Morgunblaðið - 24.09.1992, Side 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINN1ILÍF FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1992
Keisarmn í
Oakland
Kaiser Aluminium and Chemical
Corporation sem nú er í umræðunni
sem hugsanlegur framleiðandi áls
hér á landi er einn af stærstu ál-
framleiðendum heims. Fyrirtækið
er dótturfyrirtæki Maxxam Inc. og
hefur höfuðstöðvar í Oakland í
Kalifomíu. Árið 1990 var heildar-
velta fyrirtækisins um 2 milljarðar
dollara og hagnaður þess eftir
skatta um 221 milljón dollara.
Kaiser fæst við nær öll stig ál-
vinnslu; báxítnám, súrálvinnslu
báxíts, og vinnslu hluta úr áli og
álmelmum sem seld eru af við-
skiptavinum og dreifíngaraðilum.
Oakland miðstöðinni er skipt niður
í völsunarefni, víra o.fl., sprautu-
steypu og fargsteypu. Kaiser á
dijúga hlutdeild í heildarframleiðslu
Bandaríkjanna á álvörum.
Heimsframleiðslan á áli er áætl-
uð hafa verið um 16 milljónir tonna
áður en núverandi kreppa skall á
og afkastagetan nærri 20 milljónum
tonna. Þar af er áætlað að Sovétrík-
in hafi framleitt um íjórðung.
Bandaríkjamenn hafa minnkað
hlutdeild sína í heimsframleiðslunni
á hrááli verulega undanfarinn ára-
tug. Um 1980 var hlutdeild þeirra
nær íjórðungur en hefur minnkað
verulega. Astæðan er fyrst og
fremst aukin hagkvæmni við
vinnslu annars staðar í heiminum.
Umhverfísmál eiga einnig sinn hlut
að máli. Til dæmis koma um 75%
raforkunnar í bandarískum álverum
frá kolaorkuverum.
Kaiser álfélagið hefur undanfarin
ár lokið endurbyggingaráætlun sem
m.a. hefur falið í sér endurbætur á
álvinnsluverinu í Trentwood í Wash-
ingtonfylki. Fyrirtækið hefur lagt
mikið fé í nýjar álbræðslur og þróun
sérhæfðra vara úr áli. Auk þess að
endurskipuleggja stjómkerfí sitt
hefur Kaiser komið á tengingu
launakerfis og orkuverðs við heims-
markaðsverð á áli. Fyrirtækið rekur
tvær álbræðslur í Washingtonfylki,
í Mead og Taoma. Það á um helm-
ingshlut í álbræðslu í Anglesey í
Wales og einnig er álbræðsla í
Ghana í um 90% eigu Kaiser. Hlut-
ur Kaiser í framleiðslugetu þessara
álbræðslna er um 510 þúsund tonn
á ári.
í Anglesey-álverinu í Wales er
Rio Tinto Zinc meðeigandi. Sú ál-
bræðsla skilar um 112 þúsund tonn-
um á ári.
í Afríku nýtur Kaiser vatnsorku
frá Voltaánni (Akosombostíflan) og
framleiðir um 200 þúsund tonn í
Sjónarhorn
Tækniþróun í
eftir Gest Bárðarson
Tækniþróun hf. var stofnuð
1985. Markmið Tækniþróunar
hf. er að efla nýsköpun með því
að vinna að verkefnum á sviði
tæknigreina. Tækniþróun hf.
hefur tekið þátt í þróunarverk-
efnum og stofnun frumkvöðla-
fyrirtækja ásamt samstarfl um
uppbyggingu Tæknigarðs við
Háskóla íslands sem tekinn var
í notkun 1988.
Inngangur
Erfíðleikatímar sem gengu yfir
hinn iðnvædda heim í lok áttunda
áratugarins hleyptu m.a. af stað
umræðu um uppbyggingu tækni-
samfélaga og áhrif tæknibreytinga
á afkomu manna. Spumingum eins
og á hvem hátt ný tækni dreifist
um þjóðfélög og hvemig nýsköpun
og frumkvæði getur breytt fyrir-
tækjum og atvinnugreinum var
'varpað fram. Hér á Islandi gerðu
málsmetandi menn sér grein fyrir
að hagvöxtur sá sem fylgdi í kjöl-
far útfærslu landhelginnar myndi
ekki vara að eilífu. Boðað var mikil-
vægi þess að renna fleiri stoðum
undir íslenskt efnahagslíf í því
skyni að draga úr mikilvægi sjávar-
útvegs í íslenska þjóðarbúinu. Millj-
örðum var varið til uppbyggingar
loðdýraræktar og fískeldis.
Evrópsku iðnaðarsamfélögin
höfðu ekki hina ským framtíðarsýn
okkar íslendinga og völdu því erf-
iðu leiðina, auknum fjármunum var
varið til rannsókna og þróunarmála
og gripið var til ýmissa aðgerða í
þeim tilgangi að efla framkvæði
og örva nýsköpun.
Tæknigarðar
Ein þeirra aðgerða sem Evrópu-
þjóðir gripu til var að stofna til
'tæknigarða í nágrenni háskóla
sinna með það að markmiði að
auka samskipti háskólanna og at-
vinnulífsins. Fyrirmyndin var feng-
in að láni frá Bandaríkjunum, en
þar hafði fyrsti vísir að tæknigarði
sprottið upp við Stanford háskólann
í Kalifomíu árið 1951. Það framtak
er talið vera undirstaða þeirrar
nýsköpunar í tækniiðnaði sem átti
sér stað á því svæði sem í dag er
þekkt undir nafninu „Silicon Val-
ley“. Á austurströnd Bandaríkj-
anna hafði síðan annað svæði sem
kennt er við „Route 128“ í Boston
orðið áberandi, en það byggðist upp
í nágrenni MIT háskólans.
Hvað er tæknigarður?
Nafnið tæknigarður hefur verið
valið sem samheiti yfir all breitt
svið starfsemi sem flokka má niður
í nokkra undirflokka.
Rannsóknagarðar (Research
Park). Eingöngu fjármagnaðir af
opinbera fé og íbúar era háskóla-
menn eða starfsmenn opinberra
rannsóknastofnana. Staðsetning í
nágrenni háskóla. Vísindagarðar
(Science Parks). Samstarf opin-
berra aðila og fyrirtækja. íbúar
bæði háskólamenn og starfsmenn
einkafyrirtækja. Staðsetning í ná-
grenni háskóla.
í báðum ofangreindu flokkunum
er unnið mestmegnis að grunn-
rannsóknum, en munurínn felst
helst í því að í vísindagörðum fer
stundum fram vöraframieiðsla af
einhveiju tagi. í þessum flokkum
er all mikil áhersla lögð á ytri
umbúnað húsnæðisins, vel búna
fundarsali og rúmgóð svæði fyrir
sameiginlega þjónustu. Höfuð-
markmið þessara garða er að stuðla
að og örva vöxt á starfsemi sem
byggir á háum þekkingargranni.
Tæknibæir (High Tech Business
Parks), era svæði nefnd þar sem
byggingaraðilinn hefur fyrst og
fremst að markmiði að laða að
hátæknifyrirtæki og leigir út hús-
næðið með það fyrir augum að fá
arð af fjárfestingunni í húsnæðinu.
Tölvubúnaður
íslandsbanki keyrir upp-
gjör á eigin tölvuneti
FJÖGURRA mánaða uppgjör íslandsbanka var um síðustu mánaðar-
mót unnið á einkatölvuneti bankans með stöðluðum ÓpusAllt við-
skiptahugbúnaði frá íslenskri forritaþróun hf. Til þessa hefur
uppgjörið verið keyrt í stórtölvu Reiknistofu bankanna (RB). Að
sögn Hauks Oddssonar, deildarstjóra tölvu- og upplýsingadeildar
íslandsbanka, auðveldar þetta mjög aðgang reikningshalds- og
áætlanadeildar bankans að rekstrarupplýsingum. Færslur, vinnsla
og prentun verða aðgengilegri og tími og vinnslukostnaður sparað-
ist hjá RB.
Valcoálverinu. Afríkumenn bjóða
vatnsorku og er meira en 75% raf-
orku til álvera í Afríku vatnsorka.
Þegar á heildina er litið er Kais-
er traustur og virtur aðili í álheimin-
um. Þó má segja að hagkvæmni
stærðarinnar sé ekki ráðandi í
mörgum álveram fyrirtækisins sem
sum hver era orðin gömul. Um-
hverfísmál í Washingtonfylki, þar
með talið mengun vegna kolaraf-
orku til aukinnar álbræðslu og
auknar kröfur um takmarkað út-
sleppi efna, geta valdið fyrirtækinu
erfiðleikum í endurskipulagning-
unni. Almennt er álitið að 240 þús-
und tonna álver séu eini raunhæfí
valkosturinn fyrir næstu kynslóð
álvera. Þannig nota Kaisermenn nú
stund milli stríða í álframleiðslunni
og hyggja að byggingu nýrra ál-
vera. Þeir vora á síðasta ári orðað-
ir við áform um álframleiðslu í
Rússlandi og hafa verið í viðræðum
í Suður-Ameríku. Viðræður þeirra
við íslendinga era taldar þáttur í
þeirri viðleitni þeirra við að halda
forystu á nýrri öld.
í fréttabréfi Lufthansa kemur
fram, að án verulegs niðurskurðar á
kostnaði geti orðið erfítt að fjár-
magna reksturinn en frá 1989 hefur
orðið að sækja nærri 70 milljarða
ÍSK. í ýmsa varasjóði. Er launakostn-
aður félagsins eða kostnaður þess
við hvem starfsmann einn sá mesti,
sem þekkist, og um 30% meiri en
Með breytingunni era stöðutölur
allra bókhaldslykla íslandsbanka,
að meðtöldum 37 útibúum og veð-
deild, sóttar til RB og fluttar yfír
í ÓpusAllt hugbúnaðinn til vinnslu.
Lokafærslur, afstemmingar og
annað uppgjör er unnið á sam-
tengdum einkatölvum í Novell-neti
bankans og endanlegir efnahags-
og rekstrarreikningar útbúnir og
hjá helsta keppinaut þess f Evrópu,
British Airways.
Á síðasta ári var sætanýting í inn-
anlandsfluginu aðeins 55% og tapið
nærri 13 milljarðar kr. Á fyrra miss-
eri þessa árs er heildartapið á rekstr-
inum fyrir skatt rúmlega 20 milljarð-
ar kr.
prentaðir. Að uppgjöri loknu era
lokafærslur sendar í aðalbókhald-
skerfi bankans hjá RB.
Bókhaldslyklar íslandsbanka era
um 30.000 talsins og þarf bók-
haldskerfíð að ráða við samtölur
allt að 100 milljörðum kr. með
nákvæmni upp á einn eyri. Hug-
búnaðurinn mun geyma stöður allt
að 36 mánuði aftur í tímann og
verður hægt að vinna ýmsar fyrir-
spumir og skýrslur úr gögnum á
tölvuneti bankans án þess að þurfa
að sækja upplýsingar til RB.
Þórður B. Sigurðsson, yfirmaður
RB, sagði að það væri ekkert nýtt
að bankamir keyrðu ýmis sérverk-
efni sjálfír. Þannig væri t.d. endan-
legur frágangur ársuppgjörs unn-
inn í einmenningstölvum hjá bönk-
unum. „Ef og þegar í ljós kemur
að hentugra og ódýrara verður að
dreifa vinnslunni sem mest þá verð-
ur það náttúralega gert. Ég sé
ekkert því til fyrirstöðu að bank-
amir flytji alla reiknistofuvinnsluna
yfír í dreifða vinnslu á vélar ann-
ars staðar ef slíkt borgar sig. Ég
sé hins vegar ekki fyrir mér að svo
verði á næstunni," sagði Þórður.
Flugrekstur
Lufthansa skerniður
Forráðamenn Lufthansa, þýska ríkisflugfélagsins, hafa ákveðið að
hætta fyrsta flokks þjónustu við farþega sína á flugleiðum i Evrópu
frá og með næsta mánuði. Er búist við, að það verði til að auka tekjur
félagsins um 22 milljarða ÍSK.
tæknigörðum
I Tæknigarði
myndast hvetj-
andi sambýli
atvinnulífs og
háskólastarf-
semi sem
stuðlar að auk-
inni nýsköpun
og tilurð nýrra
atvinnutæki-
færa.
Ekki er í þessu tilfelli skilyrði að
svæðið hafí tengingu við háskóla
og algengt er að töluverð fram-
leiðsla og dreifíng á vörum fari þar
fram.
Þróunarsetur (Incubation cent-
ers), era sett upp í nágrenni eða
inni á háskólalóðum með það fyrir
augum að veita smáum þróunarfyr-
irtækjum og hliðarstarfsemi há-
skólamanna aðstöðu. Einnig era
þar til húsa nýstofnuð dótturfyrir-
tæki eða deildir fyrirtækja sem
stunda óskilda aðalstarfsemi.
Venjuiega hafa íbúar setursins
fremur stutta viðdvöl, 2 til 3 ár.
Tæknigarður við Háskóla
íslands
Að tilstuðlan FÍI, HÍ, Iðntækni-
stofnunar, Tækniþróunar hf, Þró-
unarfélags íslands og með dyggum
stuðningi frá borgaryfírvöldum var
ráðist í byggingu tæknigarðs við
HÍ. Markmiðið með byggingu
garðsins var að skapa umhverfi
sem stuðlaði að auknum samskipt-
um atvinnulífs og hugvitsmanna
innan sem utan veggja HÍ. Tækni-
garðurinn var tekinn í notkun síðla
árs 1988 og era um 1500 m2 að
heildarflatarmáli ætlaðir í útleigu
til fyrirtækja og einstaklinga sem
stunda nýsköpunarstarfsemi á sviði
hugvits- og tækniiðnaðar.
I Tæknigarði myndast hvetjandi
sambýli atvinnulífs og háskóla-
starfsemi sem stuðlar að aukinni
nýsköpun og tilurð nýrra atvinnu-
tækifæra. Leigutökum býðst hús-
næði í samræmi vð þarfír dagsins,
en viðbótarrými er fyrir hendi í
flestum tilfellum þegar þörf krefur.
í Tæknigarði njóta íbúar ímyndar
fullburða fyrirtækis með tilkostnaði
sem smáfyrirtæki rasður við. Ibúum
garðsins býðst aðgangur að faxi
og ljósritunarvél, ásamt símavörslu
og ritaraþjónustu á hagstæðu verði.
Einnig geta íbúar tengst tölvuneti
HÍ. Fundarsalir og vel búin veit-
ingastofa era í húsinu sem gefur
kost á að halda fundi eða kynning-
ar og bjóða samtímis upp á veiting-
ar. Tækniþróun hf. hefur daglegan
rekstur Tæknigarðs með höndum.
Tækniþróun hf.
Kveikjan að nýsköpun er oft
tækninýjung, en margt annað þarf
að koma til, ef vænleg hugmynd á
að dafna og þróast yfír í arðbært
fyrirtæki.
I starfsemi sinni hefur Tækni-
þróun hf. þessi sjónarmið að leiðar-
ljósi og býður viðskiptavinum sín-
um eftirfarandi þjónustu, sem mið-
uð er við þarfír framkvöðla og
sprotafyrirtækja.
0 Mat á viðskiptahugmyndum
og aðstoð við gerð viðskiptaáætl-
ana.
• Aðstoð við að fínna heppileg-
an farveg fyrir áhugaverð loka-
verkefni frá menntastofnunum.
• Leit að samstarfsaðilum og
aðstoð við samningagerð.
• Ráðgjöf eða aðstoð við fjár-
mögnun verkefna.
• Þjónusta í sambandi við öflun
einkaleyfa og vernd hugmynda.
• Bókhaldsaðstoð og ráðgjöf í
fjármálastjórnun.
• Ráðgjöf og aðstoð við mark-
aðssetningu á tæknivörum.
• Tenging við alþjóðasamtök
tæknigarða, IASP, gefur kost á
margvíslegu samstarfí við erlenda
aðila.
Árangur
Eins og oft verður með nýjung-
ar, þá greinir menn á um árangur-
inn af starfsemi tæknigarðanna.
Menn benda á að nýsköpunarfyrir-
tæki dafni ekki síður utan garða
en innan og framgangur þeirra
ráðist fremur af hugmyndinni sem
fyrirtækið er byggt á og framkvöðl-
unum sem drífí upp starfsemina.
Kannanir sem hafa verið gerðar,
t.d. í Englandi, benda þó til að lífs-
líkur nýsköpunarfyrirtækja séu
meiri innan veggja tæknigarða en
utan. Reynslan gefur til kynna að
ef eftirfarandi grandvallaratriði eru
fyrir hendi aukist líkurnar á að
blómleg nýsköpunarstarfsemi dafni
innan garðanna.
• Mat á væntanlegum skjól-
stæðingum. í því felst m.a. að sett
er fram þróunaráætlun með skýr-
um markmiðum og leiðum.
• Tengsl við háskóla.
• Aðgangur að viðskiptaþekk-
ingu og reynslu.
• Stuðningur að viðskipta-
þekkingu og reynslu.
• Frumkvöðlanet (samskipti).
• Framkvöðlamenntun.
• Aðgangur að fjármagni.
Ég ætla að lokum að hnykkja á
síðasta atriðinu í upptalningunni
hér að ofan. Án fjármagns verða
engin stórvirki unnin, án áhættu
enn síður. Grandvallaratriðin til
blómlegrar nýsköpunarstarfsemi
era til staðar, ef fjármagn fæst til
að fylgja hugmyndunum eftir.
Beina brautin breiða bíður okkar
ekki, heldur mörg torsótt og vand-
farin einstigi sem krefjast þekking-
ar, dirfsku og útsjónarsemi. Þeir
sem komast alla leið og öðlast
umbun erfiðis síns.
Höfundur er framkvœmdastjóri
Tækniþróunar hf.