Morgunblaðið - 23.03.1993, Page 12
■■■■■■■■■■MMHnMMMMMnHBHBHHHHnnHHgMHWMaWMaHIMnHHMBaaMMgMMMMMgBHnHIIIIIHMMilllMMIIIIHH
a ss^//s;&>*„/.mBHmmimi ttamm—HmHHHHHbHísI3S88I HaggaSSH
tofBR
JH(S>íC!0iMttí»Itó>Í!íi
SKIÐI / HEIMSBIKARINN I ALPAGREINUM
Sókndjarfi víking-
urinn á sigurbraut
Kjetil Andre
Aamodt hefur
verið sigur-
sæll í vetur og
hefur fengið
viðurnefnið
„Sókndjarfi
víkingurinn“.
KNATTSPYRNA / U-21 LANDSLEIKUR
Strákamir stóðu
sig allir vel
- sagði Ásgeir Elíasson eftir 1:1 jafntefli gegn Skotum
ÓLYMPÍU- og heimsmeistarinn
Kjetil Andre Aamodt frá Noregi
fann sig vel í ólympíubrekkunni
í Kvitfjell, sem er 50 km frá
Lillehammer, og sigraði í risa-
svigi á sunnudaginn og tryggði
sér jafnfram risasvigstitilinn.
Franz Heinzer varð brunkóng-
ur heimsbikarsins þriðja árið í
röð.
Aamodt, skærasta stjarna Norð-
manna í alpagreinunum í vetur,
sagði eftir sigurinn í risasviginu að
hann hefði gert fjölmörg mistök í
efri hluta brautarinnar sem var ísi-
lögð en þrátt fyrir það var hann 0,20
sekúndum á undan Daniel Mahrer frá
Sviss. Dietmar Thöni frá Austurríki,
sem hafði rásnúmer 50, kom mjög á
óvart með að ná þriðja sæti en Svíinn
Patrik Jaerbyn varð fjórði. Aamodt,
sem gengur undir nafninu „Sókn-
djarfí víkingurinn" á enn möguleika
á að komast upp fyrir Marc Girar-
delli í heildarstigakeppninni þegar
fímm mót eru eftir. Girardelli var
ekki á meðal 20 efstu á sunnudaginn.
Heinzer heldur bruntitlinum
Armin Assinger frá Austurríki
náði besta tímanum í ólympíubrun-
brautinni í Kvitfjell á laugardag.
Svisslendingurinn Franz Heinzer
varð tíundi og það nægði honum til
að vinna heimsbikarinn í bruni þriðja
árið í röð þó svo að eitt brunmót sé
eftir — í Áre í Svíþjóð.
Assinger, sem er 28 ára og sigraði
einnig í bruni sem fram fór í Sierra
Nevada á Spáni í síðustu viku, var
aðeins 8/100 hlutum úr sek. á undan
Wemer Perathoner frá Ítalíu og
Hannes Trinkl frá Austurríki varð
þriðji. „Það var mikilvægt fyrir mig
að vinna hér í ólympíubrautinni,"
sagði sigurvegarinn. „Ég kann vel
við mig í ísilögðum brautum."
„Það eina jákvæða við þetta brun
hér er að ég vann bruntitilinn, sem
var markmiðið," sagði Heinzer. „Ég
hefði kosið að vera á meðal þriggja
efstu í þessari keppiii. Brautin var
mjög hörð og erfíð og ég gerði nokk-
ur mistök og það er dýrt í svona jafnri
keppni.“ Heinzer hefur 527 stig í
bruninu og Norðmaðurinn Atle
Skárdal, sem varð níundi á laugar-
dag, er næstur með 427 stig. Þó svo
að Skárdal myndi vinna síðasta brun-
ið og jafna stigin við Heinzer hefur
Svisslendingurinn náð betri árangri
því hann hefur unnið þijú brunmót í
vetur en Skárdal aðeins eitt.
Seizinger vann loks stórsvig
Þýska stúlkan Katja Seizinger
sigraði í stórsvigi í Klovskjo í Svíþjóð
á laugardaginn og var þetta jafn-
framt fyrsti sigur hennar í stórsvigi
heimsbikarsins. Hún hefur verið sig-
ursæl í bruni og risasvigi í vetur og
hefur reyndar þegar tryggt sér brun-
titilinn. Heidi Zeller varð önnur og
Carole Merle þriðja og tók við það
efsta sætið í stórsvigskeppninni af
Anitu Wachter.
■ Úrslit / B11
ISLENDINGAR og Skotar gerðu
1:1 jafntefli íæfingalandsleik í
Kilmarnock í Skotlandi í gær.
Heimamenn skorðu á síðustu
sekúndum fyrri hálfleiks, en
Þórður Guðjónsson jaf naði 10
mínútum fyrir leikslok.
Asgeir Elíasson, landsliðsþjálf-
ari, var ánægður með leikinn
og liðið. „Við spiluðum á móti
strekkingsvindi í fýrri hálfleik og
ef eitthvað var vorum við þá betri.
Hins vegar duttum við út í fyrri
hluta seinni hálfleiks og náðum
ekki tökum á leiknum. Skotamir
sóttu þá meira án þess samt að
skapa sér færi, við komumst aftur
inní spilið og vantaði ekki mikið
uppá að við næðum sigri.“
Ásgeir sagði að mark Skotanna
hefði verið klaufalegt. „Við misst-
um boltann í öftustu línu, þeir kom-
ust í gegn og skoruðu auðveldlega,
þegar 20 sekúndur voru til hálf-
leiks. Þetta var ágætt hjá þeim, en
ástæðulaust hjá okkur.“
Hins vegar var hann ánægðari
með jöfnunarmarkið. „Það var mjög
gott og vel að því staðið. Við unnum
boltann, komum honum fljótt fram
á Arnar [Gunnlaugsson], sem plat-
aði bakvörðinn go lagði á Þórð
[Guðjónsson], sem skoraði af stuttu
færi.“
Ásgeir sagði að liðið hefði spilað
vel sem heild. „Strákarnir stóðu sig
allir vel og þetta eru viðunandi úr-
slit gegn Skotum á útivelli." Liðið
æfir ytra fyrir hádegi í dag, en
kemur heim í kvöld. Næsta verk-
efni er Evrópuleikur við Lúxemborg
á útivelli 19. maí.
Lið íslands: Ólafur Pétursson (Friðrik
Þorsteinsson 46.); Lárus Orri Signrðsson
(Sturlaugur Haraldsson 65.), Óskar Þor-
valdsson, Ólafur Þórðarson; Steinar Guð-
geirsson, Ágúst Gylfason, Finnur Kolbeins-
son (Kristinn Lárusson 46.), Kristófer Sig-
urgeirsson (Hákon Sverrisson 75.), Ásgeir
Ásgeirsson (Pétur Marteinsson 46.); Arnar
Gunnlaugsson, Þórður Guðjónsson.
SKIÐI / SÆNSKA MEISTARAMOTIÐ
Daníel í öðru sæti
Daníel Jakobsson, göngumaðurinn ungi frá ísafirði, varð í Öðru sæti í 30
km göngu með frjálsri aðferð af 100 keppendumj flokki 19-20 ára
á sænska meistaramótinu sem fram fór um helgina. í 10 km göngu með
hefðbundinni aðferð varð hann sjötti en náði síðan besta tímanum í 4x10
km boðgöngu, en þar tók hann síðasta sprett fyrir Ásama sem höfðnuðu í
sjötta sæti.
Daníel gekk 30 km á 1:24.40 klst., en nýkrýndur heimsmeistari unglinga,
Matthias Fredriksson, sigraði á 1:23.40 klst. Daniel Gidionson varð þriðji,
en hann varð annar á HM unglinga. „Ég er mjög ánægður með þessa göngu,
en svekktur yfír að hafa ekki gengið svona vel á HM unglinga í Tékkneska
lýðveldinu fyrir hálfum mánuði, en þá gekk allt á afturfótunum og ég veit
ekki af hveiju. Kannski hafa væntingamar þar verið full miklar," sagði
Daníel, sem varð í 37. sæti í 30 km og 42. sæti í 10 km göngunni á HM.
toéffiw
FOLK
■ MICHAEL Jordan gerði 11 af
25 stigum sínum í fjórða leikhluta
í sigurleik Chicago gegn Washing-
ton, 104:99 á föstudagskvöld.
■■■■■■ Scottie Pippen
Fá gerði 20 stig. Wash-
Gunnari ington hefur ekki
Valgeirssyni unnið í Chicago í
i Bandaríkjunum fjmm £r. LaBrad-
ford Smith gerði 37 stig fyrir
Washington.
■ DOMINIQUE Wilkins fór á
kostum er Atlanta vann Minnesota
121:103 og gerði 46 stig og var
það í sjötta sinn á tímabilinu sem
hann fer yfir 40 stig í leik.
■ BOSTON Celtics náði að vinna
upp 19 stiga forskot Los Angeles
Lakers og sigra 119:129 í Los
Angeles á föstudagskvöld. Boston
gerði 49 stig gegn 25 í fjórða og
síðasta leikhluta og hefur Lakers ;
aldrei áður fengð svo mörg stig á
sig í einum leikhluta. Reggie Lew-
is var með 24 stig og Kevin
Gamble 23 fyrir Boston.
■ DALLAS vann fyrsta útileikinn
í NBA-deildinni á tímabilinu er liðið
vann í Philadelphiu 87:98 á föstu-
dagskvöldið. Terry Davis var [
stigahæstur í liði Dallas með 24 [
stig.
■ PHOENIX vann stórsigur á
Detroit Pistons 127:97 og vann
þar með 28. heimaleikinn á tímabil-
inu. Danny Ainge var með 23 stig
og Charles Barkley 22 stig og tók
16 fráköst fyrir Phoenix, sem hef-
ur náð besta árangri allra liða í
deildinni. Joe Dumars var bestur
í liði gestanna með 31 stig.
■ RICKY Pierce gerði 28 stig
er lið hans Seattle SuperSonics
vann Utah Jazz 97:108 á útivelli.
Sam Perkins var atkvæðamestur
heimamanna með 17 stig og 10
fráköst.
■ PORTLAND vann Houston
106:98 þar sem framlengingu þurfti
til að knýja fram úrslit. Staðan var
94:94 eftir venjulegan leiktíma.
I DAVID Robinson var stiga-
hæstur í liði San Antonio með 30
stig og tók sjö fráköst í 96:93 sigri
gegn Orlando Magic, sem hafði
lengst af forystu í leiknum, en
stjarna liðsins, Shaquille O’Neal,
var rekinn út af um miðjan fjórða
leikhluta og það þoldi Orlando-liðið
ekki.
■ NICK Anderson gerði 32 stig
fyrir Orlando Magic í 114:108 sigri
yfir Denver Nuggets á laugardag.
Reggie Williams gerði 24 stig fyr-
ir Denver, sem tapaði fimmta
leiknum í röð.
■ JORDAN var í miklum ham
gegn Washington Bullets er liðin
mættust öðru sinni á laugardaginn
og gerði 47 stig í 126:101 sigri í
Washington á laugardag þrátt fyr-
ir að hafa setið á varamannabekkn-
um í fjórða leikhluta. Buck John-
son var stigahæstur heimamanna
með 21 stig.
■ REGGIE Miller skoraði níu síð-
ustu stig Indiana, sem vann Pho-
enix í æsispennandi leik, 109:108,
á sunnudaginn. Phoenix tapaði sín-
um fjórða leik af 32 heimaleikjum
í vetur.
■ PATRICK Ewing skoraði 30
stig fyrir New York og tók tólf
fráköst, þegar liðið lagði San An-
tonio Spurs heima, 115:96. New
York Knicks hefur unnið þrettán
leiki í röð og níu heimaleiki í röð.
■ ÞETTA var 629. sigurleikurinn
sem Pat Riley, þjálfari New York
og fyrrum þjálfari LA Lakers, hef-
ur stjórnað liði sínu í. Hann er kom-
inn í ellefta sæti á lista yfir sigur-
sæla þjálfara - í sögu NBA.
■ LA Lakers tapaði sínum fjórða
heimaleik í röð, þegar Detroit Pist-
ons kom í heimsókn, 101:106.