Morgunblaðið - 07.03.1993, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ
MENNINGARSTRAUMAR
SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993
DÆGURTONUST
Hvab er Ilmvatnajökullf
HUÓMSVEIT ÁRSIIMS
Á SÍÐASTA ári kepptust bandarískar útgáfur við að fá
á samning allar rokksveitir Seattleborgar, í þeirri von
að festa hendur á hinni nýju Nirvana. Það sást þeim yfir
að vaxtarbroddurinn er annars staðar, eins og sannast á
plötu Los Angeles-sveitarinnar Rage Against the Machine.
Rage Against the Mach-
ine er sprottin úr sama
jarðvegi og Red Hot Chili
Peppers og leikur funkskotna
tónlist líkt og sú, en þar lýk-
ur líka samlíkingunni, því
hinir síðamefndu leika popp-
tónlist á meðan Rage leikur
raprokkfönk af miklum krafti
og íþrótt. Reyndar hafa
Rage-félagar gefið frat í Chili
Peppers hvenær sem tæki-
færi hefur gefist, til að sýna
fram á þeir séu engir tagl-
hnýtingar.
Plata Rage Against the
Machine, sem ber nafn sveit-
arinnar, er hæglega með
bestu plötum sem komið hafa
út síðustu mánuði, þar sem
saman fer samfelld nýsköpun
úr rappi, þungarokki og fönki
og grimmpólitískir textar.
Stígandinn í vinsældum sveit-
arinnar undanfarið, ekki síst
hér á landi, bendir og til þess
að hún eigi eftir að ná meiri
hylli en flest það sem nú er
hampað, þó seint muni hún
njóta almennra vinsælda. Til
þess er tónlistin of ágeng.
Engir taglhnýtingar Rage Against the Machine - kandídat-
ar í hlutverk hljómsveitar ársins.
FÓLK
MÞÓTT ótrúlegt megi
virðast hefur hafnfirska
hljómsveitin Ham nú náð
fímm ára aldri. Til að fagna
þeim tímamótum hyggjast
Hamar halda afmælistón-
leika næstkomandi miðviku-
dagskvöld, og leita því að
nógu stóru húsnæði.
Framlína Dinosaur Jr.
Paul og Laura komu
hingað til land í
stutta heimsókn sumarið
1986. Þau bjuggu þá í San
Francisco og höfðu verið
í bréfaskriftum við Gunnar
Hjálm-
arsson,
sem bauð
þeim að
troða upp
á tónleik-
um
eftir Áma kæmu
Matthíosson Þau til ls-
lands. I
stuttu spjalli, þar sem
kemur fram að þau tala
bæði ágæta íslensku, segj-
ast þau hafa orðið svo
spennt við tilhugsunina að
vera að fara til íslands að
þau seldu allt lauslegt og
ákváðu að fara í tveggja
mánaða skemmtiferð í
stað viku sem var upphaf-
leg áætlun. Eftir kynni af
landi og þjóð ákváðu þau
að snúa aftur og þá til
ársdvalar til að læra ís-
lensku. Síðan eru tæp
fimm ár, því eftir árið
bættist ár til viðbótar og
svo annað ár, og annað.
Aðspurð hve lengi þau
ætli að vera enn líta þau
hvort á annað og svo svar-
ar Laura: „Að minnsta
kosti ár í viðbót," og bæði
skeila uppúr.
Eins og áður sagði
komu Paul og Laura hing-
Efnfalt popp Paul og Laura.
að til lands meðal annars
til að leika á tónleikum og
hafa leikið á þó nokkrum
síðan, nú síðast með ný-
bylgjunni í íslensku rokki
í MS fyrir stuttu. Ytra
fengust þau einnig við tón-
list og tónleikahald, en
gáfu ekki öt þar. Þar var
líka trommari með þeim,
en hér á landi leika þau á
öll hljóðfæri, nokkuð sem
þau kunna vel, því það
gefi þeim aukið frelsi og
svigrúm. Tónlistinni lýsa
þau sem „einföldu poppi“;
„hún er byggð á rokki og
poppi og á því margt skylt
við hvort tveggja, kannski
mínus tuttugu rásir eða
svo,“ segir Laura og hlær.
Nafngiftina á spólunni
nýju, Ilmvatnajökli, segja
þau ætlaða til að undir-
strika að tónlistin sé ætluð
íslendingum, ekki síður en
öðrum, en þau segjast vera
farin að semja Iög á ís-
lensku. „Við erum á ís-
landi og erum farin að
skrifa á íslensku, þó vitan-
lega semjum við enn líka
á ensku.“
Þó Paul og Laura séu
útlendingar á íslandi, fer
því fjarri að þau séu tón-
Morgunblaðið/Þprkell
listarútlendingar, því fjöl-
margar hljómsveitir sem
nú eru að líta dagsins Ijós
eru á svipuðu tónlistarróli.
Þannig segja þau að þeim
hafí liðið vel í samneyti
við íslenska tónlistarmenn
frá fyrstu tíð. Laura bætir
því þó við eftir nokkra
umhugsun að henni hafí
komið á óvart hve fáar
stúlkur fengjust við rokk-
ið, en það væri greinilega
að breytast, sem væri vel.
Ilmvatnajökull fæst í
Hljómalind í Austurstræti
og Plötubúðinni á Lauga-
vegi.
Paul
ogLrnra
PAUL OG LAURA er nafn sem sést hefur öðru
hvoru í tónleikaauglýsingum síðustu ár og þeir
sem farið hafa á tónleika til að berja þau augum
hafa séð hvað þau leitast við að teygja á landamær-
um hins mögulega með aðstoð grúa hljóðfæra og
hugmynda. Fyrir stuttu sendu þau Paul og Laura
frá sér spóluna Ilmvatnajökul, sína þriðju spólu,
sem ekki hefur farið nógu hátt.
Umdeildur Ice-T.
RAPP-
BANIM
ÞAÐ þótti saga til næsta
bæjar þegar rapparinn
hugljúfi lce-T var settur
út af sakramentinu hjá
Warner-útgáfunni. Þegar
grannt er skoðað má þó
segja að ótrúlegust sé bið-
lund Warner.
Ice-T var á allra vörum
fyrir plötu sveitar sinnar
Body Count, þar sem hvatt
var til að hart yrði látið
mæta hörðu í samskiptum
litra og lögreglunnar. Því
kunnu laganna verðir illa
og fengu lið ýmissa hrein-
lyndra í að herja á Wamer-
samsteypuna. I orði sögðust
Wamer-menn styðja Ice-T
og málfrelsi hans, en beittu
rapparann smávaxna mikl-
um þrýstingi á laun. Þegar
svo Ice-T hafði lokið við
nýjustu plötu sína og búið
var að senda kynningarein-
tök til ýmissa blaða, sauð
uppúr þegar í ljós kom að
hann hjó þar í sama kné-
runn. Ice-T var því sparkað,
og fær fyrir fúlgur, en nú
keppast önnur fýrirtæki um
að bjóða í kappann.
GÍTARNÝROKK
ÞÓ BETUR ári fyrir rokkið í Bandaríkj-
unum en oft áður gengur nýrokksveitum
erfiðlega að feta i fótspor Nirvana og
höndla frægðina. Því hafa fjölmargar
sveitir reynt að koma til móts við áheyr-
endur; að fægja tónlistina eilítið til að
særa ekki eyru væntanlegra plötukaup-
enda, án þess þó að glata frumleikanum.
Dinosaur Jr. hefur verið alllengi að og
sent frá sér þrjár breiðskífur. Fyrstu
skífumar þóttu hálf stefnulausar, en á fjórðu
plötunni smal! allt saman og fyrir stuttu kom
út fimmta plata sveitarinnar, Where You
Been?, sem stígur lengra í átt að almanna-
hylli. Leiðtogi Dionosaur Jr. er gítarleikari
sveitarinnar og söngvari Joseph Mascis.
Hann er sérdeilis lipur gítarleikari og eftir-
minnilegur söngvari, þó ekki sé hann radd-
mikill. I yrkisefni þykir hann draga dám af
Neil Young og tónlistin þykir ekki langt frá
því hráasta sem Young hefur verið að gera
með Crazy Horse. Ekki má þó skilja þetta
sem svo að á ferð sé hermisveit, því Dino-
saur Jr. er kyrfílega í framlínu nýrokksins
í Bandaríkjunum og popppressan víða um
heim hefur keppst við að lofa plötuna svo
mjög að gefur tilefni til að ætla að hún verði
áberandi á uppgjörslistum í árslok.
ELVIS OG JÚLÍA
ELVIS Costello bindur ekki bagga sína sömu hnútum
og samferðamennirnir, en þó kastaði átján yfir þegar
hann sendi frá sér plötuna The Juliet Letters fyrir
skemmstu og hann gerði með strengjakvartett. Cost-
ello lætur sé þó fátt um undrun almennings finnast
líkt og jafnan áður.
Strengjapopp Elvis Costello og Brodsky
kvartettinn.
Elvis Costello kom fram
á sjónarsviðið í Bret-
landi i síðpönkinu og vakti
mikla hrifningu fyrir liprar
lagasmíðar og textagerð.
Síðan hefur ferill hans verið
sveiflukenndur og plötur
selst misjafnlega. Með tím-
anum hefur það ekki leynt
sér að hann er tekinn að
þreytast á takmörkunum
poppformsins og líklega er
platan nýja, sem heitir The
Juliet Letters, eins konar
úthlaup úr popprammanum,
þó Costello hafi lýst því í
viðtölum að væntanlega
verði næsta plata gerð með
miklu rafmagni og öskrum.
Hugmyndina að The Juli-
et Letters segir Costello
hafa vaknað þegar hann las
um mann sem hefur atvinnu
að svara bréfum sem berast
til Júlíu Kapúlett, og alkunn
er af sorgarspili Shakespe-
ares, „því engum raunir
auðnan þyngri bjó / en ungri
Júlíu og Rómeó“. Costello
einsetti sér að
skrifa lög sem
byggðust á
ímynduðum
bréfum til Júlíu
og fékk til sam-
starfs Brodsky
strengjakvart-
ettinn, sem
hann hafði dáð
úr fjarlægð all-
lengi. The Juli-
et Letters er
óvanalegt inn-
legg í sögu Elvis Costellos,
en í Ijósi hennar ætti það
ekki að koma svo ýkja á
óvart.