Morgunblaðið - 06.08.1992, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
41
SÍMi 32075
„Heil sinfónía af gríni, spennu
og vandiæðum."
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
- KYNNING Á FREYJUHRÍS
AF BEETHOVEN FYRIR ÞAU YNGSTU!
STAUONE • ESTELLE GETTY
Fj«! Ae tfeciwUp lús «perttw«l.
STOPPEÐAIUIAMIUIA
HLEYPIRAF
Óborganlegt grín og
spenna.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Miðav. kr. 300 kl. 5 og 7.
TÖFRALÆKNIRINN
Vegna fjölda áskorana sýn-
um við þcssa frábæru mynd
með Sean Connery í nokkra
daga.
Sýndkl. 5,7,9 og 11.
Miðav. kr. 300 kl. 5 og 7.
LOSTÆTI
★ ★★ /2 Biólínan
„HRAÐUR OG SEXÍ
ÓGN ARÞRI LLER“
★ ★★ Al Mbl.
★ SV MBL.
★ ★★★ PRESSAN
*★★ BÍÓLÍNAN
Sýnd kl. 5,7,9 og
11. Bönnuðinnan14
HOMOFABER
SIÐLAUS...
SPENNANDI... ÆSANDI...
ÓBEISLUÐ... ÓKLIPPT...
GLÆSILEG... FRÁBÆR.
„BESTA MYND ÁRSINS“
★ ★ ★ ★ Gfsli E.DV
Sýnd kl. 5,7,9 og 11
KOLSTAKKUR
Bókin er nýkomin út 'í ís-
lenskri þýðingu og hefur
fengið frábærar viðtökur.
Missið ekki af þessu meist-
araverki Bruce Beresford.
★ ★ ★ Mbl. ★ ★ ★ ’/z DV
★ ★ ★ ’/i Hb.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Synd kl. 5,9 og 11.30
Stranglega bönnuð
innan16ára.
REGNBOGINN SIMI: 19000
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadðttir
Svifið um á Ytri-Rangá
Nokkur ungmenni vöktu athygli vegfarenda á Hellu er þau þeystu
um Ytri-Rangá í blíðskaparveðri eitt kvöld nú í vikunni. Farkosturinn
var svokölluð vatnsþota sem ekki er algengt að menn ferðist á hér
um slóðir. Höfðu menn af þessu hina bestu skemmtun og komust
færri að en vildu.
Hvolsvöllur:
Keyrt á kvígu
SENDIFERÐABÍLL keyrði á
kvigu undir Eyjafjöllum á mánu-
dagskvöld. Farþegar sluppu
ómeiddir en kvígan drapst.
Lögreglan á Hvolsvelli var kölluð
út vegna umferðaróhapps rétt undir
miðnætti mánudaginn 3. ágúst sl.
Sendiferðabíll hafði keyrt á kvígu
og stórskemmst við áreksturinn.
Engin slys urðu á ökumanni og
tveimur farþegum f bílnum, sem lög-
reglan á Hvolsvelli rakti til bílbelta-
notkunar.
Eitt verka Guðrúnar Marinósdóttur sem er einn af þátttakendum á
sýningu Textílfélagsins í Tallin í Eistalandi.
11 félagar ur Textíl-
félaginu sýna í Tallin
SÝNING á verkum 11 islenskra
textílmanna verður opnuð í dag,
fimmtudag í Tallin í Eistlandi.
Sýningin er í boði Eistneska
myndlistarbandalagsins og verð-
ur hún til húsa á tveimur hæðum
í gömlum kastala sem hefur verið
endurnýjaður og er nýttur sem
sýningarhúsnæði
Á sýningunni verða 23 verk af
ýmsum toga t.d. myndvefnaður,
myndverk úr tágum og þæfðri ull,
pappírsverk og tauþrylck. Þátttak-
endur á þessari sýningu eru: Anna
Þóra Karlsdóttir, Auður Vésteins-
dóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Guð-
rún Marinósdóttir, Hólmfríður Árna-
dóttir, ína Salóme, Ingibjörg Styr-
gerður Haraldsdóttir, Ingibjörg
Jónsdóttir, Ólöf Einarsdóttir, Sigríð-
ur Kristinsdóttir og Þorbjörg Þórðar-
dóttir.
Þrír þátttakendur fara utan og
sjá um að hengja verkin upp. Sýning-
in er einnig styrkt að hluta af ís-
lenska Menntamálaráðuneytinu og
Textíifélaginu. Fyrirhugað er að
sýning á eistneskum textíl verði sett
upp í boði Norræna hússins í sýning-
arsölum þess á næsta ári.
(Fréttatilkynning)
Hjálparstarf í Afrikulöndum:
Erla Norð-
dahl sýnir í
FÍM-salnum
ERLA Norðdahl opnaði í gær,
miðvikudaginn 5. ágúst, mál-
verkasýningu í FIM-salnum,
Garðastræti 6, Reykjavík. Á sýn-
ingunni eru 16 myndir allar unnar
í olíu.
Þessar myndir eru allar unnar síð-
astliðin 3-4 ár í Noregi jafnt og á
lslandi. Viðfangsefni myndanna er
um landslag íslands og Noregs í
ýmsum þeim stemmningum er nátt-
úran gefur.
Menntun sína hefur hún næstum
alla sótt til Noregs en þar hefur hún
búið og starfað sl. sextán ári Hún
hefur haldið eina einkasýningu 5
Erla Norðdahl
Noregi en tekið þátt í fjölda samsýn-
inga í Noregi og Svíþjóð. Þetta er
hennar fyrsta einkasýning á íslandi
og stendur hún fram til sunnudags-
ins 16. ágúst. Allir eru velkomnir
en sýningin er opin alla daga frá
kl. 14-18.
Kornið frá Norðurlönd-
um er komið til skila
KORNIÐ sem kirkjuhjálpar-
stofnanir á Norðurlöndum
sendu til landa í sunnanverðri
Afríku er nú komið til skila.
Tyrkneska skipið Uzunoglu le-
staði 11 þúsund tonn af korni
í Saudi-Arabíu í lok maí. Var
þvi landað í Mózambik og það
notað þar og í Zimbabwe.
Hjálparstofnun kirkjunnar tók
þátt i að Qármagna þessi korn-
kaup svo og kaup á korni sem
dreift var meðal barna í Sómal-
íu. Alls varði Hjálparstofnun
rúmum þremur milljónum
króna til þessara verkefna.
Norrænar kirkjuhjálparstofn-
anir ásamt samstarfsaðilum í
Þýskalandi og Hollandi sameinuð-
ust í vor um að fjármagna kaup
og sendingu á 11 þúsund tonnum
af komi til landa í suðurhluta
Afríku. Vora þetta ein fyrstu við-
brögð hjálparstofnana við beiðn-
um um neyðaraðstoð við Afríku-
ríki þar sem milljónir manna
svelta. Jafnframt ákváðu norræn-
ar stofnanir að sinna Sómalíu sér-
staklega. Voru send þagnað 100
tonn af bamamat sem nú er búið
Kormnu var skipað upp í Mósambik, það sekkjað við skipshlið
og síðan flutt með bílum til hungursvæðanna.
að dreifa meðal barna í flótta-
mannabúðum í Mogadishu. Hafa
starfsmenn norrænu stofnananna
séð um matvæladreifinguna í báð-
um tilvikum.
Enn er þörf á miklum matvæla-
sendingum til 14 ríkja í Afríku
og talið að alls svelti ýfir 20 milLj-
ónir manna. Stór hluti þeirra er
á flótta, hefur flosnað upp frá
heimkynnum sínum vegna upp-
skerubrests eða stríðsátaka.