Morgunblaðið - 09.01.1993, Síða 48
IVíirpnQnPT fimad i
MICROSOFT. einar j.
WlNDOWS. SKÚLASONHF
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1656 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
A skíðum
yfírGræn-
landsjökul
ÞRÍR Islendingar ætla að
ganga á skíðum yfir
Grænlandsjökul í vor. Leiðin
sem þeir ætla er 600 kílómetra
löng og er þetta fyrsti íslenski
skíðaleiðangurinn yfir jökul-
inn.
íslendingamir eru Ólafur Örn
Haraldsson, leiðangursstjóri, Har-
aldur Öm Ólafsson og Ingþór
Bjarnason. Allir em þeir reyndir
skíða- og íjallamenn.
Leiðangurinn hefst 20. apríl og
er áætlað að hann taki 25-35 daga,
eftir því hvemig veður og færð verð-
ur. Farið verður upp frá Angmagssa-
lik á austurströnd Grænlands og
komið niður í Syðri-Straumfjörð á
vesturströndinni.
Sjá frétt á miðopnu.
—:—» ♦ ♦---
Lengsta um-
ræoa þing-
sögunnar
UMRÆÐUR Á Alþingi um EES-
samninginn hafa staðið í 92
klukkustundir á 116. löggjafar-
þinginu og til viðbótar hafa
umræður um stjómarskrár-
breytingar og þjóðaratkvæði að
verulegu leyti snúist um EES,
en þær umræður tóku 29
klukkustund.
Þingmenn og starfsmenn Alþingis
rekur ekki minni til að umræður
hafi staðið lengur um annað mál í
allri þingsögunni. Áður en EES kom
til sögunnar var lengsta umræða í
manna minnum um kvótalögin á
110. löggjafarþinginu, en hún stóð
í 47 klukkustundir.
Sjá frétt á bls. 29.
Hertar reglur EB um innflutt matvæli valda töfum á íslenskum útflutningi
Óvissa um 86 gáma með
saltaðan o g frystan físk
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sól hækkar á lofti
Nú er dimmasti tími ársins að baki og sól hækkar á lofti með helgina, éljum norðanlands en það á að létta til á morgun
hveijum deginum sem líður. Veðurstofan spáir norðanátt um sunnanlands. Myndin er tekin á Hellisheiði fyrir skömmu.
Níu olíutaukar enn
í jörðu í Öskjuhlíð
NÍU af tæplega þrjátíu olíutönkum sem grafnir voru í jörð
í Öskjuhlíð fyrir árið 1967 hafa enn ekki verið grafnir upp
þrátt fyrir að lokafrestur sem Olíufélögin höfðu til þess
hafi runnið út síðastliðið sumar. Esso hefur grafið upp
alla sína tanka en OLIS á eftir að grafa upp sína tanka,
þrjá talsins, og Skeljungur á eftir að grafa upp sex tanka
af fjórtán. Dagsektir hafa verið lagðar á þá tanka sem
ekki hafa verið grafnir upp, fyrir tilskilinn frest, 10.000
krónur á dag fyrir hvern tank.
0 Rotterdam. Frá Kristófer Má Kristínssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
ÁTTATÍU og sex gámar hlaðnir frystum og söltuðum sjáv-
arafurðum frá íslandi bíða heilbrigðisskoðunar í Rotterdam
samkvæmt nýrri tilskipun innan Evrópubandalagsins um
þau efni. Mikil óvissa ríkir um framkvæmd tilskipunarinn-
ar og þær kröfur sem yfirvöld innan EB hyggjast gera til
farmskjala og vottorða sem tilskipunin gerir ráð fyrir að
fylgi innflutningi til bandalagsins. Ljóst þykir að töluvert
skorti á samræmingu þessara gagna hjá íslenskum útflytj-
endum sjávarafurða. Gert er ráð fyrir að heilbrigðisskoðun
íslensku sjávarafurðanna hefjist á mánudag.
Á fundi heilbrigðisnefndar í gær
voru lögð fram drög að skýrslu
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um
málið. Tildrög þessa máls eru þau
að í febrúar 1991 samþykkti heil-
brigðisnefnd Reykjavíkur að notk-
un tanka sem grafnir voru niður
1967 eða fyrr skyldi hætt og þeir
grafnir upp og rannsakaðir í sam-
ráði við Heilbrigðiseftirlitið með
tilliti til tæringar og almenns
ástands.
Að sögn Tryggva Þórðarsonar,
hjá heilbrigðiseftirlitinu, urðu olíu-
félögin ekki við þessum kröfum. í
byijun árs 1992 samþykkti heil-
brigðisnefnd að veita lokafrest til
1. maí til að verða við kröfum
nefndarinnar. Enn á hins vegar
eftir að grafa upp níu tanka og
ekki hafa verið gerðar neinar rann-
sóknir á uppgröfnum tönkum.
Tilefni kröfunnar um að grafa
upp tankana voru, að sögn
Tryggva, upplýsingar frá Dan-
mörku um að hluti tanka sem þar
hefðu verið í jörðu í 20 ár eða leng-
ur væri orðinn gegntærður.
Tafir hafa orðið á skoðun gám-
anna frá íslandi annars vegar vegna
þess að farmskjöl hafa ekki borist
til Rotterdam og hins vegar vegna
þess að móttakendur gámanna innan
EB hafa ekki verið tilbúnir til að
taka við vörunni yfir helgina.
Tilskipunin, sem gekk í gildi um
áramótin, kveður á um að farmskrá
skuli lögð fram 72 klukkustundum
áður en varan kemur að landamær-
um EB, en heilbrigðisvottorð á að
liggja fyrir sólarhring áður en skip
kemur til innflutningshafnar.
Reynsla undanfarinna daga sýnir að
mikil áhersla er lögð á að farmskjöl
séu í samræmi við kröfur EB. Sam-
kvæmt heimildum í Rotterdam hafa
heilbrigðisyfirvöld neitað að skoða
vörugáma vegna þess að farmskjöl-
um þótti ábótavant. í þeim tilfellum
eru gámarnir endursendir til útflutn-
ingslands.
Almenn óvissa um framkvæmd
tilskipunarinnar, fyrirkomulag skoð-
ana, kostnað og þann tíma sem skoð-
un tekur hefur þegar valdið íslensk-
um útflytjendum jafnt sem öðrum
óþægindum. Nokkur aðildarríkja EB
hafa haldið óbreyttu fyrirkomulagi
á eftirliti með innflutningi, t.d.
Þýskaland og Danmörk, en önnur,
t.d. Belgía, hafa ákveðið að fylgja
tilskipuninni út í æsar. Heimildar-
menn Morgunblaðsins telja að allar
líkur séu á því að eftirlit verði al-
mennt hert og breytinga sé að vænta
bæði í Þýskalandi og Danmörku inn-
an skamms. Samkvæmt heimildum
í Brussel er unnið að smíði reglu-
gerðar um samræmd vinnubröð
vegna helstu skoðunarþáttanna, s.s.
blýinnihalds og bersýnilegrar gerla-
mengunar.
Fyrirætlanir hollenskra yfirvalda
um framkvæmd tilskipunarinnar síð-
ustu daga segja sína sögu. í upp-
hafi, þ.e. um áramót, var gert ráð
fyrir að taka sýni úr tuttugasta
hveijum gámi, síðan var frá því
horfið og ákveðið að fara að dæmi
Belga og taka sýni úr hveijum vöru-
gámi. Gert var ráð fyrir að sýnin-
yrðu 2% af innihaldi gámsins sem í
flestum tilfellum eru nærri 400 kg.
Frá þessu hefur verið horfið og
ákveðið að taka sýni úr tveimur til
tíu pakkningum í hveijum gámi.
Gjaldskrá Hollendinga gerir ráð fyr-
ir að innheimta 15 gyllini, eða 520
krónur, fyrir sérhvert tonn sem fer
í gegnum skoðun eða 300 gyllini
(10.500 kr.) fyrir hvern gám. Auk
þess verða innflytjendur að greiða
150 gyllini (5250 kr.) fyrir vottorð
og eyðublöð vegna skoðunarinnar.
Til samanburðar hafa Bretar ákveð-
ið að innheimta 90 sterlingspund
(9700 kr.) fyrir hveija klukkustund
sem skoðunin tekur, en Belgar ætla
að innheimta 59 belgíska franka
(110 kr.) fyrir hver 100 kg sem af-
greidd eru. Fyrir utan þessi útgjöld
er umtalsverður kostnaður vegna
tafa og flutninga til og frá skoðunar-
stöðvum.
----♦ ♦ ♦----
Handknattleikur
Mesti áhorf-
endafjöldi
í mörg ár
UM tvö þúsund áhorfendur fylgdust
með leik Þórs og KA í 1. deild karla
í handknattleik í íþróttahöllinni á
Akureyri í gærkvöldi. Svo margir
áhorfendur hafa ekki verið á leik á
Islandsmótinu í- mörg ár. KA-menn
sigruðu í leiknum, 28:24, og héldu
þannig upp á 65 ára afmæli félags-
ins, sem var í gær.
Sjá nánar á bls. 47.