Morgunblaðið - 15.01.1993, Síða 1
IMtfgmi&EaMfr
FÖSTUDAGUR
15. JANÚAR 1993
Lögum um
Innheimtustofnun
sveitarfélaga verði breytt
STJÓRN Félags forsjárlausra foreldra hefur skorað á Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, félagsmálaráðherra, að beita sér fyrir breytingum á lögum
um Innheimtustofnun sveitarfélaga hið fyrsta. I bréfi til ráðherra er
ennfremur farið fram á að hann beiti sér nú þegar fyrir reglugerðar-
breytingum þar sem Innheimtustofnun sveitarfélaga yrði aðeins heim-
ilt að ganga að hámarki 50% launa meðlagsgreiðenda í stað 75% nú,
dráttarvextir yrðu felldir niður og vextir lækkaðir. Félag forsjárlausra
foreldra er nýstofnað og verður framhaldsaðalfundur haldinn í Súlna-
sal á Hótel Sögu 26. janúar kl. 21.00
Starfsstjórn félagsins hefur tekið veikinda, slysa, atvinnuleysis og
saman nokkrar hugmyndir fyrir fyr-
irhugaðan fund fulltrúa ráðuneyta
er hafa með mátefni forráðamanna
barna að gera og meðlagsgreiðenda.
Meðal þeirra er að ráðamenn beiti
sér fyrir því að meðlagsgreiðslur
verði innheimtar á undan sköttum.
Lagt er til að hámarksgreiðsla
verði tvö meðlög eins og þau eru
ákveðin hverju sinni. Séu böm með-
lagsgreiðenda fleiri eigi þeir kost á
stiglækkandi meðlagsgreiðslum.
Ennfremur að veittur verði greiðslu-
frestur vegna gildra ástæðna s.s.
tekjúskerðingar.
Astæða er talin til að taka grunn-
merkingu meðlags til endurskoðunar
vegna breyttra þjóðfélagsaðstæðna
og minnst er á að meðlagsgreiðslur
skuli ætíð á hveijum tíma ganga til
framfærenda. Að lokum er talað um
að félagið fái áheyrnar- og þátttöku-
fulltrúa í nefndum er vinni að breyt-
ingum á lögum og reglugerðum í
málefnum félagsmanna, enda hafi
félagið ótal dæmi um misbresti í
núgildandi kerfi. ■
BíSaútsala
TOYOTA ætlar að bjóða 100
notaða bíla með 80-250 þús-
und króna afslætti, og hefst
þessi útsala á bílunum nú um
helgina.
Samkvæmt upplýsingum frá
Toyota kemur útsalan til méð
að standa í tíu daga en á
boðstólum eru bílar
af ýmsum tegund-
um af árgerð-
unum frá
1986 til
1992. ■
Allt að helmingslækkun
á famjöldum til Jórdaníu
9
FLUGLEIÐIR og jórdanska flugfélagið Royal Jordanian hafa gert svokallaðan
„interline“-samning um að fargjöld á milli landanna lækki um allt að helming
í sumum tilfellum.
Samningurinn var gerður í Amman í
Jórdaníu þegar Halldór Blöndal, sam-
gönguráðherra, var þar í opinberri heim-
sókn í síðustu viku. I fylgdarliði Halldórs
voru m.a. Björn Theódórsson, fram-
kvæmdastjóri þró-
unarsviðs Flug-
leiða, og Birgir
Þorgilsson, ferða-
málastjóri.
Birgir sagði að
hér væri um veru-
lega fargjalda-
lækkun að ræða í
sumum tilfellum,
allt að helmings-
lækkun. „Þetta
ætti að verða til
þess að hvetja fólk
frá báðum löndum
til ferðalaga, en ég
á ekki von á því
að sjá margt fólk
frá þessum heims-
hluta hér á landi,“
sagði Birgir. Hann sagði að lítil landkynn-
ing hefði farið fram þarna, en þó hefði
heiðurskonsúll íslands í Amman, Stefanía
Khalifeh, unnið mikið kynningarstarf í
Jórdaníu.
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flug-
leiða, sagði að samningurinn hljóðaði um
áframhaldandi flug frá London til Amman
og frá London til Keflavíkur. Slíkir samn-
Morgunblaðið/JK
Díönuhofið fræga í Jórdaníu.
ingar fælu í sér að bæði flugfélögin lækk-
uðu fargjöld þannig að samanlagt far-
gjald yrði lægra en ef það væri keypt í
sitt hvoru lagi. Flugleiðir hefðu slíka
samninga við fjölda flugfélaga.
Að sögn Anítu
Knútsdóttur í far-
gjaldadeild Flug-
leiða var ákveðið
að hafa samskonar
fargjaldapakka á
Amman eins og’ á
Kairó og taka fyr-
gjöldin gildi þahn
1. febrúar nk. Ál-
mennt sérfargjald,
sem gildir í 45
daga, mun kosta
96.860 kr. ég
hægt að millilenda
og stoppa hvar
sem er á leiðinni.
Tvö tíu manna
hópfargjöld verða
í gildi, annað á
82.010 kr., sem miðast við 6-35 daga
ferð, og hitt á 71.750 kr., sem miðast
við 4-8 daga ferð. Almennt ársfargjald
til Jórdaníu mun kosta 156.840 kr. Inni-
falið í því er ótakmarkað stopp á leiðinni
og hægj. að vera heilt ár í ferðinni. „Fyr-
ir fólk, sem ætlar að taka fyrir margar
borgir í einu, getur slíkt fargjald borgað
sig,“ segir Aníta. ■
!
I
Uppsagnir f ramundan hjá
Volkswagensamsteypunni
STÆRSTI bílaframleiðandinn í Evrópu, Volkswagensamsteypan í
Þýskalandi, hyggst segja upp 30 þúsund starfsmönnum fyrirtækisins
um allan heim fyrir árslok 1994 vegna minnkandi sölu á heimamark-
aði og samdráttar í útflutningi.
Eru þessar upplýsingar byggðar á heimildum innan bílaiðnaðar-
ins, og þykja þær staðfesta breytta stefnu sem vænst var af
nýjum stjómarformanni Volkswagen, Ferdinand Piech, en
hann hefur orð á sér fyrir að vera strangur stjómandi
sem kann lagið á að beita niðurskurðarhnífnum.
Starfsmenn Volkswagensamsteypunnar um allan
heim era samtals 273 þúsund í dag, en innan sam-
steypunnar era Volkswagenverksmiðjumar og
Audi AG í Þýskalandi, SEAT á Spáni, og tékkn-
eska fyrirtækið Skoda. Ekki er ennþá ljóst hvem-
ig uppsagnirnar skiptast á milli þessara fyrir-
tækja. Heimildir innan bílaiðnaðarins herma að
VW hyggist draga úr bílaframleiðslunni á þessu ári
um 300 þúsund bíla frá því sem fyrirhugað var, eða úr
3,5 milljónum í 3,2 milljónir, en upphaflegar áætlanir hljóðuðu upp
á framleiðslu 3,8 milljóna bíla á árinu. ■
AGFA - follegar myndir sem þola tímans tönn
Heildsöludreifmg: Stefán Thorarensen, Sídumúla 32, simi 686044
AGFA
- þýsk gæðafilma