Morgunblaðið - 15.01.1993, Side 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993
í londi þar sem ernir eru
ekki, heldur spörinn nd
GENGIS-
SKRÁNING
31. desember 1992
Albanía lek 0,5821
Angóla kwanza 0,1157
Argentína ástral 64,2201
Bangladesh taka 1,6470
Belize dollar 32,0155
Brazilía cruzado
Búrma kyat 9,8582
Filippseyjar peso 2,7139
Fílabeinsstr. CFA-franki 0,2321
Gambia dalasi 7,3244
Guatemala quetzal 11,8995
Hong Kong dollar 8,2767
Indónesía rúpía 0,0311
Jamaica dollar 2,6843
Jórdanía dinar 95,1843
Kambodia riel 0,0320
Kína yan 11,1917
Kórea(Suður) won 0,0815
Líbanon pund 0,0349
Malasía ríngit 24,4924
Maldiveseyjar rufiyaa 5,3463
Malawi kwatcha 14,8226
Marokkó dirham 7,7176
Nýja Sjáland dollar 32,9279
Óman ríal 165,9624
Pakistan rúpía 2,5099
Sierra Leone leone 0,1243
Singapore dollar 39,0775
Taiwan dollar 2,5234
Thailand baht 2,5152
Zimbabwe dollar 11,7284
Nýjung í leikhúsi
í höfuðborg ísraels
í fréttabréfi ísraelsku ríkisferða-
skrifstofunnar er bent á að menn
geti farið í leikhús í ísrael og
notið sýningarinnar þó þeir skiþ'i
ekki orð í hebresku. Cameri leik-
húsið í Tel Aviv hefur komið
fyrir búnaði við alla stóla svo
menn geta fengið textann í
heyrnartólum á ensku samtímis
og á sviðinu.
Meðal verka sem eru á dagskrá
leikhússins næstu mánuði er verk
Steinbecks Þrúgur reiðinnar, Rík-
arður 3. eftir Shakespeare og verk
eftir Harold Pinter og Spánveijann
Lope de Vegas. ■
honn sé örn_________
MÁLTÆKI FRÁINDÓNESÍU
Upplag flugblaðs
SAS Scanorama
verið stækkað
UPPLAG flugblaðs SAS, Sca-
norama, hefur verið stækkað
úr 130 þús. eintökum mánað-
arlega í 160 þúsund. Ákveðið
var að gera það eftir að könn-
un meðal farþega staðfesti
að blaðið væri mikið lesið í
flugferðum og farþegar sótt-
ust eftir að fá blaðið ef það
var ekki í sætisvasa fyrir
framan hvern farþega í upp-
hafi ferðarinnar.
í farþegakönnuninni sást að
89% farþega lásu blaðið í ferð-
inni og 94% farþega í langflugi
notuðu að meðaltali 26,8 mínút-
ur til að kynna sér það. ■
EYNMERKURBJERINH
SEJJUN
KARLARNIR dönsuðu eftir aðalgötunni í Sejjun,
öllu heldur þessari einu götu, héldu um handlegg
hvers annars, höfðu prik í arrnkrikanum, þokuðu
sér tvö skref fram og eitt aftur og þuldu söng.
Við hinn götuendann var annar hópur, eins útbú-
inn en flutti annan texta og af meiri krafti. Fylk-
ingarnar nálguðust hvor aðra. Ég hugsaði hvort
ætti að sviðsetja bardaga. Svo reyndist ekki vera.
Eftir næstum hálftíma dans og söngl sem hækkaði
smám saman og varð að kröftugum söng sameinuð-
ust fylkingar, urðu ein með fagnaðarhrópum.
mm Þetta voru hátíðahöld
| þeirra í Sejjun vegna bylting-
Sarinnar 1963 og í texta var
úthúðað þeim sem höfðu haft
Sf þjóðina undir hæl sínum og
lofað langþ'fáð frelsi. „Ó, þú
landið mitt sem áður varst svo ham-
ingjusamt og gjöfult, ég skal gefa
þér það sem ég á, fóma þér öllu,
jafnvel ástinni minni, ef við fáum
frelsi." Textinn var ekki öllu marg-
brotnari og endurtekinn sem hinir
kúguðu nálguðust hina sem höfðu
öðlast frelsið. Svo var sigursöngur-
inn; frelsið var fengið, nú skyldu
kúgaðir losna undan okinu.
A sínum tíma varð reyndin önnur
því það var aðeins norðurhluti
landsins sem hlaut þetta frelsi sem
sungið var um. Kommúnistar náðu
völdum í suðrinu og réðu þar lögum
og lofum þar til fyrir röskum tveim-
ur árum. Nú 30 árum síðar er Jem-
en eitt land. Samt fer fjarri að þjóð-
in sé sameinuð í anda og sannleika.
Sejjun er vinalegur 30 þús.
manna bær í suðausturhlutanum.
Ég hafði loks upp á korti þar sem
hann var merktur. Þeir hafa ekki
beinlínis lagst í landakortagerð þeir
Jemenar og landsvæðið sem áður
hét Suður-Jemen er aðeins lauslega
kortlagt nema spildur í kringum
Aden.
Við lögðum upp frá Múkalla og
keyrðum í austur. Svo var sveigt
inn í landið og farið um Abdullah
Garib-skarðið og yfir á Joal-háslétt-
una Þar er meiri fjölbreytni í land-
inu en ég átti von á. Eyðimörkin
tekur ekki við fyrr en farið er gegn-
um Shibam - fyrsta skýjakljúfa-
borg Jemens og klukkutíma áður
en komið er til Sejjun. Lengi vel
vorum við í jaðri uppþornaðs árfar-
vegs sem heitir Wadi Adin, gæti
verið 20-40 km breiður. Inn í þenn-
an „dal“ sem er víðs fjarri okkar
dalskilgreiningu fór ég tveimur
dögum seinna á heimleiðinni. Á
hægri hönd þegar farið var með-
fram Wadi Adin risu fjöllin há. Ég
sá sjaldan þorp á fjallatindum eins
og í norður og miðiandinu. Það sést
hvergi svo mikið sem lækjarspræna
en sums staðar voru fjöllin gróin
upp í miðjar hlíðar. Annars staðar
nakin og kuldaleg. Þrátt fyrir hit-
ann, því hann vantar ekki hér um
slóðir, og er 40 stig á daginn.
Þegar komið var fyrir dalinn tók
við sendið land og gott til leirhúsa-
gerðar enda í hverju þorpi hér sem
menn voru að búa til flögur úr hon-
um og þurrka og reisa hús þegar
réttri þomun var náð. Sejjun er
sagt hafa byggst umhverfis mikinn
kastala sem undurfögur prinsessa
Sejjun átti og bjó þarna á dögum
Hadhramawt-ríkisins. Kannski er
það goðsögn en svo mikið er víst
að bærinn var til áður en islam kom
til Arabíu. Markaðurinn er líflegur
og stórkostlegur kastali - þó ekki
prinsessunnar - frá soldánstímum
stendur enn og hefur verið gerður
að þjóðminja- og þjóðháttasafni.
Það var fyrir tilstilli frábærs ná-
unga, Marco Liviadotti, fram-
kvæmdastjóra Universal ferðaskrif-
stofunnar í Sanaa að ég eyddi
dijúgum tíma verunnar í Jemen nú
í suðurhlutanum. Marco er ítalskur
en faðir hans var líflæknir síðasta
imamsins í Norður Jemen sem var
hrundið úr valdastóli í byltingu
1962. Hann er uppalinn í Jemen
en á einnig ættir að rekja til Líban-
ons. „Ég er Miðjarðarhafsmaður og
Jemen-vinur," sagði hann.
Ferðaskrifstofa Universal er önn-
ur stærsta og hún tekur á móti æ
fleiri hópum frá Evrópulöndum.
Marco vann áður hjá ferðamálaráð-
inu en tók við Universal fyrir nokkr-
um árum. Það er einkar skynsam-
legt að hafa hann þar í forsvari.
Hann þekkir álla, hefur sambönd
alls staðar. Og það sem er óumdeil-
anlegur kostur, hann er alinn upp
í landinu en skilur hugsunarhátt
ferðamanna frá Evrópu. Því ég
hygg að mörgum finnist Jemen er
erfitt land. Mannlífið, hugsunar-
Marco Liviadotti.
Dansað vegna byltingarinnar.
háttur og viðhorf framandlegt,
frumstætt og vanþróað á evrópskan
mælikvarða. Vegir víðast hvar eins
og bestu malarvegir á íslandi upp
úr miðri öldinni. Gistiaðstaða utan
borganna er ekki upp á marga físka
og hætt við að kröfuhörðum ferða-
mönnum bregði í brún þegar þeir
koma á matsölustaði. En allt er á
réttri leið og Universal er að færa
út starfsemina, ætlar að reisa full-
komna ferðamannamiðstöð í Sanaa,
aðra skammt frá Sejjun og þá þriðju
skammt frá Múkalla.
Apinn Jiro vinsælasta
sjnnvarpsstiarno Japans
VINSÆLASTA sjónvarpsstjarna Japans á síðasta ári var apinn
Jiro, 7 ára makakíapi, sem kemur fram ásamt þjálfara sínum
Taro og sýnir hina kúnstugustu list. Það atriði sem hvað mestr-
ar hylli naut er þegar Jiro hermdi eftir George Bush Bandaríkja-
forseta er hann leið ælandi í ómegin í veislu í Tókýó í fyrra
ems og frægt varð.
Auk þess að koma fram í sérstök-
um skemmtiþáttum leikur Jiro í
auglýsingamyndum um lækningu
við timburmönnum, innhverfri
íhugun o.fl. Þeim félögum Jiro og
Taro hefur nú verið boðið að sýna
í New York seinna á þessu ári og
segir Taro að þeir félagar telji það
einn þeirra mesta sigur á listferlin-
um. Jiro fékk verðlaun japanska
menntamálaráðuneytisins 1991 og
hefur fengið fleiri viðurkenningar.
Þar sem þeir hafa lagt sig eftir að
herma eftir Bush og skopast að
honum óttast japanskir aðdáendur
að honum muni ekki takast að gera
Clinton jafngóð skil eða það geti
altjent tekið tíma áður en hann nær
tökum á þessu nýja viðfangsefni
sem bjóði ekki upp á jafn mikla
skrumskælingu og Bush. ■
Taro og Jiro ræða við blaðamenn.