Morgunblaðið - 07.03.1993, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. MARZ 1993
16 B
Alhóhólismi og Qölskyldulíff
HETJUR
eftir Súsönnu Svovorsdóttur
í öllum harmleikjum er hetja og alkóhólískur fjölskylduleikur
er þar engin undantekning. Ef hetjan er ekki á sviðinu með
alkóhólistanum og maka hans, sem leikur hlutverk þess
meðvirka, í upphafí leiksins, er nokkuð öruggt að ekki líður
á löngu áður en hón gengur inn á sviðið. Þar sem fíknisjúk-
dómur er til staðar í hefðbundinni ijölskyldugerð (tveir for-
eldrar og bömin þeirra), er það venjulega elsti sonur eða
dóttir, sem leikur hlutverk hetjunnar. Af öllum barnahlutverk-
um í fjölskyldu alkóhólistans, er hlutverk hetjunnar það hlut-
verk sem ákvarðast helst af systkinaröðinni.
Hetjan er hjálpsöm á heimili
og nýtur velgengni utan
þess. Hún færir fjölskyldunni von
og stolt, sem jafnvel veikustu
fjölskyldur upplifa öðru hverju.
Við það fær fjölskyldan þá til-
fínningu að hún sé einhvers virði,
þótt allt annað bregðist. Hetjan
virðist spjara sig, vera svo heil-
brigð og neyslan á heimilinu virð-
ist engin áhrif hafa á hana.
En ekki er allt sem sýnist.
Hjálpsemin og velgengnin eru
blekking. Á bak við þá blekkingu
er manneskja sem líður bölvan-
lega. Það er virkileg kaldhæðni
örlaganna, að einmitt velgengnin
gerir það að verkum að hetjan
er oftast sá fjölskyldumeðlimur
sem erfíðast er að ná til í með-
ferð. Hún er læst inni í kerfí þar
sem alkóhólistinn hefur ekki
stjóm á neyslu sinni, meðvirki
einstaklingurinn hefur ekki
stjóm á viðbrögðum sínum við
alkóhólistanum og hvomgt þeirra
hefur stjóm á viðbrögðum sínum
við hetjunni; þau bregðast annað-
hvort of mikið við baminu sfnu
eða of lítið, vegna þess að þau
eru svo upptekin af vandamáli
sfnu. Vandamálin og erfiðleik-
amir verða hetjunni hvatning til
að gera hlutina „kórrétt", til að
reyna að koma einhveiju jafn-
vægi á, streða til að bæta fyrir
veikleika sína og leita leiða til
að setja plástra á fjölskyldusárin
til að græða sín eigin. Þessum
vonlausa draumi helgar hetjan líf
sitt.
Hetjum gengur venjulega
mjög vel í skóla. Þær virðast
metnaðargjamar og duglegar,
harðar af sér og með gott vald
á tilfinningum sínum. Oft eru
þær góðir íþróttamenn, gengur
vel í félagsstarfi og virðast hafa
mjög mikla leiðtoga- og stjómun-
arhæfíleika. Eftir því sem
ástandið í fjölskyldunni versnar,
verður hlutverk hetjunnar, innan
hennar, mikilvægara. Foreldr-
amir geta bent á hetjuna og sagt:
„Ef eitthvað væri að þessu heim-
ili, þá gæti baminu ekki gengið
svona vel.“ Hetjan verður sönnun
þess að ekkert er að í þessari
fjölskyldu. Og þar sem henni
gengur svo vel, þrátt fyrir vanda-
mál drykkjusýkinnar og án af-
skipta foreldranna, fær hetjan
stöðugt minni athygli eftir því
sem sjúkdómurinn þróast. Það
er ekki óalgengt að hún lendi þá
í þeim vítahring að leggja enn
harðar að sér, vegna þess að sigr-
amir þurfa sífellt að verða stærri
til að hetjan fái einhveija at-
hygli, hvað þá hrós, frá foreldr-
unum. Hetjur ná yfírleitt lygileg-
um árangri í því sem þær taka
sér fyrir hendur — en því miður
eru margar hliðar á því. Ein
skuggahliðin sem hefur verið að
koma í ljós á seinustu árum í
velgengni hetjunnar er „vel-
gengni í rnegrun". Sú velgengni
leiðir þá til sjúkdóma eins og
anórexíu og búlimíu — en það
gerist auðvitað þegar hetjan hef-
ur verið í svo hörðu kapphlaupi
við það vonlausa verkefni að
uppfylla væntingar og kröfur
sem henni fínnst gerðar til sín,
að hún kiknar undan álaginu og
dettur ekki neitt annað í hug en
að ná árangri í að eyða sjálfri
sér. Henni fínnst hún hvort eð
er svo misheppnuð, að of mikið
sé af henni í veröldinni og best
sé að láta sig hverfa, í bókstaf-
legri merkingu þess orðs.
En lítum á forsendur hetjunnar
sem ekki velur sér þessa líkam-
legu sjálfseyðingarleið: Markmið
hennar með velgengni er aldrei
að uppfylla sínar eigin þarfír eða
metnað, heldur er það að bæta
upp það lélega sjálfsmat sem þjá-
ir foreldrar hennar, sem einstakl-
inga, og reyndar alla fjölskyld-
una. Forsenda hæfni hennar í
hveiju sem hún tekur sér fyrir
hendur, er grundvölluð á þessum
þætti. En því miður er skorturinn
á heilbrigðu sjálfsmati í fjölskyld-
um alkóhólista svo mikill, að það
er sama hversu vel hetjunni
gengur — það er aldrei nóg. Þess-
vegna verður lokatakmark henn-
ar — sem hún verður að ná til
að fínnast hún einhvers virði —
að eilífu utan seilingar. Hetjan
berst samt áfram, vegna þess að
hún þarf stöðugt að vera að ná
árangri og er í eiiífu kapphlaupi
við sjálfa sig. Þar sem „árangur“
er metinn umfram aðra þætti í
lífínu, einskorðar hetjan sig við
þann þátt í sjálfri sér, sem henni
sýnist færa einhveija umbun.
Veikleikar hennar verða veikari
á meðan styrkur hennar á ein-
hveiju einu sviði lífsins vex.
Einn daginn verður hetjan
fullorðin og yfirgefur sína alkó-
hólísku fíölskyldu, en hún geng-
ur ekki út úr hlutverki sínu. Hún
heldur áfram að streða fyrir vel-
gengni og fjarlægum markmið-
um.
En hvað liggur á bak við grím-
una?
Það sem keyrir hetjuna áfram
er sú tilfinning sem hún hefur
fyrir sjálfri sér (frá bamæsku)
sem vanhæfri og hún hefur sekt-
arkennd. Þótt allir sem þekkja
þetta bam, fínnist það allt annað
en vanhæft, veit það sjálft bet-
ur. Það veit að þótt það geti
gert ýmislegt sem er í lagi, hefur
því aldrei tekist að koma fjöl-
skyldunni í lag; hetjan hefur
ekki getað grætt sárin sem
blæða í fíölskyldunni. Vegna
þessarar vanhæfni hefur hetjan
sektarkennd. Jafnvel velgengni
hennar eykur á þá sektarkennd;
hún fær sektarkennd fyrir að
taka á móti jafnvel minnstu við-
urkenningu og umbun á meðan
foreldranum líður svona hörmu-
legar
Ef hæfíleikar hetjunnar liggja
á vitsmunalega sviðinu, ræktar
hún þá hæfileika í gríð og erg,
nær þar góðum árangri — á
kostnað líkamlega sviðsins. Eftir
því sem hún nær meiri árangri
í námi og vinnunni sem fylgir,
hrömar líkamlegt ástand að
sama skapi. Hún vanrækir lík-
amann. Þessu er öfugt farið með
þær hetjur sem hafa hæfíleika á
líkamlega sviðinu. Hetjan ein-
beitir sér að einum hæfíleika sem
hún ofþroskar. Heijan getur not-
ið aðdáunar og vinsælda vegna
hæfileika sinna meðal skólafé-
laga og átt marga vini. Samt er
hún einmana. Hveijir sem hæfi-
leikar hennar era, er hæfnin til
að eiga einlægt samband við aðra
manneskju ekki einn af þeim.
Hetjan hefur ekki, frekar en aðr-
ir fjölskyldumeðlimir, Iært að
tengjast öðrum með opnum huga
og af trausti. í skóla og félags-
lífí hefur hún verið svo upptekin
af því að ná árangri, að hún hef-
ur ekki haft tíma eða áhuga á
því að byggja upp djúpa vináttu.
Velgengni hennar gerir hana of-
urgagnrýna á aðra; enginn upp-
fyllir þær kröfur sem hetjan ger-
ir til þeirrar manneskju sem hún
mundi velja sér að vini — auk
þess sem hetjan hefur þá vissu
að hættulegt sé að bindast ann-
arri manneskju of náið. Hún hef-
ur lært vantraust. Hún hefur svo
mikið að fela. Ef einhver kemst
of nálægt hetjunni, gæti sá ein-
staklingur komist að vanda-
málunum heima fyrir; séð að
heimur hetjunnar er ekki full-
kominn. Það sem verra er, góður
vinur gæti séð hetjuna missa
stjóm á bældum tilfínningum sín-
um — sem getur gerst hvenær
sem er. Hún verður því alltaf að
vera á verði.
Á þessum grandvelli velur
hetjan sér maka. Og þar sem
hetjan verður alltaf að líta 'vel
út, er ekki óalgengt að hún velji
sér maka sem ekki getur borið
ábyrgð á sjálfum sér. Hún nýtur
þess mjög að aðrir sjái hvað hún
stendur sig vel, við vonlausar
aðstæður. Hún ber höfuð og herð-
ar yfír maka sinn. Hún er hinn
trausti grandvöllur fjölskyldunn-
ar. Allir sjá hvað hún er dugleg,
góð, hjálpsöm og skilningsrík.
Hetjan lítur svo vel út í saman-
burði við maka sinn og upplifír
sig stóra og sterka. Hún reddar
öllu. Hetjur velja sér oft alkóhól-
ista, eða einstaklinga sem era á
einhvem hátt vanhæfír, þegar
kemur að hjónabandi; einhvem
sem er jafn vanhæfur til að
mynda náið tilfinningasamband
og hún sjálf — og vítahringurinn
endurtekur sig í næstu kynsióð.
Aðalfundur
Tennisfélags Kópavogs
verður haldinn mánudaginn 15. mars kl. 21.00
í Kópavogsskóla.
Dagskrá: Almenn aðalfundarstörf.
*
AUGLÝSING FRÁ
HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGAMÁLA-
RÁÐUNEYTINU
Löggildingarnámskeið
fyrir fótaaðgerðarfræðinga
Dagana 22. til 30. mars nk. gengst heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið fyrir
löggildingarnámskeiði fyrir fótaaðgerðar-
fræðinga samkvæmt reglugerð
nr. 184/1991.
Löggildingarnámskeiðið verður haldið í
Ármúlaskóla og innritun fer frarn dagana
8. til 11. mars nk.
Námskeiðsgjald er kr. 12.000,-.
Námskeiðinu lýkur með prófi.
Úrskurður siðanefndar Blaðamannafélags íslands
Alvarlegt brot Stöðvar
2 í frétt um myndlykla
ÓLAFUR E. Jóhannsson, fréttamaður á Stöð 2, braut gegn ákvæð-
um 3. og 4. greinar Siðareglna Blaðamannafélags íslands í umfjöll-
un um breytingar á myndlyklum Stöðvar 2 fimmtudaginn 3. sept-
ember 1992 að áliti siðanefndar Blaðamannafélagsins. Samkvæmt
úrskurði nefndarinnar er brotið alvarlegt.
Málavextir era raktir á þann
veg í nýútkomnu hefti Blaða-
mannsins að 3. september 1992
hafí fréttatími sjónvarpsstöðvar-
innar hafíst á þeirri frásögn að
íslenska útvarpsfélagið hefði kært
nokkra aðila til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins fyrir „stórfelldan
þjófnað á efni Stöðvar 2“ með
ólöglegum breytingum á mynd-
lyklum.
Síðan hafi verið brugðið upp
mynd af Radíóverkstæði Santosar
á Hverfisgötu. Ólafur hafí sést
ganga inn á verkstæðið og kalla
eigandann, Reyni Zarsuela Sant-
os, fram í afgreiðsluna. Hann hafi
fengið Reyni til að staðfesta hver
hann væri og hafið viðtal við hann
með því að spyija hann hvað hann
hefði fjölfaldað marga þjófalykla.
Síðar var Santos spurður hvemig
hann hygðist bregðast við kær-
unni, hvort hann væri hættur að
búa til ólöglega myndlykla og
hversu marga ólöglega lykla annar
nafngreindur maður hefði fjölfald-
að.
4. grein
Siðanefndin telur að Ólafur hafi
gerst brotlegur við siðareglur
Blaðamannafélagsins að tvennu
leyti.
„I fyrra lagi brigslar hann Reyni
Zarsuela Santos tvívegis í viðtal-
inu um ólöglegt athæfí og kallar
hina breyttu myndlykla einu sinni
„þjófalykla" þó svo að ólögmæti
athafna Reynis sé enn til athugun-
ar hjá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins. Þar við bætist að mynd Reyn-
is á skjánum var merkt nafni hans
og titlinum „þjófalyklaframleið-
andi,“ segir í niðurstöðu siða-
nefndar.
Hún bendir á að þetta stangist
á við niðurlag 4. greinar siðareglna
þar sem segir að í frásögnum af
dóms- og refsimálum skuli blaða-
menn virða þá meginreglu laga
að hver maður sé talinn saklaus
þar til sekt hans hafi verið sönnuð.
3. grein
í síðara lagi tekur nefndin fram
að Santos sé illa mæltur á ís-
lensku. „Það virðist vera sjálfsögð
kurteisi fréttamanna við þá sem
eiga erfítt um mál — hvort sem
það er af kunnáttuleysi, málhelti
eða af öðrum ástæðum — að ganga
úr skugga um, áður en viðtöl við
þá era birt, hvort þeir séu fúsir
til að tala í útvarpi eða sjónvarpi
þrátt fyrir skavanka sína,“ segir
ennfremur í niðurstöðum nefndar-
innar og bætt við að Ólafur hafí
ekki gefíð Santosi kost á að biðj-
ast undan sjónvarpsviðtali. „Við
þetta bætist að þegar viðtalið hef-
ur farið fram er þó nokkur ástæða
til að ætla að Reyni hafí ekki ver-
ið fullkomlega ljóst hvað honum
og fréttamanni fór á rnilli."
Þama er talið að brotið sé gegn
3. grein þar sem segir að blaða-
maður vandi upplýsingaöflun sína
svo sem kostur sé og sýni fyllstu
tillitssemi í vandasömum málum.
Hann forðist allt, sem valdið geti
saklausu fólki, eða fólki sem eigi
um sárt að binda, óþarfa sársauka
eða vanvirðu.
ST. PETERSBURG BEACH
Einstaklings og 2ja herb. íbúðir m/eldhúsi, sundlaug, nólægt strönd.
Verð fró 225$ á viku á sumrin, 400$ á veturna.
LAMARA MOTEL APTS. TEL. 813/360-7521 FAX. 399-1578