Morgunblaðið - 05.12.1992, Qupperneq 1
MENNING
USTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1992 BLAÐ.
ÓPERAN Amahl og næturgestirnir, eftir Gian-Carlo
Menotti, verður frumsýnd í Langholtskirkju í dag,
laugardaginn 5. desember, klukkan 17.00. Það er
Óperusmiðjan sem flytur þetta fallega verk, sem inni-
heldur boðskap nátengdan jólahátíðinni: Þrír konung-
ar eru leið til að vitja konungs konunganna sem fædd-
ur er í fátækt. Leiðarstjarna vísar þeim veginn, en
þeir eru göngumóðir, þarfnast hressingar og hvíldar
og banka á dyr hjá fátækri ekkju og fötluðum syni
hennar, Amahl.
Það er kvöld þegar óperan hefst.
Móðir Amahls kallar á hann í hátt-
inn, en hann er úti að leika sér.
Leikvöllur hans er staðurinn þar
sem tunglið verður að kyndli sem
lýsir upp skýin og þau eru skín-
andi gólf þar sem konungar halda
dansleiki.
Amahl bendir
móður sinni á
stjörnu „sem er
stór eins og
gluggi, hefur
hala og ferðast
um heiminn
eins og eld-
vagn“. Móðirin,
sem hefur ekk-
ert að bíta og
brenna, and-
varpar og spyr:
„Amahl, hve-
nær ætlarðu að
hætta að
skrökva?"
Hún lítur
ekki upp og skilur ekki ævintýra-
heim barnsins, getur ekki greint
milli lyga og lifandi ímyndunar-
afls. Blæðandi trjágreinar, ljón
með kvenmannshöfuð, fiskur á
stærð við bát, með veiðihár og
leðurblökuvængi og hom eins og
geit, hafa engan tilgang, vekja
enga gleði, þar sem hún stendur
frammi fýrir því að fara á vergang
með soninn fatlaða; gerast betlari.
En jafnvel í því hlutskipti sér
Amahl ævintýri. Hann mun leika
á flautu sína og móðirin syngja,
hann trúður, hún sígauni og fólkið
mun kasta til þeirra gulli, „til að
stöðva hávaðan".
Móðirin býður góða nótt og bið-
ur Amahl að eyða ekki ljósinu, en
hann er rétt að þagna þegar bank-