Morgunblaðið - 05.02.1993, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 05.02.1993, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1993 33 haustdögum að það virtist sem þau hjónin hefðu bæði misst þróttinn eftir það mikla áfall sem dóttur- missirinn var þeim og þau lögðust má segja út af og gáfust upp. Kristján fæddist á Stýrimanna- stíg 7, ólst þar upp og bjó alla ævi, og þaðan verður hann til mold- ar borinn í dag. Hann lauk gagn- fræðaprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og stundaði þar fram- haldsnám í einn vetur. Hann hætti þar frekara námi og fór á sjóinn og fannst það nánast skylda sín til þess að létta undir með einstæðri móður sinni og bammörgu heimili. Hann tók meira fiskimannapróf frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1933. Hann byrjaði til sjós á bv. Maí 1927; síðar á bv. Skallagrími og Gylli. A árunum 1934-1944 var hann stýrimaður og nótabassi á ms. Eldborgu, þá skipstjóri á ms. Hafborgu frá Borgamesi og bv. Ólafi Jóhannessyni frá Patreksfirði og síðast á bv. Aski. Eftir að hann kom í land starfaði hann hjá Áburð- arverksmiðju ríkisins 1956-1980 sem fastur starfsmaður og í ein tvö, þijú ár í afleysingum. Eiginkona Kristjáns var Nanna Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 11. janúar 1912 í Stykkishólmi. Hún var dóttir Guðmundar Jónssonar, framkvæmdastjóra frá Narfeyri, og Guðrúnar Einarsdóttur húsmóður. Böm Kristjáns og Nönnu em: Guðrún f. 20. maí 1939, læknir á Þórshöfn á Langanesi, gift og á eitt bam; Jóhanna, f. 3. janúar 1941, flugfreyja, var gift og á eitt barn; Ásta, f. 20. mars 1944, d. 3. ágúst 1992, var gift og lætur eftir sig fjögur böm; Elísabet, f. 2. júlí 1945, húsmóðir, gift og á þijú böm; og Pétur, f. 9. júní 1948, tæknifræðingur, kvæntur og á þijú böm. Alsystir Kristjáns var Ásta, f. 1. desember 1906, húsmóðir, látin, gift Bimi Ólafssyni, forstjóra og fv. ráð- herra, og áttu þau fjögur böm. Hálfsystkini Kristjáns, sam- mæðra: Bjarni, f. 19. maí 1899, nú látinn, skipstjóri í Kanada, kvæntur kanadískri konu og lætur eftir sig þijú böm á lífi; Anna, húsmóðir, f. 17. júlí 1900, nú látin og átti hún tvö böm; og Markús Finnbogi, tón- skáld, f. 15. júlí 1902, nú látinn. Faðir þeirra var Kristján Bjamason skipstjóri. Foreldrar Kristjáns vora Pétur Mikael Sigurðsson, skipstjóri á skútunni Valtý, f. 29. september 1875, fórst 1920, og Jóhanna Gestsdóttir, húsmóðir, f. 16. nóvem- ber 1865. Þau bjuggu allan sinn búskap á Stýrimannastíg 7 og Jó- hanna til æviloka. Valgarður Sigurðsson. Haukur Bent Guð- jónsson - Minning Fæddur 5. janúar 1920 Dáinn 28. janúar 1993 í dag verður borinn til hinstu hvfldar tengdafaðir minn, Haukur B. Guðjónsson vélsmiður. Það er margs að minnast og margar góð- ar samverastundir að þakka nú þegar hann hefur kvatt þennan heim. Það var ekki erfitt að kynnast Hauki. Þar fór alþýðulistamaður sem leit tilveruna björtum augum, var alltaf jákvæður og hafði ánægju af öðru fólki. Hann tók mér fagnandi í fjölskylduna af þeirri hlýju og mannelsku sem ein- kenndi hann. Eftir að kynnin urðu nánari og heimsóknirnar í Glæsibæinn fleiri komst ég að því hve mikill náttúruunnandi og veiðimaður Haukur var. Útivist og þá ekki síst veiðiferðir voru hans stóra áhugamál. Þau kynni áttu eftir að hafa sterk áhrif á mig. Haukur var einn af þessum sönnu veiðimönnum. Veiði- mennska hans átti ekkert skylt við nýmóðis sportveiðimennsku þar sem tryllt er út í náttúruna með öflug skotvopn. Hans veiði- mennska átti sér miklu dýpri ræt- ur, hún var samofin náttúrunni sjálfri. Hann kynntist veiði- mennsku þegar hann var að alast upp og veiðiferðirnar höfðu þann tilgang að veiða sér til matar. Það var á þeim árum þegar þröngt gat verið í búi og ekki alltaf til matur handa heimilisfólkinu. Þannig hafði hann annan skilning á nátt- úrunni og gjöfum hennar en al- mennt gerist í dag því að veiðiferð- irnar voru ekki síður farnar til þess að njóta náttúrannar, kyrrð- arinnar, fegurðarinnar. Frásagn- irnar af gæsunum í morgunfluginu eða visku ijúpunnar til að sjá við veiðimönnunum bára þess vitni. Æskustöðvar eiginkonu hans og lífsförunautar, Svanborgar Jónsdóttur frá Víðivöllum í Stað- ardal, buðu upp á allar náttúrunn- ar lystisemdir. Þessi heimkynni hennar urðu með tímanum hans. Hann gekk ekki aðeins náttúrunni á hönd heldur einnig fólkinu. Haukur hafði einlægan áhuga á öðru fólki og högum þess og margan greiðann hefur hann gert manni í gegnum tíðina. Listaverka verður ekki aðeins notið í stórum sýningarsölum. Haukur átti því láni að fagna að vinna með Ás- mundi Sveinssyni að því að stækka upp og vinna listaverk hans í járn. Þannig fékk hann innsýn inn heim forma og lista. Það átti eftir að verða Hauki til mikillar ánægju í gegnum lífið að njóta listaverka, ekki síst málverka, enda var varla sú myndlistarsýning í borginni sem hann heimsótti ekki. Það .var aldrei neinn vafi í mín- um huga þegar ungur drengur bættist í fjölskylduna fyrir rúmum 10 árum að þar væri kominn nafni Hauks. Það var heldur ekki svo lítils virði fyrir ungan dreng að vaxa úr grasi og fara með afa Hauki að skoða fugla eða í fjöru- ferðir. Þegar sá stutti gat farið að halda á priki tók afi hann með að veiða. Það var ekki hægt að hugsa sér betri leiðsögn. Alveg eins og afi kenndi nafna sínum að þekkja fugla, þekkti afi hvern hyl í ánni og hann þekkti líka at- ferli fiskanna. Hann kenndi honum að þekkja hvenær fiskurinn væri nýgenginn, hvemær hann vildi taka og hvenær ekki, hvernig fiugu átti að nota og tæknina við að kasta. Haukur afí var aldrei sælli en eftir að hafa staðið úti og barið Bæjarfljótið allan daginn. Það var aldrei nein spurning um hvort afi hefði veitt eitthvað, ef það var bara einn fískur í ánni, þá veiddi afi hann. Þannig skilaði afi Haukur þekk- ingu sinni og reynslu til nýrrar kynslóðar, þekkingu sem var byggð á ást og virðingu á náttúr- unni. Sýn á náttúruna sem var laus við græðgi. Það væri betur komið fyrir náttúrunni að afi Haukur hefði haft valdameiri áheyrendur en lítinn nafna sinn. Ahugi afa Hauks á dýralífinu náði langt út fyrir veiðibráðina. Þegar álftapar hafði komið sér upp hreiðri í Elliðaánum fylgdist afí Haukur með því sumarlangt, fyrst úr fjarska en komst nær og nær. Þau verða ógleymanleg sumar- kvöldin fyrir nafna hans þegar afí tók hann með sér að líta eftir álfta- parinu og ungunum. Afi Haukur þurfti síðan ekki annað en kalla til þeirra, þá komu þær á móti honum. Var það nema furða að Guðmundur Sívert- sen - Minning Fæddur 21. febrúar 1919 Dáinn 14. október 1992 Móðurbróður minn, Guðmundur Sívertsen, andaðist að heimili sínu í Seattle um miðjan október síðast- liðinn, 73 ára að aldri. Eftir að hann fluttist til Seattle fyrir um það bil 6 áram hringdi hann oft til mín í New York og við ræddum um lífið og tilverana og ýmis sameiginleg áhugamál, en síð- ustu árin las hann mjög mikið af góðum bókmenntum og var mikill áhugamaður um sígilda tónlist. Hann kvæntist aldrei og var barn- laus og hefur sjálfsagt kennt nokk- urs einmanaleika síðustu árin. Undanfarna mánuði hafði Guð- mundur minnst á að heilsunni hefði hrakað, og var hann að ráðgerða að flytjast heim til íslands. Fyrst vildi hann þó selja íbúð sína í Se- attle. Síðast þegar hann hringdi til móður minnar í byijun október, sagði hann að hann myndi hringja innan fárra daga og staðfesta komudag til íslands. Ur því varð þó ekki, því hann varð bráðkvaddur heima hjá sér. Hafði hann þá feng- ið hjartaáfall og látist samstundis. Æviferill Guðmundar var að ýmsu leyti óvenjulegur og á köflum dálítið ævintýralegur. Hann fæddist 21. febrúar árið 1919 í Reykjavík, sonur hjónanna Jóns Sívertsen, fyrrverandi skólastjóra Verslunar- skólans og Hildar Helgadóttur Zoega. Hugur hans beindist snemma til sjómennsku og aðeins 15 ára gamall var hann skráður á varðskipið Ægi, og var þar meira og minna næstu 8 árin. Árið 1943 útskrifaðist hann úr farmannadeild Stýrimannaskólans og var síðan i siglingum síðustu ár stríðsins á enskum og norskum skipum, milli Englands, Noregs og Bandaríkj- anna. Í Bandaríkjunum fór hann í skóla Pan American Navigation Service í Hollywood og lauk þar prófí í flugsiglingafræðum með ágætum árangri. I stríðslok skipti hann um skip í Venezuela og sigldi síðan sem stýrimaður á ýmsum skipum um Kyrrahafið, meðal ann- ars til Filippseyja og Kína og árið 1947 réð hann sig í Shanghai í eitt ár sem stýrimann á varðskip ríkis- stjómar Chiang-kai-shek. Að því loknu kom hann heim á ýmsum skipum langa leið um Indland, Sri Lanka (þá Ceylon), Afríku, Suez og ýmsar evrópskar borgir. Hafði það þá tekið hann fjögur ár, með ýmsum krókaleiðum, að fara í kringum hnöttinn. Á fyrstu dögum Loftleiða vann hann um tíma hjá félaginu og var meðal annars einn af áhöfninni á flugvélinni Geysi, sem nauðlenti á Vatnajökli í hinu eftirminnilega Geysisslysi árið 1949. Þá ferð fór hann í forföllum fyrir annan mann. Hafði hann þá þegar ákveðið að snúa aftur til Bandaríkjanna, en fór nafni spurði afa sinn hvort hann talaði álftamál, þegar hópurinn var farinn að elta þá heim? Já, það voru fleiri en unginn minn sem hændust að afa Hauki. Það var gaman að hlusta á Hauk segja sögur af mörgum kyn- legum kvistum sem hann hafði kynnst í gegnum tíðina og oft var búið að gefa þeim skondið viður- nefni. En það var ekki síður skemmtilegt að fylgjast með Hauki þegar honum var sögð góð veiðisaga. Innlifun hans í frásögn- ina var svo einlæg, vonbrigðin mikil yfír þeim stóra sem slapp eða ánægjan yfír góðum feng. Það fór ekki á milli mála að það sem kom næst á eftir góðri veiðiferð var góð veiðisaga. Þannig hafði Haukur líka mikla ánægju af bók- um og sérstaklega var það ein bók sem hann hafði mikið dálæti á og skildi aldrei við sig, en það var bók Stefán Jónssonar, „Lífsgleði á tréfæti með byssu og stöng“. Haukur B. Guðjónsson hefur farið í sína síðustu ferð. Hans er sárt saknað af fjölskyldu, ættingj- um og vinum. Hann skilur eftir sig stórt skarð sem við munum reyna að fylla með öllum þeim góðu minningum sem hann skildi eftir. Svanborg mín, þinn söknuð- ur er mikill. Ég bið góðan Guð að gefa þér styrk. Hvfli Haukur B. Guðjónsson í friði. Helga Thorberg. Það fyrsta sem kemur upp í huga minn þegar ég hugsa um afa er hversu glaður og hlýr hann þessa ferð til þess að ljúka ýmsum greiðslum áður en hann færi. Fljótlega eftir slysið fór Guð- mundur til Bandaríkjanna og gerð- ist bandarískur ríkisborgari. Árið 1954 útskrifaðist hann úr fram- haldsnámi í flugsiglingafræðum og skyldum fögum frá California Air College í Hollywood og tók þá einn- ig námskeið til að öðlast bandarísk réttindi sem stýrimaður og skip- stjóri á stóram hafskipum. Hann vann eftir það í millilandasiglingum hjá ýmsum skipafélögum í Banda- ríkjunum. Eftirlifandi systkini Guðmundar era Marteinn Sívertsen og Katrín Sívertsen, en eldri systir hans Geir- þrúður Hildur Bernhöft lést fyrir nokkrum árum. Dauðsfall hans djúpt ristir, en minningin um Guðmund mun giöggt geymast. Ég óska honum í æðri heimum ástar og friðar. Megirðu vinur í öðrum veröldum eiga vitund bjarta, þess óskar þín vinkona og frænka af öllu hjarta. Útför Guðmundar fer fram frá Fossvogskapellu í dag kl. 15. Björg Jakobsdóttir. alltaf var við alla. Það sem ein- kenndi hann var sú ró og þetta umburðarlyndi sem hann auðsýndi öllum. Allir fengu að vera til á sínum eigin forsendum, án nokk- urra fordóma af hans hálfu. Hann lifði í sátt við sjálfan sig og sitt líf og tók aldrei þátt í þessu lífs- gæðakapphlaupi sem einkennir okkar tíma. Hann reyndi aldrei að keppa við neinn, og ef einhver gerði eitthvað á hans hlut, þá gerði hann í mesta lagi góðlátlegt grín að _því. Otal minningar koma upp í hug- ann þegar ég hugsa um afa, eins og t.d. um álftahjónin. í mörg ár rölti hann niður að Elliðaám og gaf sömu álftahjónunum og ung- um þeirra brauð að borða. Og í þakklætisskyni fylgdu þau honum oft heim að húsi og kvökuðu til hans í kveðjuskyni. Afí var mikill matmaður, eldaði oft sjálfur og var enginn réttur fullgerður að hans mati nema góð og mikil sósa fylgdi með. Það lýsir bæði lífsorku hans og mataráhuga að aðeins fáum dögum fyrir andlátið, var hann í undirbúningi að matargerð, þótt þá væri mjög af honum dreg- ið. Ég man eftir afa við ótal tæki- færi, ævinlega sem hrók alls fagn- aðar. Frásagnargáfan var honum í blóð borin, hann hafði frá svo mörgu að segja á viðburðaríkri ævi. Og voru veiðisögumar þar fremstar í flokki. Ég og systkini mín, Daníel og Inga, munum ætíð geyma allar góðu minningarnar um afa í hjört- um okkar. Við munum ávallt minnast hans með gleði og þakk- læti fyrir að hafa átt hann að. Að lokum langar mig að minn- ast þess að í hvert sinn er ég kom í heimsókn til afa og ömmu, heils- aði hann mér með sömu kveðj- unni. „Ertu komin, ertu komin til afa elskan mín.“ Nú heyri ég ekki kveðju hans framar, en ég vil trúa því að einhvemtímann seinna munum við hittast á ný og þá heilsi hann mér með þessum orð- um. Þórdís Rúnarsdóttir. VINKLAR Á TRÉ HVERGI LÆGRI VERÐ ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR OG KAMBSAUMUR ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI <c8 Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0 Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 Sérfræðingar ■ blúinaskreylingtim viú öll takkilæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími19090

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.