Morgunblaðið - 04.03.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 04.03.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1993 Aðalfundur Fáks Sterk eiginfjárstaða _________Hestar______________ Valdimar Kristinsson í umfjöllun um aðalfund Fáks í hestaþættinum sl. þriðjudag kom fram að heildarskuldir félagsins væru yfir 20 miHjónir króna en hinsvegar var þess ekki getið að eignir félagsins eru upp á rúmar 65 milljónir og eignir umfram skuldir því tæpar 43 milljónir króna. Þá var þess einnig getið að skammtímaskuldir væru rúmar 20 milljónir en veltufjármunir eru aftur rúmlega 18 milljónir eða tveimur milljónum lægri en skammtíma- skuldimar. Þetta hlutfall hefur lag- ast talsvert frá árinu áður en þá voru skammtímaskuldimar um 9 milljónum króna hærri en veltufjár- munir. Þá hafa langtímaskuldir lækkað úr rúmlega níu milljónum í tæplega eina og hálfa milljón. Þrátt fyrir erfiða íjárhagsstöðu var ráðist í ýmsar viðhaldsframkvæmdir sem stjóm félagsins taldi nauðsynlegar bæði vegna afmælisárs og tveggja stórmóta sem haldin vom á árinu en einnig til að ná aukinni eftirspurn eftir aðstöðu í hesthúsum félagsins. Kom fram í skýrslu stjórnar að að- sókn hafi í vetur verið talsvert meiri en síðustu árin. Ymsar skýringar kunna að vera á taprekstri félagsins á reikningsár- inu og telur formaðurinn Viðar Hall- dórsson að 4 milljónir króna hafí tapast í hugsanlegum tekjum á Hvítasunnumótinu og íslandsmótinu en eins og kunnugt er var að heita má snarvitlaust veður á báðum mót- unum og aðsókn mun minni en gert var ráð fyrir. Þóttu Fáksmenn með eindæmum óheppnir að fá á sig slík veður í tvígang sama árið. Ætla má að á þessu ári skapist betra næði fyrir Fák til að vinna sig út úr þeim fjárhagsvandræðum sem félagið hef- ur átt við að glíma á undanfömum árum. Vonandi er að heilladísimar verði þeim hliðhollari þetta árið en það síðasta og hafi Fáksmenn gert eitthvað á hlut veðurguðanna má gera ráð fyrir að þeir hafi goldið fyrir það og fá þá væntanlega gott veður á mótum þessa árs. Hljómsveitin Reggae on Ice. Reggeahlj ómsveit á Plúsnum HLJOMSVETIN Reggae on Ice leikur á veitingastaðnum Plúsn- um v/Vitastíg í kvöld, fimmtu- daginn 4. mars, en þetta er eina starfandi reggae-hljómsveitin á íslandi. Hljómsveitin var stofnuð í desem- ber á síðasta ári og eru meðlimir sveitarinnar þeir Matthías Matthí- asson, gítar og söngur, Hannes Pétursson, trommur, Agúst Bergur Kárason, bassi og munnharpa, Viktor Steinarsson, gítar, Stein- grímur Þórhallsson, hljómborð og Hafþór Gestsson, slagverk. IIiAWÞAUGL YSINGAR A TVINNUAUGL ÝSINGAR & Gagnfræðaskólinn í Mosfellsbæ óskar eftir forfallakennara í tölvufræði og ritvinnslu. Kennsludagar: Þriðjudagurfrá kl. 8.00-15.10 og miðvikudagur frá kl. 11.10-15.10. Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 666186 og aðstoðarskólastjóri í síma 666586. Hjúkrunarfræðingur - ráðgjöf Hjúkrunarfræðingur óskast í 60% starf (vinnutími frá kl. 9-13 virka daga). Starfið felst m.a. í heilbrigðisráðgjöf til starfs- manna fyrirtækja, söfnun heilbrigðisupplýs- inga og forvarnarstarfi. Reynsla í tölvunotkun (t.d. ritvinnslu) nauðsynleg. Þarf að geta unnið sjálfstætt og hafið störf 1. apríl nk. Umsóknir, með upplýsingum um starfsferil og reynslu, sendist fyrir 11. mars til: Heilbrigðisráðgjöf í fyrirtækjum, Grímur Sæmundsen, læknir, Kjartan Magnússon, læknir, Skipholti 50b, 105 Reykjavík. Lögfræðingur - lögmaður Félagasamtök auglýsa eftir lögfræðingi/ lögmanni til starfa. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 15. mars nk., merktar: „Lög - 10477“. Rekagrandi - til leigu Mjög góð 2ja herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýli ásamt bílskýli til leigu. Laus strax. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 6. mars merkt: „Fjölbýli - 8264“. Stangveiði í Hvítá í Borgarf irði Veiðifélagið Hvítá óskar eftir tilboðum í lax- og silungsveiði á komandi sumri. Um fimm veiðisvæði er að ræða á fyrrver- andi netaveiðisvæði og er hægt að gera til- boð í eitt eða fleiri svæði saman. Nánari upplýsingar veita Óðinn í síma 93-71667, Ólafur í síma 93-70007 og Jón Ragnar í síma 91-626282. Stjórn Veiðifélagsins Hvítá. Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi Aðalfundur Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður hald- inn ( Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1, 3. hæð, fimmtudaginn 1 f. mars 1993 kl. 20.30. Dagskrá: A. Skýrsla fráfarandi stjórnar. B. Lagabreytingar. C. Stjórnarkjör skv. C lið 6. gr. laga fulltrúaráðsins. D. Kjör 7 fulltrúa í kjördæmisráð. E. Kjör 3 stjórnarmanna í Þorra hf. F. Tekin ákvörðun um hvernig velja skuli framboðslista Sjálfstæðis- flokksins við bæjarstjórnarkosningar í Kópavogi vorið 1994. G. Kristinn Kristinsson kynnir hugmyndir að breytingum á innra skipulagi húsnæðis flokksins. H. Önnur mál. Fundarstjóri verður Hilmar Björgvinsson. Fundarritari Sólveig Árnadóttir. Áríðandi er að allir fulltrúar mæti eða boöi varamenn. Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi. Sala - leiga Glæsilegt skrifstofu- húsnæði við Borgartún Til sölu leigu sérlega vandað skrifstofuhús- næði um 292 fm. Ymsir möguleikar á skipt- ingu þess í minni einingar. Aðgangur að sameiginlegum ritara, símavörslu, Ijósritun, faxi og möguleiki á 250 fm lagerhúsnæði á sama stað. Ársalirhf. -fasteignasala, sími 624333. KENNSLA Námskeið í baknuddi Helgina 6.-7. mars. Örfá pláss laus. Upplýsingarog innritun á Heilsu- nuddstofu Þórgunnu, símar 21850 og 624745. St.St. 5993030419 VII □ HELGAFELL 5993030419 VI 2 Frl. I.O.O.F. 11 = 1740304872 = I.O.O.F. 5 = 17434872 = Sk. -Aðaldeild KFUM, Holtavegi Fundur ( kvöld kl. 20.30. Sr. Frank M. Halldórsson segir frá „þrenns konar páskahaldi í fsrael" og sýnir litskyggnur. Kaffi eftir fundinn. Allir karlmenn velkomnir. Spiritistafélag íslands Miðlarnir Dennis Burn's og Anna Carla munu starfa hjá félaginu með einkatíma. Dennis verður með nýjung: 15-20 manna skyggnilýsingafundi. Allir fá lest- ur. Ókeypis aðgangur verður á opinn skyggnilýsingafund hjá Dennis 4. mars kl. 21.00 á Smiðjuvegi 13a, Kópavogi, Kiw- anishús. Mætið tímanlega. Tímapantanir í síma 40734 frá kl. 10.00-22.00 alla daga. Skíðadeild KR Stefánsmót KR Svig fyrir aldursflokka 9-10 ára og 11-12 ára verður haldið i Skálafelli laugardaginn 6. mars. Brautarskoðun 11-12 ára kl. 9.30 og 9-10 ára kl. 13. Fararstjórafundur í KR-heimilinu föstudaginn 5. mars kl. 20. Þátttökutilkynningar sendist á faxi 674274 eða í síma 672645 fyrir kl. 18 föstudag. Stjórnin. nmhjólp ( kvöld kl. 20.30 er almenn sam- koma i Þríbúðum. Fjölbreyttur söngur. Samhjálparvinir gefa vitnisburði mánaðarins. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. VEGURim í v Kristið samfélag Smiðjuvegi 5, Kópavogi Hverfakirkja Vegarins verður með samkomu í Kristniboös- sambandssalnum, Háaleitis- braut 58-60, í kvöld kl. 20.30. Miríam Óskarsdóttir, trúboði, talar. Gleði og fögnuður. Allir hjartanlega velkomnir. Hjálpræðis- herinn Kirkjuttrdi 2 Samkoma í kvöld kl. 20.30. Her- kaffi. Major Anna og Daníel Ósk- arsson stjórna og tala. Verið hjartanlega velkomin. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Ræðumaður Hallgrímur Guðmannsson. Allir hjartanlega velkomnir. Orð lífsins, Grensásvegi8 Almenn samkoma i kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. FERDAFEIAG @ ÍSLANDS MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533 Helgarferð 5.-7. mars Snæfellsnes-Snæfellsjökull. Brottför föstud. kl. 20. Frábær gistiaðstaða í bænum Görðum í Staðarsveit. Jökullinn heillar. Einnig göngu- og skoðunarferðir um ströndina. Hægt að hafa með gönguskíði. Pantið tímanlega. Sunnudagsferðir7. mars: 1. Kl. 10.30: Skíðaganga: Svínahraun - Geitafell. 2. Kl. 13.00: Hafnarskeið- Þorlákshöfn, strandganga. 3. Kl. 13.00: Skíðaganga: Lágaskarð - Lakadalir. Vetrarfagnaður á Flúðum 20.-21. mars Frábær skemmtun sem enginn lætur framhjá sér fara. Gist í Skjólborg. Göngu- og skoöunar- ferðir að deginum en vetrarfagn- aður á laugardagskvöldinu. Rútuferð, en einnig er hægt að mæta á eigin farartæki. Miðar á skrifstofunni. Aðalfundur Ferðafélagsins verður miðvikudagskvöldið 10. mars í Ferðafélagshúsinu (risi) og hefst hann stundvíslega kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagsmenn sýni ársskírteini 1992 við innganginn. Áhugafólk um fjallaskála at- hugið aö fundur, sem boöaður er í kvöld 4. mars, verður í Borg- artúni 6 en ekki ( Mörkinni 6. Hann hefst kl. 20.30. Ferðafélag (slands, félag allra landsmanna. UTIVIST Hallvoigarstig 1 « simi 614330 Helgarferðir 5.-7. mars: 1. Tindfjöll á f ullu tungli. Gist í neðsta skála. Fararstjóri: Egill Einarsson. örfá sæti laus. 2. Básar við Þórsmörk. Gist í vel útbúnum skálum Úti- vistar. Fararstjóri: Björn Finns- son. Nánari upplýsingar og miðasala áskrifstofu. Opiðfrákl. 12-17. Útivist. Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvist í kvöld, fimmtudaginn 4. mars. Byrjum að spila kl. 20.30 stundvíslega. Allir velkomnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.