Morgunblaðið - 05.02.1993, Side 15

Morgunblaðið - 05.02.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1993 15 Skólanesti? Af hverju? eftir Ingu Sigurðardóttur „Hvenær kemur nestistíminn eiginlega? Ég er orðinn svo svang- ur.“ Án efa er þetta athugasemd sem flestir ef ekki allir kennarar heyra oft í kennslustundum. Nestistíminn í skólanum virðist mikilvægur í augum flestra skóla- bama. I árdegisbekkjum er þessi stund oft á tíðum fyrsta máltíð dagsins og því er ljóst að eftir morgunhressinguna í skólanum eru nemendur oft orðnir betur upplagðir til náms og starfa. Mörg böm jafnt sem fullorðnir virðast lystarlítil rétt eftir að þau vakna. Það er því oft ekki fyrr en eftir að þau eru komin í skólann að sulturinn fer að segja til sín. Það er því mikilvægt að í nest- isboxinu sé eitthvað hollt, gott og næringarríkt og síðast en ekki síst aðlaðandi í augum barnsins. Það fer þó auðvitað eftir því hvort barn hefur borðað góðan morgun- verð heima hve mikið nestið þarf að vera. Aðlaðandi nesti, hvað er það? Hve oft skyldu kennarar hafa horft á nemendur sína opna nest- isboxin og loka þeim aftur með óánægjusvip án þess að snerta innihaldið. Eða jafnvel horft á nemanda lauma ósnertri brauð- sneiðinni í ruslafötuna af því að hann vildi ekki svona álegg, ekki ost á brauðið, ekki svona brauð einmitt núna og það áttu mamma og pabbi auðvitað að vita. Það gæti því oft á tíðum verið ráðlegt fyrir foreldra að hafa börn sín með í ráðum þegar gengið er frá nestinu. Ég mæli þó alls ekki með því að börn séu látin taka sjálf til sitt eigið nesti eftirlitslaust. Það er einnig mikilvægt að skapa notalegt andrúmsloft í \ SKEMMIR / TENNUR kringum þessa litlu máltíð. Lestur kennara upphátt fyrir nemendur í þessum tímum er algengur og virðast mér þau börn fá sem ekki njóta þess að hlusta á skemmtilega sögu á meðan þau matast. Á því leikur enginn vafi að hollt mataræði er mikilvægur þáttur í tannvernd barna og unglinga. Sí- vaxandi sykurneysla þar sem dag- leg gosdrykkja- og/eða sælgætis- neysla er orðin algeng eykur mjög líkur á tannskemmdum. Það er því ekki að nauðsynjalausu sem kenn- arar hvetja nemendur sína til að koma með hollt nesti í skólann. Víða í bekkjum hafa kennarar í samráði við nemendur sína tekið afstöðu til þess hvaða fæðu- tegudnir séu æskilegri en aðrar í nestisboxið. Hollusta ýmissa drykkjarvara hefur einnig verið tekin til umræðu. Afleiðingar þessa hafa oft verið þær að það er nemendum keppikefli að í þeirra | Inga Sigurðardóttir „Á því leikur enginn vafi að hollt mataræði er mikilvægur þáttur í tannvernd barna og unglinga. Sívaxandi sykurneysla þar sem dagleg gosdrykkja- og/eða sælgætisneysla er orðin algeng eykur mjög líkur á tann- skemmdum.“ boxum finnist eitthvað hollt og gott. Þetta á þó fyrst og fremst við yngstu nemendurna. Því verður ekki neitað að auðvit- að búa skólaböm landsins við mis- jafnar aðstæður og eru því nestis- mál sumra þeirra heldur bágborin af þeim sökum. í flestum skólum a.m.k. á höfuðborgarsvæðinu, þar sem ég þekki til, er yfirleitt hægt að kaupa drykki nánast á kostnað- arverði og mætti því e.t.v. hugsa sér að þar mætti á sama hátt kaupa ávexti eða jafnvel brauð- sneið í framtíðinni, en til þess þyrfti þó ýmislegt að breytast í aðstöðu skólanna. í mínum huga eykur næringar- ríkt og gott skólanesti vellíðan skólabarna og stuðlar að aukinni tannvemd á Islandi. Höfundur er kennari í Grandaskóla. nteð frönskum og sósu =995.- TAKWMEÐ ; t ffíi TAKWMEÐ - tilboð! VVW - tilboð! Jarttnn Þessi nýi og glæsilegi bíll hefur dregist aftur úr - í ver&i! Volkswagen Vento GL er talsvert ódýrari en sambærilegir bílar af öSrum tegundum - samt stendur Vento þeim flestum framar hva& snertir stærð, búnað og aksturseiginleika. 1.365.000 kr. En þegar við segjum að Volkswagen Vento sé ódýr erum við vissulega að tala um afstæða hluti - því öllu móli skiptir hvað þú færð fyrir peningana þína. Og hvað færðu svo fyrir þó? VENTO HEKIA Laugavegi 170 -174 • Slmi 69 55 00 Þetta færðu fyrir 1.365.000 krónur: • Vandaðan þýskan kostagrip sem er framleiddur af einum þekktasta bílaframleiðanda heims - Volkswagen. • Kraftmikinn bíl með 90 hestafla, 1800cc vél, sem gefur viðbragð og snerpu eins og best gerist. • Sérstaklega rúmgóðan og þægilegan bíl með afar vandaðri innréttingu, 550 lítra farangursfymi, samlæsingu ó hurðum, höfuðpúðum ó aftursætum og lituðu gleri, svo nokkuð sé nefnt. • Bil sem hentar vel við íslenskar aðstæður, framhjóladrifinn með aflstýri og fróbæra aksturseiginleika. • Bíl með herta stálstyrktarbita í hurðum sem í einu og öllu er framleiddur samkvæmt hinum ströngu öryggiskröfum Volkswagen. • Þjónustu bílaumboðs sem þú getur treyst. Komdu og sjábu meb eigin augum og reynsluaktu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.