Morgunblaðið - 15.01.1993, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993
C 3
gefi verkmenntun aukinn gaum
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til annarrar hugvitssamkeppni í
vetur meðal unglinga í efstu bekkjum grunnskólans og verður
keppnin með svipuðu sniði og í fyrra þegar hún var fyrst haldin.
Þátttaka fór þá fram úr björtustu vonum manna. Alls bárust 75
tillögur frá 45 nemendum, en keppnin er haldin á vegum Fræðslu-
skrifstofunnar í Reykjavík, Tækniskóla Islands og íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur. Markmiðið er að gera keppnina að árleg-
um viðburði. „Af einhverjum ástæðum hefur nýsköpun ekki verið
á blaði í íslenska skólakerfinu í þvi formi að hvetja nemendur tii
nýsköpunar," segir Guðrún Þórsdóttir, kennslufulltrúi þjá
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur.
3S Að sögn Guðrúnar er þetta
tilraun til þess að virkja æsku
landsins til sköpunar, efla
5J5 frumkvæði og stuðla að fjöl-
* breytni í skóla- og atvinnu-
U| lífí. Kynningarfundur vegna
B keppninnar í ár verður hald-
inn nk. þriðjudag, 19. janúar,
kl. 15.00 á Hallveigarstöðum, en
stefnt er að verðlaunaafhendingu
fyrir bestu tillögumar 24. aprfl nk.
„Mikið hefur skort á náms- og
starfsfræðslu grunnskólanema í
gegnum árin. Því hefur yfírgnæf-
andi meirihluta nemenda verið
beint inn á bóknámsbrautimir,
bæði vísvitandi og meðvitað, þar
sem þeir, sem í skólunum starfa
em á því sviði. Þess vegna er
nauðsynlegt að til komi önnur
fræðsla inn í skólana og þarf iðn-
geirinn að fá aukið rými. Einnig
verður að laga ýmsa flöskuhálsa,
sem era í meistarakerfi iðnaðar-
manna," segir Guðrún.
„Markmiðið að baki náms- og
starfsfræðslu er einfaldlega að
gera einstaklingana hæfari til að
velja nám og starf við hæfí sem
hlýtur að fara saman við þjóðar-
hag. Unglingar þurfa að hafa ein-
hveija hugmynd um hvað bíður
þeirra að loknu skyldunámi. Þeir
þurfa að læra að vera sjálfstæðir
og eftir því sem þeir fá meiri og
ítarlegri upplýsingar, era þeir
hæfari til að vega og meta hvert
hugur þeirra stefnir í stað þess
kannski að velja sér nám sam-
kvæmt félagahópnum."
Guðrún hóf störf hjá Fræðslu-
skrifstofunni fyrir þremur áram
til þess að sinna starfsfræðsiu
grannskólanema á höfuðborgar-
svæðinu, en fram
að því hafði
engin skipu-
lögð starfs-
fræðsla farið
fram og svo
er
reyndar ekki enn í öðram fræðslu-
umdæmum. Guðrún hefur útbúið
svokallað starfsfræðslutilboð, sem
tekur til 10, 11,-12 og 15 ára
krakka, en samkvæmt nemenda-
könnun, sem Fræðsluskrifstofan í
Reykjavík gerði í fyrra um náms-
og starfsfræðsluferðir 15 ára nem-
enda kom fram að 95% nemenda
töldu þær mjög nauðsynlegar. 99%
vildu fara í starfsfræðslu á skóla-
tíma, 75% töldu úthlutaðan tíma
til starfsfræðslu duga, 85% fannst
eðlilegt að fá starfsfræðslu að
mestu leyti úti í atvinnulífínu og
93% nemenda hefðu viljað fá meiri
upplýsingar um starfíð áður en
kom að starfsvali. Þá vildu 90%
fara á fleiri en einn stað til starfs-
fræðslu. 99% sögðu að for-
eldramir teldu starfs-
Guðrún Þórsdóttir, kennslufull-
trúi hjá Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur.
gið upplýsingar um atvinnumögu-
leika hjá móttökuaðilunum. 95%
nemenda sögðust fremur leita sér
að vinnu eftir áhugasviði heldur
en þar sem skortur væri á fólki.
83% nemenda vildu fá upplýsingar
um hvar vantaði fólk til vinnu og
60% sögðust vera hrædd við at-
vinnuleysi.
Starfsfræðslu er ekki að fínna
í viðmiðunarstundarskrá. Hins-
vegar bjóða ýmsir skólar upp á
starfsfræðslu sem valáfanga
og flétta má starfsfræðsluna
inn í almennt skyldunám.
Þau tilboð, sem Guðrún
hefur útbúið, fara inn á.
hina margvíslegustu at-
vinnuþætti. Þannig
geta tíu ára böm nýtt
sér tilboð, sem tengist
landinu og skóg-
ræktinni. Ellefu
ára börn geta að
sama skapi nýtt
sér starfsfræðslu á
sviði sjávarútvegs
og fjörarannsókna
og starfsfræðslutil-
boð til tólf ára bama
snýr að umferðar- og
samfélagsmálum. Öll þessi
tilboð miðast við beklq'ar-
deildir. Fimmtán ára ungling-
ar geta aftur á móti valið úr
150 starfsfræðslutilboðum og
era þau bundinn við að hver
einstaklingur velji sér eina til
Mjög brýnt er
að íslenska skólakerfið
þijár starfsgreinar, sem hann hef-
ur áhuga á að kynna sér til þess
að það megi auðvelda honum
náms- eða starfsval að afloknu
skyldunámi. Starfsfræðslukennar-
ar, námsráðgjafar, yfírkennarar
eða skólastjórar sjá síðan um að
vera milliliðir Fræðsluskrifstof-
unnar og nemendanna. Þá hefur
verið útbúið sérstakt tilboð, sem
ekki er bundið við neinn sérstakan
aldur. Það gengur undir nafninu
Gullakista sjávarútvegsins.
„Það hefur gengið mjög vel að
fá atvinnurekendur til samstarfs.
Hinsvegar era skólamir mun treg-
ari í taumi og starfsfræðsla er
varla framkvæmanleg nema því
aðeins að pakkinn sé lagður eins
tilbúinn upp í hendumar á kennur-
unum eins og mögulegt er. Þetta
er mjög virk leið til þess að auka
tengsl atvinnulífs og skóla. Á hinn
bóginn skortir námsgögn á þessu
sviði. Næsta skref verður það að
atvinnulífíð sameinist um það í
samvinnu við skólayfirvöld að
útbúa námsgögn. Sú vinna er
reyndar þegar farin af stað því
nú vinnur Námsgagnastofnun að
því í samvinnu við bankana að búa
til námsgögn er snerta bankastörf
og fjármál almennt svo að þeir,
sem útskrifast með grannskóla-
próf, geti að minnsta kosti verið
læsir á umhverfí sitt og kunni
með sæmilegu móti að reka sjálfa
sig,“ segir Guðrún að lokum.
■
Jóhanna Ingvarsdóttir
Eiga böm rétt á
að setja fram kröfur
við skilnað foreldra sinna?
BÖRN eiga ekki beinan rétt á að setja fram kröfur ef foreldrar
þeirra ákvaða að slíta samvistir. Foreldrar gera kröfur hvor á
annan og gengur misjafnlega að ná samkomulagi. Börnin silja hins
vegar uppi með afleiðingarnar, sem því miður eru oft þungbærar.
var drengur. Samkvæmt greininni
var það ekki endilega vilji drengj-
anna að búa hjá feðram sínum, því
sá eini sem hafði tekið eindregna
afstöðu kaus að búa hjá móður
sinni.
í niðurlagi greinarinnar er fjallað
um álag skilnaðar á böm og hversu
sjaldgæft sé að böm séu sómasam-
lega búin undir slflct áfall. Af því
tilefni benda þær á ráðgjöf sem
hjón geta fengið áður en skilnaður
kemur til.
í sama blaði ritar Benedikt Jó-
hannsson sálfræðingur um sama
efni; skilnað og böm. þar vitnar
hann í Morten Nissen sem komið
hefur fram með vísbendingar til
foreldra, svo þeir geti hagað skiln-
aði sínum þannig að velferð barn-
anna sé sem best tryggð.
Vísbendingar Nissens era fram
settar á sérstakan hátt og út frá
sjónarmiði bamsins.
Kröfur barnsins
Kröfur bama samkvæmt hug-
myndum Nissens eru:
1. Foreldrar búi barnið í samein-
Ætla má að um 650 böm
►“ hafi á nýliðnu ári upplifað
Oa skilnað. Þetta kemur fram í
S grein eftir félagsfræðingana
Maríu Þorgeirsdóttur og Hjör-
Sdísi Hjartardóttur í síðasta
tölublaði Bamaheilla. Þar
greina þær frá ýmsum erfið-
V® leikum sem foreldrar og böm
ganga stundum í gegnum við hjóna-
skilnað og er sérstaklega fjallað um
forsjárdeilur og deilur foreldra um
umgengnisrétt. í greininni segir að
á nýliðnu ári hafí 35 mál komið til
Bamavemdamefndar Reykjavíkur
til umsagnar vegna forsjárdeilna
þar sem alls áttu í hlut 77 böm.
Kynjamunur
Ýmsar athyglisverðar upplýs-
ingar koma þar fram, til dæmis að
í 28 tilvikum hafði konan viljað slíta
samvistir. í nær helmingi tilvika var
deilt um eitt bam af fleiri alsystkin-
um. Kynjamunur er einnig augljós
á öðrum sviðum. Allar konumar
nema ein fóra fram á forræði allra
bamanna, en tíu feður fóra fram á
forsjá eins bams, sem í 8 tilfellum
ingu undir skilnað, gefí því sameig-
inlega skýringu á skilnaðinum og
séu opnir gagnvart spurningum
bamsins.
2. Baminu sé gert ljóst að það
eigi enga sök á skilnaðinum.
3. Skýrt sé út fyrir baminu að
skilnaður sé nauðsynlegur og
möguleg lausn á samskiptavanda
foreldranna.
4. Baminu sé ekki ætlað að skera
úr um hvort foreldrið fari með for-
sjá þess.
5. Bamið verði áfram í sama
umhverfí og að sem fæst félaga-
tengsl rofni.
6. Bamið fái að umgangast það
foreldri sem það býr ekki hjá og
að samfara auknum þroska fái það
í síauknum mæli sjálft að hafa
áhrif á hvemig umgengni er hátt-
að. Að foreldrar búi nálægt hver
öðram.
7. Baminu séu tryggð tengsl við
fjölskyldur beggja foreldra sinna,
einkum afa og ömmur.
8. Baminu sé haldið utan við
deilur foreldra og að foreldrar hall-
mæli ekki hver öðram í áheym
barnsins.
9. Foreldrar leiti ekki með vanda
sinn til barnsins og leggi ekki of
mikla ábyrgð á það, jafnvel þó slíkt
sé freistandi fyrir foreldra til að
reyna að létta á sér við erfíðar að-
stæður.
10. Foreldrar stofni ekki nýja
fjölskyldu fyrr en barnið geti tekið
því.
Benedikt bendir á að þó erfítt
geti verið að standast þessar kröf-
ur, beri að gæta þess að flestir
skilja jú því þeir gera kröfur um
betra líf fyrir sjálfa sig og helst
bömin líka. ■
Brynja Tomer
Gömul
heimilisráð
Það er hægt
aö stinga með
hróu spagettíi
íkökurtilað
athuga hvort
þær séu bak-
aöar.
VIÐ höfum heyrt...
• að hreinn svampur í græn-
metisskúffunni í ísskápnum dragi
í sig raka sem annars sest á græn-
metið.
• að eldhús-
vettlingarnir
sem era venju-
lega notaðir til
að taka heitt
út úr ofninum
haldi hita á
höndunum
þegar leitað er
í frystikist-
unni.
• að kartöflur spíri ekki ef epli
era geymd í sama íláti og kartöfl-
umar.
• að síróp og hunang renni létti-
lega af skeið ef hún er smurð
áður en henni er dýft í klístrið.
• að það sé hægt að stinga með
hráu spagettíi í kökur til að at-
huga hvort þær séu bakaðar.
• að það sé leikur einn að hreinsa^
eldavél ef hún er smurð með
matarolíu áður en eitthvað sem
sýður öragglega upp úr er eldað.
• að hálf sítróna komi í veg fyrir
hvítkálsfýlu ef hún er soðin með
kálinu.
• að ijómi þeytist fyrr ef smá
salti er bætt út í hann. ■