Morgunblaðið - 05.02.1993, Page 28
Einingarfélagar tilbúnir til aðgerða
Á von á átök-
umframundan
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Flugvélin færð til
Kolbeinn Arason flugmaður hjá Flugfélagi Norður- upp og koma henni í flughæft ástand fyrir sumarið.
lands og Svanbjöm Sigurðsson rafveitustjóri Raf- Kolbeinn lét kuldann ekki á sig fá, en hann er sá
veitu Akureyrar keyptu saman flugvél sem skemmd- í ermastutta bolnum, og Svanbjöm er uppi á palli
ist í lendingu. Þeir'voru á dögunum að flytja hana vömbflsins, en bílstjórinn fylgist með framvindu
til, en veturinn ætla þeir að nota til að gera vélina mála.
SJÁLFSTJEÐISFLOKKURINN
i Dalvíkingar og nágrannarí
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Sæluhús-
inu sunnudaginn 7. febrúar nk. kl. 20.30.
Frummælendur verða varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra, og Tómas
Ingi Olrich, alþingismaður.
Almennar umræður og fyrirspurnir.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Starfsemi S AA kynnt
SAMTOK áhugafólks um áfengisvarnir, SÁÁ, tóku um síðustu áramót
við rekstri göngudeildar fyrir áfengissjúklinga sem Samtök áhugafólks
um áfengisvamir á Norðurlandi, SÁA-N á Akureyri, hafði áður með
höndum. SÁÁ og SÁÁ-N hafa löngum átt gott samstarf. Af faglegum
ástæðum var talið að það kæmi öllurn aðilum til góða að koma á þeirri
skipan mála að göngudeildin á Akureyri félli undir heildarstarfsemi
SÁÁ.
Til að kynna þessar breytingar
og ræða fleiri mál hefur fram-
kvæmdastjóm SÁÁ boðað til fundar
með félagsmönnum við Eyjafjörð í
kvöld, föstudagskvöldið 5. febrúar,
og hefst hann kl. 20.30 í Lóni við
Hrísalund.
Á fundinn koma Þórarinn Tyrf-
ingsson, formaður og yfirlæknir
SÁÁ, Davíð Kristjánsspn, formaður
Norðurlandsdeildar SÁÁ, Theodór
S._ Halldórsson, framkvæmdastjóri
SÁÁ, Georg Heide, ráðgjafi á
göngudeild SÁÁ á Akureyri, og Sig-
mundur Sigfússon,_ yfirlæknir og
stjómarmaður í SÁÁ, og fleiri.
Rætt verður um starfsemi sam-
takanna, meðferðarstarfið, Qármál,
starfsemi göngudeildarinnar á Akur-
eyri, starfsemi Norðurlandsdeildar
og Fjólunnar.
Atvinnulausum boðið að sjá Útlendinginn
Aldrei jafn mikið beðið
um afslátt á sýningar
ÞAÐ VAR stöðugur straumur í miðasölu Leikfélags Akureyrar í
gær, en félagið hefur boðið atvinnulausum Akureyringum að sjá
gamanleikinn Útlendinginn í kvöld, föstudagskvöld. Boðið var kynnt
í miðstöð fólks í atvinnuleit í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju síð-
degis á miðvikudag og í gær streymdi fólk í miðasöluna að tryggja
sér miða á sýninguna.
Signý Pálsdóttir leikhússtjóri
sagði að viðtökur hefðu verið mjög
góðar og greinilegt að fólkið kynni
vel að meta boðið. „Ef við fyllum
húsið í kvöld munum við sjálfsagt
framlengja boðið til næsta föstu-
dags,“ sagði Signý.
Auraleysi og ófærð
Hún sagði að kveikjan að því að
bjóða atvinnulausu fólki í leikhúsið
væri að þar eins og víða annars
staðar fyndu menn fyrir því að víða
væri þröngt í búi. „Við erum með
vinsæla sýningu, sem fengið hefur
góða dóma og hún hefði undir eðli-
legum kringumstæðum sjálfsagt
fengið metaðsókn. En það er tvennt
sem spilar þar inni í, við verðum
mikið vör við almennt auraleysi hjá
fólki og það hefur til dæmis aldrei
verið eins mikið um að fólk biðji
um afslátt á sýningar og nú og eins
er hitt að veður og færð hefur sett
sitt strik í reikninginn," sagði
Signý.
Fólk utan Akureyrar hefur jafn-
an verið duglegt að sækja leikhúsið
og sagði Signý að ófærð að undan-
fömu hefði komið í veg fyrir það.
Síðdegis á sunnudag verður sýning
á verkinu, en að sögn leikhússtjóra
hefur það mælst vel fyrir hjá utan-
bæjarfólki að þurfa ekki að vera á
ferðinni að kvöldlagi þegar veður
eru válynd svo sem verið hefur upp
á síðkastið.
Sýningum fer fækkandi á Út-
lendingnum, næsta sýning leikfé-
lagsins, óperettan Leðurblakan, er
mjög viðamikil og því þarf að taka
leikmynd Útlendingsins niður til að
rýma fyrir óperettunni. Signý bjóst
við að gamanleikurinn yrði sýndur
út febrúarmánuð.
♦ ♦ ♦
Hádegistónleikar
Björn Steinar Sólbergsson organ-
isti Akureyrarkirkju flytur verk eft-
ir Bach og Jón Nordal á hádegistón-
leikum í Akureyrarkirkju kl. 12 á
morgun, laugardaginn 6. febrúar.
Eftir tónleikana verður boðið upp á
léttan hádegisverð í safnaðarheimili
Akureyrarkirkju. Allir eru velkomn-
ir og aðgangur er ókeypis.
(Fréttatilkynning)
- segir Björn Snæbjörnsson formaður Einingar
„FÓLK er tibúið í aðgerðir ef þörf er á, það kom skýrt fram á
fundunum," sagði Björn Snæbjörnsson formaður Verkalýðsfélagsins
Einingar, en á síðustu dögum hafa verið haldnir fundir i öllum
deildum félagsins, á Grenivík, í Hrísey, Dalvík, Ólafsfirði og síðast
á Akureyri á miðvikudagskvöld. Björn á von á átökum framundan.
Ljósmynd/-ÞH
Sparisjóður ör-
látur á tölvur
Á RÚMU ÁRI hefur Sparisjóður
Svarfdæla gefið grunnskóladeild
Dalvíkurskóla 9 tölvur, sjávarút-
vegsdeild skólans 8 stykki auk
geislaspilara og Húsabakkaskóli í
Svarfaðardal fékk tvær tölvur síð-
asta haust. Friðrik Friðriksson
sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Svarf-
dæla afhenti svo í vikunni Héraðss-
skjalasafni Svarfdæla tölvu í byijun
vikunnar, en skömmu áður hafði
Bókasafni Dalvíkur verið gefin slík
tölva ásamt hugbúnaði. í Dalvíkur-
skóia hefur nú verið komið upp
sérstakri tölvustofu. Þá eru tölvur
inni í öllum stofun 1. til 7. bekkjar
skólans og er byijað að kenna böm-
unum á þær strax við sex ára ald-
ur. Á myndinni eru Friðrik Friðriks-
son sparisjóðsstjóri og Þórunn
Bergsdóttir skólastjóri.
Bjöm sagði að mæting á fundina
hefði verið betri en áður og það
segði sér að fólk léti sig þessi mál
meira skipta nú og vildi hafa áhrif.
„Fólk er reitt, það er búið að leggja
á það miklar álögur og á fundunum
fannst mér koma fram mikill vilji
til samstöðu um víðtækt samstarf
við gerð kjarasamninga. Fólk vill
leggja upp með fáar, skýrar kröfur
og að aðdragandi að samningum
yrði mjög stuttur," sagði Bjöm.
Hann sagði að Einingarfélagar
vildu leggja áherslu á að ná til baka
þeirri kjaraskerðingu sem það hefði
orðið fyrir og eins vildu menn að
áhersla yrði lögð á að bæta kjör
þeirra sem lægstu launin hafa.
Átök framundan
Bjöm sagði að stefnan yrði mörk-
uð á formannafundi Alþýðusam-
bands íslands sem haldinn verður í
dag, föstudag, og síðan yrðu menn
að hella sér út í viðræður. „Menn
vilja að þetta dragist ekki og það
má eiga von á stuttum og snörpum
samningaviðræðum. Það er talað
um að nota febrúar í þetta, þannig
að ljóst verði einhvem tíma í byrjun
mars hvemig fer,“ sagði Bjöm.
Á fundum Einingarfélaga í Eyja-
firði kom fram, að sögn formanns-
ins, vilji fólksins til aðgerða finnist
ekki aðrar leiðir og sjálfur átti hann
von á átökum framundan. „Ég hef
trú á að til átaka komi, mér þykir
ósennilegt að okkar viðsemjendur
samþykki þær kröfur sem verka-
lýðshreyfingin kemur til með að
leggja fram þegjandi og hljóðalaust."
Kammerhljóm-
sveit Akureyrar
Nýttís-
lenskt verk
frumfhitt
Kammerhljómsveit Akur-
eyrar leikur íslenska og
skoska tónlist á tónleikum í
Glerárkirkju á sunnudag, 7.
febrúar og hefjast þeir kl. 17.
Þessir tónleikar eru þáttur í
Myrkum músíkdögum, tónlist-
arhátíð sem haldin hefur verið
um þetta leyti frá 1980.
Hátíðin er nú stærri en nokkru
sinni fyrr og flutt tónlist frá 6
löndum á 18 tónleikum. Þetta
eru fyrstu tónleikar á Myrkum
músíkdögum sem haldnir eru
utan Reykjavikur.
Brekkugata
Frumflutt verður á tónleikun-
um nýtt íslenskt verk eftir Atla
Ingólfsson og heitir það Brekku-
gata. Atli samdi verkið fyrir
Kammerhljómsveit Akureyrar í
Bologna á Ítalíu þar sem hann
starfar nú að tónsmíðum. Verkið
hefur Atli tileinkað Guðmundi
Óla Gunnarssyni, aðalhljóm-
sveitarstjóra Kammerhljóm-
sveitarinnar og stjómanda á
þessum tónleikum.
Aðgöngumiðasala fer fram
við inngang Glerárkirkju og
hefst einni klukkustund fyrir
tónleikana.