Morgunblaðið - 04.03.1993, Qupperneq 54
54
■ ROMARIO, brasilíski leikmað-
urinn hjá PSV Eindhoven, hefur
verið meiddur í baki en hann lék
þó með í í gærkvöldi. Hollenski
landsliðsmaðurinn Juul Ellerman
lék aftur á móti ekki með vegna
ökklameiðsla.
■ IFK Gautaborg hefur ekki
leikið í deildarkeppni síðan októ-
ber, en hefur leikið marga æfinga-
leiki víðsvegar um Evrópu til að
undirbúa sig fyrir Evrópuleikinn
gegn Eindhoven.
■ JOHNNY Ekström var beitt-
asta vopn Gautaborgara. Hann
var búinn að gert 11 mörk í síð-
ustu sjö æfingaleikjum og aðeins
einu sinni leikið í 90 mínútur. „Ég
er í mjög góðri æfíngu núna,“ sagði
Ekström, sem skoraði tvö mörk í
gærkvöldi.
MAC MILAN, sem hefur ekki
tapað síðustu 56 deildarleikjum og
sjö Evrópuleikjum í röð. Félagið
hampaði Evrópumeistaratitlinum
1989 og 1990.
■ CSKA Moskva og Marseille
léku í Berlín. Rússamir geta ekki
leikið heima í Moskvu á þessum
árstíma vegna vetrarhörku og
gripu því til þess ráðs að leika
„heimaleikinn“ í Þýskalandi.
■ BASILE Boli, landsliðsmaður
Frakka, lék ekki með Marseille í
gærkvöldi vegna hnémeiðsla. Hann
var skorinn upp á mánudaginn og
verður frá keppni í tvær vikur.
■ BARNARD Casoni lék á ný
eftir meiðsli. Þjóðveijinn Rudi
Völler lék ekki með vegna meiðsla
sem hann hlaut í leik gegn Món-
akó.
■ MARSEILLEfékk ekki miklar
upplýsingar um lið CSKA fyrir
leikinn. Franska liðið fékk nafna-
lista með nöfnum 46 leikmanna
CSKA fyrir nokkru og er það allt
of sumt. Þjálfari CSKA, Gennardi
Kostilev, sagði að liðið hefði
leikið aðeins einn æfingaleik frá
áramótum og tekið þátt í einu
innanhúsmóti.
— ■ KOSTILEV sagði að undir-
búningurinn væri sjálfsagt ekki
nægilega góður fyrir leikinn. „En
við höfum ekki aðstöðu til að fara
til Spánar eða Ítalíu til að æfa.“
KNATTSPYRNA
Fram og Armann
í fyrsta leik
FRAM og Ármann mætast í
fyrsta leik Reykjavikurmótsins
í knattspyrnu 23. mars, en úr-
slitaleikurinn verður 9. maí.
Níu lið taka þátt í meistara-
flokki karla og í A-riðli leika
Fram, KR, Víkingur, Leiknir og
Ármann en í B-riðli Fylkir, Valur,
IR og Þróttur. Efsta liðið í hvorum
riðli mætir næst efsta liði í hinum
riðlinum í undanúrslitum 3. og 4.
maí, en allir leikir mótsins fara fram
á gervigrasinu í Laugardal.
Næsta ár verður Ieikið í tveimur
deildum og verða þijú efstu liðin
úr hvorum riðli í vor í 1. deild.
Ikvöld
Handknattleikur
1. deild kvenna:
Valsheimili: Valur-ÍBV...kl. 20
Úrslitakeppni 2. deildar:
Seltj.nes: Grótta - KR...kl. 20
Varmá: UMFA-UBK..........kl. 20
Körfuknattleikur
Úrvalsdeildin:
Keflavík: ÍBK-UBK........kl. 20
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1993
-------------------------------I-------------------
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
Rauði herinn fagnaði í Berlín
Reuter
Knattspyrna
Evrópukeppni meistaraliða
FIMM þúsund hermenn úr rauða hernum voru á Ólympíulelkvanglnum í Berlín, þar sem 8.000
ðhorfendur sáu CSKA Moskva gera jafntefll, 1:1, vlð Marseille. Hermennlrnir fögnuðu geysilega
þegar þeirra menn náðu að Jafna, elns og sóst á myndlnnl.
Papin tryggði AC
Milan góða stöðu
FRAKKINN Jean Pierre Papin tryggði AC Milan 1:0 sigurgegn
Porto í b-riðli úrslitamóts Evrópukeppni meistaraliða íknatt-
spyrnu í gærkvöldi. Við sigurinn færðist ítalska liðið enn nær
þriðja úrslitaleik sínum á fimm árum, er með tveggja stiga for-
skot á IFK Gautaborg, sem vann PSV 3:1. í a-riðli er staða efstu
liða, Marseille og Glasgow Rangers, óbreytt, en bæði gerðu 1:1
jafntefli, Frakkarnir við CSKA Moskva í Berlín, en Skotarnir við
Club Briigge í Belgíu.
Papin gerði glæsilegt mark á 71.
mín. með skoti utan vítateigs.
Hann fékk annað marktækifæri
þremur mínútum fyrir leikslok, en
Vitor Baia náði að bjarga. Heima-
menn reyndu að sækja, en Milan
réð ferðinni og Porto er neðst í riðl-
inum.
Jose Semedo fékk gott mark-
tækifæri fyrir Porto rétt fyrir hlé
en skallaði yfír eftir homspymu.
Milan, sem var án Hollendingsins
Frank Rijkaards, átti í mestu vand-
ræðum með Búlgarann Emil Ko-
stadinov, en hann fór tvisvar illa
með upplögð færi í byijun seinni
hálfleiks.
„Þetta var erfíður leikur, en við
áttum skilið að sigra, því við höfðum
undirtökin allan tírnann," sagði
Fabio Capello, þjálfari Milan, en lið-
ið hefur ekki tapað í Evrópukeppn-
inni síðan í mars 1991 — gegn
Marseille.
Lið Porto: Vitor Baia, Joao Pinto, Rui
Jorge, Aloisio Alves, Fernando Couto, Ion
Timofte, Jorge Costa, Emil Kostadinov
(Nelson Gama „Toni“ 77.), Jorge Couto
(Domingos Oliveira, 68.), Jose Semedo,
Paulinho Santos.
AC Milan: Sebastiano Rossi (Carlo Cudicini
87.), Mauro Tassotti, Paolo Maldini, Ales-
sandro Costacurta, Franco Baresi, Demetrio
Albertini, Zvonimir Boban, Ruud Gullit,
Gianluigi Lentini, Marco Simone (Evani
Alberigo, 78.), Jean-Pierre Papin.
Gautaborg kom á óvart
IFK Gautaborg virðist vera eina
liðið, sem getur veitt Milan keppni,
en Svíamir komu á óvart í gær-
kvöldi og unnu PSV á útivelli 3:1.
Svíamir byijuðu illa, fengu mark á
sig þegar á sjöundu mínútu, en þá
skoraði Arthur Numan eftir snilld-
arsendingu frá Romario. Romario
var nálægt því að bæta öðra við,
en Mikael Nilsson jafnaði 12 mínút-
um síðar með skoti af 25 m færi
og Johnny Ekström innsiglaði sig-
urinn með tveimur mörkum fyrir
hlé.
Heimamenn sköpuðu sér nokkra
færi í seinni hálfleik, en Ravelli var
öiyggið uppmálað í marki Svía, sem
fá Milan í heimsókn í næsta mánuði.
PSV: Hans van Breukelen, Berrie van
Aerle, Adri van Tiggelen, Emeat Faber, Jan
Heintze, Gica Popescu, Arthur Numan,
Edward Linskens (Gerald Vanenburg, 46.),
Romario, Wim Kieft, Peter Hoekstra.
Gautaborg: Thomas Ravelli, Magnus
Johannsson, Joachim Bjorklund, Ola Svens-
son, Pontus Kaamark, Peter Eriksson, Tore
Rehn, Haakan Mild, Mikael Nilsson, Mikael
Martinsson (Thomas Andersson, 68.), Jo-
hnny Ekström (Stefan Lindquist, 89.).
Fayzullin hetja CSKA
Ilshat Fayzullin kom í veg fyrir
að vonir Marseille rættust um að
ná fullu húsi stiga gegn CSKA
Moskva í A-riðli Evrópukeppni
meistaraliða er hann jafnaði í síðari
hálfleik, 1:1, við mikinn fögnuð
5.000 rússneskra hermanna sem
fylgdust með leiknum sem fram fór
í Berlín. Franska liðið hafði mikla
yfirburði allan leikinn, en það var
Ghanamaðurinn Abedi Pele sem
gerði mark Marseille á 27. mínútu.
CSKA, sem tapaði fyrstu tveimur
leikjum sínum í riðlinum, varðist
vel og átti síðan hættulegar skyndi-
sóknir.
Raymond Goethals, þjálfari Mar-
seille, var ekki ánægður eftir leik-
inn. „Þetta era mikil vonbrigði fyr-
ir okkur. Við áttum allan leikinn
en náðum ekki að nýta þau færi
sem sköpuðust." Þjóðverjinn Rudi
Völler og vamarmaðurinn Basile
Boli léku ekki með Marseille vegna
meiðsla.
Rangers án taps
Club Bragge og Glasgow Ran-
gers áttust við í Belgíu í A-riðli og
endaði leikurinn með jafntefli, 1:1.
Hollendingurinn Pieter Huistra
jafnaði fyrir Rangers þegar 18 mín-
útur vora til leiksloka. En áður
hafði Pólveijinn Tomasz Dziubinski
skorað fyrir Bragge, sem á litla von
um að leika til úrslita eftir þessi
úrslit.
Rangers og Marseille munu beij-
ast um efsta sæti A-riðils. Þau era
nú jöfn að stigum með fjögur stig
eftir þijá leiki.
A-RIÐILL:
Briigge, Belgíu:
FC BrUjjge - Glasgow Rangers.......1:1
Tomasz Dziubinski (44.) - Pieter Huistra
(72.). 19.000.
Berlín, Þýskalandi:
CSKA Moskva - Marseille............1:1
Ilshat Fayzullin (55.) - Abedi Pele (27.).
8.000.
STAÐAN:
Marseille....r..........3 1 2 0 6:3 4
G. Rangers..............3 1 2 0 4:3 4
FC Briigge..............3 1 1 1 2:4 3
CSKA Moskva.............3 0 1 2 1:3 1
■Leikir sem eftir eru: Marseille - CSKA,
Rangers - Briigge, Marseille - Rangers,
CSKA - Brögge, Briigge - Marseille, Ran-
gers - CSKA.
B-RIÐILL:
Eindhoven, Hollandi:
Eindhoven - IFK Gautaborg ;........1:3
Arthur Numan (7.) - Mikael Nilsson (19.),
Johnny Ekström 2 (34., 44.). 23.000.
Oporto, Portúgal:
Porto - AC Milan...................0:1
- Jean-Pierre Papin (71.). 55.000.
STAÐAN:
ACMilan.................3 3 0 0 7:1 6
IFKGautaborg............3 2 0 1 4:5 4
Porto...................3 0 1 2 2:4 1
PSV Eindhoven...........3 0 1 2 4:7 1
■Leikir sem eftir eru: Gautaborg - Eindho-
ven, AC Milan - Porto, Gautaborg - AC
Milan, Eindhoven - Porto, Porto - Gauta-
borg, AC Milan - Eindhoven.
Evrópukeppni bikarhafa
8-liða úrslit:
Prag:
Sparta Prag - Parma................0:0
25.000.
UEFA-keppnin
8-liða úrslit.
Auxerre, Frakklandi:
Auxerre- Ajax......................4:2
Frank Verlaat (16.), Corentin Martins (43.),
Pascal Vahirua (81.), Daniel Dutuel (90.)
- Stefan Pettersson (3.), Marciano Vink
(45.). 20.000.
Spánn
Barcelona - Real Oviedo............2:0
Sacristan Eusebio 12., Guillermo Amor 76.
Stað? efstu liða:
Barcelona.........24 14 8 2 59:24 36
Real Madrid.......24 16 4 4 46:18 36
D Coruna..........24 15 6 3 44:17 36
Valencia..........24 11 8 5 35:20 30
Engiand
ÚRV ALSDEILD:
Coventry - Sheff. Wed..............1:0
Gynn (44.). 13.206.
■Þetta var fyrsti tapleikur Sheff. Wed.,
eftir að liðið hafði leikið sautján leiki án
taps.
Everton - Blackburn................2:1
Hendry (59. - sjálfsm.), Cottee (71.) - May
(42.). 18.086.
■Tim Sharwood hjá Everton var rekinn
af leikvelli, eftir þras við línuvörð.
Norwich - Arsenal..................1:1
Fox (36.) - Wright (82.). 19.000.
■Bryan Gunn átti stórleik í marki Norwich.
Wright misnotaði vitaspymu fyrir Arsenal.
Paul Davies iék á ný með Arsenal, en hann
lék síðast fyrir einu ári.
Nott. For. - C. Palace.............1:1
Keane (24.) - Southgate (23.). 20.603.
■Brian Clough, framkvæmdastjóri Forest,
hljóp inn á völlinn til að mótmæla, en leik-
menn Palace léku mjög gróft.
1. DEILD:
Derby - Cambridge..................0:0
KNATTSPYRNA
Leiknir í undanúrslit
Fylki hefur verið gert að skila verðlaunum, sem fylgja Reykjavíkur-
meistaratitlinum í knattspyrnu innanhúss, og KRR hefur ákveð-
ið nýjan undanúrslitaleik í Laugardalshöll fímmtudaginn 11. mars
kl. 21 og úrslitaleik f kjölfarið. Lið Fylkis var dæmt ólöglegt í mót-
inu og leikur því Leiknir í undanúrslitum við KR, en sigurvegarinn
mætir Fram í úrslitum.
L