Morgunblaðið - 24.09.1992, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF fimmtudagur 24. september 1992
C 5
Fræðsla
Ný námskeið hjá
Stjómunarfélaginu
STJÓRNUNARFÉLAG íslands
efnir á næstunni til svonefndra
Phoenix námskeiða fyrir fólk
sem vill tileinka sér aðferðir til
að ná hámarksárangri í starfi
og einkalífi. Brian Tracy leiðir
námskeiðið á myndbandi þar
sem hann kynnir hvernig ná má
persónulegum árangri. Hann
hefur i aldarfjórðung rannsakað
hvaða þættir hafa stuðlað að
árangri og frama hjá þeim sem
náð hafa langt, segir í frétt frá
Sfjórnunarfélaginu.
Á Phoenix námskeiðinu er fjall-
að um leiðir árangurs á öllum svið-
um, samband sjálfstæðis og
ábyrgðar, ógnir neikvæðra hugs-
ana, útrýmingu sektarkenndar og
streitu, æskilegt hugarflæði,
hraðnámstækni, markmiðasetn-
ingu og hagnýtustu ieiðir til að ná
markmiðum, mikilvægi tímastjóm-
unar, áhrif hugsana á veikindi,
leiðir til betri samskipta við fólk
og leiðir til að börnin verði hæfari
einstaklingar.
Einnig efnir Stjórnunarfélagið
til námskeiðs með yfirskriftinni
„ný sölusálfræði". Þar er um að
ræða söluþjálfunarkerfi fyrir sölu-
fólk þar sem byggt er á sýningu
Tölvur
GLÆRUR
myndbanda. Á námskeiðinu er
einnig byggt á myndböndum með
Brian Tracy en hann hefur starfað
í yfir 80 löndum. Yfir 50 þúsund
sölumenn víðsvegar um heim hafa
notfært sér þær hugmyndir sem
kennar eru á námskeiðinu.
Leiðbeinendur á námskeiðunum
eru þau Fanný Jónmundsdóttir og
Haukur Haraldsson.
HVERSU MIKIÐ SKULDAEG?
VERÐBRÉFAKERFIÐ VÍSIR
SVARAR ÞVÍ.
VERK- OG KERFlSFlIÆÐISTOFAN HF
BÍLDSHÖFÐA14,112 REYKJAVÍK. SÍMI (91) 68 75 00, TELEFAX (91) 67 47 57
Heimsins
fljótasti
prentari
Reuter.
COMPAQ Computer Corp.
kynnti nýlega nýja prentara,
sem fyrirtækið segir vera fljót-
asta skrifstofuprentara heims.
Hinn nýi prentari ber nafnið
Compaq Pagemarq 20, kostar
6.000 dollara í Bandaríkjunum, og
getur prentað allt að því 20 blaðsíð-
ur á mínútu sem eru um það bil
tvöfalt fleiri en góðir algengir
geislaprentarar ráða við. Fyrirtæk-
ið kynnti ennfremur prentara sem
er ekki alveg jafn fljótur, Compaq
Pagemarq 15, sem kostar aðeins
4.000 dollara en ræður aðeins við
15 blaðsíður á mínútu. Nýju
prentaramir eru fýrstu vörumar
sem koma frá nýrri deild félagsins.
2.
3.
4.
(RBR. 5. fl.1992)
5.
6.
Fjármálaráðherra, f.h. ríkissjóðs, hefur ákveðið að
bjóða út ríkisbréf í samræmi viö heimildarákvæði
lánsfjárlaga fyrir árið 1992 og með hliðsjón af á-
kvæðum laga nr. 79/1983 svo og laga nr. 43/1990,
1. gr., um Lánasýslu ríkisins.
í boði verða ríkisbréf 5. fl. 1992 með útgáfudegi
1. október 1992 og gjalddaga 31. mars 1993. Lág-
marksfjárhæð útboðsins er 300 milljónir króna.
Heildarfjárhæð útboösins er áætluð um 500 milljónir
króna samkvæmt nánari ákvörðun fjármálaráðherra
um töku tilboða.
Ríkisbréfin verða gefin út í þremur verðgildum;
2.000.000, 10.000.000 og 50.000.000 krónur að
nafnvirði og verða þau innleyst hjá Lánasýslu ríkis-
ins eða Seðlabanka íslands á gjalddaga. Ríkisbréf
eru án nafnvaxta og verðtryggingar.
Öllum er heimilt að gera bindandi tilboð í ríkisbréf
samkvæmt eftirfarandi reglum:
a) Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, löggiltum verð-
bréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum er einum
heimilt að gera bindandi tilboð í ríkisbréf samkvæmt
tilteknu tilboðsverði.
b) Öllum öðrum er heimilt að gera bindandi tilboð í
vegið meðalverð samþykktra tilboða meðalávöxtun
vegin með fjárhæð). Tilboð samkvæmt þessum lið
eru háð því að samþykkt tilboð samkvæmt a-lið
þessarar greinar verði aö minnsta kosti samtals 200
milljónir króna.
Gera skal bindandi tilboð I nafnverð ríkisbréfa, sbr.
lið 3, eða heilt margfeldi verðgilda.
Tilboð má senda á sórstökum eyðublöðum sem
fást hjá Lánasýslu rfkisins. Tilboðin skulu berast
Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir
kl. 14.00 þriðjudaginn 29. september 1992 og séu
þau í lokuðum umslögum.
Heimilt er að símsenda tilboð í staðfestu símskeyti,
og skulu þau berast fyrir sama tíma og getið er í 6.
liö hér að framan. í undantekningartilfellum má þó
má senda tilboð með myndsendi í númer 91-
626068 milli kl. 13 og 14 á tilboðsdegi ef það er
staðfest fyrirfram meö sfmtali við forstjóra
Lánasýslu rfkisins eða fulltrúa hans.
8. Ríkissjóöur áskilur sér rétt til þess að taka eða
hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting eða
afturköllun tilboðs skal hafa borist Lánasýslu ríkisins
fyrir kl. 14.00 á tilboðsdegi.
9. Niðurstöður útboðsins verða kynntar tilboðsgjöfum
með símtali eða símsendu bcéfi eins fljótt og hægt
er eftir aö þær liggja fyrir, þó ekki síðar en daginn
eftir að tilboðsfrestur rennur út.
10. Niðurstöður útboðsins veróa kynntar tölulega eins
fljótt og hægt er, án vísunar til nafna tilboðsgjafa,
með fréttatilkynningu til fjölmiðla.
11. Greiðsla fyrir ríkisbréf, skv. tilboðum sem tekin
verða, þarf að berast Lánasýslu ríkisins fyrir kl.
16.00 á útgáfudegi, og verða bréfin afhent eða
póstsend fyrir kl. 17.00 sama dag nema þess sé
óskaö sérstaklega að Lánasýsla ríkisins geymi rík-
isbréfin. Berist greiðsla ekki á réttum tíma áskilur
rtkissjóður sér rétt til að krefja tilboðsgjafa um
hæstu lögleyfðu dráttarvexti fyrir þann tíma sem
greiðsla dregst.
12. Ríkisbréf þessi eru stimpilfrjáls. Um skattskyldu eða
skattfrelsi ríkisbréfa, svo og forvexti af þeim, fer eftir
ákvæðum laga um tekju- og eignaskatt eins og þau
eru á hverjum tíma, sbr. nú 8. gr., 1. tl. B-liðar 30.
gr., 74. og 78. gr. laga nr. 75/1981, með sfðari
breytingum, sbr. og lög nr. 7/1974 og lög nr.
79/1983. Ríkisbréf eru framtalsskyld.
13. Flokkur þessi verður skráður á Verðbréfaþingi
íslands og verður Seðlabanki íslands viöskiptavaki
flokksins.
14. Útboðsskilmálar og tilboðseyðublöð liggja frammi
hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, Reykjavfk.
Reykjavík 21. september 1992
LANASYSLA RIKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91-626040