurinn tefidi við heimsmeistarann meðan beðið var Barcelona. Frá Skapta Hallgrímssyni, blaðamanni Morgunblaðsins. Heimsmeistarinn í skák, Garrí Kasparov, er nú staddur í Barcelona í boði alþjóða ólympíu- nefndarinnar og var íþróttamönnum í ólympíu- þorpinu boðið að tefla fjöltefli við meistarann í gærmorgun í íþróttahöllinni þar sem badmin- tonkeppni leikanna fór fram, en hún er innan girðingar þorpsins. Valdimar Grímsson, lands- liðsmaður í handknattleik, var einn þeirra sem mætti meistaranum en þijátíu og einn settist að tafli gegn Kasparov, og allir lutu í lægra haldi. Valdimar sat í tæpa tvo tíma og aðeins þrír lengur en hann. „Hann vann mig í 36 leikjum, ég lék af mér,“ sagði Valdimar við Morgunblaðið. „Hann sótti grimmt. Alltaf þeg- ar mér fannst ég vera búinn að finna réttu vamaraðferðina kom ný sókn frá honum og þetta hrundi hjá mér í lokin,“ sagði hann. Undanúrslitaleikirnir í handknattleik fara fram í dag og leika íslendingar við Samveldið klukk- an 19 að íslenskum tíma og Svíar við Frakka klukkan 17. Þá ræðst hveijir leika til úrslita um gull- og silfurverðlaun annarsvegar og bronsverðlaunin hins vegar, en þeir leikir fara fram á laugardag. Morgunblaðið/RAX Valdimar Grímsson og Garrí Kasparov ræðast við áður en fjölteflið hófst. Valdimar er að gefa heimsmeistaranum merki íslensku ólympíunefndarinnar. Ræðst í dag hvaða verðlaun Island leikur um ÖRN lýjærnested, formaður Verktakasambands íslands, segir að *mjög alvarlegt ástand sé að skapast í verktakastarfsemi vegna verk- efnaskorts og ástandið sé orðið sérstaklega slæmt þjá fyrirtækjum í jarðvinnslu, en það sé einnig orðið slæmt í byggingariðnaðinum. Örn spáir þvi að ef ekki komi til stórverkefna á næstu mánuðum verði 20 til 30% samdráttur í verktakastarfsemi á landinu á þessu ári. Því geti fylgt mikið atvinnuleysi því alls starfi um 12.000 manns hjá verktakafyrirtækjum. „Menn eru nú þegar famir að segja upp starfsfólki, sem er mjög óvenjulegt á þessum árstíma. Ef ekkert gerist er ljóst að samdráttur- inn í jarðvinnugéiranum er á bilinu 40-50% og að mikið verður um uppsagnir á næstu mánuðum," sagði hann. Forsvarsmenn Verktakasam- bandsins hafa bent á ýmsar fram- kvæmdir sem ráðast mætti í, svo sem tvöföldun Reykjanesbrautar, og hafa átt í viðræðum við stjórn- völd vegna þess en Öm segir að enn sem komið bendi ekkert sér- stakt til að úr rætist. „Það er ekkert stórt verk í gangi í dag nema skólabygging í Graf- arvogi sem er verkefni upp á einn til einn og hálfan milljarð. Ráðhús- ið var síðasta stórverkefnið," sagði Öm. Þá sagði hann að engar virkj- unarframkvæmdir væru í gangi í sumar eða línubyggingar í tengslum við þær og vegagerð væri minni en ráð hefði verið fyrir gert. Mikið bæri á undirboðum við verktöku vegna samkeppni fyrirtækjanna, sem kæmi svo niður á afkomu þeirra. Nokkrar ráðningaskrifstofur sem Morgunblaðið talaði við hafa orðið varar við breytingar á áætlunum skólafólks. „Það hefur verið nokkuð um að fólk hefur komið og opnað umsóknir sínar um sumarstörf fram á veturinn," sagði Benjamín Axel Árnason hjá Ábendi. „Þá hefur verið meira um fyrirspurnir um hlutastörf sem gætu fallið með námi. Þetta fólk ber oft við breyttum reglum LÍN þegar það ræðir við okkur,“ sagði hann ennfremur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.