Morgunblaðið - 04.03.1993, Page 44

Morgunblaðið - 04.03.1993, Page 44
iJ- 44 M M0RGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR 4. MAR2 1993 fclk f fréttum FÆÐINGAR Benazir Bhutto eignast þríðja barn sitt Benazir Bhutto flaug til London nýlega til að gangast undir gallblöðruuppskurð. Hún var óf- rísk og komin 36 vikur á leið, þannig að læknum þótti ekki annað ráð- legt en að taka bam ið með keisara skurði, áður gallblöðruað- gerðin var framkvæmd. Frá því að Benazir Bhutto missti völd sem forsætisráðherra Pakistan í október 1990 hafa hún og eigin- hennar, Asif, verið ásökuð fyrir mútuþægni og spillingu. Þá var Asif sakaður um morð og hefur hann verið í fangelsi undanfama 28 mánuði. Fékk Benazir aðeins ; að heimsælqa hann í hálfa klukkustund í senn einu sinni í viku þessi ár. í maí fékk hann síðan leyfí til að vera heima hjá fjölskylduni í þrjár vikur. Segir Benazir að þá hafi þau farið að velta fyrir sér, hvort þau ættu að eignast eitt en barnið enn. Vegna aðstæðna þótti þeim það svo sem ekki ráðlegt, „en ég verð ekki yngri með árunum," segjr Benazir. Daginn eftir að litla stúlkan fæddist losnaði Asif úr fangelsinu gegn tryggingu og því kallar Benazir dótturina „lukkubarnið". Asif dreif sig strax til London ásamt syninum Bilawal fjögurra ára og dótturinni Bakhtawar þriggja ára. Benazir segist ekki geta varið eins miklum tíma með börnum sínum og hún vilji. „Það er þó ekki alltaf spuming um tímann sem maður ver með bömunum heldur um gæðin.“ Benazir og Asif hafa verið gift í fímm ár, en Asif segir að í raun hafí þau einungis verið samvistum í 160 daga. Þegar Benazir var for- sætisráðherra bjó hún í Islamabad, en hann í Karachi. „Við neyddumst til að hafa þetta svona vegna póli- tísks frama Asifs,“ segir hún. Benazir Bhutto, sem verður fer- tug í júní, er hér ásamt þriðja barni sínu, dótturinni Asifa. Synning ídagogá morgnn kl. 13-17 Sara B E A U T É SNYRTIVÖRUVERSLUN ----------------------------------- Bankas,rfln3H0Reykí”'k G I V E N C H Y DANS Komust í úrslit fyrir Reykjavík og Reykjanes Guðfínna Bjömsdóttir, 14 ára nemandi í Garðaskóla, vann einstaklingskeppni fyrir Reykjavík og Reykjanes í undankeppni um íslandsmeistaratitil unglinga í ftjálsum dönsum, sem fram fór sl. föstudag. Hún einnig í hópnum „Desire“ sem lenti í 1. sæti í hóp- dansi. Næstkomandi föstudag, 5. mars fer úrslitakeppnin fram og þá munu unglingar 14-17 ára alls staðar af að landinu beijast um íslandsmeist- aratitilinn í fijálsum dönsum. Er það í 12. sinn sem keppnin er haldin. Kynnir verður Páll Oskar Hjálmtýs- son. Að sögn starfsmdnna Tónabæj- ar, þar sem keppnin fer fram, vom í kringum 600 áhorfendur í fyrra og er búist við álíka fjölda í ár. Guðfinna Björg Björnsdóttir sigr- aði fyrir Reykjavík og Reykjanes og tekur því þátt í úrslitakeppn- inni. Danshópurinn, sem kallar sig „Desire" varð í fyrsta sæti í hópdansi. I hópnum eru: Erla Kr. Bjamadóttir, Anna S. Sigurðardóttir, Hrafn- hildur Helgadóttir, Sigrún E. Elíasdóttir og Guðfinna Björg Björns- dóttir. , _ Morgunblaðið/Árni Sæberg Þær (f.v.) Anja Ástþórsdóttir, Björg Ólafsdóttir og Kristín Birgitta allar í 3-G í MR mættu í síðum kjólum og uppháum hönskum. COSPER Hvenær ætlarðu að smíða stærri hundakofa handa honum?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.