Morgunblaðið - 06.08.1992, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
21
Saddam Hussein
vígræðist af kappi
Irakar hafa náð um 40% af fyrri herstyrk
Kúveitborg, Lundúnum. Reuter.
IRASKI landherinn gæti hafa endurheimt um 40% þess herstyrks
sem hann hafði í upphafi Persaflóastríðsins og aðrir hlutar hersins
virðast einnig vera að sækja í sig veðrið. Þessu er haldið fram í
nýjasta hefti hins virta breska hermálatímarits Jane’s Defence We-
ekly, sem kom út í gær.
Tímaritið áætlar að nú séu á
milli 350-400.000 manns undir
vopnum í íraksher en talið er að
um ein milljón manns hafí verið í
hernum í Persaflóastríðinu. Talið
er að Saddam Hussein ráði nú yfír
2.000-2.500 skriðdrekum, saman-
borið við 5.000-5.500 í upphafí
stríðsins, og 28-30 herfylkjum en
helmingur þeirra er staðsettur í
norð-austurhluta landsins við griða-
svæði Kúrda.
Þess sjást enn engin merki að
írakar hafí endurnýjað hinn litla
herskipaflota sinn, sem var upp-
rættur í Persaflóastríðinu. Því er
hins vegar haldið fram í tímaritinu
að flugher þeirra hafi eflst mjög
að undanföru. í honum séu nú um
300 orrustuþotur og þar af séu að
minnsta kosti 150 flughæfar en í
sumar hefur flughernum verið beitt
ótæpilega gegn uppreisnarmönnum
shíta í suðurhluta íraks. Þá vinna
írakar einnig hörðum höndum að
því að koma loftvörnum sínum í lag
með uppsetningu loftvarnaeld-
flauga og ratsjárkerfis.
Meðan á styijöld Iraka og Irana
stóð 1980-1988 byggðu hinir fyrr-
nefndu upp einn öflugasta her-
gagnaiðnað í þriðja heiminum.
Bandamenn í Persaflóastríðinu
unnu gífurlegt tjón á honum en
Jane’s Defence Weekly segir að
hjól iðnaðarins séu farin að snúast
á nýjan leik. írakar séu nú enn á
ný orðnir afkastamiklir framleið-
endur hefðbundinna hergagna og
varahluta í flugvélar og skriðdreka
svo fátt eitt sé nefnt.
Arfur Sovétríkjanna:
Kjarnakljúfum var
hent í Barentshaf
Ottast að geisiavirkt eldsneyti kunni
að leka úr nokkrum kljúfum
OskL Reuter.
SOVÉTMENN sökktu að minnsta kosti tólf ónýtum kjarnakljúfum
úr gömlum kafbátum og ísbrjótum í Barentshaf fram til ársins 1982
að því er norsk stjórnvöld greindu frá í gær. Sumir kljúfanna inni-
halda geislavirkt eldsneyti og telja kjarnorkusérfræðingar mengun-
arslys hugsanlegt ef það lekur úr þeim út í sjó.
Norsk stjómvöld fengu upplýs-
ingar um kjarnakljúfana frá rúss-
neskum kjarnorkufræðingum en
þeir hitta norska starfsbræður sína
reglulega til að skiptast á upplýs-
ingum um hættu af völdum geisla-
virkni. Samkvæmt upplýsingum
rússnesku fræðinganna er vitað öm
tólf ónýta kjarnakljúfa á hafsbotni
skammt undan eyjunni Novaja
Zemlja í Barentshafi en hún var
mikið notuð af Sovétmönnum við
kjarnorkutilraunir. Kjarnakljúfarnir
voru úr gömlum kafbátum og ís-
bijótum og talið er að hinum síð-
asta hafí verið sökkt árið 1982.
Geislavirkt eldsneyti er enn í þrem-
ur kjarnakljúfanna, sem skemmd-
ust af völdum eldsvoða eða annarra
slysa.
Norskur kjarnorkusérfræðingur,
Erling Stranden, segir að hætta sé
á mengunarslysi þegar eldsneytið
leki úr kljúfunum. „Fyrr eða síðar
mun koma gat á kjarnakljúfana og
hið geislavirka eldsneyti mun leka
út í sjóinn. Það þarf þó mikið magn
til að áhrifin verði mælanleg," sagði
Stranden. Fiskur, veiddur í Bar-
entshafi, hefur hingað til ekki
mælst með hærri geislavirkni en
fískur veiddur annars staðar í heim-
inum.
Reuter
Félagar úr umhverfisverndarsamtökum Grænfriðunga hengdu upp borða með áletruninni „Stöðvið
piútonið" í skipasmiðastöð í hafnarborginni Yokohama í gær til að mótmæla fyrirhugaðri siglingu
með plúton frá Evrópu til Japans.
Japanir sagðir tefla á tvær hættur:
Fyrirhugaðri siglingu
með plúton mótmælt
Tókýó, Lundúnum. The Daily Telegfraph.
JAPANIR áforma að flytja plúton, sem myndi duga í um 100 kjarn-
orkusprengjur, með skipi frá Evrópu til Japans, um 30.000 km
siglingaleið. Bandariskir þingmenn, Suður-Afríka, eyríki í Kyrra-
hafi og nokkrar umhverfisverndarhreyfingar hafa mótmælt áfor-
munum en talið er að Japanir hefji flutningana í haust.
Búist er við að 4.800 tonna
flutningaskip, Akatsuki-maru,
sigli á næstunni frá Yokohama til
frönsku hafnarborgarinnar Cher-
bourg til að ná í fyrsta farminn,
um tonn af plútoni, sem nota á í
japönskum orkuverum. Plútonið
kemur úr endurvinnslustöðvum í
Cap de la Hague í Frakklandi og
Sellafíeld í Englandi í nýjum
hraðtímgunarofnum. Slíkir ofnar
framleiða ekki aðeins orku heldur
breyta þeir einnig úrani í kjarna-
kleyft form, þannig að þeir þurfa
lítið magn af úrani til rekstursins.
Siglingin er svo viðkvæmt mál
að því er haldið leyndu hvenær
hún hefst, að sögn Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunarinnar í Vín.
Hættulegra en plúton sem
notað er í vopn
Plúton, sem notað er í sprengj-
ur, er yfírleitt ríkt af samstæðunni
plúton 239. Plúton í orkuver, eins
og það sem hér um ræðir, hefur
hins vegar aðeins um 60% af sam-
stæðunni. Það er geislavirkara og
því hættulegra í flutningum en
plúton í sprengjur. Talið að hryðju-
verkamenn gætu notað plútonið,
sem flutt verður, í hættuleg vopn
ef þeir kæmust yfir það.
■ Japönsk yfírvöld áætla að land-
inu muni ekki veita af því plú-
toni, sem áformað er að flytja
þangað frá Evrópu. Þeir sem hafa
gagnrýnt áformin segja hins vegar
að Japanir hafí aðeins þörf fyrir
20-30 tonn af plútoni fyrir árið
2010, en áætlað er að þá hafi
Japanir fengið um 90 tonn af
kjarnkleyfu plútoni, þar af 14 tonn
frá Sellafield.
Frank Barnaby, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Friðarrann-
sóknastofnunarinnar í Stokk-
hólmi, segir að þetta sé gífurlegt
magn og áætlar að í öllum kjarn-
orkuvopnabúrum heimsins séu um
220 tonn af plútoni. Bresk kjarn-
orkuver hafa nú um 63 tonn til
umráða eftir áratuga endur-
vinnslu.
Steve Dolley, framkvæmda-
stjóri rannsóknadeildar kjarnorku-
eftirlitsstofnunarinnar í Washing-
ton, segir það skjóta skökku við
að á sama tíma og Bandaríkin og
Samveldi sjálfstæðra ríkja minnka
kjarnorkuvopnabúr sín séu Japan-
ir að stórauka úranforða sinn.
Hann áætlar að árið 2020 eigi
Japanir álíka mikið af plútoni og
Bandaríkin.
Á sama tíma og verið er að
undirbúa siglingu Akatsuki-maru
minnast Japanir kjarnorkuárás-
anna á Hiroshima og Nagasaki
6. og 8. ágúst 1945. Japanskir
kjamorkuandstæðingar hyggjast
efna til mótmælagöngu í Tókýó á
sunnudag og leggja áherslu á þá
hættu sem stafí af áformunum um
að auka plútonforða Japana.
Japanskir embættismenn segja
að allt verði gert til að koma í veg
fyrir slys eða hugsanlegt rán á
plútonförmunum. Japanskir vís-
indamenn telja að embættismenn,
sem undirbúa siglinguna, hyggist
ekki láta yfírvöld erlendra ríkja
vita af siglingaleiðinni þótt skipið
fari um landhelgi þeirra.
Suður-afríska stjórnin hefur
sagt að ef skipið flytji plúton megi
það ekki fara inn fyrir 200 mílna
landhelgi Suður-Afríku. Ríki við
Kyrrahaf hafa einnig mótmælt
áformum Japana og þingmenn
Hawaii hafa lagt fram tillögu á
Bandaríkjaþingi um að skipið megi
ekki koma inn fyrir landhelgi
Bandaríkjanna. Tillagan hefur
þegar verið samþykkt í fulltrúa-
deildinni.
Blomberq
KÆLISKA P A R
Hér sést hluti af úrvalinu,
sem viö bjóðum af
BLOMBERG
kæliskápunum.
BL0MBERG er vestur-
evrópsk gæðaframleiðsla
á verði, sem fáir geta
keppt við.
Biðjið um nýja íslenska
60 síðna litprentaða
BLOMBERG
heimilistækjabæklinginn.
KS180
Kælir
Mál:Hl09B50D58 cm
Einar Farestveit &Co.hf.
Borgartúni 28 S 622901 og 622900