Morgunblaðið - 09.01.1993, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1993
9
Utsala
40% afsláttur
Stærðir frá 34
TESS^
NEÐST VIÐ
DUNHAGA.
S. 622230.
Opið virka daga 9-18,
laugardag 10-16.
íTstun m í m
Polarn&Pyret
KRINGLUNNI 6-8 - SÍMI 681822
LAUFIÐ
ÚTSALAN ER HAFIN - ALLT AÐ
50% AFSLÁTTUR
LAUFIÐ,
Iðnaðarmannahúsinu, Hallveigarstíg 1.
.eilsuskólinn sf.
Ábyrgð á
eigín heilsu
Heilsuskólinn efnir til námskeiða um hollustuhætti fyrir ;
þá, sem vilja gerast ábyrgir fyrir eigin heilsu.
Þetta er kjörin fræðsla fyrir þá sem finna fyrir skertri*
lífsorku, líða af meltingartruflunum og síþreytu, hækkuðum
blóðþrýstingi, óstöðugu sykurmagni í blóði, vöðvabólgum,
byrjunareinkennum á gigt, þreytu í baki, hafa áhyggjur af
aukakílóum.finna fyrir ofnæmi og óþoli af ýmsu tagi.
Ábyrgð á Heilsu annarra
Einnig er þetta mikilvæg fræðsla fyrir uppalendur
- foreldra, fóstrur og kennara.
Þessi námskeið hefjast í janúar
Manneldisfraeðsla - fræðsla um meltingarstarfsemi
líkamans og hreinsikerfi, eðli orkuríkrar, lifandi næringar,
samsetningu fæðunnar og ávaxtaneyslu, líkamsrækt,
hugrækt og matreiðsla.
Punktaþrýstinudd - kennsla í andlitslyftingu, næringu .
og kripalujóga. Þetta er viðurkennd aðferð.sem verndar
æskublómann og eyðir hrukkum.
Matreiðslunámskeið — Ijúffengir grænmetisréttir,
gómsætir, ódýrir baunaréttir og hráfæði. Þrjú sjálfstæð
námskeið um gerð orkuríkrar, heilnæmrar og ódýrrar
fæðu, sem tryggir góða heilsu og starfsorku.
Föstunámskeið - helgarnámskeið með fræðslu um
föstur, hreinsun líkamans, kripalujóga, göngur og hvíld í
friðsælu umhverfi út úr skarkala hversdagsins. Kjörið
fýrir þá, sem vilja hefja nýjan lífsstíl, styrkja ónæmiskerfið.J
bæta meltinguna, fækka aukakílóum og auðveldar þeim,
serri vilja hætta að reykja fráhvarfið frá eituráhrifum
tóbaksneyslunnar!
Sykurfíkn og áfengissýki - fræðsla um áhrif sykurs
á heilsu, þróun áfengissýki og mikilvægi réttrar fæðu fyrir
óvirka alkóhólista.
Bókanir og nánari upplýsingar alla virka daga j
frá kl. 12-20 í síma j |
.eilsuskólinn sf.
Rfldð mark-
aðstengir
vextísína
í grein Ólafs K. Ólafs
í Vísbendingu segir:
„Ríkissjóður hafði
töluverð áhrif á vaxta-
myndunina á árinu 1992,
fyrst er hann lækkaði
vexti spariskírteina á
fyrri hluta árs og síðan
með útboðum ríkisverð-
bréfa á' seinni hluta árs-
ins. I yfirlýsingu ríkis-
stjómarinnar 26. apríl
1992 í tengslum við
kjarasamningana sagði
m.a. að markmið hennar
væri að stuðla að lækkun
raunvaxta, stöðugleika í
gengis- og verðlagsmál-
um og jafnvægi í opin-
berum fjármálum.
Vaxtalækkunin átti ann-
ars vegar að nást með
þvi að auka samkeppni
og hagkvæmni á lánsfjár-
markaðinum með útboð-
um markaðsbréfa og
hins vegar með því að
draga úr lánsfjárþörf
hins opinbera ... Vextir
spariskírteina í frumsölu
lækkuðu úr 7,5% í 6,5%
27. apríl og vextir ríkis-
víxla úr 11,5% í 9,5% ...
Á eftirmarkaði lækkaði
bæði ávöxtun spariskír-
teina og húsbréfa um
0,75 prósent (27/4).
Kaupkrafa húsbréfa fór
í 6,95% en spariskírteina
í 6,9%. Hins vegar gekk
hluti af lækkun ávöxtun-
arkröfu húsbréfa aftur
daginn eftir (28/4) en
krafan _ hækkaði um
0.20%. Ástæðan var u
vantrú á að 6,5% vextir
spariskirteina í frumsölu
væhi góður mælikvarði
á markaðsvexti á þeim
tíma.
Bankar og sparisjóðir
lækkuðu siðan vexti
verðtryggðra útlána um
0,5-1,0% í maimánuði og
lækkuðu meðalvextir
þessara lána úr 9,8% í
9,0%. Ahrif lækkunar á
ávöxtun spariskírtein-
aima voru þau að rnjög
dró úr sölu þeirra. Fram-
boð spariskírteina og
húsbréfa á eftirmarkaði
jókst mikið sem leiddi til
Ávöxtun í viðskiptum á Verðbréfaþingi og
meðalvextir verðtryggðra bankalána 1991-92,
mánaðarleg meðaltöl
Heimild: Visbending 1. tbl. 11. árg. 1993 ,, TT , ,
Verðtryggð bankalan o/0
------------------- 10
J’91 A J 0 J’92 A J 0
Tafla sem sýnir ávöxtun í viðskiptum á Verðbréfaþingi
1991-92 (Vísbending 5. janúar 1993).
Háir raunvextir 1992
„Raunvextir skuldabréfalána banka og
sparisjóða á árinu 1992 voru þeir hæstu
um áratuga skeið og vextir á verðbréfa-
markaði héldust áfram háir þrátt fyrir að
dregið hafi úr lánsfjárþörf hins opinbera
frá fyrra ári,“ segir Ólafur K. Ólafs í grein
um raunvexti á fjármagnsmarkaði 1992
í Vísbendingu. Á hinn bóginn var verð-
bólga hér á landi minni en hún hefur
verið í tvo áratugi. Hátt vaxtastig „bend-
ir til þess,“ segir Ólafur, „að hún sé enn
of mikil til að búast megi við verulegri
raunvaxtalækkun á næstunni”.
hækkunar vaxta. Um
miðjan október var
vaxtastig á verðbréfa-
markaðinum orðið ámóta
og það var áður en vext-
ir i frumsölu lækkuðu í
lok apríl. Frá upphafi til
loka árs 1992 lækkaði
hins vegar ávöxtunar-
krafa spariskírteina og
húsbréfa um 0,5-0,6 pró-
sent ...“
Sveiflur á
verðbréfa-
markaði
Síðar í greininni segir:
„Töluverðar svipting-
ar voru í ávöxtun spari-
skirteina og húsbréfa á
Verðbréfaþingi 1992.
Ávöxtunarkrafa hús-
bréfa við kaup þjá við-
skiptavaka lækkaði stöð-
ugt fyrstu fjóra mánuði
ársins, úr 8,4% í 6,95%,
einkum vegna þess að
eftirspum eftir húsbréf-
um var þá talsvert meiri
en framboð svo og vegna
lækkunar spariskirteina
í frumsölu ... Krafa hús-
bréfa hækkaði síðan frá
byrjun maí til miðs nóv-
ember og var þá hæst
8,0%. Hækkunin stafaði
einkum af meira fram-
boði húsbréfa en búist
var við. Ennfemur ýtti
útkoma úr fyrsta útboði
spariskírteina 14. októ-
ber undir frekari hækk-
anir þegar ávöxtun nýrra
skírteina fór úr 6,5% í
rúmlega 7,5%. Ávöxtun-
arkrafa húsbréfa hefur
síðan lækkað lítilsháttar
og var undir lok ársins
7,75%. Svipuð þróun átti
sér stað varðandi tilboð
Seðlabanka i spariskír-
teini á Verðbréfaþingi á
árinu 1992, einkum
fyrstu mánuðina. Ávöxt-
unarkrafa i kaupum
lækkaði úr 8,25% í tæp-
lega 7% í lok april.
Krafan var siðan óbreytt
þar til í júli að hækkana
fór að gæta og var hún
7,8% undir lok ársins.
Útlit er fyrir að vegin
meðalávöxtun í viðskipt-
um með spariskírteini og
húsbréf á Verðbréfa-
þingi lækki um 0,7 pró-
sentustig frá 1991 til
1992, úr 8,2% i 7,5%.“
Verðtryggð
og óverð-
tryggðlán
Grein Ólafs K. Ólafs
fjallar siðan um verð-
bréfasjóði, lækkandi
gengi hlutabréfa, pen-
ingamarkaðinn, lækkun
dráttarvaxta með laga-
breytingu (í nóvember-
mánuði sl.) og háa útlána-
vexti banka og spari-
sjóða. í lokaorðum, sem
fjalla um mikinn mun á
kjörum verðtryggðra og
óverðtryggðra lána, seg-
ir m.a.:
„Meðalvextir verð-
tryggðra lána á árinu
1992 voru 9,3% en 9,2%
árið 1991 og raunávÖxt-
un óverðtryggðra Iána
var 11,8% á árinu 1992
en 10.0% árið 1991. Þetta
er hæstu skuldabréfa-
vextir síðustu áratugi.
Miklar og vaxandi út-
lánaafskriftir banka og
sparisjóða undanfarin ár
gefa til kynna að ekki sé
að vænta verulegrar
lækkunar á raunvöxtum
útlána á næstunni, sér-
staklega ef ekki verður
veruleg breyting á láns-
fjárþörf opinberra að-
ila.“
Stöðugleikinn eða
óstöðugleikinn í efnhags-
lífi og þjóðarbúskap, sem
að stærstum hluta ræðst
að því hvern veg kaup
aðila vinnumarkaðarins
gerast á. eyri væntan-
legra kjarasamninga,
hefur að sjálfsögðu einn-
ig áhrif á atvmnu-, verð-
lags- og vaxtastig á
næstu misserum.
irress í 34 ár
Hressingarleikfími kvenna og karla
Vetrarnámskeið hefjast mánudaginn 11. janúar nk.
Kennslustaðir: Leikfimisalur Laugarnesskóla og íþróttahús Seltjarnarness.
Fjölbreyttar æfíngar
Músik - Dansspuni - Þrekæfíngar
- Slökun - Ýmsar nýjungar
Nokkrar konur geta komist að mánudags- og
föstudagskvöld kl. 20.15. Einnig nokkrir herrar
sömu kvöld kl. 21.15 í Laugarnesskólanum.
Innritun og upplýsingar í síma 33290.
Gleðilegt nýtt ár!
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir,
íþróttakennari.
PÓSTHÓLF 176, 121 Reykjavík