Morgunblaðið - 09.01.1993, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1993
7
NÝTT ÚTLIT.
Framhlutinn hefur verið
endurhannaður með nýju
grilli og svuntu. Vindskeið
er staöalbúnaður á 3ja dyra
Sunny. Nýir hjólkoppar.
IMIS5AIM
IMÝ IIMNRÉTTING.
Nýtt áklæði er komið á sæti
og er breytt, þannig að sætin
aðlagast líkamanum en betur.
Mjóhryggsstuðningur er stillanl.
Nýtt og þægilegra stýrishjól og
mælum hefur einnig verið breytt,
einnig hefur útihitamælir bæst við.
BILASYNING
LAUGARD./SUNIVIUD. KL. 14-17
FJÖLINNSPRAUTUN:
Nú er 1600 cc vélin
búin fjölinnsprautun
og 1B ventlum, sem
eykur aflið upp í
102 hestöfl.
Ingvar
■g
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
síma 91-674000
100 tonn af Rússa-
fiski til Húsavíkur
Húsavík.
RÚSSNESKI togarinn Udarnik
frá Múrmansk kom til Húsavík-
ur föstudaginn 8. janúar og auk
venjulegra tollskoðunar fór
heilbrigðisfulltrúinn Vignir
Sigurólason, dýralæknir, um
borð í skipið til að athuga
ástand þess og til að heimila
löndun úr því. Engin meindýr
fundust í skipinu og ekkert hef-
ur fundist athugavert svo að
Bíldudalur
Línubátur-
inn Geysir
BA á veiðar
Um 20 störf skapast
Bíldudal.
STÓR hluti íbúa Bíldudals hefur
verið án atvinnu síðustu 3-4
mánuði, eða frá því starfsemi
Fiskvinnslunnar hf. var hætt
vegna gjaldþrots í sumar. Út-
gerðarfélag BQddælinga hf.,
sem gerir út togarann Sölva
Bjarnason og línubátinn Geysi,
hyggst senda Geysi á línuveiðar
á næstu dögum.
Sölvi Bjamason hefur landað
afla sínum á markað í Reykjavík
undanfarið. Nú er búið að ráða
12 manns í beitingu á Geysi sem
fer í sinn 'fyrsta túr á næstu dög-
um. Alls skapast við útgerðina um
20 störf en aflinn verður settur á
Fiskmarkað Vestfjarða á Patreks-
fírði.
Þetta er ljós í öllu svartnættinu
sem ríkt hefur hjá því fólki sem
hefur verið atvinnulaust á fjórða
mánuð. Þá má einnig geta þess
að einstaklingar í kauptúninu eru
að standsetja fískverkun og verður
afli sem þangað berst saltaður.
Rækjuvinnsla er að hefjast eftir
jólafrí en þar starfa, rúmlega 20
manns. Enn eru þó margir at-
vinnulausir og er von manna að
úr rætist sem fyrst.
R. Schmidt
útlit er fyrir að Fiskiðjusamlag
Húsavíkur hf. kaupi farm þess
sem er rúm 100 tonn.
Farmurinn hefur verið athugað-
ur og fískurinn metinn ög útlit er
fyrir að honum verði landað laug-
ardaginn 9. janúar og segir
Tryggvi Finnsson að hér sé um
nokkuð góðan físk að ræða.
Þó ekki hafi orðið vart að lif-
andi rottur væru í skipinu verða
viðhlítandi spjöld fest á landfestar
til öryggis því að Húsavík hefur
því láni að fagna að rottur hafa
aldrei orðið landlægar og þekkjast
ekki þar.
Bílasölur hafa ekki átt sér stað
en til eru seljendur í landi. Frétta-
ritari hitti skipveija í Landsbank-
anum og voru þeir þar að óska
eftir að fá skipt norskum krónum
í dollara en þó ekki í miklu mæli.
- Fréttaritari.
Unnið við urðun jólatrjáa í Hafnarfirði í gær.
Morgunblaðið/Þorkell
20-30.000 jólatré urðuð í Gufunesi
AÆTLAÐ er að búið verði að safna saman öllum jólatrjám í höfuðborg-
inni og grafa þau í Gufunesi í lok næstu viku. Pétur Hannesson, deildar-
stjóri í hreinsunardeild gatnamálastjóra, bendir fólki á að hafa sam-
band við hverfastöðvar gatnamálastjóra verði tré eftir.
Pétur vildi hvetja fólk til að koma
jólatijám, sem það þarf að losna
við, fyrir utan lóðamörk húsa sinna.
Þar tækju starfsmenn hreinsunar-
deildarinnar við þeim og færu með
þau upp í Gufunes þar sem trén
væru urðuð. Hann sagði að mestu
væri safnað saman í gær og í dag
en eflaust yrði háldið áfram fram
í næstu viku. Á bilinu 20-30.000
tré verða urðuð eftir jólin.
NYROG
BREYTTUR
280 kröfur
í þrota-
bú Fórnar-
lambsins
UM 280 kröfur bárust í þrotabú
Fórnarlambsins hf., áður Hag-
virki hf., en kröfulýsingarfrest-
ur rann út 4. janúar sl. Fyrsti
skiptafundur verður haldinn í
lok mánaðarins.
Ragnar Hall hæstaréttarlög-
maður er bústjóri þrotabúsins.
Hann sagði að ekki væri enn ljóst
hver heildarkröfuupphæð væri.
Sumar kröfur væru í mörgum lið-
um, en stefnt væri að því að kröfu-
lýsingarskrá lægi fyrir 21. janúar
nk.
Ein af stærstu kröfunum er
vegna vangoldins launaskatts fyr-
irtækisins að upphæð um 320
milljónir kr. Fómarlambið telur sig
eiga útistandandi kröfur á ríkið
að upphæð 430-460 milljónir kr.,
190-200 milljónir vegna uppgjörs
við Flugstöð Leifs Eiríkssonar,
70-80 milljónir vegna aðflutnings-
gjalda og 170-180 milljónir sem
Hagvirki greiddi í söluskatt að
kröfu ríkissjóðs, en áfrýjaði til
Hæstaréttar, þar seih málið er nú.
NISSAN SUNNY 3JA DYRA
HL/vÐBAKUR VERÐ 1 .C07.000 KR.