Morgunblaðið - 15.01.1993, Side 11

Morgunblaðið - 15.01.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993 ford Mondeo skutbíll kemur á markaðinn síðar á þessu ári. Bíllinn þykir mjög að innan. Ford Mondeo sem er orf- taki hins vinsæla Sierra ford Mondeo er væntanlegur á Evr- ópumarkað í mars. þennan búnað eru sjálfvirkar beltisfestingar og hækkuð fram- hlið á sætunum sem koma á í veg fyrir að fólk renni undan bílbeltun- um við árekstur. Til hlífðar eru styrktarstoðir í hurðum bílsins, og reyndar er öll yfirbygging hans sérstaklega styrkt til að auka á öryggi ökumanns og farþega. Þá er sérstök sía í loftræstingu bílsins sem hreinsar ryk, bakteríur og aðrar agnir úr loftinu áður en það kemst inn í bílinn, en þessi búnað- ur er fyrst og fremst hugsaður fyrir þá sem þjást af ofnæmi eða heymæði. Um fimm ár eru liðin síðan hönnun Mondeo hófst, og er kostn- aðurinn við gerð bílsins orðinn um 6 milljarðar Bandaríkjadala eða um 385 milljarðar íslenskra króna. Ford ætlar sér stóra hluti með markaðssetningu Mondeo, en þrátt fyrir 10,5% aukna markaðs- hlutdeild á síðasta ári eru erfiðir tímar hjá fyrirtækinu um þessar mundir, og verður starfsmönnum þess í Evrópu fækkað um 10 þúsund á þessu ári til þess að reyna að stöðva tap- rekstur sem verið hefur. Takmarkið hjá Ford er að öðlast 11% mark- aðshlutdeild á þessu ári, og í þeim útreikningum er gert ráð fyrir að hinn nýi Mondeo verði með 5,5% markaðar- i. Hannes Strange hjá Glóbusi hf., sem er umboðsaðili Ford hér á landi, sagði að sennilega yrði Mondeo ekki kominn á markaðinn hér fyrr en næsta haust. Hann sagðist áætla að verð bílsins yrði einhversstaðar á bilinu 1500 til 1800 þúsund krónur eftir gerð og búnaði. „Okkur líst vel á þennan bíl og hann lofar góðu hvað varðar útlit og rými að innan. Þá er hann fram- drifínn, en eftir því hefur verið beðið. Þá fínnst okkur það mikill kostur að það skuli vera eitt nafn á bílnum hvar sem hann verður seldur í heiminum,“ sagði Hannes. d m ~ _________c 11 Salcm jókst í Bretlandi órið 1992 BÍLASALAN í Bretlandi jókst örlítið á árinu 1992 miðað við árið áður, og lauk þar með þriggja ára samdrætti í bílasölu þar í landi. Alls seldust 1.594 þúsund nýir bílar, í Bretlandi i fyrra, og er það 0,08% aukning frá 1991 sem var botnár í bílasölunni þar í landi. Vantar því mikið upp á að metárinu verði náð, en það var 1989 þegar 2,3 milljónir nýrra bíla seldust. Flestir bíla- framleiðendur í Bretlandi telja að einungis verði um smávægi- lega söluaukningu að ræða á yfirstandandi ári, og raunveru- legur bati verði ekki í bílasöl- unni fyrr en á næsta ári. ■ Nýr Peugeot á þessu ári ÞAÐ eru ekki aðeins Ford og Citroen sem verða með nýja bíla á þessu ári, heldur er Peugeot einnig á ferðinni með bíl sem koma á í kjölfar 309 gerðarinnar. Arftaki Peugeot 309, sem upphaflega var byggður sem Talbot, kemur væntanlega til með að kallast 306. Bíllinn verð- ur frumsýndur í þriggja dyra útgáfu á bílasýningunni í Genf í mars, en fímm dyra útgáfa kemur síðan á markaðinn í sum- ar. ■ arnar komi síðar en hjá öðrum en þær séu betri. Segir blaðið þessa langtímastefnu fyrirtækisins oft- lega hafa borgað sig en nú sé henni ógnað af ferskleika BMW. Hvað varðar verðlagningu hefur Benz getað leyft sér að vera nokkru ofar en aðrir og kaupendur verið tilbún- ir að greiða uppsett verð enda fái þeir það tilbaka í gæðum. Er þetta nefnt sem enn eitt dæmið um árangur BMW, nú horfi kaupendur á verð beggja framleiðenda og beri saman. En hvað gerist svo á þessu ári? Blaðið endar á að varpa því fram að þótt BMW með sína 70 þúsund starfsmenn sé á ýmsan hátt liprara í aðlögun sinni að markaðnum og framsæknara sé ekki auðvelt að keppa við Daimler-Benz samsteyp- una sem telur 192 þúsund starfs- menn. Framundan sé erfiður tími, fyrirsjáanlegur samdráttur uppá um 20% og þá fyrst reyni á hver sé sterkari og klókari að mæta slík- um vanda. ■ Banaslys 1970-1992 Fjöldi slysa og látinna Dreifbýli : Látnir Slys Þéttbýli utan Reykjavíkur 12 10 8 6 4 2 Reykjavík 12 10 8 i\ 6 • ■ \ ford Taurus var söluhæsti bíllinn í Bandaríkjunum 1992. Ford Taurus ýtti Honda Accord af toppn- um í Bandaríkjunum FORD Taurus varð söluhæsti bíllinn í Bandaríkjunum í fyrra og bar þar með sigurorð af Honda Accord sem verið hefur söluhæsti bíllinn þar í landi nokkur undanfarin ár. Er þetta í fyrsta sinn síðan 1988 sem bandarískur bíll er söluhæstur á heimamarkaði. Ford seldi 409.751 bíla af gerðinni Ford Taurus í Bandarikjunum í fyrra, en salan á Honda Accord nam 393.477 bílum, eða aðeins 16.274 bílum færra. Heildarsala fólksbíla og jeppa í Bandaríkjunum á síðasta ári nam samtals 12,8 milljónum bíla. Er þetta einungis 4,1% aukning í söl- unni frá árinu 1990, og er árið í fyrra því meðal þeirra lökustu frá 1983. Þriðji söluhæsti fólksbíllinn á árinu var Toyota Camry og seldust 289.602 bílar af þeirri gerð. í fjórða sæti varð Ford Escort, en af þeirri gerð seldust 236.622 bílar, og í fimmta sæti varð Chevrolet Lum- ina, sem seldist í 218.114 eintökum. í jeppaflokknum varð Ford F pall- bíll og seldust 488.539 slíkir, í öðru sæti varð Chevrolet C-K pallbíll, en af þeirri gerð seldust 431.543 bílar, og í þriðja sæti varð Ford Explor- er, og seldust 306.681 bílar af þeirri gerð. Ford sem er annar stærsti bíla- framleiðandinn í Bandaríkjunum þurfti að fóma nokkru til að ná fyrsta sætinu af Honda, en fyrir- tækið greiddi um 2.600 dollara með hveijum Taurus sem það seldi í formi afsláttar og kaupleigusamn- inga sem kaupendum bílsins stóðu til boða. Talsmenn fyrirtækisins telja að þetta sölubragð til að velta Honda Accord úr sessi hafí verið vel þess virði, og jafnvel aukið sölu annarra gerða Ford bíla á siðasta ári. ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.