Morgunblaðið - 05.02.1993, Page 18

Morgunblaðið - 05.02.1993, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1993 Vistvænna mal- bik hér í sumar Bjóða átti verkið út, segir Gunnar Birgisson MALBIK er framleitt með vistvænni aðferðum í nágrannalöndum okk- ar en tíðkast hefur hérlendis. Vegagerð ríkisins hyggst semja við norska fyrirtækið Veidekke um að kynna þessa tækni hérlendis og starfa hér að malbiksframleiðlu í sumar. Gunnar Birgisson, framkvæmdastjóri Klæðningar hf., telur óeðlilegt að íslenskum verktökum gefist ekki kostur á að bjóða í verkið. Ný aðferð Hér er um að ræða nýja aðferð til malbiksframleiðslu, svonefnda bikþeytu, sem lítið hefur verið feng- ist við hér á landi. „Malbik sem fram- leitt er með þessari aðferð er vist- vænna en það sem framleitt hefur verið hér og hefur aðferðin því orðið ofan á erlendis," sagði Rögnvaldur Jónsson, umdæmisverkfræðingur hjá Vegagerð ríkisins, í samtali við Morgunblaðið. Rögnvaldur sagði að hingað til hefði mengandi leysiefni verið notað til að þynna bikið en þessi aðferð byggðist á því að bikið væri leyst upp í vatni með þeytara en síðan blandað steinefnunum. Bik- þeytuna þyrfti að framleiða í stöð og væri sú tækni ekki tiltæk hérlend- is. „Við hyggjumst gera svokallaðan þróunarsamning við norska fyrirtæk- ið Veidekke um að þeir komi hingað með sína þekkinu og annist fram- leiðslu efnisins í sumar. Með þessu móti geta verktakar hér kynnt sér þessa tækni og náð tökum á henni. Þannig verður þessi þekking eftir í landinu og íslenskir verktakar geta annast þennan verkþátt í framtíð- inni,“ sagði Rögnvaldur. Ætti að bjóða verkið út „Við erum alfarið á móti því að Vegagerðin semji um verk við er- lenda aðila án þess að þau hafi fyrst verið boðin út innanlands," sagði Gunnar Birgisson, framkvæmda- stjóri Klæðningar hf. „Þótt íslenskir verktakar hafí ekki tileinkað sér þessa verktækni væri þeim í lófa lagið að fá erlenda aðila með sér í málið. Það er enn ekki ljóst hve stór hiutur Veidekke verður í þessu verki en þama er verið að bijóta þá reglu að íslenskir verktakar skuli hafa rétt til að bjóða í verk áður en farið er í samninga við erlenda aðila.“ Ljósmyndamaraþonið hefst á morgun Undirbúningur fyrir ljósmyndamaraþon Stúdentaráðs Háskóla íslands stendur nú sem hæst og hefst það í fyrramálið klukkan 11.1 gær höfðu fjölmargir stúdentar við Háskólann látið skrá sig, en hægt er að skrá sig allt fram á síðustu stundu. Á myndinni eru tveir ungir stúdentar að undirbúa maraþonið og hengja upp auglýsingar í anddyri Háskólans. Þeir eru Hafsteinn Hafsteinsson til vinstri og Karl Pétur Jónsson. Styrktaraðilar ljósmyndamaraþonsins eru Búnaðarbankinn, Hans Petersen hf og Morgunblaðið. Námskeið Menningar- og fræðslusambands alþýðu fyrir atvinnulausa Verður að vera bjartsýim þrátt fyrir atvinnuleysið segir Guðmundur R. Ölafsson félagi í VR MENNINGAR- og fræðslusamband alþýðu hefur staðið fyrir námskeið- um fyrir atvinnulausa að undanförnu. Námskeiðunum er skipt í svoköll- uð kjarnanámskeið, öðru nafni námskeið í sjálfsstyrkingu og mannleg- um samskiptum, og almenn námskeið í tölvunotkun, tungumálum og bókfærslu svo dæmi séu nefnd og hafa nemendur látið afar vel af þeim að sögn Ásmundar Hilmarssonar fræðslufulltrúa. Guðmundur R. Ólafsson félagi í VR, sem sótt hefur þijú námskeið MFA, hrósaði námskeiðunum í samtali við blaðamann Morgunblaðsins og hvetur at- vinnulausa eindregið til að notfæra sér þau. Ásmundur sagði að MFA hefði fengið fé úr starfsmenntasjóði fé- lagsmálaráðuneytisins til þess að halda námskeið fyrir atvinnulausa og væri það nú gert í tengslum við stéttarfélögin. Hefðu meðal annars verið haldin námskeið fyrir félags- menn í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur og Dagsbrún. Kjarnanámskeið í 5 hlutum Annars vegar sagði Ásmundur að um væri að ræða svokölluð kjama- námskeið, 5 kennslustundir á dag í jafn marga daga. Námskeiðunum væri skipt í fimm hluta og væri byij- að á því að fara í sjálfsstyrkingu þar sem m.a. væri farið í atriði sem treystu sjálfsmynd fólks eða byggðu hana upp ef hún hefði hrunið. Næst er fjailað um atvinnuum- sóknir. „Við förum þá yfir þau atriði sem hafa þarf í huga þegar farið er í atvinnuviðtal eða þegar sótt er skriflega um starf,“ sagði Ásmúndur og benti á að algengt væri að fólk gleymdi að taka fram þekkingu sína, t.d. varðandi tölvur, eða reynslu sem það hefði aflað sér. Á eftir er stuttlega farið í atvinnu- leysistryggingar, réttindi og skyldur atvinnulausra, en að því loknu fjár- mál heimiianna. Mannleg samskipti er síðan yfirskrift síðasta hluta nám- skeiðsins. „Er þá m.a. farið yfir það að kunna að hlusta og taka eftir því sem aðrir segja, að taka við gagn- rýni, hvernig hægt er að sýna að maður sé ósammála einhveiju, láta í ljós að einhver hafí gert vel eða biðja bónar,“ sagði Ásmundur. Hann bætti við að auk þessara kjamanámskeiða væri reynt að halda annars konar námskeið og nefndi þá tölvunámskeið fyrir byijendur og lengra komna, námskeið í meðhöndl- un og geymslu matvæla, ensku, is- lensku og bókfærslu. Svartsýni og doði Einn af þeim sem hafa nýtt sér námskeið MFA er Guðmundur R. Ólafsson félagi í VR. Hann viður- kennir að það hafí verið erfítt að rífa sig upp til að fara á fyrsta nám- skeiðið en segist nú hafa farið á þijú námskeið, kjarnanámskeið og tvö tölvunámskeið. „Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn þrátt fyrir atvinnuleysið. Eg hef séð að svartsýni og doði hellist yfír suma sem eru heima. Fólk tapar engu á því að koma hingað, heldur græðir helling. Hér er aðstaðan fín, andinn góður og kennaramir góðir,“ segir Guðmundur. Hann segir að námskeiðin hafí veitt sér aukið sjálfstraust og bendir jafnframt á gildi þess fyrir atvinnu- lausa og fara út og eiga samskipti við annað fólk. „Svo er það líka þekk- ingin, hún kemur alltaf til góða. Ég segi það til dæmis sjálfur sambandi við tölvurnar að ég lít svo á að þekk- ing á þeim veiti mér aukna mögu- leika í starfi," segir Guðmundur og ítrekar að hann mæli með því að fólk nýti sér námskeiðin. Skilningsleysi gagnvart atvinnulausum Guðfínnur Traustason, leiðbein- andi Guðmundar á framhaldsnám- skeiði í tölvunotkun, sagði að áður hefði atvinnuleysi oft verið tengt ákveðnum félagslegum vanda, en nú gætu allir orðið atvinnulausir. Hins vegar sagði hann að sennilega væru það þeir sem mestur töggur væri í sem kæmu á námskeið MFA til að bæta við þekkingu sína. Sumir hefðu eflaust ekki haft tíma, aðstöðu eða peninga til að fara á námskeið af þessu tagi áður. Guðmundur og Guðfínnur voru sammála um að þrátt fyrir mikið Ef fólk vill sjálfu sér vel „Ef fólk vill sjálfu sér vel og koma í veg fyrir að það lokist alveg inni á það að rífa sig af stað og fara út á meðal fólks,“ segir Guðmundur R. Olafsson sem verið hefur at- vinnulaus í 6 mánuði. Hann segist sjálfur hafa fengið mikla hvatningu til að fara á fyrsta námskeiðið. atvinnuleysi ríkti almennt skilnings- leysi gagnvart aðstöðu atvinnuleys- ingja í þjóðfélaginu. „Fólk spyr: Hvað er að hjá þér? Af hveiju færðu þér ekki vinnu? Og þú ert kannski búinn að rölta um bæinn allan daginn til að leita að vinnu, leggja inn umsókn- ir sem kannski ekki einu sinni er svarað," segir Guðmundur. Afmæliskveðja Friðjón Þórðar- son sýslumaður Friðjón Þórðarson sýslumaður Dalasýslu, fyrrum alþingismaður og dóms- og kirkjumálaráðherra, verður sjötugur í dag, 5. febrúar. Allir sem Friðjón Þórðarson þekkja vita að hann er Dalamaður, fæddur á Breiðabólsstað á Fellsströnd, þar sem hann ólst upp hjá foreldrum sín- um og hefur ekki slitið þá taug sem hann fléttaði í uppvextinum við heimabyggðina. Foreldrar Friðjóns voru Steinunn Þorgilsdóttir og Þórð- ur Kristjánsson bóndi og hreppstjóri á Breiðabólsstað. Eftir stúdentspróf stundaði Frið- jón nám við lagadeild Háskóla ís- lands og lauk þaðan embættisprófi 1947. Eftir það hóf hann störf sem lögfræðingur, m.a. sem fulltrúi lög- reglustjórans í Reykjavík. Hinn 1. mars 1955 var Friðjón skipaður sýslumaður í Dalasýslu og í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu 1965. Gegndi hann því embætti til ársins 1975. Árið 1956 var hann fyrst kjörinn á Alþingi, þá fyrir Dalasýslu sem landskjörinn alþingismaður, og sat til ársins 1959. Þingmaður Vestur- landskjördæmis var hann kjörinn 1967 og gegndi þingmennsku fyrir Sjálfstæðisflokksinn allt til ársins 1991, er hann dró sig í hlé frá stjóm- málum eftir langan og farsælan fer- il. Friðjón hafði þá setið á 31 þingi og sem dóms- og kirkjumálaráðherra í ríkisstjóm Gunnars Thoroddsens 1980-1983. Árið 1991 tók hann við embætti sýslumanns Dalasýslu og hefur gegnt því síðan. Það sýnir einstaka tryggð við heimabyggðina, Dalasýslu, að Frið- jón tók við embætti sýslumanns Dalamanna eftir að hann hætti þing- mennsku. Eftir langa setu á Alþingi hefði mátt ætla að vilji hans stæði til þess að draga sig í hlé frá erli og skyldum embættisverka og njóta þess að fara um kjördæmið óþvingað- ur af skyldum þingmannsins eða embættismannsins og gleðjast með sínu fólki að loknu góðu dagsverki í kjördæminu. En hann kaus að láta Dalabyggð njóta starfskraftanna. Auk embættisstarfa og þing- mennsku hefur Friðjón starfað í bankaráði Búnaðarbankans, í stjórn Sementsverksmiðjunnar, í stjórn Bmnabótafélags íslands og sinnt ýmsum fleiri trúnaðarstörfum sem hann hefur tekist á hendur. Friðjón kvæntist 28. október 1950 Kristínu Sigurðardóttur en hún er látin. Þeim varð fimm barna auðið. Þau era: Sigurður Rúnar, mjólkur- bússtjóri í Búðardal, Þórður forstjóri Þjóðhagsstofnunar, Lýður forstjóri Coca Cola i Noregi, Helgi Þorgils myndlistarmaður í Reykjavík og yngst Steinunn flugfreyja í Hafnar- fírði. Árið 1992 kvæntist Friðjón Guðlaugu Guðmundsdóttur. Á þessum tímamótum senda sjálf- stæðismenn á Vesturlandi Friðjóni kveðjur og þakklæti fyrir marghátt- uð störf hans í þágu Vestlendinga fyir og síðar. í stjómmálum, sem og á öðram vettvangi þjóðlífsins, skiptast á skin og skúrir. Og trúlega er það þannig hjá flestum stjórnmálamönnum að þeir eiga allt sitt undir „sól og regni kjósenda" og framvindu í flokknum og leggja allt undir svo fylgja megi fram hugsjónum, vonum og vilja til umþóta á sem flestum sviðum. Á löngum ferli Friðjóns á vett- vangi stjórnmálanna hafa vafalaust fleiri dagar verið sólríkir þegar litið er um öxl. Hann naut þess að hafa sterkan kjarna stuðningsmanna sem stóðu með sínum manni á hveiju sem gekk. Óhætt er að segja að Friðjón hafí notið trausts bæði meðal sam- heija sinna og andstæðinga í stjórn- málum. Eftir langan starfsferi! Friðjóns er af mörgu að taka ef minnast ætti einstakra viðfangsefna. Það verður ekki gert í stuttri afmæliskveðju en störf hans sem sýslumanns, þing- manns og ráðherra marka spor í sögu byggðanna á Vesturlandi. Ég og íjölskylda mín árnum Frið- jóni allra heilla í tilefni afmælisins. Sturla Böðvarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.