Morgunblaðið - 05.02.1993, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1993
fclk f
fréttum
( .
m
FÆÐINGAR
Starfsins vegna hittir
hann frægar konur
Margir telja Sir George
Pinker kvensjúkdóma-
lækni eftirsóknarverðan
vegna starfs síns, því það
gefur honum tækifæri til að
hitta fleiri kvenmenn af kon-
ungs- og aðalsættum en flest-
um öðrum gefst kostur á.
Pinker, sem er 68 ára, hefur
meðal annars verið viðstadd-
ur níu konunglegar fæðingar.
Nýlega héldu um 1.000 konur
Pinker mikla veislu á hótel
London Grosvenor. Veislu-
Sir George Pinker ásamt
konunglegum sjúklingum
sínum. Efst f.v. hertogaynj-
an af Kent, Díana prins-
essa, Michael prinsessa af
Kent. Við hlið Pinkers situr
f.v. Anne-Marie, fyrrver-
andi Grikklandsdrottning,
og Noor Jórdaníudrottn-
ing.
gestir höfðu greitt um 4.000
krónur í aðgangseyri, en
ágóðinn af skemmtuninni var
látinn ganga í sjóð, sem
nefndur er eftir lækninum.
SKEMMTANIR
Nú er ég léttur ...
Ritstjórn Verzlunarskólablaðsins í 18. aldar búningunum. Frá vinstri: Helga Rúna
Péturs, Björg Hjartardóttir, Matthías H. Johannessen, Hildur Björg Ingólfsdóttir,
Magnús Hjaltalín Jónsson og Sigrún Sigurðardóttir.
BLAÐAÚTGÁFA
Viðhafnarklæði í Verzló
Itilefni af útkomu Verzl-
unarskólablaðsins nú
nýverið hélt ritstjóm blaðs-
ins útgáfuhátíð í hátíðarsal
skólans þar sem Þorvarði
Elíassyni skólastjóra var
afhent fyrsta eintak blaðs-
ins, verðlaun veitt, ræður
fluttar auk þess sem Sverrir
Guðjónsson kontratenór
söng við mikil fagnaðarlæti
viðstaddra. Það sem vakti
sérstaka athygli var að rit-
stjóm blaðsins mætti til
hátíðarinnar í búningum
hefðarfólks frá 18. öld.
„Við vildum með þessu
vekja upp anda gamalla
tíma og vildum minna á að
það sem eldra er getur oft
Ritstjóri Verzlunarskólablaðsins, Sigrún Sigurðardóttir
(til hægri), ásamt vinkonu sinni, Önnu Lindu Guðmunds-
dóttur, í útgáfuhófinu.
Geirmundarsveiflan svo-
nefnda, sem kennd er
við tónlist hins vinsæla hljóm-
sveitarstjóra og lagasmiðs
Geirmundar Valtýssonar frá
Sauðárkróki, hefur nú haldið
innreið sína á Hótel ísland.
Þar verður á morgun, laugar-
•dag, frumsýnd söngskemmtun
sem byggð er á sívinsælum
lögum Geirmundar, þar sem
hann sjálfur verður í farar-
broddi ásamt hljómsveit sinni
og fríðum flokki söngvara og
hljómlistarmanna.
„Þetta leggst vel í mig,"
sagði Geiri þegar við litum inn
á æfingu hjá honum á Hótel
íslandi nú í vikunni. Á sviðinu
var hljómsveitin og söngvar-
irin Ari Jónsson á fullu í laginu
Ég er rokkari, en auk Ara
koma fram söngkonumar
Berglind Björk og Guðrún
Gunnarsdóttir, auk þess sem
Geiri sjálfur syngur að. sjálf-
sögðu með í dagskránni. Menn
furða sig ef til vill á því hvers
vegna Helga Möller, sem
sungið hefur í mörgum laga
Geirmundar á hljómplötum,
skuli ekki vera í þessum hópi,
hún mun eiga von á bami
þessa dagana og aðspurður
kvaðst Geirmundur vona að
Helga bættist í hópinn síðar.
Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar skipa Eiríkur Hil-
misson gítar, Sólmundur Frið-
riksson á bassa og Kristján
Baldvinsson á trommur, en
auk þeirra koma fram í sýn-
ingunni Magnús Kjartansson
hljómborðsleikari, Einar Bragi
Bragason á saxófón og Ásgeir
Steingrímsson á trompet.
Geinnundur Valtýsson hóf
um ferminga að leika fyrir
dansi norður 1 Skagrfirði og
Iék.síðan með Mjémsveittmum
Rómá og-Giinrdf Flamingo,
en hefur m&ato rekið eigin
hljémweit -f rém tuttugu ár
og lætur angan böbug á sér
finna. Fyrsta Iagið eftir hann
sem kom út á hljómplötu var
Bíddu við árið 1972 og það
sama ár kom lagið Nú er ég
léttur út á plötu, en bæði þessi
lög náðu miklum vinsældum.
Geirmundur hefur verið iðinn
Ari Jónsson söngvari lifir sig greinilega inn
í „Geirmundarsveifluna“ en á innfelldu
myndinni er Geirmundur Valtýsson í syngj-
andi sveiflu á æfingunni á Hótel íslandi nú
í vikunni.
við að ná lögum í úrslit
Söngvakeppni sjónvarpsins og
þau lög, ásamt mörgum öðr-
um sem út hafa komið á
hljómplötum á undanfömum
árum, hafa hlotið frábærar
undirtektir fólks á öllum aldri
um allt land.
Það er því viðbúið að enginn
doði verði yfír þessari
skemmtun á Hótel íslandi og
ekki ólíklegt að margir gesta
eigi eftir að taka undir með
Geirmundi í laginu góða: „Nú
er ég léttur, og orðinn ansi
þéttur, ég er í ofsa stuði og
ég skemmti mér ...“
éi 2 U0\ýTVR
■■»» ■ ■ mm » ■
Fostudagur 5. feb. Laugardagur 6. feb.
JET BLACK JOE á efri hæð. Weðri hæð .Oiskótek. ' IrqlM aruSFfetasýriing ■" Efclteölkyoning, Romaiw kynmng Sótof sada, Hafnárfirði gefur 10. hverjum gesti kynningartíma í Ijós í nýju sólbaðstofunni Hafnarfirði bæði kvöldin. Valin tónlist á efri hæðinni. Neðri hæð: Rokkabitliband Reykjavíkur sér um ! fokkaða stemmningu. Aðgöngumiðinn gildirsem öl.
Strandgötu 30, siml 50249
Laugav*gi 45 - s. 21 255
í kvöld:
Austan af landi,
ÝMSIR
FLYimUR
Austfirðingar ser-
siekiega vpiKommr
i.íiuqar cl <x ci.
mom
12. feb. STJÓRMIN
20. feb. JUPÍTERS
26. feb. VINIRDÓRA
27. feb. SÁLIN
verið traustara og lífseigara
en það sem nýjabrumið er
rétt farið af,“ sagði Sigrún
Sigurðardóttir, ritstjóri
Verzlunarskólablaðsins, að-
spurð um þetta tiltæki rit-
stjómarinnar. Húsfyllir var
á útgáfuhátíðinni sem
heppnaðist mjög vel og
seinna um daginn hélt rit-
stjómin sérstakt hóf fyrir
greinarhöfunda, viðmæl-
endur, félagsmálaljón skól-
ans og aðra velunnara
blaðsins.
Þorvarður Elíasson skóla-
stjóri tekur við fyrsta ein-
taki Verzlunarskólablaðs-
ins úr hendi ritstjóra og
þakkar fyrir sig á viðeig-
andi hátt.
☆ ☆☆
SH
S I B Æ
UPPSELTI KVOLDl
SÓLARKAFFI
ARNFIRÐINGA
I KVÖLD
SJÁUMST ANNAÐ KVÖLD
Raggf, Eva Asrún og Haukur HeHJar fara á
kostum. Ekki er ráö nema í tíma sé tekið,
pantiö miða tímanlega í síma: 686220.
Snyrtilegur klæönaður
BREYTT OG BETRA DANSHÚS