Morgunblaðið - 10.12.1992, Qupperneq 6
& B dagskrc
...MQRGLLNBLAÐIÐJIMMTUDAGUR..10, DESEMRER..1992 .
SJONVARPIÐ
14.00 tflflVIIVIIII ►Fjölleikahúsið
IWWMinU Circus) Bíó-
mynd eftir Charles Chaplin frá árinu
1928. í myndinni slæst litli flæking-
urinn í för með farandsirkusfólki og
verður ástfanginn af konu í hópnum.
Áður á dagskrá 8. júní 1991.
15.10 IhDflTTID ►Ólympíumót
IrKU I IIII þroskaheftra í
Madrid Mynd frá hollenska sjón-
varpinu um ólympíumót þroskaheftra
sem fram fór í Madrid í sumar.
15.40 ►Fólkið í landinu Endursýndur
þáttur þar sem rætt er við Sigrúnu
Huld Hrafnsdóttur sunddrottningu.
16.05 ►Tré og list - Hold er mold Þáttur
þessi er framlag Svía til norrænnar
þáttaraðar um tré og notkun þeirra
á Norðurlöndum og í honum kynn-
umst við verkum myndhöggvarans
og tréskurðarmannsins Axels Petter-
sons sem uppi var á árunum 1868
til 1925. Þýðandi: Jón 0. Edwald.
16.35 ►Öldin okkar - Austur og vestur
(Notre siécle) Franskur heimildar-
myndaflokkur um helstu viðburði
aldarinnar. í þessum þætti eru tekin
fyrir árin frá 1945 til 1958. Á þessum
árum klofnaði heimurinn í tvennt, í
austur- og vesturblokk. Evrópa var
í rúst eftir stríðið og fólk varð að
venjast frelsinu og læra að lifa upp
á nýtt. Þýðandi: Ingi Karl Jóhannes-
son. Þulur: Árni Magnússon. (6:9)
17.35 ►Sunnudagshugvekja Séra Val-
geir Astráðsson flytur.
17.45 ►Jóladagatal Sjónvarpsins-Tveir
á báti Þrettándi þáttur.
17.50 ►Jólaföndur í þættinum í dag verð-
ur búin til hjartakarfa. Þulur: Sig-
mundur Öm Amgrímsson.
18.00 ►Stundin okkar Umsjón: Helga
Steffensen. Upptökustjórn: Hildur
Snjólaug Bruun.
18.30 ►Brúðurnar í speglinum (Dock-
orna i spegeln) Sænskur mynda-
flokkur fyrir börn á öllum aldri,
byggður á sögum eftir Mariu og
Camillu Gripe. Þýðandi: Edda Krist-
jánsdóttir. Leikraddir: Jóhanna Jónas
og Felix Bergsson. (5:9) (Nordvision
- sænska sjónvarpið.)
18.55 ►Táknmálsfréttir
19.00 ►Bölvun haugbúans (The Curse
of the Viking Grave) Kanadískur
myndaflokkur. Aðaihlutverk: Nichol-
as Shieids, Evan Tlesla Adams og
Michelle St. John. Þýðandi: Krist-
mann Eiðsson. (5:5)
19.25 ►Auðlegð og ástríður (The Power;
the Passion) Ástralskur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi: Ýrr Bertels-
dóttir.
19.45 ►Jóladagatal Sjónvarpsins - Tveir
á báti Þrettándi þáttur endursýndur.
20.00 ►Fréttir og veður
20.35 ►Vínarblóð (The Strauss Dynasty)
Myndaflokkur sem austurríska sjón-
varpið hefur gert um Straussættina.
Leikstjóri: Marvin J. Chomsky. Aðal-
hlutverk: Anthony Higgins, Stephen
McGann, Lisa Harrow, Edward Fox
og John Gielgud. Þýðandi: Óskar
Ingimarsson. (12:12)
21.30 ►Dagskráin Stutt kynning á helsta
dagskrárefni næstu viku.
21.40 Tfllll |QT ►Strengleikar Guðný
I UllLIO I Guðmundsdóttir og
Sigrún Eðvaldsdóttir leika verk eftir
Bela-Bartok á íslenskar birkifiðlur.
Stjórn upptöku: Tage Ammendrup.
21.50 tfuiiruvun ►■nnflytjendur
nVIIVlTlinU (Les Ritals) Frönsk
verðlaunamynd frá 1990, byggð á
endurminningum Frangois Cavannas
frá uppvaxtarárum hans meðal ít-
alskra innflytjenda í Suður-Frakk-
landi, sem máttu þola aðkast og of-
sóknir af hálfu innfæddra Frakka.
Seinni hluti myndarinnar verður
sýndur miðvikudaginn 16. desember.
Leikstjóri: Marcel Bluwal. Þýðandi:
Ólöf Pétursdóttir. Fyrri hluti
23.30 ►Sögumenn (Many Voices,
One World) Doc McConnell frá
Bandaríkjunum segir söguna Hómer.
Þýðandi: Guðrún Arnalds.
23.35 ►Útvarpsfréttir í dagskrárlok
CO=víðóma=steríó
SUWNUPAGUR 13/12
STOÐ TVO
9.00 ►Óskaskógurinn Leikbrúðumynd
fyrir yngstu kynslóðina með islensku
tali.
9.20 ►Össi og Ylfa Litlu bangsakríiin
taka sér alltaf eitthvað skemmtilegt
fyrir hendur.
9.45 ►Myrkfælnu draugarnir Teikni-
mynd um litla myrkfælna drauga.
10.10 ►Prins Valíant Ævintýralegur
teiknimyndaflokkur.
10.35 ►Marfanna fyrsta Spennandi
teiknimyndaflokkur um hugrakka
unglingsstúlku.
11.00 ►Brakúla greifi Gamansamur
teiknimyndaflokkur fyrir alla aldurs-
hópa.
11.30 ►Blaðasnáparnir (Press Gang)
Lokaþáttur þessa leikna mynda-
flokks.
12.00 ►Sköpun (Design) í þessum þætti
verður litið á mátt auglýsinga og
meðal annars verður spjallað við
Paul Arden frá Saatchi & Saatchi,
Lee Clow frá Chiat/Day og Tibor
Kaiman en hann rekur eigið hönnun-
arráðgjafarfyrirtæki. Þátturinn var
áður á dagskrá í nóvember 1990.
(2:6)
13 00 íhDflTTID ►NBA tilþrif (NBA
Ir IIUI IIH Action) Þáttur um
liðsmenn bandarísku úrvalsdeildar-
innar.
13.25 ►ítalski boltinn Bein útsending frá
leik í fyrstu deild ítölsku knattspym-
unnar.
15.15 ►íslandsmótið í handknattleik
karla íþróttadeild Stöðvar 2 og
Bylgjunnar fýlgist grannt með gangi
mála.
15.45 ►NBA körfuboltinn Leikur í banda-
rísku úrvalsdeildinni. .
17.00 ►Listamannaskálinn - Terence
Davies Rætt er við breska kvik-
myndaleikstjórann Terence Davies
en hann dregur upp kjamyrtar svip-
myndir af æsku sinni.
18.00 ►öO mínútur Fréttaskýringaþáttur.
18.50 ►Aðeins ein jörð Endurtekinn um-
hverfisþáttur frá síðastliðnu fímmtu-
dagskvöldi.
19.19 ►19:19 Fréttir og veður.
20.00 ►Klassapi'ur (Golden Girls) Þá er
komið að lokaþætti þessa gaman-
sama bandaríska myndaflokks að
sinni. (27:27)
20.35 ►Lagakrókar (L.A. Law) Banda-
rískur framhaldsmyndaflokkur um
félagana hjá Brachman og McKenzie.
(18:22)
21.35 VU|V||V||n ►Max og Helen
IV VIHIYII nU Þrátt fyrir aðskilnað
og ólýsanlegar kvalir í seinni heims-
styrjöldinni gátu Max og Helen aldr-
ei gleymt hvort öðra. Myndin byggist
á sannri sögu eftir „nasistaveiðar-
ann“ Simon Wiesenthal. Simon vant-
ar vitni að stríðsglæpum fyrrverandi
yfírmanns fangabúða fyrir gyðinga
en hann getur aðeins fundið einn
mann sem lifði fangavistina af, Max
Rosenberg. Max getur ekki brotist
út úr fortíðinni. Hann segir Simon
söguna af sambandi sínu við Helen,
unga konu sem var með honum í
fangabúðunum, greinir frá flótta sín-
um og útskýrir fyrir nasistaveiðaran-
um hvers vegna hann og Helen gátu
ekki fundið hamingjuna eftir að þau
hittust aftur að stríðinu loknu. Átak-
anleg saga Max verður til þess að
Simon gerir nokkuð sem hann hafði
aldrei gert áður og gerði aldrei aft-
ur. Aðalhlutverk: Treat Williams,
Alice Krige og Martin Landau. Leik-
stjóri: Philip Saville. 1990.' Maltjn
gefur meðaleinkunn.
23.10 ►Tom Jones og félagar Það
er komið að kvöldstund fyrir aðdá-
endur söngvarans Toms Jones. (5:6)
23.40 tfUIVIIVIin s,æmum fé-
n ■ inirl I RU lagsskap (Bad
Influence) Spennumynd með Rob
Lowe og James Spader í aðalhlut-
verkum. Leikstjóri: Curtis Hanson.
1990. Lokasýning. Myndbandahand-
bókin gefur ★ ★★.
1.15 ►Dagskrárlok
Innflyljendumir
urðu fyrir aðkasti
Átkanleg saga - Max og Helen náðu aldrei að höndla
hamingjuna vegna þess að fortíðin stóð alltaf á milli þeirra.
Æska - Myndin segir
að hluta til frá æsku
Francois Cavannas.
SJÓNVARPIÐ KL. 21.50 Fyrri
hluti myndarinnar Innflytjendurnir
verður sýnd í kvöld í Sjónvarpinu.
Hún er byggð á endurminningum
Francois Cavannas, sem ólst upp
meðal ítalskra innflytjenda í Suður-
Frakklandi. Innflytjendumir urðu
fyrir aðkasti og ofsóknum frá hrein-
ræktuðum íbúum landsins. Myndin
hefst þegar Francois er lítill dreng-
ur og sýnir hvað veitti honum gleði
á þeim árum og hversu mikil von-
brigðin gátu verið. Seinni hluti þess-
arar frönsku verðlaunamyndar frá
árinu 1990 verður sýndur miðviku-
daginn 16. desember.
Max og Helen byggð
á sögu Wiesenthals
Simon
Wiesenthal
skrifaði
söguna og var
ráðgefandi við
gerð
myndarinnar
STÖÐ 2 KL. 21.35 Myndin Max og
Helen er byggð á sannri sögu eftir
Simon Wiesenthal sem er þekktur
fyrir að hafa rannsakað grunsemdir
um stríðsglæpi og leitað uppi stríðs-
glæpamenn. Sagan hefst á því að
Simon vantar vitni að stríðsglæpum
fyrrverandi yfírmanns útrýminga-
búða i síðari heimsstyijöldinni en
þrátt fyrir ítarlega leit fínnur hann
aðeins einn mann sem lifði fangelsis-
vistina af, Max Rosenberg. Max get-
ur ekki brotist út úr fortíðinni en er
ekki tilbúinn til að horfast í augu
við hana með því að bera vitni. Hann
segir Simoni frá ástarsambandi sínu
við Helen, unga gyðingastúlku sem
var með honum í fangelsinu. Max
tókst að flýja til Rússlands og eftir
stríðið bar fundum hans og Helen
saman aftur.
YMSAR
STÖÐVAR
sýim
17.00 Hafnfirsk sjónvarpssyrpa. Bæ-
jarlífið grandskoðað frá ýmsum hlið-
um. Framkvæmdir, atvinnulíf, menn-
ing og mannlíf er í brennidepli. Sýnd-
ar eru gamlar myndir til samanburð-
ar. (3:7) 18.00 Dýralíf (Wild South).
í þættinum verður ijallað um Kiwi-
fuglinn, sem einungis lifir á Nýja-Sjá-
landi. 19.00 Dagskrárlok.
SKY MOVIES PLUS
8.00 The Jazz Singer M 1980, Neil
Diamond, Laurence Olivier 10.00
King Ralph G 1991 12.00 Tom
Brown’s Schooldays F 1940 14.00
Brenda Starr Æ 1990, B.Shields
16.00 The Best of Benny Hill G 1974
17.30 Fréttir úr kvikmyndaheiminum
18.00 White Fang Æ 1991 20.00
Opportunity Knocks G 1990 22.00
Zandalee E 1990 23.45 Kindergarten
Cop G 1990 2.00 Wild Orchid E,F
1989 3.50 The Initiation H 1983
SKY OIUE
6.00 Hour of Power 7.00 Fun Fact-
ory 11.30 World Tomorrow 12.00 f
geimvillu 13.00 Topp 40 í Bretlandi
14.00 Trapper John 15.00 Eight is
Enough 16.00 Hótel 17.00 Hart to
Hart 18.00 Growing Pains 18.30
Simpsoníjölskyldan 19.30 Stökk-
stræti 21 20.30 Hollywood Wifes, 1.
hluti F 22.30 Entertainment Tonight
23.30 Sjónvarpstíska (Fashion TV)
EUROSPORT
8.00 Þolfimi 8.30 Skíðaþáttur 10.00
Evrópumörkin 11.00 Skíðaþáttur.
12.30 Hnefaleikar 13.30 Alþjóðlegur
íþróttaþáttur 14.30 Hestaíþróttir
15.30 Fimleikar, bein úts. 17.00
Evrópumörkin 17.05 Heimsbikar-
keppni á skíðum 19.30 íþróttaþáttur-
inn Eurofun 20.00 Evrópumörkin
21.00 Listfimleikar 22.00 Skíða-
keppni 23.00 Evrópumörkin 24.00
Dagskrárlok
SCREEMSPORT
1.00 PBA keila 3.00 Kvennakeila
4.00 Breaks snóker 5.00 Sparkhnefa-
leikar 6.00 NFL, yfirlit vikunnar 6.30
Kraft kvennatenniskeppnin 7.00
Brasiltska knattspyman 8.00 Hrað-
bátasiglingar 9.00 Hestaíþróttir
10.00 Akstursíþróttir 11.00 Hnefa-
leikar: Milliþungavigt 13.00 Heims-
meistaramót í snóker 15.00 Kvartmfla
(NHRA Drag Racing) 15.30 Hnefa-
leikar 16.30 Breskar akstursíþróttir
17.00 Akstursíþróttir 18.00 Þýski
körfuboltinn, bein úts. 20.00 Kvart-
míla (NHRA) 21.00 Spænska, hol-
lenska og portúgalska knattspyman
23.00 Golf: US PGA Tour 24.00
Dagskrárlok
Vígslutónleikar
í Hallgrímskirkju
RÁS 1 KL. 17.00 Hið nýja
konsertorgel Hallgríms:
kirkju verður vígt í dag. I
því eru alls 5.200 orgelpíp-
ur eða 72 raddir. Á efnis-
skránni eru fjölbreytt verk,
allt frá portúgalskri bar-
okktónlist til nýs verks eft-
ir Þorkel Sigurbjömsson.
Markmiðið með verkefn-
valinu er að gefa sem besta
mynd af eiginleikum org-
elsins. Organisti kirkjunn-
ar er Hörður Áskelsson og
var það eftir ráðningu hans
árið 1982 að orgelmálið
komst á veralegt skrið. Fé
til orgelkaupa hefur verið
safnað gegnum tíðina og
enn stendur yfir söfnun,
þar sem nokkuð vantar
upp á þær rúmu 70 milljón-
ir sem orgelið kostar full-
búið.
Vígsla - Vígslutónleikum verður útvarpað beint á Rás 1.