Morgunblaðið - 15.01.1993, Side 12
12 C
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 1993
Nissan Sunny héfur lengi átt vinsældum að fagna hérlendis og
nú er verið að kynna nýja vél af 1993 árgerðinni af hinni nýju
Sunny kynslóð sem reyndar kom fyrst fram fyrir tveimur árum.
Seldust í fyrra nálega 770 bílar frá Nissan, þar af um 400 fólks-
bílar og af þeim 102 skutbílar með aldrifi. Nýja vélin er aflmeiri
og með beinni innspýtingu sem gefur bílnum mun meiri snerpu
en sú gamla. Um aðrar breytingar er naumast að ræða en Sunny
er fáanlegur í allmörgum gerðum, sem hlaðbakur, stallbakur og
langbakur eða skutbíll og kostar frá um einni milljón uppí rúma
1,3. Þá er hann fáanlegur með sítengdu aldrifi og sem slikur
kostar hann um 1.280 þúsund krónur staðgreiddur og kominn á
götuna. Það er sú gerð sem við lítum nánar á í dag.
Sunny hefur ávalar og mjúkar
línur og eru hlaðbaks- og stall-
baksgerðimar nokkuð laglegar að
sjá en skutbíllinn er eiginlega
þeirra sístur þar sem hann rís
nokkuð upp að aftan. Er hann því
líkari litlum sendibíl en hins vegar
gefur þetta háa þak honum gott
innanrými og má hiklaust telja það
einn af helstu kostum bílsins.
Þama geta hæstu menn um fijálst
höfuð strokið. Segja má að hér
ráði notagildið meira ferðinni en
hið fagurfræðilega og er það kost-
ur í bíl sem þessum.
Að innan er Sunny snotur,
mælaborðslínan er stflhrein og
bogadregin og vel afmörkuð fyrir
ökumann, mælar skýrir og góðir
og rofar allir innan seilingar en
allt sett upp með hefðbundnum
hætti, þurrku- ogljósarofar á armi
við stýrið, hraða- og snúnings-
hraðamælar á sínum stað ásamt
helstu aðvörunarljósum og mið-
stöðvarstillingar á miðju mæla-
borðinu.
Framsætin góð
Sem fyrr segir eru framsætin
sérstaklega góð, bjóða upp á hefð-
bundna stillimöguleika og rúmlega
það, veita sérlega góðan bakstuðn-
ing. Með 1993 árgerðinni er kom-
ið nýtt áklæði og meðal nýjunga
í mælum er útihitamælir. Utsýni
er ágætt, hliðarspeglar eru stillan-
legir innanfrá með rafmagni, bfll-
inn er búinn rafmagnsrúðuvindum
og samlæsingu. Ökumaður fínnur
sig á allan hátt vel heima undir
stýri og þarf ekki langan tíma til
að venjast sætastillingum og
stjómtækjum,-
Rými í aftursæti er hins vegar
ekkert sérstakt og nokkuð þröngt
að setjast inn í bílinn nema fram-
sætin séu mjög framarlega. Ágætt
er að umgangast afturhurðina og
farangursrýmið er allgott og hent-
ar bfllinn því ágætlega sem ferða-
bfll íjölskyldunnar.
Nissan Sunny er 4,17 m lang-
ur, 1,66 m á breidd og 1,5 metra
hár. Hjólhafíð er 2,4 metrar. Hann
vegur 1.140 kg, ber 480 kg og
eldsneytistankur tekur 53 lítra.
Vélin er sem fyrr segir ný, einn-
ig 1600 rúmsentimetrar, fjögurra
strokka og 16 ventla en nú með
beinni innsprautun og 102 hestöfl
í stað 92 áður. Vélamar em skyld-
ar vélunum í stóra bróðumum
Nissan Primera, léttmálmsvélar,
spameytnar og aflmiklar á víðu
snúningssviði sem eru mjög hent-
ugar í handskiptum bíl. Þessi vél
er þó ekki nógu hljóðlát í aldrifs-
bíinum að minnsta kosti. Eyðslan
í eldri vélinni var 8 til 11 lítrar
og má gera ráð fyrir að þessi
nýja vél eyði nokkm minna bens-
íni.
Fótviss og snöggur
I akstri er hinn aldrifni Sunny
mjög skemmtilegur. Viðbragðið
er gott og aflið nægilegt fyrir
þennan 1140 kg þunga bíl og í
handskipta bílnum er hægt að eiga
skemmtilegt samspil með lipurri
skiptingunni og þessu góða við-
bragði. MacPherson gormar veita
hæfílega mjúka fjöðran og liggur
bfllin mjög skemmtilega til aksturs
utan þéttbýlis þótt reyndar hafi
slík prófun verið í lágmarki í rysj-
óttri tíð síðustu daga. Þess betra
vélin er 102 hestöfl
og með beinni innspýt-
ingu og er hún mun
snarpari en sú gamla.
Morgunblaðið/Sverrir
Nissan Sunny langbakur með
sítengdu aldrifi. Meðal staðal-
búnaðar eru skíðabogar á toppi
sem vantar á þennan bíl.
Framsætin fá sérlega góða ein-
kunn enda hægt að stilla þau
og laga vel að lagi hvers og
eins. Rými i aftursætum er hins
vegar ekki mikið.
er. Sem fyrr segir kostar aldrifs-
bíllinn 1.254 þúsund krónur í stað-
greiðslu að viðbættri skráningu
og ryðvörn en nægi mönnum bíll
með framdrifinu eingöngu er verð-
ið komið niður í um 1.150 þúsund
krónur fyrir bflinn kominn á göt-
una. ■
Jóhannes Tómasson
færi gafst á að reyna bílinn í þung-
um snjónum og erfíðu færi á höf-
uðborgarsvæðinu. Þarf hvergi að
óttast að festa sig illa og eins og
fjórhjóladrifnir bílar er Sunny
nokkuð ömggur í hálkunni. Allt
þó með þeim formerkjum að var-
lega sé farið.
Niðurstaða af viðkynningu við
þennan aldrifs Sunny er að hér sé
í boði röskur bíll og hentugur á
marga vegu, lipur í borgarsnún-
ingum, dijúgur úti á þjóðvegum
og því nokkuð fjölnota og endur-
taka má að ökumaður getur lagað
sig sérlega vel að sæti sínu og á
að geta virkilega notið þess að aka
þessum bíl hvar og hvenær sem
U2U
1^231
Nissan Sunny nú
með aflmeiri vél
Ford Mustong Mach III er með 450 hestöfl undir vélarhlífmni.
Oldsmobile Aurora kemur á markaðinn vorið 1994.
Highlander er helsta tromp Chevrolet á sýningunni í Detroit.
Nýstárlegar f rumgerðir sýndar í Detroit
Á BÍLASÝNINGUNNI sem nú stendur yfir
í Detroit í Bandaríkjunum er kynntur nokk-
ur Qöldi bíla sem ennþá eru aðeins á til;
raunastigi, eða svokallaðra concept bíla. í
mörgum tilfellum eru þessar frumgerðir
fyrirrennarar bíla sem framleiðsla verður
hafin á þó síðar verði, og þá jafnvel í nokk-
uð ólíkri mynd frá því sem þeir eru nú.
Það eru þó ekki aðeins bílar af þessu tagi
sem gefur að líta á sýningunni, heldur eru
þar sýndir bílar sem sala er um það bil að
hefjast á i Bandaríkjunum, og jafnframt
gefur þar að líta 1995 árgerðina af ein-
staka bíl. Litlar fregnir hafa enn sem kom-
ið er borist af viðbrögðum við sýningunni
í Detroit, en þeirra er að öllum líkindum
að vænta innan skamms. Sýningunni lýkur
næstkomandi sunnudagskvöld.
Fyrir sýninguna í Detroit var ekki síst búist
við því að Mustang Mach III fmmgerðin frá
Ford myndi vekja mikla athygli, en hann er
að talinn gefa sterklega til kynna hvert útlitið
verður á nýrri kynslóð Mustang,- sem sala verð-
ur hafín á snemma næsta árs. Um þessar
mundir em 30 ár liðin síðan Mustang leit dags-
ins ljós í fyrsta sinn, og telja talsmenn Ford
að með hinum skærrauða Mach III hafí tekist
að sameina útlit bílsins á fyrstu ámnum og
tækni nútímans á ákjósanlegan hátt.
í tilraunabílnum sem sýndur er í Detroit er
sex gíra beinskipting og 450 hestafla útgáfa
af V-8 vélinni. Þetta er 32 ventla 4,6 lítra vél
sem er gædd þeim eiginleika að hún getur
gengið fyrir blöndu af bensíni og allt að 85%
af metanóli. Ford gefur upp að bíllinn nái 100
km/klst á aðeins 4,5 sekúndum.
General Motors leggur mesta áherslu á
Oldsmobile Aurora á sýningunni í Detroit.
Þetta er rennilegur bíll með 4,0 lítra, 32 ventla,
250 hestafla V-8 vél, og er honum ætlað að
keppa við Toyota Lexus á Bandaríkjamarkaði.
Bíllinn fer væntanlega á markað þar í landi í
vorið 1994 og þá sem 1995 árgerð. Þessi kynn-
ing á bílnum nú er fyrst og fremst talin vera
vegna orðróms um að leggja eigi niður Oldsmo-
bile deildina.
Helsta tromp Chevrolet á sýningunni kallast
Highlander, en það er frumgerðin af pallbíl
sem helst er ætlaður útilífsfólki, og er þetta
þróuð útgáfa af 1994 árgerðinni af S10 pall-
bílnum frá Chevrolet. Á bílnum er veltigrind
sem er gædd þeim eiginleika að hana er hægt
að hækka og lækka, en í efstu stöðu losnar
um rafstýrða yfírbreiðslu sem hylur bæði pall
bílsins og hliðar hans. Þá er verkfærageymsla
innbyggð í hliðina á pallinum, og bílstjórameg-
in er rennihurð sem auðveldar innkomu í aftur-
sæti bílsins. ■