Morgunblaðið - 05.02.1993, Síða 37

Morgunblaðið - 05.02.1993, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1993 37 Minning Unnur Þórðardótt- irfrá VíkíMýrdal Fædd 1. mars 1926 Dáin 7. janúar 1993 Með þessum fáu línum langar mig til að minnast móðursystur minnar, Unnar Þórðardóttur, sem lést eftir skamma sjúkdómslegu 7. janúar sl. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að hennar eigin ósk. Unnur fæddist 1. mars 1926 í Vík í Mýrdal, dóttir hjónanna Ingi- bjargar Sigurðardóttur húsmóður og Þórðar Stefánssonar bókavarðar Héraðsbókasafnsins og verka- manns í Vík. Unnur var sú þriðja í hópi sjö systkina, sem öll lifa hana. Þau eru Vilborg Magnea (f. 1922), Jóna (f. 1923), Kristbjörg (f. 1928), Stefán Ármann (f. 1929), Sigríður Eygló (f. 1931) og Ólafur (f. 1937). Bemskuheimili Unnar var í raf- stöðvarhúsinu gamla við Víkurá, þar sem fjölskyldan bjó ásamt Kristínu móðurömmu Unnar, í sam- býli við þau heiðurshjón Þorbjörgu Guðmundsdóttur og Guðna Bjarna- son, þá stöðvarstjóra. Þegar Unnur var aðeins 11 ára varð fjölskyldan fýrir því áfalli að í rafstöðvarhúsinu kviknaði og það brann til kaldra kola. íbúar sluppu naumlega úr húsinu, að undanskilinni hinni öldnu móðurömmu, sem ekki náðist að bjarga í tæka tíð. Fjölskyldan setti á stofn nýtt heimili í gamla sýslumannsbústaðn- um fyrir neðan bakka, þar sem nú er Víkurbraut 18. Þar uxu börnin úr grasi og foreldrar Unnar bjuggu þar það sem eftir lifði ævi þeirra. Þar var tíðum gestkvæmt, enda vom þau heiðurshjón góð heim að sækja og gestrisin með eindæmum, þótt oft hafi verið þröngt í búi. Börnin hlutu gott uppeldi og systk- inin vom samheldin. Þau lærðu að snemma þarf að draga sér björg í bú og bjarga sér á eigin spýtur. Þannig var það með Unni. Aðeins Fædd 3. apríl 1896 Dáin 31. janúar 1993 í dag, föstudaginn 5. febrúar, verður frú Guðný Stefánsdóttir jarðsungin frá Grindavíkurkirkju. Hún lést 31. janúar á Hrafnistu í Reykjavík, en þar dvaldist hún síð- asta æviskeiðið. Guðný var fædd og uppalin á Stöðvarfirði hjá foreldrum sínum, Stefáni Björnssyni, bónda á Gmnd, og konu hans, Jóhönnu Þorvarðar- dóttur frá Núpi á Berufjarðar- strönd. Hún var yngst átta systkina. Stefán, faðir Guðnýjar, stundaði sjósókn með búskapnum, átti bát og réð til sín háseta. Einnig stund- aði hann smíðar og viðgerðir á bát- um. Jóhanna, móðir hennar, var einnig mjög dugleg og fyrirhyggju- söm. Börnin lærðu lestur heima og sóttu barnaskólann í þorpinu á Stöðvarfirði. Þegar þau uxu úr grasi voru þau vanin við að hjálpa til á heimilinu og vöndust því snemma hagnýtum störfum. Guðný var auk þess einn vetur við nám í hannyrð- um og saumaskap á Stöðvarfirði. Svo sem títt er um fólk sem á góða bernsku eiga æskustöðvar rík- an sess í minningunni. Þannig var einnig um Guðnýju. Hún ræddi oft um sumarfegurðina eystra, fengsæl fiskimið og fjörðinn sinn kæra. í hennar huga voru Austfirðir feg- urst byggða á landinu. En það tóku fleiri eftir þessum fengsælu fiskimiðum við Stöðvar- fjörð, þar á meðal Grindvíkingar. Einn þeirra, ívar Magnússon, réðst 16 ára fluttist hún til Reykjavíkur og starfaði fyrstu árin við fram- leiðslustörf og sitthvað fleira. í stríðslok hóf hún nám í tannsmíði hjá Viðari Péturssyni tannlækni. Samstarf þeirra Unnar og Viðars var einstakt. Það er skemmst frá því að segja, að Unnur starfaði nánast óslitið hjá honum í yfir 40 ár eða þar til Viðar lét af störfum. Eftir það hætti Unnur störfum, enda var þá farið að bera á atvinnu- sjúkdóm hennar, slitgigt í fingrum, og henni því ókleift að halda áfram. Unnur var ógift og barnlaus. Hún ræktaði samband sitt við foreldrana meðan þeirra naut við, dvaldist hjá þeim í Vík á sumrum og um hver jól og nánast hvenær sem hún gat því við komið. Hún var þeim mikil stoð og stytta, sem þau kunnu vel að meta. Unnur bjó lengstum við Austurbrún, og síðustu 12 árin að Austurbrún 2. Þar undi hún hag sínum vel í nábýli við góða granna. Síðustu vikurnar dró verulega úr líkamsþrótti Unnar vegna lungna- sjúkdóms, sem hún var komin með, og reyndist vera alvarlegri en nokk- ur bjóst við. Hún dvaldist til hinstu stundar í íbúð sinni í umönnun systkina og ástvina, og lést þar á afmælisdegi móður sinnar. Unnur var mér einstök frænka. Hún var tíður gestur á heimili for- eldra minna við Skólavörðustíginn þegar ég var að alast upp, kom oft í heimsókn á leið heim úr vinnu meðan Viðar hafði tannlæknastofu sína niðri í Hafnarstræti. Og ég man alveg sérstaklega eftir henni í barnaafmælunum, hún gaf sig að okkur börnunum og hafði unun af lífsgleði okkar og ég held uppátækj- unum líka. Mér fannst ég bindast henni'sérstökum böndum á þessum árum. Og ekki spillti það fyrir, að frá blautu barnsbeini var Viðar tannlæknirinn minn, sjálfsagt til Stefáns sem háseti, og tókust kynni með þeim Guðnýju sem leiddu til hjúskapar árið 1915. Þau eignuð- ust sex börn: Jóhönnu, Magnús, Stefaníu, Guðrúnu, Guðmund og Arnleifu. Fjögur þeirra eru á lífi, en Magnús lést 29 ára gamall og Guðrún 19 ára. Guðný og ívar bjuggu allan sinn búskap í Grinda- vík, lengst af í Görðum, en seinna í Steinaborg. ívar stundaði sjómennsku frá bernsku til efri ára. Hann lést árið 1962. Það tók Guðnýju tíma að venjast gróðursnauðu hrauni Suðurnesja, og það var eins og væri annar og mannskæðari sjór við ströndina í Grindavík en við Stöðvarfjörð, þótt hafið væri það sama. Auk stórrar fjölskyldu voru oft vertíðarmenn á heimilinu. Reyndi þá mikið á dugnað Guðnýjar sem ræktaði allt grænmeti til heimilisins og saumaði og pijónaði þann fatnað sem til þurfti. Kom sér þá vel sá góði undirbúningur sem hún hafði fengið á æskustöðvum. Bera út- saumaðar myndir hennar vott um fágaða listhneigð. Einnig var hún unnandi tónlistar og lék á harmon- ikku á yngri árum. ívar var söng- maður góður og fengu börn þeirra í arf þessa góðu eiginleika foreldr- anna. Það ríkti því gleði og söngur á heimilinu þegar stundir gáfust. Guðný tók virkan þátt í störfum kvenfélagsins í Grindavík og lýsti mörgum ferðum sínum með félags- konum á skemmtilegan hátt. Hún skýrði frá því á efri árum, að á langri ævi kæmi margt fram í hug- vegna Unnar, alveg þar til hann hætti störfum. Ég hitti Unni oft og við spjölluðum þá gjaman lengi saman bakatil á stofunni, þar sem hún hafði aðstöðu. Þegar ég var á síðasta námsári mínu í Verslunarskólanum kom Unnur mér sérstaklega til hjálpar og aðstoðar, einmitt þegar ég þurfti á því að halda. Ég þurfti varla að biðja hana, hjálpsemi hennar og trú á framtíð mína var slík. Við fyrsta tækifæri tókst mér að endurgjalda henni, en þó aldrei til fullnustu. Enda hvernig er hægt að endur- gjalda það þegar von, trú og kær- leika er blásið inn í líf manns á sérstöku augnabliki? Um jólahátíðina fékk ég senda frá Unni sérstaka kveðju til míns sem formanns Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík. Það var umslag með peningum í og kveðju um að þetta skyldi notast í fyrirhugað hádegis- starf Fríkirkjunnar fyrir þá sem eru hjálpar þurfí. Þetta hrærði mig, og ég hringdi í hana. Hún var hress í tali, en þótti leitt að hafa ekki get- að komið niður í Frikirkju nýlega vegna veikinda sinna. Við urðum ásátt um að hún léti sér batna fyrst. En svona var Unnur. Tilbúin að rétta hjálparhönd, hvenær sem færi gafst, og ævinlega bjartsýn og trú- ið á framtíðina. Hún tók á móti ann, en fyrst og fremst væru það þakkir til höfundar lífs og ljóss, sem hefði stutt sig í gegnum lífíð, svo að hún gat starfað fyrir og með ástvinum sínum. Hún bað um líf og heilsu til að annast börnin sín. Henni varð að ósk sinni, og hún skilaði hlutverki sínu með sóma. Uppeldi Guðnýjar sem mótaðist af því að koma vel fram við þá sem samtíða voru á lífsleiðinni entist henni til æviloka. Þrátt fyrir erfið veikindi á árum áður, m.a. í Spönsku veikinni árið 1918, og missi barna sinna, tengdadóttur og maka, var þakklæti hennar til lífs- ins óþtjótandi. Hún var alltaf viss um að gjörðir himnaföðurins hefðu tilgang og veittu þroska. Hún sannaði með lífi sínu og starfi að kærleikurinn fellur aldrei úr gildi og móðurástin umber allt, skilur allt og gleymir engu. Við tengdabörn hennar þökkum henni einstaka ástúð og hlýju alla tíð. Blessuð sé minning hennar. Þorvaldur, Sæmundur, Guðfinna og Sigurður. hveijum degi með bros á vör. Ég vil þakka fyrir samveruna með henni þessi ár, og minnast henanr me erindi úr ljóði Kristjáns frá Djúpalæk, Mitt faðirvor, sem mér fínnst svo lýsandi fyrir lífsviðhorf Unnar, eins og þau birtust mér á mismunandi æviskeiðum í mínu lífi: Hvar einn leit naktar auðnir, sér annar blómaskrúð. Það verður, sem þú væntir, það vex, sem að er hlúð. Þú rækta rósir vona í reit þíns hjarta skalt, og búast við því bezta þó blási kalt. Einar Kristinn Jónsson. Með tryggð til máls og manna á mátt hins góða og sanna þú trúðir traust og fast. Hér er nú starfsins endi. í æðri stjómar hendi er það, sem heitt í hug þú barst. Guð blessi Iífs þins brautir, þitt banastríð og þrautir og starfs þíns mark og mið. Við hugsum til þín hljóðir. Að hjarta sér vor móðir þig vefur fast og veitir frið. (Einar Ben.) Unnur Þórðardóttir var þriðja barn hjónanna Ingibjargar Sigurð- ardóttur og Þórðar Stefánssonar i Vík í Mýrdal. Hún sleit barnsskón- um í Vík og bjó við nokkuð þröng- an kost í faðmi ástríkrar fjölskyldu. Hún stundaði það nám í Vík sem fyrir hana var lagt af alúð, og fór nokkuð snemma að heiman og flutt- ist til Reykjavíkur. Þar kom hún sér upp sínum eig- in lífsstíl og veraldlegheitum og lærði tannsmíðar hjá Viðari Péturs- syni tannlækni. Hún vann sín verk af samvisku- semi og kunnáttu og stundaði sína vinnu sleitulaust í rúm fjörutíu ár, alltaf hjá sínum lærimeistara. Ég kom nokkrum sinnum á mín- um stúdentsárum í Reykjavík í heimsókn til Unnar frænku og verð ég að segja að skoðanir frænku minnar og lífsmynstur höfðu áhrif á mig. Hún talaði tæpitungulaust um hugsanir, hugmyndir og vanga- veltur lífsins, reyndar að mínu mati með all nokkurri sérvisku, en samt alltaf með þeirri einni hugsun að sá sem minna mætti sín væri ávallt sigurvegarinn. í hjarta sínu var hún manngæsk- an uppmáluð, þó svo að hún ætti oft erfítt með að láta það í ljós. Hún var ákveðin, stíf á meiningu sinni, samviskusöm og nokkuð sér- vitur, og eru það helstu kostir sem nokkur maður getur borið með sér, þegar gullið í hjartanu er grundvöll- ur slíkra eiginleika. Banalegan hennar Unnar var ekki löng. Fyrir um það bil tveim mánuðum hitti ég hana síðast eins og ég hafði fyrst kynnst henni og var ekkert í hennar fari eða hegðun sem benti til annars en þama væri hin eina sanna Unnur frænka á ferðinni. Hún veiktist síðan á síðustu haustdögum af kvefí og lungna- bólgu sem síðar reyndist alvarlegri og afdrifaríkari sjúkdómur en flest- ir höfðu gert sér grein fyrir. Tíminn frá því að hinn slæmi sjúkdómur greindist og þar til Unn- ur fór á fund feðra sinna var stutt- ur og snöggur og held ég nokkuð í samræmi við hennar lífsskoðanir. Megi minning hennar lifa meðal systkina og frændfólks. Ég og fjölskylda mín vottum systkinum hennar, Vilborgu, Jónu, Kristbjörgu, Stefáni, Sigríði og Ólafi, okkar dýpstu samúð. Páll Stefánsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BERGUR VIGFÚS SIGURÐSSON fyrrverandi verkstjóri frá Bæjarskerjum, Stafnesvegi 2, Sandgerði, verður jarðsunginn frá Hvatsneskirkju laugardaginn 6. febrúar kl. 14.00. Pálfna Þórunn Theodórsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t JÓHANNES JÓSEFSSON, Skálarhlið, Siglufirði, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 6. febrúar kl. 14.00. Unnur Helgadóttir, Magðalena B. Jóhannesdóttir, Harpa J. Möller. t Systir okkar, ELÍNBORG PÉTURSDÓTTIR, Vestmannabraut 59, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 6. febrúar kl. 14.00. Jónína Pétursdóttir, Sigrfður Pétursdóttir. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SIGURMUNDU GUÐMUNDSDÓTTUR, Borgargötu t, Drangsnesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A-6, Borgarspítala, fyrir hjúkrun og umönnun í veikíndum hennar. Guð blessi ykkur öll. Magnús Guðmundsson og fjölskylda. Guðný Stefáns- dóttir - Minning

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.