Morgunblaðið - 05.02.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1993
17
Enn um „gapuxahátt“
eftir Sighvat
Björgvinsson
Formaður BSRB, Ögmundur
Jónasson, hefur kveinkað sér undan
því að ég hafi kallað framkomu
hans í fjölmiðlum gapuxahátt.
í kvöldfréttum Ríkisútvaprsins
26. janúar sl. sagði Ögmundur Jón-
asson orðrétt:
„Fyrst eru lækkuð laun hjá fólki,
það var gert nú um áramót. Síðan
er gefinn skattaafsláttur til stórfyr-
irtækjanna í landinu, sem nemur
mörgum þúsundum milljóna. Og nú
er verið að rukka fyrir þessum
skattaafslætti, sem Eimskipafélag-
ið, Kóka kóla og öðrum stórfyrir-
tækjum er gefinn, það er verið að
rukka fyrir þessum skattaafslætti
inni á göngudeildum krabbameins-
sjúklinga."
Allir landsmenn vita að í tengsl-
um við fjárlagaafgreiðsluna var
samþykkt að lækka skatta á at-
vinnufyrirtæki, fyrst og fremst með
niðurfellingu aðstöðugjalda, en
hækka í staðinn skatta á einstakl-
inga. Þetta var meðal annars gert
í samræmi við tillögur þar að lút-
andi sem forystumenn úr hópi
Keflavík
vinnumarkaðarins höfðu kynnt fyrir
ríkisstjóminni. Formaður BSRB var
að vísu ekki aðili að samráði for-
ystumanna aðila vinnumarkaðarins
en hann vissi eins og aðrir lands-
menn af tillögum þeirra að lækka
skatta á atvinnufyrirtæki og hækka
skatta á einstaklinga þar á móti
og hann vissi líka að sú var af-
greiðsla ríkisstjórnarinnar.
Að segja að verið sé að rukka
skattaaafslátt atvinnufyrirtækja
inni á göngudeildum krabbameins-
sjúklinga er gapuxaháttur eða ann-
að verra.
BSRB við sama
heygarðshornið
Þá virðist BSRB ætla að halda
því fram að hvergi hafi verið farið
rangt með í fréttatilkynningu BSRB
um áhrif aðgerða ríkisstjórnarinnar
í lyfjamálum og varðandi sérfræði-
lækniskostnað en fréttatilkynningin
birtist í blöðunum þriðjudaginn 26.
janúar. Af því tilefni vil ég taka
eftirfarandi fram:
Að beiðni hagfræðings BSRB
voru teknar saman í heilbrigðis-
ráðuneytinu ítarlegar upplýsingar
um hvers eðlis umræddar aðgerðir
vom og hverjar væru afleiðingar
þeirra. Hagfræðingi BSRB var til-
kynnt að hann gæti sótt þær upp-
lýsingar í afgreiðslu heilbrigðis-
ráðuneytisins föstudaginn 22. jan-
úar. Skrifstofur BSRB eru í næsta
húsi við heilbrigðisráðuneytið.
Upplýsingarnar sem um var beð-
ið voru fyrst sóttar miðvikudaginn
27. janúar, síðdegis. Fréttatilkynn-
ing BSRB var því samin og gefin
út án þess að hirt hefði verið um
að nálgast umbeðnar upplýsingar.
Rangfærslur
Eftirfarandi rangfærslur er m.a.
að fínna í umræddri fréttatilkynn-
ingu.
Látið er í það skína að gjaldtaka
á krabbameinsdeildum sé liður í
aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Það á
við engin rök að styðjast. Krabba-
meinssjúklingar hafa þurft að
greiða göngudeildargjöld á öllum
göngudeildum þar sem þeir hafa
fengið þjónustu nema á göngudeild
ríkisspítala. Fyrir mörgum árum
var sú ákvörðun tekin af stjórnend-
um ríkisspítala að taka ekki göngu-
deildargjöld af krabbameinssjúkl-
ingum þó það væri gert annars stað-
ar. Þessi ákvörðun endurskoðaði
stjórnarnefndin um mitt ár og
ákvað þá að undanþágan skyldi
falla niður frá og með áramótum
1993 þannig að eftirleiðis yrði tekið
göngudeildargjald á krabbameins-
deild Landspítalans eins og tekið
er á göngudeildum annarra spítala.
Þessi aðgerð á ekkert skylt við
ákvarðanir ríkisstjórnarinnar um
hækkun lyfjakostnaðar og sérfræði-
lækniskostnaðar.
Yfirlæknir krabbameinsdeildar
Landspítalans á nú í viðræðum við
stjórnendur spítalans um hvemig
þessi gjaldtaka skuli framkvæmd.
Það stendur ekki til að taka gjald
fyrir geislameðferð.
Lyfjakostnaður
í fréttatilkynningu BSRB segir
orðrétt:
„Sjálft krabbameinslyfíð verður
Sighvatur Björgvinsson
„ Að segja að verið sé
að rukka skattaaafslátt
atvinnufyrirtækja inni
á göngudeildum
krabbameinssjúklinga
er gapuxaháttur eða
annað verra.“
áfram ókeypis en breyting verður
á kostnaði sjúklings vegna lyfja við
fylgikvillum krabbameinsins, svo
sem sýklalyfja, vægum verkjalyfj-
um og kvíðastillandi og róandi lyfj-
um.“
Þetta er rangt. Með lyfjareglu-
gerðinni voru engar breytingar
gerðar á greiðslumeðferð sýkla-
lyfja. Væg verkjalyf voru flutt til í
greiðsluflokki (100 daga skammtur
af þeim kostar yfirleitt innan við
1.000 kr.) og hvað kvíðastillandi
og róandi lyf áhrærir var sú eina
breyting gerð að eitt af þessum
lyfjum sem ekki er vanabindandi
var flutt úr flokki þeirra lyfja sem
sjúklingur greiðir alfarið fyrir sjálf-
ur og í flokk þeirra lyfja sem hið
opinbera greiðir fyrir á móti sjúkl-
ingnum.
Það er því rangt að gerð hafi
verið sú breyting á meðferð þessara
lyfja sem verði til þess óhagræðis
fyrir sjúklinga sem látið er að liggja
í fréttatilkynningu BSRB.
Lyfjakort
Þá segir í fréttatilkynningu
BSRB:
„Enn er ekki ljóst hvort viðkom-
andi sjúklingur (krabbameinssjúkl-
ingurinn sem dæmi er tekið af)
kemur til með að fá áfram lyfja-
kort vegna þessara lyfja eins og
hann hafði áður eða hvort hann
þarf að greiða sum þessara lyfja
að fullu.“
í lyfjareglugerðinni er ekki gert
ráð fyrir að neinar breytingar verði
hvað varðar lyfjakortaafgreiðslu E
og O merktra til krabbameinssjúkl-
inga og er hér enn farið með stað-
lausa stafi í fréttatilkynningu
BSRB.
Þekkingarbrestur
Þá er einnig í fréttatilkynningu
BSRB skýrt frá því að þriggja
mánaða skammtur 14 lyfja sem til-
tekinn sjúklingur tekur geti hækkað
úr kr. 2.336,00 í kr. 5.863,00 og
jafnvel enn meira. Slík dæmi er
sjálfsagt hægt að finna en ekki
vegna krabbameinslyfjameðhöndl-
unar eins og í fréttatilkynningunni
segir. Hins vegar er þess ekki getið
í fréttatilkynningunni að það ný-
mæli er í reglugerðinni sem öðlast
gildi 18. janúar sl., sem ekki var
til áður, að Tryggingastofnun ríkis-
ins er heimilt að veita sjúklingi sem
þarf á mörgum lyfjum að halda
sértaka fyrirgreiðslu með því að
undanþiggja hann greiðsluskyldu
fyrir einhver eða jafnvel öll lyfin,
líka þau lyf sem sjúklingar þurfa
annars að greiða alfarið sjálfír.
Forráðamenn BSRB vita mæta-
vel að þeir fóru ekki rétt með tiltek-
in atriði í fréttatilkynningunni sem
birtist þriðjudaginn 26. janúar sl.
Samt ætla þeir að þráast við og
halda því fram að þeir standi við
allt það sem þeir hafa sagt.
Að berja höfðinu við steininn
gegn betri vitund er líka gapuxa-
háttur.
Höfundur er heilbrigðisriðbem.
Þingeyingafélagið 20 ára
Keflavík.
ÞINGEYINGAFÉLAGIÐ í Keflavík átti 20 ára afmæli nýlega og af
þessu tilefni ætlar félagið að halda veglega afmælishátíð í Stapa
laugardaginn 6. febrúar í stað hins hins hefðbundna þorrablóts sem
félagið hefur staðið að undanfarin 17 ár.
Að sögn Kristínar Jónsdóttur eins Suðurnesjum í nafni Þingeyingafé-
stjórnarmanns í Þingeyingafélaginu
voru það 39 brottfluttir Þingeyingar
sem komu saman í Keflavík 14. jan-
úar 1973 til að stofna félagið og var
Páll Jónsson fyrsti formaður þess.
Félagsmönnum fjölgaði ört og verið
ákaflega virkir. Þar má nefna félags-
vist og eldri dönsum en þessi starf-
semi er fyrir löngu orðin þekkt á
lagsins. Ekki má heldur gleyma hin-
um þekktu þorrablótum sem félagið
hefur haldið á hverju ári.
AUur ágóði af starfsemi félagsins
hefur verið látinn renna til líknar-
mála eða þangað sem þörfin er talin
mest hveiju sinni. Núverandi formað-
ur er Oddgeir Björnsson. -BB
EINSTAKT TILBOÐ!
ALLTAÐ
AFSLÁTTUfí
Seljum næstu
daga skápa og
húsgögná
stórlækkuðu
verði.
Lítíð
útlitsgallaðir
fataskápar
með miklum
afslætti.
<s
Landsbyggðarþjónusta:
Tökum við símapöntunum og
sendum um land allt
VISA
4^?
Opið: 9-18 virka daga
10-16 laugardaga
Visa raðgreiðslur í allt
að 18 mán., engin útborgun.
AXIS
AXIS HUSGOGN HF.
SMIÐJUVEGI9. KÓPAVOGI
SÍMI: 43500 FAX 43509.