Morgunblaðið - 04.03.1993, Side 35
8(JÖ1 XHAl/i .1- HUOACIUTMjMÍ! (HUAJllHUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1993
35
Fjörug til hvílubragða
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Losti („Body of Evidence"). Sýnd
i BíóhöUinni. Leiksljóri: Uli
Edel. Aðalhlutverk: Madonna,
Willem Dafoe, Joe Mantegna,
Anne Archer.
Það þarf kannski ekki að koma
neinum á óvart að í nýjustu mynd
sinni, Losta, leikur poppgoðið og
kynlífsgúrúinn Madonna konu sem
sökuð er um að jnyrða elskhuga
sinn með bólfimi. í orðabók Menn-
ingarsjóðs þýðir það að vera „fjör-
ugur til hvflubragða" og á einkum
við um kvenmenn, stendur í sviga.
Kynlífspælingar hafa verið inntakið
í sviðsframkomu goðsins að undan-
fömu og kristallast í umdeildri met-
sölubók hennar, sem heitir einfald-
lega Kynlíf. Losti er sakamálamynd
mjög í ætt við Ógnareðli, bara lak-
ari, en hún er ekkert síður og lík-
lega fyrst og fremst einskonar
bókarviðauki frá hendi Madonnu.
Leikstjóri er Þjóðveijinn Uli Edel
(„Last Exit to Brooklyn”) og hann
keppist við film noir stflinn góð-
kunna í margsagðri sögu um lög-
Morð á rúmstokknum; úr myndinni Losti.
fræðing sem fellur fyrir femme
fatale eiginleikunum í Madonnu um
leið og hann á að veija hana fyrir
rétti. Sagan er langt í frá ný af
nálinni enda miklu minna lagt í
hana miðað við bólfarimar.
Líkt og Sharon Stone spilaði með
Michael Douglas í Ógnareðli leikur
Madonna sér að hinum móttæki-
lega lögmanni sínum, Dafoe, sem
Ruglað lið
Tveir ruglaðir („The Nutty
Nut“). Sýnd í Háskólabíói. Leik-
stjóri: Adam Rifkin. Aðalhlut-
verk: Stephen Keamey, Amy
Yasbeck, Traci Lords.
í ærslamyndinni Tveir mglaðir
leikur Stephen Keamey geðsjúkl-
ing sem á tvíburabróður sem stefiiir
hátt í pólitík, jafnvel á forsetaemb-
ættið. Sjúklingurinn fær að vita
að mörg hans vandamál gætu leyst
ef honum tekst að hafa upp á bróð-
ur sínum og hann flýr af hælinu í
þeim tilgangi og brátt skipta þeir
um hlutverk, sjúklingurinn verður
pólitíkus en bróðir hans fer inná
hælið.
Þetta er það litla sem hægt er
að segja af viti um þráðinn í Tveim-
ur rugluðum, einhverri slöppustu
gamanmynd sem maður hefur séð
lengi. Brandaramir, sem maður
gæti ekki hlegið að þótt maður
væri kítlaður í iljamar, snúast mik-
ið til um að fylla aðalpersónuna
af lofti eða vatni og lýsa kvenna-
málum hans og hvernig hann
breytst í hvem persónuleikann á
fætur öðmm. Þar á meðal er
sænskur kokkur, trúður, kúreki og
töframaður. Enginn þeirra er fynd-
inn á neinn hátt Loks endar heila
klabbið í endalausu kökukasti, sem
að líkindum kallast hápunktur
myndarinnar, þar sem aðalsögu-
heljan breytist í Tortímandann 2.
Tveir ruglaðir er yfirgengilega
vitleysislegur fáránleikafarsi og því
vitlausari sem hann er því fyndn-
ari virðist hann eiga að vera. En
það furðulega er að i aðra röndina
er hann fullur af einhverju sem
kvikmyndagerðarmennimir gera
að alvöru tilfinningasemi og tengist
hinum margbrotnu persónuleikum
titilpersónunnar. Þannig er myndin
alls ekki samkvæm sjálfri sér. í
furðulega væmnu sólarlagsatriði,
miðað við vitleysuna allt um kring,
kveður sjúklingurinn hina mörgu
persónuleika sína og það er eins
og áhorfandinn eigi að tárast fyrir
alvöru.
Svo Tveir ruglaðir em ekki upp
á marga fiska. Það er hellingur af
bröndumm í henni en sárafáir em
fyndnir. Stephen Keamey leikur
tvíburana en Ottó Fríslendingur,
sem gerir svipaðar myndir og þessa
í Þýskalandi, er helmingi betri
gamanleikari og myndimar hans
miklu, miklu fyndnari.
reynist ekkert síður fjömgur til
hvflubragða en hún. Spumingin um
hvort hún er morðingi eða ekki
vomir yfir ástarieikjum þeirra sem
eiga sér stað hvar sem henni dett-
ur í hug, í lyftu eða í bflageymslum
eða þá á skuggalegu heimili hennar
ög bera mjög keim af sadó-masók-
isma slíkum sem poppgoðið daðrar
við í bók sinni.
Eins og við mátti búast em
samfarasenumar afar bersöglisleg-
ar enda poppgoðið ófeimið við að
bera sig frammi fyrir heiminum.
Sakamálið allt og innihald myndar-
innar, spenna og dramatík, er hins
vegar heldur klént og ættu lokin
svosem ekki að koma neinum á
óvart, sem eitthvað fer í bíó. Ekki
er gerð svo mikið sem tilraun til
að skýra út persónumar, hvaðan
þær koma eða af hveiju þær láta
eins og þær láta. Mikill hluti mynd-
arinnar fer fram í réttarsal þar sem
Dafoe fer furðulega létt með að
knésetja nokkur aðalvitni saksókn-
arans, sem Jœ Mantegna leikur
heldur þreytulega og það myndast
aldrei trúverðugt samband á milli
Dafoe og Madonnu þrátt fyrir allar
samfarasenumar.
Willem Dafoe sleppur vel frá sínu
og lýsir ágætlega því samblandi
af ótta og eftirvæntingu sem lög-
fræðingurinn upplifir í kynnum sín-
um af hinni grunuðu. Það er hins
vegar eitt að vera poppgoð og ann-
að að vera kvikmyndaleikari. Þetta
hefur Madonna reynt í nokkmm
tilraunum sfnum til að vinna sér
sess í bíómyndum. Leikur hennar
er sem fyrr yfirborðslegur og gegn-
sær, henni ferst illa úr hendi að
vera sakleysið uppmálað. Myndin
virðist ekkert meira en eitt tækfær-
ið í viðbót fyrir Madonnu að sýna
sig frakka og bera.
Brids
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag Suðurnesja
Lokið er sjö umfeiðum af níu í aðal-
sveitakeppni vetrarins, Sparisjóðsmót-
inu, og er staða efstu sveita þessi:
Torfi S. Gfslason 144
(og frestaðan leik)
Jóhannes Ellertsson 138
Gunnar Guðbjömsson 134
Bjöm Blöndal 107
Tíu sveitir taka þátt í mótinu. Spilað
er í Hótel Kristínu í Njarðvfkum á
mánudögum kl. 19.45.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Sl. mánudag lauk Butler-tvímenn-
ingi félagsins og urðu úrslit eftirfar-
andi:
A-riðflk
EriaSiguijónsdótlir-SigurðurSiguijónsson 82
ArsællVignisson-TraustíHarðarson 61
DröftaGuðmundsdóttír- AsgeirAsbjömsson 51
HelenGunnarsdóttír-PállSigurðsson 50
Halidór Einaisson - Guðmundur Þorkelsson 46
Hæstu skor kvöktsins hlutu:
Haukur Ámason - Ólöf Ólafedóttír 43
HelenGunnaisdóttír-PállSiguiðsson 43
EriaSiguijónsdéttir-SigurðurSiguijónsson 41
B-riðQl:
GuðniKristjánsson-SteinarHólinsteinsson 83
Eysteinn Einarsson - Amar Jónsson 64
ÞórunnÚlfarsdóttír-ÞóraÁsgeirsdóttir 55
Hæstn skor kvöldsins hlutu:
Guðni Kristjánsson - Steinar Hólmsteinsson 76
SófusBertelsen-SigríðurGuðmundsdóttír 63
BjömJúlíusson-SkúliRagnaisson 42
Nk. mánudagskvöld, 8. mars, hefst
þriggja kvölda hraðsveitakeppni og
verður spilað í tveimur riðlum þar sem
annar er ætlaður byijendum eingöngu.
Stjóm félagsins hvetur alla spilara til
að mæta og lofar að hjálpa til við
myndun sveita. Spilamennskan hefst
kl. 19.30 og er spilað í íþróttahúsinu
v/Strandgötu.
íslandsmót kvenna í
sveitakeppni — undanúrslit
Undanúrslit í Islandsmóti kvenna í
sveitakeppni vora spiluð í Sigtúni 9,
helgina 27.-28. febr. 18.sveitir tóku
þátt og var spilað í þremur riðlum, 20
spila leikir, 5 umferðir. Tvær efstu
sveitimar spila síðan f úrslitum helgina
13.-14. mars nk. Úrslit urðu eftirfar-
andi:
A-riðill:
SveitÞriggjafrakka 113
EgilinaGuðmundsdóttir 82
HrafnhildurSkúladótíir 78
Jacqui McGreal 68
ÞRUSK 53
SveinbjörgHarðardóttir 48
B-riðiU:
ErtaSiguijónsdóttir 114
íjöguiralaufasmárinn 77
JónínaPálsdóttir 76
FrejjaSveinsdóttír 74
Samsteypa 52
HitdurHelgadóttir 47
C-riðilh
97
82
76
71
62
53
Vetrarmitchell Bridssambands
íslands
Vetrarmitchell var spilaður í Sigtúni
9, föstudagskvöldið 26. febrúar. 24 pör
spiluðu og urðu úrslit þannig:
N/S-riðiIh
SkúliBjamason-BragiBjamason 326
Elín Jónsdóttir—lilja Guðnad. 319
Guðmundur Guðm.son - Einar Hallsson 309
A/V-riðilh
Hösku!durGunnarss.-GunnarValgeirss. 318
Aðatfundur
1993
Skeljungurhf.
SheUeinka umboð
Aðalfundur Skeljungs hf.
verður haldinn föstudaginn
12. mars 1993 í Átthagasal
Hótel Sögu, Reykjavík, og
hefst fundurinn kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv.
16. grein samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur
og reikningar félagsins munu
liggja frammi á aðalskrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn
verða afhent á aðalskrifstofu
félagsins Suðurlandsbraut 4,
6. hæð, frá og með 5. mars til
hádegis á fundardag, en eftir
það á fundarstað.
Morgunblaðið
Guðrún Jóhannesdóttir
Sigrún Pétarsdottir
Fljótakonur
Sólin
Björa Bjömsson - Logi Pétursson 312
GuðlaugurSveinsson-RóbertSigurj. 302
Eins kvölds keppnin er öllum opin
og byijar kl. 19 á föstudagskvöldum í
Sigtúni 9. Skráning er á staðnum.
Þröngt blað
Vegna þrengsla í blaðinu undanfama
daga hefir þátturinn ekki fengið inni
sem skyldi og hafa fréttir beðið nokk-
uð. Spilarar og umsjónarmenn eru
beðnir að sýna biðlund þar til úr rætist
Aðalsveitakeppni Bridsfélags
Hornafjarðar 1993
Á sunnudag var spiluð átta liða
útsláttarkeppni í aðalsveitakeppni
Bridsfélags Homaijarðar. Þau undur
og stórmerki gerðust að þijár efstu
sveitimar í forkeppninni vom slegnar
út. Jón Axelsson vann Gunnar Pál
Halldórsson, Bjöm Gíslason sigraði
Eskey hf., Hótel Höfn vann Ragnar
Bjömsson og Ingólfur Baldvinsson
vann Nesjamenn með 1 impa. Það var
naumasti sigurinn/tapið.
í fjögurra liða úrslitum eigast þvi
við:
Sveit Hótels Hafoar - Sveit Ingólfe Baldvinssonar
Sveit Bjöms Gíslasonar - Sveit Jóns Axelssonar
Sigurvegarar þessara leikja spila
svo um titilinn Homafjarðarmeistarar
1993 aðra helgi f mars.
1. umferð Hreindýramóts Brids-
manna í Nesjum var spiluð á föstudag-
inn var. Hreindýramótið er þriggja
kvölda tvímenningur og 11 pör mættu
til leiks í fyrstu umferð.
Úrslit urðu:
GesturHalldórsson-JónNielsson 190
Sigurpáll Ingibergss. - Gunnar P. Halldórss. 185
RagnarBjömsson-ÓlafurMagnússon 179
Ami Hannesson - Gísli Gunnarsson 173
BjömGíslason-JónG.Gunnaisson 171
fjyrdux- bcs-ta verðid!
Á timum harðnandi samkeppni dugar ekkert
annaö en aÖ bjóÖa betur en aörir.!
GERÐU VERÐSAMANBURÐ
Tónver býður þér:
20“ litsjónvarp + myndbandstœki,
bceÖi meö Jjarstýringu og Euro scart tengi,
saman i pakka á aÖeins kr. 49.900, - stgr.
Rétt verÖ kr. 65.335,- Þú sparar kr. 15.435,-
5" litsjónvarpstæki
12 og 220 volta i
sumarbústaÖinn, hjólhýsiÖ,
feröabilinn og tjaldið á
aðeins kr. 19.900, ~ stgr.
Rétt verÖ kr. 31.000,-
Þú sparar kr. 11.100,-
41/2“ s/h ferðasjónvarp
í feröalagið meö útvarpi og kassettu,
aðeins kr. 9.900, ~ stgr.
Rétt verö kr. 17.667,- Þú sparar kr. 7.767,-
Býður nokkur betur?
Ennfremur Júmbó feröalaki á sérstöku opnunarveröi:
Verö áður kr. 24.900,- stgr. Verö nú kr. 12.450,- stgr.
★ ★ Þú sparar kr. 12.450,- ★★
10 myndbandssnaldur á aöeins kr. 1.990,-
★ ★ Þú sparar kr. 1.910,- ★ ★
, Hljómtaki frá kr. 9.900.- Feröataki frá kr. 1.900,-
Úlvarpstaki frá kr. 900,- Útvarpsklukkur frá kr. 1.500,-
Vasadiskó frá kr. 1.500,- Biltaki frá kr. 3.900,- og fl. og fl.
Ath. Fyrstu 20 viðskiptavinimir fá útvarpsvekjaraklukku á 100 kr.
Erum fiuttir á Suðurlandsbraut 12.
Nxg bttastxði. Nýtt simanúmer er 684977. Fax 684978.
TONVER Sendum hvert á land sem er
Munalán - Þýskt gæðamerki - Ábyrgð