Morgunblaðið - 06.08.1992, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992
43
Sjálfsbjargarævintýri á Hofsósi
Frá kvöldvökunni í gamla pakkhúsinu á Hofsósi.
Frá Sigurði Björnssyni og Sigríði
Kristinsdóttur:
FYRIR skömmu fóru sjálfsbjarg-
arfélagar úr Reykjavík og nágrenni
í minnistæða ferð til Hofsóss. Var
um að ræða árlega sumarferð
Sjálfsbjargar og höfðu heimamenn
á Hofsósi undirbúið móttökur. Veg
og vanda að þeim undirbúning
höfðu þeir Valgeir Þorvaldsson
bóndi Vatni og Sigmundur Franz
Kristjánsson.
Hópurinn gisti í félagsheimili
Hofsósinga og naut ómældrar gest-
risni heimamanna. Haldin var
kvöldvaka í gamla pakkhúsinu í
kvosinni, en það hús er frá árinu
Í777 og hefur nýlega verið endur-
byggt sem minjasafn. Þar var glens
og söngur að sönnum skagfírskum
sið. Er áreiðanlegt að fáir hafa
skemmt sér í svo gömlu timburhúsi
fyrr. En fyrir flesta var hápunktur
heimsóknarinnar sigling út að
Drangey. Siglt var í glaðasólskini
og góðu skyggni á slóðir Grettis.
Við eyna gat mannskapurinn notið
blíðunnar og sinfóníunnar úr bjarg-
inu allt um kring. Þetta þótti flest-
um sannkölluð upplifun og er óhætt
að mæla með slíkri siglingu ef
Skagafjörður er skoðaður.
Sjálfsbjargarhópurinn naut i rík-
um mæli þeirrar miklu uppbygging-
ar sem unnið hefur verið að í ferða-
þjónustu á Hofsósi. Auk siglinga
getur fólk stundað margskonar úti-
veru. Hægt er að fara í veiði og á
hestbak svo eitthvað sé nefnt. Svo
getur fólk fengið sér hressingu í
gömlu húsi sem áður stóð til að
rífa, en er nú orðið að hlýlegu kaffi-
húsi.
Ferðahópurinn úr Reykjavík,
samtals 40 manns, fór ánægður
heim eftir tveggja daga veru á
Hofsósi. Er víst að margir hafa hug
á a,ð fara aftur er tækifæri gefst.
Möguleikamir sem Hofsós og ná-
grenni bjóða uppá eru fleiri en
margur hyggur. Það er greinilegt
að uppbygging ferðaþjónustu á
Hofsósi og að Vatni gengur vel og
vaonandi verður framhald þar á.
SIGURÐUR BJÖRNSSON,
formaður.
SIGRÍÐUR
KRISTINSDÓTTIR
fararstjóri.
„Þotuspeki“
Frá Gunnlaugi Björnssyni:
KUNNINGI minn kom til mín um
daginn og bað mig að útbúa fyrir
sig þotukort, en hann hafði þá ný-
lega heimsótt stjörnuspeking og bar
hann spekingnum ekki vel söguna.
Tók ég erindi hans vei. Við eyddum
síðan allnokkrum tíma í að lesa úr
þotukortinu og hvarf kunningi minn
við svo búið á braut nokkru fróðari
um framtíð sína, hamingju og lífs-
hlaup allt, bæði fyrr og síðar.
Til að lesendur átti sig betur á
þotukortum og gerð þeirra mun ég
nú útskýra í stórum dráttum hvem-
ig þau eru unnin og hvað lesa má
úr þeim, en helsti frumkvöðull þeirra
er af mörgum talinn vera A. Frankoi
frá Kaliforníu (sjá t.d. grein hans í
ágústhefti Sky & Telescope frá
1989).
Sá er óskar eftir þotukorti þarf
að upplýsa um fæðingardag sinn og
tíma sólarhrings, en fæðingarstaður
og aðrar ytri aðstæður skipta minna
máli. Gerð þotukorts felst í því að
kortlögð er staðsetning allra risaþota
(Boeing 747, DC 10 o.s.frv.) alls
staðar á jörðinni á hinum tiltekna
fæðingardegi og fæðingarstund. Til-
gangur þess er sá að margur trúir
því að staðsetning þessara ferlíkja
háloftanna hafi við fæðingu einstakl-
ings afgerandi áhrif á lífshlaup hans.
Því er nauðsynlegt að staðsetja þau
nákvæmlega til að ráða megi í ævi
viðkomandi. Til skamms tíma hefur
slíkt verið nánast óvinnandi því fjöldi
risaþota hefur farið vaxandi ár frá
ári undanfarin tuttugu til þijátíu ár.
Með tilkomu tölvutækni varð öflun
staðsetninga þotanna mun auðveld-
ari sem og skráning þejrra á þar til
gerð yfirborðskort af jörðinni. Að
sjálfsögðu er allt þetta gert með vís-
indalegum hætti og reyndist sam-
vinna við hin ýmsu flugstjómar-
svæði í þessu skyni ómetanleg.
Skiptar skoðanir eru um hversu
margar tegundir flugvéla þarf að
taka með í kortið, margir halda því
fram að ekki megi gleyma hinum
risavöxnu flutningavélum heija
heimsins. Ég er hins vegar þeirrar
skoðunar að þær séu ekki áhrifa-
valdar nema á ófriðartímum þegar
margar geta verið á lofti í einu. Má
með nokkrum rökum ætla að þær
hafi í þeim tilfellum áhrif á líf fleiri
en þeirra er fæðast á þannig tímum.
Listin að lesa úr þotukortum verð-
ur ekki numin á einum degi, til þarf
að koma áralöng reynsla. Kunna
þarf skil á öllum helstu flughöfnum
heimsins og áhrifa þess á líf manna
að þar séu fáar eða margar þotur á
fæðingarstundu þeirra. Séu til dæm-
is margar þotur staddar á eða á leið
til til Heathrow og/eða Kennedy-
flugvallar, gæti það bent til að við-
komandi ætti óvænt fjárútlát í vænd-
um. Séu margar þotur á leið þaðan
má á hinn bóginn búast við óvæntum
fjárhagslegum ávinningi. Þyrping
véla á O’Hara flugvelli við Chicago
gæti gefið tilefni til bjartsýni í ástar-
málum, en hópur þota í San Frans-
isco eða Amsterdam er ekki að sama
skapi jafn uppörvandi. Þannig mætti
lengi telja, en eins og áður sagði
þarf áralanga reynslu til að greina
hin ýmsu sérkenni sem ekki eru
endilega augljós. Því miður hefur
enn ekki tekist að sýna fram á með,
viðurkenndum hætti áhrif Keflavík-
urflugvallar, né heldur að ákvarða
þau einkenni sem þéttsætni þota á
vellinum valda. Stafar þetta af frem-
ur sjaldgæfum komum breiðþota til
vallarins.
í einu tilliti stendur þotuspekin
A
Frá Rafni Geirdal:
ÍSLAND getur verið kjörin stað-
setning fyrir ráðstefnur. Það er
staðsett miðja vegu milli Bandaríkj-
anna og Evrópu, mitt á milli aust-
urs og vesturs. ísland er þekkt fyr-
ir tímamótandi ákvarðanir. Fundur
Reagans og Gorbachovs frá 1986
ætti að vera öllum í fersku minni.
Það var á þessum fundi sem skref-
ið í átt til friðar og afvopnunar stór-
veldanna hófs. Island er þannig
kjörinn minnisvarði fyrir afvopnun
stórveldanna, kjörinn staður fyrir
frið á jörð.
Hér er enginn innlendur her. Hér
er mjög friðsæl og óspillt náttúra.
ísland er þekkt á alþjóðlegum vett-
vangi sem hlutlaus þjóð með virð-
ingarverð sjónarmið. Þetta kom
glöggt fram á ráðstefnunni í Ríó.
Stofnun ráðstefnuskrifstofu íslands
styrkir þessa þróun og myndar far-
veg fyrir aukningu á alþjóðlegum
ráðstefnum hérlendis. Nýta má
þekkingu stjómmálamanna sem
hafa sótt fjölda funda og ráðstefna
á erléndum vettvangi á síðustu
árum. Bjóða má erlendum gestum
sem eru frambærilegir á sínu sviði
til að halda fyrirlestra um sérsvið
sín. Leggja má áherslu á að ísland
standi fyrir ráðstefnunum og velji
umræðuefnin. Megináherslan má
vera á frið á jörð, bætt samskipti
þjóða, umhverfisvemd, þróunarað-
stoð, hvemig sinna megi auknum
vandamálum á borð við hungurs-
neyð, vatnsskort og harmleik stríðs-
hijáðra þjóða.
skrefi aftar stjömuspekinni og er
það getan til að ráða í geðsveiflur
einstaklingsins. Ekki er ráðlegt að
gera ráð fyrir að þotuspekin ráði við
slíkt fyr en risaþotum heimsins hef-
ur fjölga^í um að minnsta kosti helm-
ing frá því sem nú er. Á hinn bóginn
hefur þotuspekin mikla yfírburði
þegar segja skal fyrir um ferðagleði
margra einstaklinga eða stórra hópa
og em hópferðir af ýmsu tagi gott
dæmi um það.
Því má svo bæta við að þotukort
kunningja míns sem getið var í upp-
hafi sýndi, svo ekki verður um viilst,
að hann er mjög flughræddur og
hafði hann ekki hugmynd um það
fyrr enda hafði það hvergi komið
fram á stjörnukortum hans. Mun
hann því í framtíðinni fara allra
sinna millilandaferða sjóleiðina (þar
sem akvegur er ekki fyrir hendi).
GUNNLAUGUR BJÖRNSSON
stjameðlisfræðingur og
áhugamaður um þotuspeki
Raunvísindastofnun Háskólans
Dunhaga 3, Reykjavík.
Þetta getur einnig verið kjörinn
staður fyrir ályktanir: Reykjavíkur
ályktanir, sem útvarpast til annarra
þjóða, og ísland verður þekkt fyrir
slíkar ályktanir.
Veljum þetta sem leið.
RAFN GEIRDAL
skólastjóri
Smiðshöfða 10, Reykjavík
Bréf til
blaðsins
Morgunblaðið hvetur les-
endur til að skrifa bréf til
blaðsins um hvaðeina, sem •
hugur þeirra stendur til. Meðal
efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og skoðanaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa að vera vélrituð, og nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng að
fy'gja.
Sérstaklega þykir ástæða til
að beina því til lesenda blaðs-
ins utan höfuðborgarsvæðis-
ins, að þeir láti sinn hlut ekki
eftir liggja hér í dálkunum.
Velvakandi
Velvakandi svarar eftir sem
áður í síma frá mánudegi til
föstudags.
Island sem ráðstefnustöð
Innilega þakka ég öllum vinum mínum, sem
glöddu migmeð heimsóknum, gjöfum ogskeyt-
um d áttrœÖisafmœli minu, þann 13. júlí.
GuÖ blessi ykkur.
Ingimundur Elímundarson.
Excel á Macintosh & PC
Grafík, fjölbreyttir útreikningar og öflugustu aðgerðir Excel.
Námskeið sem gefur þér meira fyrir minna.
Höfum kennt á Excel frá árinu 1986.
Tölvu- 09 verkfræðiþjónustan
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar fo®
Grensásvegi 16 • stofnuö 1. mars 1986 (£)
&
HRINGDU OG FÁÐU SENT EINTAK.
Pöntunarlistinn kostar 250 kr. + póstburöargjald.
PÖNTUNARLÍNA
91-653900
BÆJARHRAUNl 14 • 220 HAFNARFIRÐI
<8>
Heimilistæki hf
SÆTUNI8 SÍMI691515 ■ KRINGIUNNISÍMI6915 20
FULLBÚIÐ, HÁGÆÐA
SJÓNVARPSTÆKIÁ FRÁBÆRU
VERÐI!
jii
VJterkurog
hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Moœða
rn m eldhús-
innrcttin^
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
1
R. LINDA