Morgunblaðið - 05.02.1993, Blaðsíða 29
Forráðamenn Hexa hf,
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1993
29
(
í
I
J
I
I
J
I
I
I
'ú
I
9
9
Ekki um undirboð að ræða
Forsvarsmenn Hexa hf. vísa á bug ásökunum um að fyrirtækið hafi
stundað undirboð við útboð á einkennisyfirhafnir fyrir íslenska lög-
reglumenn. Hexa hyggst framleiða einkennisyfirhafnirnar í Lettlandi
ef Innkaupastofnun ríkisins tekur
Framkvæmdarstjóri Sólar hf., sem
bauð í sama verkefni, sakaði Hexa
um undirboð í viðtali við Morgunblað-
ið í vikunni. Jóhann Christiansen,
stjómarformaður Hexa, sagði að það
væri mótsögn að á sama tíma og
íslensk stjómvöld gæfu út viljayfir-
lýsingu um viðskipti við Lettland,
væri talað um óeðlilega viðskipta-
hætti þegar íslenskt fyrirtæki ætti í
viðskiptum við þarlent fyrirtæki.
„Það verður ekkert öðmvísi á ís-
landi en í nágrannalöndum okkar.
Þessi framleiðsla er að flytjast yfír
á svæði þar sem em lægri laun.
Svíar gengu í gegnum þessa þróun
fyrir 10 ámm síðan,“ sagði Jóhann.
Hann benti á að viðskiptaaðili Hexa
í Svíþjóð, Fristads, hefði verið með
10 verksmiðjur þar í landi en væm
nú með þijár. Aðrar verksmiðjur
tilboði þess.
hefðu verið fluttar á svæði þar sem
væri hagkvæmara að reka þær. „Það
er geysilegur munur á framleiðslu-
kostnaði hér og þeim verðum sem
nágrannaþjóðir okkar ern að bjóða.
Aðalmeinið er verðlag á íslandi, það
þarf að lækka" sagði Jóhann.
Ekki undirboð
„Við emm sakaðir um undirboð.
Viðmiðunin er norsk og sænsk lögre-
gluföt," sagði Jóhann. Hann sagði
að rangur jakki hefði verið notaður
af Félagi íslenskra iðnrekanda í þess-
um samanburði og tölur verið rang-
túlkaðar. Félagið hefði sagt sam-
bærilegan jakka fyrir sænsku lög-
regluna kosta 12.300 íslenskar krón-
ur. En réttur útreikningur gæfi um
kr. 9.900. Einnig benti Jóhann á að
samkvæmt Innkaupadeild sænsku
Morgunblaðið/Sverrir
Einkennisfatnaður lögreglu
Árni Arnarsson í Hexa-jakka og Jóhannn Christiansen í þeirri gerð lög-
reglujakka sem nú er notuð.
lögreglunar væm t.d. jakkar fyrir
sænska lögreglumenn framleiddir í
Portúgal og innfluttir af norskum
aðila.
Hönnun og gæði
Að sögn Jóhanns ásakaði fram-
kvæmdarstjóri Max hf., Sævar Krist-
insson, Hexa í fjölmiðlum um að
stæla hönnun Max, og réttlæti jafn-
framt verð Max á mittisjökkunum á
þeirri forsendu að hönnunarkostnað-
ur væri innifalinn í því. Jóhann sagði
að í máli Sævars hefði komið fram
að ef þessi kostnaður væri dreginn
frá færi verð Max þó nokkuð niður
fyrir 10.000 krónur. „Þetta er svipað
verð og við bjóðum að viðbættum
kostnaði vegna einkenna. Hexa bíður
væntanlegum kaupendum valkosti í
sniðum og efnum allt eftir óskum
hvers og eins án áhrifa á verð“ sagði
Jóhann. Að sögn Jóhanns mælir Fri-
stads með breytingum á sniði og
efni til þess að ná fram meiri gæð-
um. Jóhann vísaði því á bug að gæði
efnisins sem Hexa notar væri lé-
legra. Hann sagði að það væri fram-
leitt af sama efnaframleiðanda og
efnið sem notað væri í lögregluyfir-
hafnir nú.
Vinna úr landi
Að sögn Áma Amarssonar, fram-
kvæmdarstjóra Hexa, er sú vinna
sem flyst úr landi 1-2 ársstörf. „Max
hf. flytur inn einkennisfatnað fyrir
Slökkviliðið í Reykjavík frá Dan-
mörku. Þetta fyrirtæki lætur hvað
verst um það að við séum að flytja
út vinnu. Þetta er eitt þeirra fyrir-
tækja sem er báðum megin við borð-
ið. Við höfum enga saumastofu að
fela okkur bak við,“ sagði Ámi.
Hann sagði að á móti þessum störf-
um sem fara úr landi kæmi að mis-
munur á tilboðum ætti að vera búbót
fyrir lögregluna.
Borgarblómið - blómaþjónusta
Þáttaskil urðu um mánaðamótin hjá Borgarblóminu. Starfsvettvangur-
inn verður nú eingöngu á sviði blómaþjónustu við fyrirtæki, stofnanir
og heimili, allt frá sölu og faglegri ráðgjöf til skipulags innan heimila
og fyrirtækja ásamt umönnun og eftirliti. Annar þáttur blómaþjón-
ustunnar er fólgin í hönnun og uppsetningu blómahoma eða blómalands-
lags. Um leið hættir starfsemin í Skipholtinu. Heimilisfang Borgarblóms-
ins flyst nú til Sigríðar Ingólfsdóttur, Amarhóli í Kollafirði.
Upplýsingasími hjá
Migrenisamtökunum
TALIÐ er að allt að 20.000 íslendingar þjáist eða hafi þjáðst af mí-
greni. Mígreni einkennist fyrst og fremst af áköfum hðfuðverk sem
kemur í köstum, oftast öðrum megin í höfði, samfara ógleði. Tíðni
mígrenikasta er mjög mismunandi, allt frá þremur köstum í viku niður
í tvö ár. Þessar upplýsingar koma fram í fréttatilkynningu frá Migreni-
samtökunum.
Engar rannsóknir hafa verið gerð-
ar hérlendis á tíðni mígrenikasta en
ef miðað er við danskar rannsóknir
hafa þær leitt í ljós að 16% fólks á
aldrinum 25-65 ára hafa fengið mí-
greniköst (8% karla og 25% kvenna).
I dönskum og sænskum rannsóknum
kemur fram að sjúklingar missa
verulega úr vinnu vegna sjúkdóms-
ins. Ef niðurstöðutölur úr sænskum
rannsóknum eru miðaðar við fólks-
fjöldann á íslandi yrði Qárhagslegt
tjón af völdum mígrenis 84 miHjónir
króna á ári. Þar af eru rúmlega 6
milljónir króna vegna læknismeð-
ferðar sjúkrahúsakostnaðar en af-
gangurinn vegna fjarveru frá vinnu
og framleiðnitaps vegna minnkaðrar
afkastagetu. Margir mígrenisjúkl-
ingar lifa vart eðlilegu lífí og eru
sífellt áhyggjufullir vegna mígreni-
kasta.
Mígrenisamtökin veita fólki upp-
lýsingar um mígreni á virkum dögum
á næstunni. Fólki gefst kostur á að
hringja í síma 642680 milli kl. 20-23.
Doktor í vistfræði
GUÐMUNDUR Alfred Guðmunds-
son varði hinn 2. október sl. dokt-
orsritgerð við háskólann í Lundi
í Svíþjóð er hann nefndi: „Flight
and migration strategies of birds
at polar iatitudes".
Ritgerðin fjallar um farhætti og
flug hánorrænna fugla, einkum á
heimskautasvæðum, sem hafa við-
dvöl á íslandi að vorlagi á leið sinni
milli vetrarstöðva í Vestur-Evrópu
og varpstöðva á Grænlandi og í
Kanada og samanburður var gerður
við ferðir farfugla yfir Svíþjóð sunn-
anverða. Með ratsjá og sérstakri
kvikmyndatækni mátti fylgjast með
ferðum fuglanna langar leiðir. Rann-
sóknimar beindust einkum að þrem-
ur tegundum vaðfugla, rauðbryst-
ingi, sanderlu og tildru auk mar-
gæsa. Margvíslegir þættir í vistfræði
þessara tegunda voru kannaðir, s.s.
fjöldi, dreifíng, búsvæðaval, fæðuval,
orkubúskapur, flughæfni og áttum.
Lega íslands hvað þetta farkerfi
varðar er gífurlega mikilvæg og
væri þessi farleið milli Evrópu og
Kanada tæpast til staðar nyti íslands
ekki við, sem viðkomustaðar. Til að
leita svara við því með hvaða hætti
fuglarnir halda áttum notaði Guð-
mundur nýja tækni en hún er fólgin
í notkun lítilla senditækja sem fest
voru á fuglana og þau síðan staðsett
af mikilli nákvæmni og með stuttu
millibili með aðstoð gervitungla. Á
þennan hátt má kortleggja í smáatr-
iðum ferðir einstakra fugla og eru
vonir bundnar við að með þessum
hætti megi fá lausn á ráðgátunni
miklu, hvemig fuglamir rata. Þessar
rannsóknir voru unnar í samstarfí
við sænska og ítalska vísindamenn.
Leiðbeinandi Guðmundar við dokt-
orsverkefnið og rannsóknarstörf var
Thomas Alerstam dósent og andmæ-
landi við doktotsvörnina prófessor
Rudi Drent frá háskólanum í Gron-
ingen í Hollandi.
Guðmundur hefur birt einn eða
ásamt öðmm 25 ritgerðir í erlendum
og innlendum vísindaritum, þar af
eru 9 ritgerðanna hluti af doktorsri-
gerðinni.
Guðmundur er fæddur 29. ágúst
1961 í Revkiavík. Hann tók stúdents-
Dr. Guðmundur Alfred Guð-
mundsson.
próf við Menntaskólann í Hamrahlíð
í maí 1980 og lauk B.Sc. prófí í líf-
fræði frá Háskóla íslands í janúar
1982. hann var við nám í almennri
vistfræði við háskólann í Durham,
Englandi, 1983-1984 og lauk þar
M.Sc. prófi.
Sumrin 1982 og 1983 vann hann
við rannsóknarstörf á líffræðistofnun
Háskóla Islands og í tvö ár sem sér-
fræðingur við fuglarannsóknir á veg-
um sömu stofnunar.
Frá september 1986 til ágúst 1992
var hann í doktorsnámi við dýravist-
fræðideild háskólans í Lundi, Svíþjóð
(Zooekologiska avdelingen, Lunds
Universitet). Á því tímabili var hann
í flögur ár í launaðri stöðu doktors-
nema (doktorrandtjánst), sem fjár-
mögnuð var af sænska vísindaráðinu
(Naturvetenskapiga Forskningsrád-
et). Hann er nú við störf á Náttúru-
fræðistofnun íslands.
Guðmundur er sonur hjónanna
Sigrid Kristinsson bókasafnsfræð-
ings og Guðmundar Kr. Kristinsson-
ar arkitekts. Eiginkona hans er dokt-
or Sólveig Grétarsdóttir sameinda-
erfðafræðingur og eiga þau tvö börn,
tvíburana Jóhönnu Fríðu og Grétar
Öm.
*
X fógetatíð Skúla Magnússonar voru oft
haldnar hinar veglegustu veislur og var þá
vel veitt
Hjá Fógetanum í Reykjavík í Aðal-
stræti 10, fógnum við Þorra með veglegu
Þorrahlaðborði firá kl. 18.00 öll kvöld
meðan á Þorra stendur.
og ólíkt íslensku réttarkerfi er allt afgreitt
samstundis.
Lifandi og þjóðleg tónlist er leikin öll kvöld.
GJÖRT í AÐALSTRÆTI10
Málskostnaður léttir vart pyngju svo
nokkru nemi, aðeins 1.900 kr. pr. mann
Sími 16323