Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
Stjórn Hitaveitu Suðurnesja:
* __________
Akvörðun um Bláa lónið frestað
Keflvíkingar ósáttir við vægi atkvæða stj órnarmanna
STJÓRN Hitaveitu Suðurnesja
ákvað á fundi sínum í gær að
fresta afgreiðslu máls, þar sem
taka átti ákvörðun um afdrif
Bláa lónsins við athafnasvæði
veitunnar á Svartsengi. Að sögn
Drífu Sigfúsdóttur, bæjarstjóra
Keflavíkur, vill bæjarstjórn að
reksturinn verði boðinn út, en
telur sig jafnframt misrétti
beitta í stjóra Hitaveitunnar,
þar sem ekki sé tekið tillit til
eignarhlutar í vægi atkvæða.
Júlíus Jónsson, forstjóri veit-
unnar, segir kosningu þá sem
viðhöfð hefur verið samræmast
lögum og ekkert sé við hana
að athuga.
Að sögn Drífu greiddi stjóm
Hitaveitunnar atkvæði um það
fyrir nokkm hvort bjóða ætti
rekstur Bláa lónsins út, og greiddi
fulltrúi Keflavíkur atkvæði með
VEÐUR
tillögunni, einn stjórnarmanna. „Á
Alþingi var samþykkt að það
skyldi að jafnaði viðhöfð hlutfalls-
kosning, en svo tók stjórnin upp
á því að það var almennt ekki
kosið, heldur náð samkomulagi."
sagði Drífa „í þessu máli vildum
við láta reyna á að farið yrði að
lögum og sjá svo hvemig atkvæði
féllu.“
Drífa nefndi sem dæmi að
Hafnahreppur, sem á 0,69% hlut
í Hitaveitunni, hefur einn fulltrúa
í stjóm og situr því við sama borð
og Keflavíkurbær, sem á 38%.
Ríkisjóður á 20% og hefur tvo
stjórnarmenn. „Þetta er ekki hefð-
bundin lýðræðisleið. Hún er sú,
að meirihlutinn ræður, en minni-
hlutinn hefur rétt á að koma skoð-
unum sínum á framfæri,“ sagði
Drífa.
Júlíus Jónsson, sagði að af-
greiðslu málsins um afdrif Bláa
lónsins hafi verið frestað á fundi
stjómarinnar í gær. „Samningur
núverandi rekstraraðila rennur út
15. október, svo vænta má að það
verði afgreitt fyrir þann tíma,“
sagði hann.
Júlíus kvaðst ekki efast um
lagalegt gildi kosningar þar sem
einn stjómarmaður hefur eitt at-
kvæði. „Við em ekki búnir að vera
að fremja lögbrot hér í sjö ár,“
sagði hann. „Hinsvegar má biðja
um að greidd verði atkvæði sam-
kvæmt hlutfallslegri eign aðil-
anna, þótt það sé ekki í anda þess
sem um var talað á sínum tíma.“
Mun minna framboð er á ís-
lensku grænmeti en í fyrra
Nýjar hollenskar kartöflur koma í verslanir í dag
FRAMBOÐ á íslensku grænmeti
er nú mun minna en það var á
sama tíma í fyrra, að sögn Krist-
ins Vagnssonar sölustjóra hjá
Ágæti hf. Hann segir að vegna
kulda í byijun sumars sé uppsker-
ÍDAGkl. 12.00
Helmikt: Veðurstota ísiands
(Byggt á voðurspá W. 16.16 f gœr)
VEÐURHORFUR I DAG, 6. AGUST
YFIRLIT: Við austurströnd Grænlands er lægðardrag sem hreyfist aust-
ur. Skammt suðvestur af Færeyjum er 994 mb lægð á leið norðaustur.
SPÁ: Fremur hæg vestan- og suðvestanátt á landinu. Smá skúrir vestant-
il en annars staðar þurrt.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Fremur hæg vestan- og suðvestanátt. Skýjað
um landið vestanvert og hiti 6 til 12 stig, en bjart veður austanlands og
hiti altt upp í 18 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Sunnan- og suðaustanátt, fremur hæg aust-
ast á iandinu, en allhvasst á annesjum suðvestan- og vestaniands. A
Suður- og Vesturlandi má búast við rigningu en að mestu þurrt í öðrum
landshlutum. Hiti 8 til 16 stig.
Svarsfmf Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990800.
o
Heiöskírt
/ / /
/ /
f f f
Rigning
tik
Léttskýjað
* / *
* /
r * f
Slydda
-a
Háifskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
&
Skýjað
Alskýjað
V $ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vmdörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil f)öður er 2 vindstig.,
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
5tig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 igær)
Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir. Hlöðuvallavegur hefur
verið opnaður, þannig að fjallabílum er nú fært um allt hálendið. Uxa-
hryggir og Kaldidalur eru opnir allri umferð. Vegna vegagerðar verður
Vesturiandsvegur lokaður milli Ulfarsfellsvegar og Skáiatúns frá klukkan
19 í kvöld þar tii klukkan 7 í fyrramáiið. Samskonar lokun mun aftur
eiga sér stað annað kvöld. Vegfarendum er bent á Úlfarsfellsveg. Ferða-
langar eru hvattir til að leita sér nánari upplýsinga um færð áður sn lagt
er af stað í langferð til þess að forðast tafir vegna framkvæmda. Upplýs-
ingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631600 og í grænni
línu 99-6315. Vegagerðln.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl: 12.00 í gær aö M tíma
Akureyri Reykievfk hiti ð 13 veður skýjað léttskýjað
Bergen l3rign.ogsúld
Heteinki 19 skýjað
Kaupmannahöfn 23 iéttskýjað
Narsserssuaq 9 iéttskýjað
Nuuk 3 þoka
Óstó 13rigning
Stokkhélmur 21 skýjað
Þórshöfn 9 rigning
Algarve 34 heiðskfrt
Amsterdam 23 léttskýjað
Barceiona 27 alskýjað
Berlín 26 léttskýjað
Chicago 18 akýjað
Feneyjar 30 heiðskírt
Frankfurt 26 heiðskirt
Glasgow 17 skýjað
Hamborg 23 léttskýjað
London 24 skýjað
LosAngeles vantar
Lúxemborg vantar
Madríd 33 léttskýjað
Maiaga 33 lóttskýjað
MaHorca 32 léttskýjað
Montreal 15 hálfskýjað
NewYork 21 léttskýjað
Orlando 24 iéttskýjað
Parfs 27 heiðskirt
Madelra 21 skýjað
Róm 31 heiðskírt
Vfn 26 léttskýjað
Washington 20 skýjað
Winnipeg 11 skýjað
an nú um mánuði á eftir þvi sem
hún var síðastliðið sumar, og
verðið að sama skapi hærra en
það var þá. Nýjar hollenskar kart-
öflur sem Ágæti hf. flytur inn
koma í verslanir í dag, en Kristinn
segir framboð á íslenskum kart-
öflum vera sáralítið enn sem kom-
ið er og horfur á mun minni upp-
skeru en í fyrra.
Verðið á hollensku kartöflunum
verður að sögn Kristins um helmingi
lægra en á því takmarkaða magni
af íslenskum kartöflum sem fáanlegt
er á markaðnum, eða 178 kr. tveggja
kílóa pakkningin í heildsölu. Hann
sagði hollensku kartöflumar vænt-
anlega verða á markaðnum næsta
hálfa mánuðinn.
Hvað útiræktað íslenskt græn-
meti varðar sagði Kristinn framboð-
ið vera mjög lítið enn sem komið er.
Nokkurt magn væri þó komið á
markaðinn af hvítkáli, rófum og kín-
akáli, og síðastliðinn mánudag hefði
svo blómkálið bæst við. Kostar kíló-
ið af rófum 220 kr. kílóið í heildsölu
og blómkálið kostar 295 kr. kílóið.
Heildsöluverðið á hvítkáli hefur
lækkað talsvert frá því það kom
fyrst á markað, eða úr 220 kr. í 139
kr. kílóið, og sömuleiðis hefur verðið
á kínakáli lækkað úr 280 kr. kílóið
í 175 kr.
„Þetta byijaði allt saman á svip-
uðu verði og það gerði í fyrra, en
það lækkar hins vegar ekki jafn ört
í verði og þá þar sem miklu minna
magn er í umferð,“ sagði Kristinn.
Norðurlandamótið í skák;
Staða efstu manna
óbreytt eftir 8. umferð
NÆSTSÍÐASTA umferðin á Norðurlandamótinu einkenndist af jafn-
teflum. Skákirnar voru allar spennandi en úrslit tíðindalitil. Norðmað-
urinn Agdestein og Svíinn Heliers eru enn efstir og eru nú með 5Vi
vinning fyrir níundu og jafnframt síðustu umferðina. Margeir Péturs-
son náði einn íslendinganna að vinna skák sína gegn Einari Gausel
hinum norska og er kominn í miðjan hóp keppenda með fjóra vinninga.
í þessari umferð tefldu meðal
annars Agdestein og Helgi Ólafsson
og gerðu þeir jafntefli. Sömuleiðis
sömdu þeir Jóhann og Daninn Han-
sen og Jón L. og Emst frá Svíþjóð
um jafntefli. Hellers hinn sænski
hélt efsta sætinu ásamt Agdestein
en hann gerði jafntefli við Yrjöla frá
Finnlandi. Það voru aðeins Margeir
og Tisdall frá Noregi sem unnu and-
stæðinga sína en hinn síðarnefndi
lagði Bent Larsen.
Staðan fyrir síðustu umferðina er
því eftirfarandi: Agdestein (N) og
Hellers (S) eru efstir og jafnir með
5‘Á vinning, Jóhann og Helgi eru í
3. og 4. sæti með 5 vinninga og
jafnir í 5. til 8. sæti með 4 Vi eru
Jón L., Emst (S), Karlsson (S) og
Tisdall (N). Margeir er í 9. til 11.
sæti með 4 vinninga.
Síðasta umferðin verður tefld í
dag, flmmtudag, og þá mun Mar-
geir stýra hvítu mönnunum á móti
Jóhanni. Helgi verst með svörtu
gegn Svíanum Karlsson og það sama
mun Jón L. gera gegn Hansen. Af
öðram skákum má nefna að Agde-
stein teflir á móti Ernst og Tisdall
mun eiga við Hellers.
Samskip hf.:
Á annan tug starfs-
manna sagt upp
í KRINGUM tuttugu starfsmönn-
um þjá Samskipum hf. hefur ver-
ið sagt upp frá og með 1. ágúst
sl. Þessar uppsagnir eru Iiður í
endurskipulagi og hagræðingar-
aðgerðum hjá fyrirtækinu.
Ömar Hl. Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samskipa, sagði að í
tengslum við endurskipulagningu
sem hefði verið unnið að síðan síðast-
liðið haust hefði um það bil 20 aðil-
um verið sagt upp. Starfsfólki hefði
verið tilkynnt um þessar uppsagnir
í síðustu viku ásamt fleiri breyting-
um á heildarskipulagi. Ómar sagði
þessar breytingar vera í samræmi
við þróun mála í þjóðfélaginu. Fyrir-
tækið sæi fram á samdrátt í inn-
og útflutningi vegna ástandsins í
þjóðmálum hérlendis.
Að sögn Ómars hefur fólkið sem
sagt hefur verið upp 3-6 mánaða
uppsagnarfrest og ef þróun yrði
skárri en spáð er nú yrðu uppsagn-
irnar endurskoðaðar. Ómar sagði að
starfsfólk hefði almennt tekið ják-
vætt í breytingarnar. Það gerði sér
grein fyrir breyttu ástandi í þjóðfé-
laginu. Þó að aukning hefði orðið á
inn- og útflutningi það sem af væri
árinu yrði fyrirtækið að búa sig
undir samdrátt með hagræðingarað-
gerðum. Ómar sagði að á síðastliðn-
um tveimur árum hefði orðið aukn-
ing á umsvifum fyrirtækisins og
starfsfólki fjölgað. Nú væri hins
vegar séð fram á samdrátt og þá
yrði að sníða sér stakk eftir vexti.
Að sögn Ómars snerta uppsagnirnar
alla þætti starfseminnar. En starfs-
menn Samskipa eru á fjórða hundr-
að.