Morgunblaðið - 24.09.1992, Page 1
RAFORIiA: Er sæstrengur í sjónmáli? /4
EIMSKIP: Samtenging starfsmannamála og gæðastjórnunar /7
VIÐSKIFn AIVINNULIF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
BLAÐ
c
Sjávarútvegur
Haförninn hf. á almennan
hlutabréfamarkað
Stefnt að sölu nýrra hlutabréfa fyrir 100 milljónir
SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKIÐ Haförninn hf. á Akranesi hefur hafið
sölu á nýju hlutafé á Opna tilboðsmarkaðnum og voru í fyrstu boðnar
fram 10 milfjónir króna á genginu 1,0. Þegar hafa selst bréf fyrir 5
milljónir og standa vonir til meiri sölu en alls hefur fyrirtækið 100
milljóna ónýtta heimild til hlutafjáraukningar. Á aðalfundi í vor var
samþykkt að auka hlutafé um 200 milljónir og hafa núverandi hluthaf-
ár þegar keypt hlutabréf fyrir 100 milljónir í samræmi við sinn eignar-
hlut.
„Við höfum áhuga á að opna félag-
ið og fá inn fleiri hluthafa," sagði
Kristófer Oliversson, framkvæmda-
stjóri Hafamarins. „Undanfarið höf-
um við unnið að endurskipulagningu
á rekstri samhliða fjárhagslegri end-
urskipulagningu."
Haföminn var upphaflega í eigu
fimm einkaaðila á Akranesi en þeirra
hlutur hefur farið minnkandi á síð-
ustu ámm. Stærstu hluthafamir em
nú Atvinnuþróunarsjóður Akraness
með um 41% hlut, Kirkjusandur með
24%, Olíufélagið 13,5% og Útvegsfé-
SÖLUGENGI DOLLARS
Sfðustu fjórar vikur
57.00 -
kr.
56,50 -
56,00 -
55,00 -
54,50-
a 56,41
26. ig. 2. sepl.
16.
lag samvinnumanna 10,6%. Aðrir
smærri hluthafar eiga 10,6%. Fyrir-
hugað er að Atvinnuþróunarsjóðurinn
selji sín hlutabréf þegar sölu hinna
nýju hlutabréfa er lokið.
Haförninn starfrækir frystingu í
nýju frystihúsi- og hausaþurrkun en
auk þess er aðstaða til saltfískverk-
unar. Fyrirtækið gerir út togarana
Höfðavík og Sæfara en sá síðar-
nefndi er nú gerður út á rækju og
þorsk. Samtals nema veiðiheimildir
um 3 þúsund þorskígildistonnum og
starfa um 90 manns við fyrirtækið.
Heildarvelta á sl. ári var alls 567
milljónir.
Tap Hafarnarins í fyrra var um
48 milljónir sem að sögn Kristófers
stafar m.a. af kaupum á togaranum
Sæfara ásamt aflaheimildum en ráð-
ist var í nokkrar endurbætur á skip-
inu. Árið 1990 var hins vegar 13
milljóna króna hagnaður. Hann segir
reksturinn hafa lagast á þessu ári og
stefnt sé að því að hann verði í jafn-
vægi. „Við erum með rekstrareiningu
sem er mjög vel staðsett gagnvart
fiskmörkuðum og eigum mikla mögu-
leika núna þegar íslendingar ganga
inn í EES. Þá opnast ýmsir möguleik-
ar á fullvinnslu sjávarafurða og við
teljum að fískvinnslufyrirtæki á suð-
vesturhorninu séu vel í stakk búin til
að mæta því vegna þess að þau hafa
auðveldan aðgang að hráefni. Eins
og nú er háttað ber framleiðslan ekki
þau verð sem greiða þarf fyrir hráefn-
ið á fiskmörkuðum.“
Bókfært eigið fé var um síðustu
áramót 61 milljónir og eiginfjárhlut-
. fall 7,4%. Eiginfjárstaðan hefur hins
vegar styrkst verulega með nýju
hlutafé og má gera ráð fyrir að eig-
iníjárhlutfall sé nú um og yfir 20%.
Matvöruverslun
P
Bónus íhugar að stofna
verslun íFæreyjum
JÓHANNES Jónsson, kaupmaður
í Bónus, hefur að undanförnu
kannað möguleika á þvi að opna
Bónus verslun í Færeyjum. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur Jóhannes verið þar
að undanförnu til viðræðna við
þarlenda aðila.
Athuganir Bónus hafa gefið til
kynna að íslenskar vörur séu vel
samkeppnisfærar í verði í Færeyjum
en tæþlega 70% af sölu fyrirtækisins
hér á landi er íslensk framleiðsla.
Tvær kjarakaupaverslanir eru starf-
ræktar í Færeyjum en verðlag þar
er sagt vera hærra en í Bónus.
HAGKVÆMASTI
KOSTURINN
ÞEGAR
ALLS ER GÆTT.
SAGA
BUSINESS í viðskiptaferðum með Saga
/'"''I A CC Business Class lækkarðu
ferðakostnað til muna með
því að eiga kost á heimferð strax og þú
hefur lokið viðskiptaerindum þínum.
Þeir scn/ rcikiict c/ccii/ii) til ei/cíct veljct
cilltcij Sctt'ct Bt/sii/css C/ctss
Mundu einnig að eitt og sama fargjald með
Saga Business Class getur gilt milli margra
áfangastaða í sömu ferð. Þú nýtur svo
ávinnings af að geta eins fljótt og auðið er
tekist á við verkefni sem bíða þín heima.
FLUGLEIÐIR
Traustur islenskur ferðafélagi
BHj