Morgunblaðið - 15.01.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993
C 9
Feröir um helgina
Útivlst
Sunnud. 17. janúar kl. 10.30 er
2. áfangi í nýrri raðgöngu Úti-
vistar, skólagangan. Skólar þeir
sem fjallað verður um eru Hóla-
vallaskóli og Bessastaðaskóli.
Farið verður í stuttar gönguferð-
ir og rúta fylgir hópnum. Saga
skólanna rifjuð upp í fylgd
fróðra manna og þátttakendur
fá afhent göngukort með sér-
stökum stimpli eftir göngu.
Um aðra helgi er hin árlega
þorrablótsferð Útivistar. Er
stefnan tekin á félagsheimilið að
Heimalandi undir Eyjafjöllum og
gist þar. Skipulagðar gönguferðir á
laugardag og sunnudag' og á laug-
ardagskvöld máltíð þar sem allir
leggja eitthvað á þorrahlaðborð.
Brottför er föstud. 20. janúar og
fararstjóri Lovísa Christiansen.
Ferðafélag íslands
Sunnud. 17.janúar er gengið á
Úlfarsfell (295 m) í Mosfellssveit,
norðvestan Hafravatns og gegnt
Korpúlfsstöðum. Gengið er á
fjallið frá býlinu Úlfarsfelli sem
er suðaustan undir fjallinu. Aust-
an við fellið er jarðstöðin
Skyggnir.
Ölfarsfell stendur sér og er af
því mikil og fögur útsýn yfir voga
og sund. Brottför er kl 11 f.h.
Kl. 11 á sunnud. verður efnt til
skíðaferðar og nú vantar ekki snjó-
inn. Athugið að í janúar er brottför
í dagsferðir kl. 11 f.h.
Loks miðar ópenihúsinu í Helsiiki áfiam
í NÓVEMBER verður nýtt óperuhús tekið í notkun í Helsinki
en það hefur verið 5 ár í byggingu. Óperuunnendur bíða þess
með óþreyju að nýja húsið verði fullbúið því gamla óperan er
í Alexanderleikhúsinu og var því ætlað að vera bráðabirgða-
húsnæði þegar það tók til starfa 1919. Þá var Finnland enn
stórhertogadæmi innan Rússlands.
Alitaf öðru hveiju næstu áratugi
var rætt um nýtt óperuhús en það
liðu æði mörg ár uns nokkuð gerð-
ist í málinu. Fyrir röskum 20 árum
var stofnaður tónlistarhússjóður og
efnt til samkeppni um hönnun húss-
ins. Það var 1977 sem loks var
ákveðið að ráða aritektana Eero
Hyvamaki, Jukka Karhunen og
Risto Parkken til að teikna húsið.
Þó dróst enn að framkvæmdir hæf-
ust en 1986 var lagður homsteinn
að byggingunni.
Byggingarframkvæmdir hófust
svo af krafti 1988 og hefur verið
unnið viðstöðulítið síðan. Formleg
opnun verður í nóvember og verður
þá flutt ópera Aulis Sallinen Kull-
ervo, ballettinn Svanavatnið og
Carmen. Tilraunasýningar hefjast
mun fyrr eða í júnfmánuði er
Nabucco Verdis verður flutt.
Ópemhúsið er fullkomið að öllum
búnaði, nýstárlegt og nútímalegt
og hefur miklu verið varið til að
tryggja að hljómburður verði eins
og hann getur bestur orðið. í aðal-
sal eru 1.385 sæti, þar af 635 á
þrennum svölum. Einnig er minna
svið og áhorfendasalur fyrir
200-500 áhorfendur. ■
oih iianiai tu Airbas-vélar
SINGAPORE Airli-
nes, eitt virtasta
flugfélag heims,
hefur gengið frá
pöntun við Airbus in
fyrirtækið um 20 m
vélar af þeirra nýj- c
ustu gerð, A340- _i
300s. Hver vél tekur &
217 farþega. Þær
verða búnar að inn-
an sérstaklega sam- UJ
kvæmt óskum SIA a
sem er þekkt fyrir o
snyrtimennsku og * Q.
myndarskap í vélum <
sínum. Þær verða ö
afhentar vorið 1996. C
■ in
Morgunblaðið/Steinþór
Starfslið hótelsins. Gaetano Debattista, frainkvæmdastjóri, situr
annar til hægri. Eric Cauchi, veitingastjóri, situr lengst til vinstri
og Vincent Debono, yfirkokkur. stendur fyrir aftan hann með
hatt á höfði.
MÁNADflRINS
Þjonusta með bras á
vör er aðalsmerkið
„HOTEL BERNARD" skar sig ekki úr húsalengjunni við ein-
stefnuakstursgötuna upp af botni St. Georges-flóa á Möltu við
fyrstu sýn. Hálfum mánuði síðar var ekki hægt að komast
lý'á að taka eftir því vegna ljósaskiltis, sem hafði verið komið
fyrir ofan aðalinnganginn. Ytra útlit nýs hótels á gömlum
grunni, sem enn er verið að breyta og bæta, sagði ekkert um
hvað það hafði uppá að bjóða, en kom þeim mun meira á óvart.
St. Julians er miðstöð matstaða
og skemmtanalífs eyjarinnar og
hótelið að því leyti vel í sveit sett.
„Ég legg alla áherslu á að starfs-
fólkið þjónusti gesti með bros á
vör,“ sagði Gaetano Debattista,
frkvstj. hótelsins, þegar við sett-
umst niður og ræddum dvölina
skömmu fyrir brottför frá Möltu.
„Ég hef verið í stjómunarstörfum
á hótelum í 15 ár og nánast alla
ævi í þessum geira, þannig að ég
tel mig vita hvað til þarf. “
Fyrir tæplega ári var 35 her-
bergja hótel þar sem nú er „Hotel
Bemard". Debattista og tveir fé-
lagar hans keyptu húsið, breyting-
ar hófust 15. jan. sl. og hótelið var
opnað 15. ágúst með 25 manns í
fullu starfi og 10 í hlutastarfi. 82
misstór 2ja manna herbergi, 3 svít-
ur og tvær fjölskylduíbúðir eru á
fímm hæðum, sólbaðsaðstaða með
lítilli sundlaug og bamapotti uppá
þaki, og mótttaka, bar og veitinga-
staður á jarðhæð. Á fyrstu hæð er
matsalur fyrir hótelgesti, sem em
í hálfu eða fullu fæði, og á 5. hæð
er setustofa. Tvær lyftur em fyrir
hótelgesti, en verið var að ganga
frá sérstakri lyftu á öðmm stað
fyrir sóldýrkendur og til stendur
að koma upp veitingasölu á þakinu.
Hótelið er við þrönga götu og
ekki hlaupið að því að fá bíla-
stæði, en staðurinn er góður. Her-
bergi út að götunni, em með út-
sýni út á flóann, en gestir annarra
herbergja em nær mannmergðinni
utanhúss. Rétt við hótelið em tvö
af stærstu diskótekum Evrópu og
er mikil umferð gangandi sem ak-
andi á föstudags- og laugardags-
kvöldum fram eftir nóttu. Herbergi
okkar sneri að götunni og þó nota-
legt væri að sitja á svölunum og
fylgjast með lífsglöðu fólki, var
ekkert mál að loka sig frá hávaða.
Mikill sandur berst inní hús á
Möltu og em flísar á gólfum því
áberandi. „Hotel Bemard“ er ekki
undantekning, en þar allt flísalagt
og nánast hvergi teppi, sem auð-
veldar þrif og loftið verður hreinna.
Eins og gefur að skilja hlýtur
nýtt hótel að vera hreint og þrifa-
legt í alla staði og ekki þurfti að
kvarta undan þjónustu. ísskápur
er í hveiju herbergi, sjónvarp og
sími, að ógleymdri loftkælingu. Öll
þægindi og aðstaða, sem vænta
má á hóteli í þessum gæðaflokki.
Matstaðurinn á jarðhæð leggur
áherslu á spænska matreiðslu og
ferskir sjávarréttir sitja í fyrir-
rúmi, en Vincent Debono, yfirkokk-
ur, kunni vel að meta sérpantanir
og Eric Cauchi, veitingastjóri, hafði
vakandi augu með gestum sínum.
Góður matur og vel útilátinn og
alls ekki dýr.
Hótelið hefur lítið verið auglýst,
en samt hefur nýtingin verið um
85% frá opnun og hafa einkum
verið hópar frá Englandi, Þýska-
landi, Spáni og Ítalíu. Auglýst verð
á háannatímanum maí til okt. er
2.800 kr. (14 Möltulímr) nóttin
með morgunmat á mann. Vor og
haust um 2.200 kr. og um 1.800
kr. i nóvember til febrúar. Stundum
er boðinn afsláttur t.d. 3ja vikna
dvöl og greitt fyrir tvær eða 6 vikna
dvöl og greitt fyrir fjórar. Við hitt-
um ensk hjón, sem höfðu séð tilboð
auglýst í textavarpi á fimmtudegi
og vom mætt á laugardegi, en
vikupakkinn, flug frá Manchester,
gisting og hálft fæði, kostaði um
17.800 kr. á mann. „Énglendingar
kunna að meta svona tilboð á síð-
ustu stundu," sagði Debattista.
„Ferðaskrifstofur kaupa ákveðinn
fjölda sæta í leiguflugi og betra
að nýta þau og bjóða lægra verð
en sitja uppi með hálftómar vélar.
Við tökum að sjálfsögðu þátt í
svona, ef við höfum laus herbergi."
■
Steinþór Guðbjartsson
GALAPAGOS/ECUADOR
21 dagsferð-brottförfrá Kaupmannahöfn 10. mars.
Ferðir milli Galapagoseyja, hringferð um Ecuador og
sigling um Amasonsvæðið.
Reyndur leiðsögumaður, sem talar dönsku og ensku.
Hefur áður farið með íslendinga í samskonar ferð.
World-tema rejser,
Bjergevej 17A, DK-5600 Fáborg, Danmörku.
Sími 90 45 62 61 91 21.