Morgunblaðið - 09.01.1993, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANUAR 1993
Flottroll hefur ekki verið reynt við síldveiðar hér við land í þrjátíu ár
150 lestiraf
fallegri sfld
Vestmannaeyj um.
HUGINN VE, sem nú er að gera tilraun með síldveiðar í flot-
troll, landaði 150 tonnum af fallegri síld í Eyjum á fimmtu-
dagskvöld. Aflann fékk Huginn í kantinum á Papagrunni og
sagði Gylfi Viðar Guðmundsson stýrimaður, að veiðarnar
hefðu gengið vel.
an tíma og fengum um 50 tonn í
holi. Það er nánast fullur belgur
því hann er það þröngur að það fer
ekki mikið meira niður í hann en
það. Það er nóg fyrir okkur að
renna með trollið í gegnum eina
torfu og þá er það fullt.
Við vorum í smá vandræðum
með að dæla úr trollinu en það
voru gerðar breytingar á því hjá
okkur núna svo ég á von á að þetta
verði betra í þessum túr. Við erum
að prófa okkur áfram með þetta
og erum bara ánægðir með árang-
urinn," sagði Gylfi.
Huginn fékk aflann í fjórum
hölum en varð að sleppa niður úr
síðasta halinu þar sem því magni
sem mátti koma með að landi til
vinnslu var náð. Morgunbiaðið
ræddi við Gylfa Viðar Guðmunds-
son stýrimann þegar Huginn var á
leið á miðin á ný*í gær. Hann sagði
að veiðamar hefðu gengið vonum
framar. Þeir lönduðu 30 tonnum á
Eskifirði í vikunni sem var fyrsti
aflinn í trollið, en smá byijunarörð-
ugleikar hafa verið sem þeir hafa
þurft að lagfæra. „Við toguðum frá
15 mínútum og upp í einn og hálf-
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Síldinní landað í Eyjum
Huginn VE landaði í Eyjum síld sem veiddist í flottroll.
Hann sagði að síldin hefði staðið
frekar grunnt síðustu daga en þeir
væru spenntastir að sjá hvemig
gengi að eiga við hana ef hún stæði
það djúpt að hún væri ekki veiðan-
leg í nót. Það væri við slíkar að-
stæður sem trollið ætti að koma
að bestum notum og standa nótinni
framar við veiðamar.
„Fyrir áramót stóð síldin mjög
djúpt í nokkrar vikur og illa gekk
að veiða hana. Ég hef trú á að þá
hefði verið hægt að ná henni í troll-
ið,“ sagði Gylfí.
Huginn mun halda sfldveiðunum
í troll áfram næstu vikur og einnig
er hugmyndin að reyna jafnvel
loðnuveiðar með því.
- Grímur
Þorskblokk I
lækkarum ]
lOtil 15 |
sent pundið
Fjórðungs samdráttur hjá verktökum í fyrra og engin teikn um bata
Sameining Hagvirkis-Kletts
og SH-verktaka í athugun
Forsljóri Byggðaverks segir sameiningn eina bjargráð verktakafyrirtækja
VERÐ á þorskblokk I Banda-
ríkjunum hefur verið að síga
að undanförnu. Það er nú um
tveir dollarar pundið, en var
fyrir jólin frá 2,10 til 2,15
dollura. A haustmánuðum var
blokkin í 2,25 dollurum, en í
upphafi síðasta árs var verð
svipað og nú. Gengi dollarsins
hefur á hinn bóginn hækkað
og dregur það úr tekjutapi
íslenzkra framleiðenda.
Magnús Gústafsson, forstjóri
Coldwater, segir, að lítil hreyfing
sé á blokkarsölu og því erfiðara
að átta sig á stöðunni og geta sér
til um framvinduna á næstu miss-
erum. Vaxandi notkun sé á blokk
úr fítuhreinsuðum Alaskaufsa og
framboð á ufsanum mikið vegna
lágs verðs á surimiblokk. Þá sé
mikil óvissa vegna aukinnar fram-
leiðslu tvífrystrar blokkar úr físki
frá Rússum. Gæði slíkrar blokkar
séu minni en hinnar ög áhrif mik-
illar framleiðslu eigi eftir að koma
í ljós.
Birgðir af blokk úr Alaskaufsa
í kæligeymslum vestan hafs voru
í byijun desember rúm 6.000 tonn,
sem er með mesta móti síðastliðið
ár. Birgðir af þorskblokk eru svip-
aðar. Vertíð á Alaskaufsa hefst
fljótlega og þá skýrist hugsanlega
frekar hver framvindan verður.
VIÐRÆÐUR eru í gangi milli forsvarsmanna tveggja stórra verk-
takafyrirtækja, Hagvirkis-Kletts hf. og SH-verktaka, um samein-
ingu fyrirtækjanna. Hagvirki-Klettur bauð í allt hlutafé SH-verk-
taka fyrir skemmstu en nú hafa fyrirtækin hafið sameiningarvið-
ræður og verður þeim haldið áfram yfir helgina en engar ákvarð-
anir hafa þó verið teknar. „Ég reikna með að menn reyni að vinna
þetta hratt,“ segir Jón Ingi Gíslason, framkvæmdastjóri SH-verk-
taka. „Fyrirtæki á þessum markaði verða að sameinast ef þau
eiga ekki að lognast út af,“ segir Jóhann Bergþórsson, forstjóri
Hagvirkis-Kletts og í sama streng tekur Sigurður Sigurjónsson,
forstjóri Byggðaverks hf., sem segir það eitt verða til bjargar að
fyrirtæki sameinist. Búið sé að byggja yfir þjóðina og allt of
margir aðilar séu að bítast um ekki neitt.
Segist Sigurður einnig hafa átt
viðræður við Jóhann Bergþórsson,
sem hafi lýst áhuga á sameiningu
en engu hafi þó verið slegið föstu
þar um.
Um fjórðungs samdráttur varð
hjá verktakafyrirtækjum í landinu
í fyrra og engin teikn eru á lofti
um batahorfur á þessu ári, að sögn
Pálma Kristinssonar, fram-
kvæmdastjóra Verktakasambands
íslands.
Að sögn Jóns Inga hefur rekst-
ur SH-verktaka verið erfiður og
um verulegt tap að ræða á síðasta
ári sem stafí af þeim þrengingum
sem séu í verktakastarfseminni.
„Við viljum því grípa strax inní
og gera það sem best er í stöð-
unni,“ segir hann. '
Jóhann sagði að ef samningar
tækjust yrði nýja fyrirtækið samt
Fimm kind-
ur finnast í
Þverárfjalli
Borg í Miklaholtshreppi.
FIMM kindur fundust nýlega í
Þverárfjalli í Eyjahreppi, tvær
ær og þijú lömb. Kindurnar voru
í 'þokkalegu ástandi þó undan-
famir dagar hafi verið rysjóttir
og mikil fönn kornin til fjalla.
Kindurnar eru frá Dalsmynni og
Þverá.
Það var Svanur Guðmundsson
oddviti í Dalsmynni sem fann kind-
umar. Snjór í fjallinu er orðinn harð-
ur og gat hann notað Qórhjól við
að ná þeim. » Páll
einungis brot af því fyrirtæki sem
hann hefði rekið undanfarin ár,
svo mikill væri samdrátturinn á
verktakamarkaðnum. Hann sagði
að eins og staðan væri nú væru
fyrirtækin hvort um sig of stór
miðað við þá verkefnastöðu sem
lægi fyrir.
Verkefni framundan
SH-verktakar hafa samninga
um nokkur stór verkefni, m.a.
byggingu íþróttahúss í Vogum,
nýja brú yfir Elliðaár, stúdenta-
garða og fleira. Hagvirki-Klettur
er með nokkur verkefni í gangi
og bæjarstjórn Hafnarfjarðar hef-
ur samþykkt að fyrirtækið sjái um
hönnun og framkvæmdir við út-
rásir skolplagna í bænum. Þó er
eftir að samþykkja áætlun Hag-
virkis-Kletts um kostnaðinn við
þetta verk, sem fyrirtækið áætlar
að yerði um 250 milljónir kr.
Ármann Örn Armannsson,
framkvæmdastjóri Ármannsfells
hf., segir að fyrirtækið eigi ekki
í neinum sameiningarviðræðum og
staða þess sé betri en á sama tíma
á síðasta ári og sagði hann að
bjartara væri yfir starfseminni nú.
„Ytri aðstæður eru reyndar verri
ef eitthvað er en starfsmennimir
eru ákveðnir í að standa sig,“ sagði
hann.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
50-60 verkalýðsfulltrúar á fundi
Á milli 50 og 60 fulltrúar stjórna allra verkalýðsfélaga innan Alþýðu-
sambands íslands á Norðurlandi eystra sóttu fund sem forysta ASÍ
boðaði til á Akureyri í gærkvöldi. Markar fundurinn upphafið að
fundaherferð með stjómum aðildarfélaga Alþýðusambandsins víðs
vegar um landið á næstu dögum um samræmdar áherslur í kom-
andi kjarasamningum. Að sögn Benedikts Davíðssonar, forseta ASÍ,
var fundurinn mjög vel sóttur og ríkti mikil eindrægni meðal fundar-
manna um að meginverkefnin á næstunni séu að að reyna að koma
í veg fyrir vaxandi atvinnuleysi og vaxandi kjaraskerðingu. „Menn
voru á einu máli um að það þurfi að stifla saman strengi allrar hreyf-
ingarinnar um þetta verkefni," sagði Benedikt. Á myndinni sést hann
í ræðustól.
m
í dag
Flautað viö Alþingi
Atvinnubílstjórar þeyttu horn bíla
sinna við Alþingishúsið í gær til
að wótmæla auknum álögum 20
Heimsmeistaroeinvígi ú útsölu
Leitað er að mótshaldara fyrir
heimsmeistaraeinvígið í skák og
kröfur um verðlaunafé lækka 22
Óheimilt að selja tollskýrslur
Umboðsmaður Alþings telur að
óheimilt sé að innheimta gjald fyr-
ir tollskýrslur 25
Leiðari__________________________
Framtíð NATO og ísland 24
JM«rganbUt>U>
ORÐ, ORÐMYND,
MYNDORÐ, MYND
Lesbók
► Ljósmyndaopna og forsíða
eftir ljósmyndarann Sebastian
Salgado - Hjólamannafélag
Reylyavíkur - Skoffín og
skuggabaldur
Menning/Listir
► Orð, orðmynd, myndorð,
mynd - Fjórar sónötur - Um
myrkrið í hjarlanu - Menn-
ing/listir i næstu viku - Banda-
rísk utangarðslist
Jón Asbjömsson kaup-
ir skemmu Ríkisskips
JÓN Ásbjörnsson hefur keypt
hús Ríkisskips við Reykjavíkur-
höfn undir fyrirtæki sín, Fisk-
kaup hf., og Heildverslun Jóns
Ásbjörnssonar. Hyggst Jón færa
út kvíamar í saltfiskverkun í
kjölfar þess að einkaleyfi Sam-
bands íslenskra fiskframleið-
enda á útflutningi var afnumið
um áramótin.
Húsið er um 2.500 fermetrar
að stærð og fær Jón Ásbjömsson
það afhent í febrúar. Hann sagði
við Morgunblaðið að það hefði ver-
ið forsenda þessarar fjárfestingar
að einkaleyfí SÍF var afnumið um
áramótin. Jón vildi ekki gefa upp
kaupverðið á húsinu.
Jón Ásbjömsson hefur undan-
farin ár haft leyfi til að flytja út
saltfisk utan við SÍF, aðallega til
Spánar. Jón sagði, að hann íhug-
aði að kaupa ofna til að þurrka í
saltfisk og setja þá upp í húsinu
en af því yrði þó ekki á þessu ári.
Markaður fyrir þurrkaðan saltfisk
er einkum í Suður-Ameríku.
4