Morgunblaðið - 05.02.1993, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 05.02.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1993 21 Utanríkisráðherra um aðild að EB Þróun í Evrópu berst til Islands tíu árum síðar Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. SAMNINGURINN um Evrópska efnahagsvæðið, EES, uppfyllir efna- hagslegar þarfir en ef íslendingar vilja taka þátt pólitískri mótun Evrópu næst það aðeins með aðild að Evrópubandalaginu, EB, að sögn Jóns Baldvins Hannibalssonar utanrikisráðherra. Þetta kom fram á blaðamannafundi er haldinn var í Kaupmannahöfn að loknum viðræð- um hans við Niels Helveg Petersen, utanríkisráðherra Dana, sem nú eru í forsvari fyrir EB. Jón Baldvin sagði að ástæða þess að íslending- ar hefðu ekki sótt um EB-aðiId væri sú að þeir virtust yfirleitt vera um áratug á eftir meginlandsþjóðunum í Evrópumálunum. Helveg Petersen sagði að það væri hlutverk Dana að ræða alþjóða- mál við EFTA-löndin fyrir hönd EB og viðræðurnar nú væru þáttur í því hlutverki. A dagskránni var þróunin í löndum fyrrverandi Júgóslavíu, Miðausturlönd, nýfijálsu ríkin í Mið- og Austur-Evrópu auk EES-samn- ingsins. Hann sagðist telja að mikil- vægur áfangi hefði náðst sl. mánu- dag er ráðherranefnd EB fékk um- boð til að semja við EFTA-ríkin þótt Sviss hefði hætt við. Spánveijar hafa krafist þess að framlag EFTA til sérstaks þróunarsjóðs verði óbreytt þrátt fyrir brottfall Sviss- lendinga. Danir flýti fyrir EES Ráðherrann sagðist ekki hafa áhyggjur af öðrum kröfum Spán- veija því að allt sem snerti t.d. land- búnað og fiskveiðar, væri utan við samninginn. Jón Baldvin sagði að þau EFTA- ríki sem sótt hefðu um aðild að EB litu á EES-samninginn sem mikil- vægt öryggisnet því að reynslan sýndi að samningar við EB tækju langan tíma. Ekki væri heldur hægt að treysta að aðild að EB fengist samþykkt heima fyrir. Jón Baldvin sagðist hafa beðið Dani að þrýsta á um að staðfesting samningsins drægist ekki úr hömlu. Seinkun skipti verulega máli fjárhagslega fýrir EFTA-þjóðirnar. ísland og EB Jón Baldvin sagðist hafa þá sann- færingu að þróun á meginlandi Evr- ópu næði yfirleitt til íslands áratug síðar, þetta hefði m.a. átt við um aðild íslands að EFTA. Þess vegna væri EB-aðild ekki á dagskrá. Hel- veg Petersen sagði aðspurður að íslendingar yrðu sjállfir að gera upp hug sinn en of snemmt væri að segja nokkuð um það hvernig hugsanleg- um sérkröfum íslendinga í aðildar- viðræðum yrði tekið. Það væri á hinn bóginn stefna dönsku stjórnarinnar að taka ætti tillit til sérstöðu ein- stakra landa enda hefðu þeir sjálfir náð fram slíkum atriðum varðandi Ma.astricht-samninginn. í samtali við Morgunblaðið sagði Jón Baldvin að hann væri víst eini íslenski flokksformaðurinn sem hefði gert tilraun tii að fá því framgengt íslensk stjórnvöld könnuðu og fylgd- ust með EB-umsóknum hinna Norð- urlandanna. Tillagan hefði hlotið óblíðar undirtektir. Hætt við bensín- lækkun vegna hækkunar dollara HÆKKUN Bandaríkjadals um og eftir síðustu helgi jafnhliða ein- hverri hækkun á bensíni á heimsmarkaði eyddi því svigrúmi sem Olíu- félagið Skeljungur hf. hafði til að lækka útsöluverð á bensíni, að sögn Kristins Björnssonar forstjóra. Hann segir að stjórnendur félagsins hafi þess vegna orðið að draga til baka áform um lækkun síðastliðinn mánudag. Galileo á íslandi gjaldþrota Skuldir um 20 milllj. kr GALILEO á íslandi hf. var úr- skurðað gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur sl. miðvikudag. Fyr- irtækið sá um rekstur og upp- setningu á alþjóðlegu flugbókun- arkerfi hér á landi. Skuldir fyrir- tækisins eru taldar nema um 20 milljónum kr. Eignir eru taldar óverulegar. Eigendur fyrirtækisins voru Örvar Sigurðsson og Galileo í Danmörku og var eignarhlutur þessara aðila því sem næst jafn. Helstu kröfuhaf- ar eru Galileo í Danmörku og Gjald- heimtan. Bústjóri þrotabúsins er Brynjólf- ur Kjartansson hrl. og kröfulýsing- arfrestur rennur út í byijun aprfl. Fjórar ferðaskrifstofur, Ferða- skrifstofa íslands, Ferðaskrifstofa Reykjavíkur, Ratvís og Samvinnu- ferðir-Landsýn hf., höfðu gert samning um uppsetningu á farbók- anakerfinu Galileo. Kristinn sagði að vegna verðlækk- unar á bensíni á heimsmarkaði hafi Skeljungur verið búinn að ákveða lækkun útsöluverðs fyrir mánaða- mótin. Vegna óróa á heimsmarkaði í lok vikunnar var ákveðið að bíða með verðbreytinguna til mánudags. Kristinn sagði að Bandaríkjadalur hefði hækkað um 1,30 kr. um helg- ina, farið í 64,60 kr. og væri nú um 65 kr. Það, ásamt hækkun heims- markaðsverðs á bensíni, hefði eytt svigrúmi til verðlækkunar. Sagði Kristinn að forsendurnar væru alltaf í skoðun og myndi verð- ið lækka um leið og skilyrði sköpuð- ust til þess. Loðnuskip að veiðum 4 febrúar 1993 Að auki var eitt skip statt norður við Langanes og 7 skip voru stodd í höfn. Síðu- j grunnj |_ Skníðsgrunn Hralbaks- J grunn / Papa- N / . grunn Löndunarbið er á Austfjörðum MIKIL loðnuveiði hefur verið við Austurland og hafa um 50 þúsund tonn af loðnu borist á land. Um 30 bátar hafa verið á miðunum og lönduðu flestir á Austfjarðahöfnum. Sex bátar lönduðu í Vesmannaeyj- um. Fyrsta loðnan barst á land á Höfn í Hornafirði í gær og Höfrungur AK landaði á Akranesi. Að sögn Hákons Magnússonar skipstjóra á Húnaröst RE var loðnan þétt og veiðin best nokkrar mílur suður af Hornafirði í gær. Útlit væri fyrir góða loðnuveiði en spáð var versnandi veðri á miðunum í dag. Hákon sagði að nú væri löndun- arbið á Austfjarðahöfnum og færu bátar að landa á höfnum norðan- lands ef veiðin héldist. Verðið 3.600 til 4 þúsund kr. Sex bátar lönduðu í Vestmanna- eyjum í gær. Jón Finnsson RE land- aði rúmlega 1.000 tonnum og sagði Guðlaugur Jónsson skipstjóri að sigl- ingin hefði tekið um 15 tíma. „Það var hvöss vestanátt á móti mest af leiðinni og mikill sjór. Við fengum 4 þúsund krónur fyrir tonnið í Vest- mannaeyjum en þeir hafa verið að fá 3.600 til 3.800 krónur fyrir tonn- ið á Austfjarðahöfnum," sagði Guð- laugur. Hann sagði að loðnusjómenn væru óhressir með verðið sem hefði verjð óbreytt undan undanfarin ár. Ófært hefur verið um Horna- fjarðarós að undanförnu þar til í gær en þá lönduðu Þórshamar GK og Húnaröst RE um 2.000 tonnum þar. Að sögn Bjöms Traustasonar verk- stóra hjá Oslandi hf. á Höfn hefst loðnubræðsla þar um helgina og er afkastageta verksmiðjunnar um 400 tonn á sólarhring. Kjaramálin rædd á for- mannafundi ASÍ í dag FUNDUR formanna verkalýðsfé- laga innan vébanda Alþýðusam- bands íslands verður haldinn í dag í Sóknarsalnum við Skipholt og hefst klukkan 13. Fundinn sækja formenn verka- lýðsfélaga alls staðar að af landinu og er honum ætlað að taka ákvarð- anir um næstu skref í kjaramálum, en langflest verkalýðsfélög hafa sagt upp kjarasamningum sínum og kjarasamningar annarra renna sitt skeið um næstu mánaðamöt. Ærbai' að Ósi í óveðrinu Bíldudal. í ÓVEÐRINU á mánudag bar ein ær á bænum Ósi og er það sú níunda frá jóladag síðastliðnum. Það er því líflegt í fjárhúsun- um á Ósi. Lömbin eru að nálg- ast annan tuginn. Þorbjöm Pétursson bóndi segist búast við að 10 ær eigi eftir að bera í vetur en það er talsvert minna en í fyrra, þá urðu þær 31 tals- ins. R. Schmidt KIRKJUHÚSIÐ ER í KIRKJUHVOU GEGNT DÓMKIRKJUNNI Fermingarvörur í úrvali - Fjölbreytt úrval gjafavöru og bóka Biblíur og sálmabækur með eða án gyllingar - Prentum á servíettur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.