Morgunblaðið - 30.10.1992, Side 8

Morgunblaðið - 30.10.1992, Side 8
'*8 ?B MORGUNBLAÐIK FASTEIGNIR 30.iOKTÓBBR 1992 EIGNASALAN REYKJAVIK SAMTENGD SÖLUSKRÁ ÁSBYRGI flGNASALAN Símar 19540-19191 Yfir 30 ára reynsla tryggir öryggi þjónustunnar Opið laugard. kl. 11-14 KLUKKUBERG HF. 3ja herb. ný sért. Bkemmtil. ib. á 1. hæð I <jölb. Sérinng. TII afh. nú þegar. (Ath. mögul. að fá keyptan bílak.) UGLUHÓLAR GÓÐ LÁIM SALA - SKIPTI 3ja herb. góð íb. á 2. hæð í fjölb. Mikið útsýni. Hagst. áhv. lán. Sala eða skipti ó 2ja herb. íb. 4ra herb. og stærra f VESTURBORGINNI GÓÐ NÝL. SÉRH. Varum að tá í sölu sérl. góða rúml. 150 fm íb, é 2. hæð (efstu) í þríb. á góðum og rólegum stað I vesturb. Z stofur og 3 svefn- herb. m.m. Stórar suðursv. Sér- inng. Sérhftl. REYKÁS SALA - SKIPTI 152 fm íb. á 2. hæð (efstu) í nýl. fjölb. Áhv. um 3,3 millj. í hagst. langtímalánum. Bein sala eða skipti á minni eign. Laus. f VESTURBORGINNI Efri hæð og rís í tvíb. v/Nesveg, alls um 150 fm. (b. er öll mlkið endurn. og í mjög góðu ástandi. Suðursvalir. Sérinng. í NÁGR. V/HLEMM ÓDÝR 4RA - LAUS 4ra herb. íb. á 2. hæð í steinh. Hagst. verð 4,5-4,6 millj. Laus. í NÁGRENNI LANDSPÍTALANS 4ra herb. ib. á 1. hæð í steinh. v/Bragagötu. Z saml. stofur og 2 svefnherb. m.m. Massift parket á gólfum. Einbýli/raðhús KJARRMÓAR - GBÆ SKIPTI Á STÆRRA Mjög gott endaraðh. á tveimur hæðum, alls um 140 fm. Skemmtil. lítil lóð. Útsýni. Bein sala eða skipti á stærri eign, gjarnan einb. á einni hæð. SELTJNES - RAÐH. Mjög gott raðh. á frábærum stað í fremstu röð v/sjévarsíöuna. tnnb. bílsk. Frébært útsýni. FOSSVOGUR RAÐH. SALA - SKIPTI Mjög gott endaraðh. á tveimur hæðum v/Hjallaland, alls um Z19 fm auk bílsk. Góð eign m. fal- legri ræktaðri lóö. Bein sala eða skipti á góðri 4ra herb. íb. í Foss- vogi. SÓLVALLAGATA Skemmtilegt rúmg. eldra einb- hús á besta stað I vesturb. Góð ræktuð lóð. Góð eign á eftirsótt- um stað í borginnl. EIGIM4SALAIM REYKJAVIK Ingólfsstræti 8 j£Z Sími 19540 og 19191 ■■ Magnús Einarsson, lögg. fastsali, Eggert Elíasson, hs. 77789, Svavar Jónsson, hs. 657596. SMIÐJAIU Verslunin Brynja er vissulega ein þeirra verslana sem setja svip á lífið við Laugaveginn. Víróuleg verslun við Langaveg Verslunin eins og hún leit út rétt fyrir 1950. Gamla innréttingin og kunnuglegir afgreiðslumenn. OFT hafa komið í huga minn orð ungs kennara við Kennara- skólann, þegar ég sótti nám þangað. „Ég nem staðar við glugga Brynju til þess að virða fyrir mér verkfærin, í hvert sinn er ég geng um Laugaveg." Það var dr. Broddi Jóhannes- son, síðar rektor Kennarahá- skóla íslands. Ég held að flestir nemendur hans hafi virt hann og dáð. Þetta dæmi nefndi hann í sambandi við mismunandi áhugasvið fólks. Hann kenndi okkur uppeldis- og sálfræði. Við Broddi erum nú báðir löggiltir eftirlaunamenn. Ég hygg að við eigum það enn til að staldra við á Laugaveginum til þess að skoða verkfærin í gluggum Brynju og það gera margir aðr- ir, því hefi ég veitt athygli; bæði konur og karlar á öllum aldri. Gömul verslun Fyrir skömmu leitaði ég nokk- urra upplýsinga um þessa verslun, hve gömul hún er og hver stofnaði hana. Ég talaði við Björn Guðmunds- son sem um langt árabil var fram- kvæmdastjóri verslunarinnar Brynju. Björn var ráðinn til starfa sem sendill við verslunina haustið 1927 þá 14 ára gamall og nýfermdur. Verslunin Brynja var stofnuð af Guðmundi Jónssyni í nóvember 1919. Guð- mundur Jónsson var trésmiður en varð fyrir því slysi að lenda í vél með aðra höndina og missa þrjá fingur. Upp úr því fór hann að fást við verslunarstörf. Guðmundur átti húseign með Ólafi í Fálkanum á Laugavegi 24 og þar rak hann verslunina Brynju til að byija með. Síðar eignaðist Guðmundur húsið nr. 27 við Laugaveg og flutti verslunina í það hús og hefur hún verið þar alla tíð síðan, um 70 ár. Ólafur seldi Guðmundi Laugaveg 27 og eign- aðist þá alveg timburhúsið nr. 24. Guðmundur og Björn Björn sagði mér að móðir sín og Guðmundur Jónsson hafi verið hálfsystkin. „Þegar ég fermdist kom Guðmundur og drakk kaffi með okkur og þá spurði móðir mín Guðmund hvort hann gæti tekið mig til starfa sem sendil,“ sagði Bjöm. Ekki gat Guðmundur ráðið drenginn alveg strax en rétt áður en skólinn átti að hefjast um haustið vildi Guðmundur ráða frænda sinn til starfa. Móður drengsins þótti ekki gott að hann hætti við skólagöngu því að hann þyrfti að læra. „Hann lærir hjá mér,“ svaraði Guðmundur þá. Drengurinn hóf störf við verslun- ina Brynju. Þar starfaði hann þar til ársins 1932. Björn Guðmundsson hóf síðan verslunarrekstur ásamt Marinó Helgasyni. Nefndu þeir verslunina Björn og Marinó. Sú verslun var í húsinu á horni Laugavegar og Frakkastígs, nr. 44 við Laugaveg. Björn og Marinó tóku síðan við rekstri Brynju 1938 er þeir keyptu verslunina af Guðmundi Jónssyni. Stöðugleiki Það er fremur fágætt að sama fyrirtæki haldist svo lengi lítið breytt á sínum gamla stað, eins og segja má að verslunin Brynja hafi gert. Verslunin hefur verið þarna í heilan mannsaldur í sama húsi og með svipaðar vörur. Inn- réttingin var hin sama um margra áratuga skeið. Afgreiðsluborðið „diskurinn“ var óvenju langur og á einum stað var hlið í því borði með plötu á hjörum sem lyft var upp þegar gengið var innfyrir borðið. Á langvegg fyrir aftan afgreiðsluborðið var mikið af hill- um og fjöldi af litlum og stórum skúffum. Hið sama má segja um afgreiðsluborðið sem var auðvitað með skúffur og hillur að innan- verðu. Allar voru þessar hirslur fullar af margvíslegum vörum. Ég nefni fáeinar: Saumur af öllum stærðum, dúkkaður og með haus, galvanhúðaður eða svartur. Skrúfur voru þar einnig af fjöl- mörgum gerðum, ekki síður en saumurinn. Það er engin leið að telja upp allar þær vörur sem voru í hillunum í gömlu innréttingunni í Brynju. Smiðjugreinarnar eru bundnar við ákveðið rúm. Ég minnist margra ferða á námsárum mínum út í Brynju til að kaupa þar lamir í á eldhús- skápa, smellur og læsingar, yfir- leitt allt sem þurfa þótti til hurða og skápasmíða. Verslunin Brynja var um árabil stórverslun við Laugaveginn og seldi margskonar byggingavörur og verkfæri. Glersala var töluverð og var og er rekin glerslípun og speglagerð í bakhúsi verslunarinn- ar. Ný innrétting Sjálfur er ég fæddur með þann „galla“ að mér finnst gamalt og íúið tréverk mjög fallegt, þó með því skilyrði að vel hafi verið vand- að til þess upphaflega. Slíku tréverki eða handverki, það er ekki bundið við tré, má oftast halda vel við með viðgerð og lagfæringum. Ég minnist þess alveg frá því að ég var 12 ára strákur í Austur- bæjarskólanum að við skrifuðum ritgerð er bar yfirskriftina: Hvað ætla ég að verða þegar ég verð fullorðinn? Þar lýsti ég því að ég ætlaði að verða trésmiður og að ég vildi vinna sem mest í höndum en nota vélar hóflega. Mörgum mun þykja slíkir fram- tíðardraumar 12 ára drengs harla barnalegir. Tíminn krefst ákveð- inna breytinga og svo fór um hina sérstæðu og fallegu verslunarinn- réttingu í Brynju. Mér brá ein- kennilega við er ég kom í verslun- ina fyrst eftir nýja fyrirkomulagið. Opnað hafði verið fyrir afgreiðslu- rými í gegnum langvegginn sem skipti húsinu í tvo hluta. Nú kom einnig birta inn um bakglugga og allt var miklu fijálslegra. Eigendur og afgreiðslufólk virtist afar ánægt eftir breytinguna. Breyttir afgreiðsluhættir Tíminn vinnur á og í verslunar- rekstri þar sem allt veltur á hag- kvæmni og að laða viðskiptavini að er þörf á breytingum. Áður fýrr fór oft langur tími hjá af- greiðslu fólks að telja skrúfur, króka o.fl., o.fl. Nú hanga litlir plastpokar sem talið hefur verið í uppi í grindum og statífum. Þetta er nútíminn, við hendum hinum gömlu verð- mætum og kaupum eitthvað nýrra og dýrara. Það gefur augaleið að ekki er hægt að kaupa svona smá- skammta á sama verði og áður var. Mikil prýði mundi vera að því ef hægt væri að koma gömlu inn- réttingunni í ríkari mæli en nú er þannig fyrir að hún sjáist og nýt- ist. Fólkið sem fer um Laugaveginn Fyrr í þessari grein gat ég þess að margir vegfarendur staldra við glugga Brynju. Þar gefur á að líta fallegt og gott úrval verkfæra, tréskurðaijárn og rennijárn, heflar og sagir og ýmsar tegundir raf- magnshandverkfæra. Eg leitaði upplýsinga umm hvaða vöruflokkar væru höfuð- flokkar verslunarinnar nú. Svarið var að hlutverk verslunarinnar væri fyrst og fremst þjónusta við vegfarendur götunnar, fólkið sem á leið um Laugaveginn og einnig væri töluverð áhersla lögð á þjón- ustu við skólana^ einkum smíða- kennsluna þar. I fjöldamörg ár hefur Brynja haft á boðstólum létt- byggðar trésmíðavélar sem margir hafa keypt líka til notkunar heima í kompunni sinni. Þær eru það létt- ar að hægt er að setja þær í far- angursgeymslu fólksbíls. Litlir skóla hefilbekkir prýða vöruvalið. eftir Bjarna Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.